Morgunblaðið - 21.02.1968, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 1968
BILA
m
IV1AGNÚSAR
skipholti21 síma*21190
I eftir lokun s’imi 40381
Hverfisgötu 103.
Sími eftir lokun 31160.
LITLA
BÍLALEIGAN
Ingólfsstræti 11.
Hagstætt Ieigugjald
Simi 14970
Eftir lokun 14970 eða 81748
Sigurður Jónsson.
BÍLALEIGAN
- VAKUR -
Sundlaugavegi 12. Simi 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
LPÆtLWŒUf
RAUOARARSTIG 31 SÍMI 22022
Nýr sími
23-222
SENDIBÍLAR H.F.
Einholti 6.
AU-ÐVITAÐ
ALLTAF
Hvað er hægt að gera
hreindýrunum til
hjálpar?
Rvk. 16. febr. 1968.
Kæri Velvakandi!
Oft hefi ég ráðgert að skrifa
þér um hitt og þetta, en aldrei
orðið af. Nú get ég ekki orða
bundizt. Hugsanir um hrein-
dýrin á Austurl. ásækja mig
stöðugt — síðan ég las fréttina
á öftustu síðu Morgunblaðs-
ins í morgun, þar sem segir að
hreindýrin séu orðin svo illa
haldin að þau geti ekki „var-
ist hröfnum“, þ. e. að hrafn-
amir séu farnir a'ð rífa þau í
sig lifandi! Ekki tjáir þó að
bölva hrafninum, hann er skap
aður sem rándýr og hrædýr og
sjálfsagt á hann ekki sjö dag-
ana sæla núna!
Eftir því sem ég bezt veit
eru hreindýr friðuð og má þar
af leiðandi enginn stytta dýri
aldur, hversu illa sem það er
á sig komið. Er þetta mannúð?
Er ekki því þjóðfélagi sem
friðar þesi dýr — skylt að gera
þeim eitthvað til bjargar í
svona harðindum, svo þau séu
ekki étin lifandi af öðrum
bjargarlausum dýrum.
Sendi hér með ávísun að upp
hæð kr. 500.00 sem byrjun á
söfnun til bjargar þessum
fallegu viltu dýrum. Því miður
veit ég ekki hvernig á að verja
þessum peningum , og öðrum
sem kynnu að berast, en þar
til kemur , álit mér fróðari
manna um lifnaðarhætti hrein-
dýra.
Með innilegii kveðju,
Valgerður.
Geymir ávísunina
Velvakandi veit ekki hvað
helzt mætti gera hreindýrunum
til bjargar. Að sögn eftirlits-
manns mun gagnslaust að gefa
þeim og erfitt mun trúlega
reynast að koma þeim til þeirra
haga, sem þau frekast mættu
hafa not af.
En Velvakandi bíður átekta,
ef eitthvað skyldi verða aðhafzt
hreindýrunum til bjargar og
geymir ávísun Valgerðar um
stund. Verði ekkert aðhafzt
fær Valgerður ávísun sína end-
ursenda með vorinu.
Báru hita og þunga
dagsins
Högni Torfason á Isa-
firði skrifar:
Kæri Velvakandi!
Má ég biðja þig vinsamleg-
ast að ljá nokkrum línum rúm
í dálkum þínum.
í útvarpsþættinum „Daglegt
líf“ 10. febr. sl. var rætt við
allmargt fólk í Reykjavík um
hin hörmulegu sjóslys, sem
urðu í þeirri viku hér á Vest-
fjörðum. Var komið víða við
og því lýst gjörla hversu mjög
hefði mætt á þessu fólki í sam-
bandi við þessa atburði. Dreg
ég ekki í efa að það sé rétt, og
umrætt fólk sé allt góðra
gjalda vert.
Engu að síður eru margir
þeirrar skoð’unar hér vestra, að
þarna hafi illilega verið skotið
yfir markið. Hita og þunga
dagsins í björgunar- og leitar-
starfi báru ekki Reykvíkingar,
heldur hinn mikli fjöldi fórn-
fúsra manna, félagsbundnir og
sem einstaklingar, sem ávallt
eru reiðubúnir að leggja sig
alla fram þegar slíkar hörmung
ar sem þessar dynja yfir.
Hefði Ríkisútvarpið vilja
bregða uppi raunsannri mynd
af þessu björgunarstarfi, hefði
það sent menn vestur til þess
að ræða við það fólk, sem bar
hita og þunga dagsins á sjó og
landi, að viðmælendum stjórn-
anda þáttarins algjörlega ólöst-
uðum.
I lokin: Vafajaust hefur það
verið af vangá, en þótt getið
væri ýmissa aðila vestra, sem
unnu mikið og óeigingjamt
starf að vanda, lá'ðist að minna
á Hjálparsveit skáta á Isafirði,
en sú vaska sveit vann ósleiti-
lega að björgunar- og leitar-
starfi í góðri samvinnu við
SVFÍ-deildimar, og ekki skað-
ar að geta þess, að skipbrots-
mennirnir af Notts County
hlutu gistingu og aðhlynningu
í Skátaheimilinum á ísafirði,
því að ekki var rúm fyrir þá á
gistihúsinu.
Með þakklæti fyrir birting-
una.'
Atvimmrekendur
Ungur maður vanur framkvæmdastjórn óskar eftir
góðri framtíðaratvinnu.
Tilboð merkt: „Framtíð — 2972“ óskast sent blað-
inu fyrir 1. marz.
Aðalfundur
Bindindisfélags ökumanna, Reykjavíkurdeildar
verður haldinn 29. febrúar í Tjarnarbúð, kl. 20.30.
STJÓRNIN.
UTAVER
Högni Torfason.
Enskunámskeið i Englandi
Enskunámskeið á vegum Scanbrit í sumar verða
einungis 6 og 4 vikur vegna gjaldeyrissparnaðar.
Fiogið verður með þotu F. f. báðar leiðir undir
umsjá leiðsögumanns. Mjög hagstætt verð.
Allar upplýsingar gefur Sölvi Eysteinsson, Kvist-
haga 3, Reykjavík.
GRENSÁSVEGI2Z - 24
SiMAR: 30280-322GZ
Plastino kork extra
með kork undirlagi.
Nýtt gólf undraefni.
Gott verð
Félagsfundur
verður haldinn í Alþýðuhúsinu við Hverf-
isgötu, fimmtudaginn 22. febrúar 1968,
kl. 8.30 e.h.
DAGSKRÁ:
1. Verðlagsuppbót á kaup.
2. Atvinnuástandið.
3. Önnur mál.
Mætið vel og stundvíslega.
Stjórn Iðju, félags verksmiðjufólks
í Reykjavík.
LITAVER
Barrystaines
linoleum parket gólfflísar.
Stærðir 10 cm x 90 cm.
23 cm x 23 cm.
Gott verð
BLADBURDARFOLK
OSKAST
í eftirtalin hverfi
Laufásvegur II. Túngata
Talið við afgreiðsluna í sima 10100