Morgunblaðið - 21.02.1968, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 1968
19
100 dagar til H-dags:
Umferðarfræðsla nær til
50 þús. skólanemenda
Skipulögð umferðarfræðsla í
skólum um land allt.
Nú er hafin lang umfangs-
mesta umferðarfræðsla í skólum
landsins, sem nokkru sinni hefur
verið efnt til. Mun umferðar-
fræðslan ná til 40—50 þúsund
skólanemenda á einn eða annan
hátt. Fræðslan stendur yfir frá
1. febrúar tii 25. apríl og einn-
ig dagana 24., 25. og 27. mai
í vor.
Markmiðið með þessari miklu
umferðarfræðslu er að tryggja
íslenzku æskufólki eigi minna
umefrðaröryggi eftir umferðar-
•breytingana 26. maí, en það
hafði fyrir hana.
Að fræðslunni standa fræðslu
málastjórnin og Framkvæmda,"
nefnd hægri umferðar, í náinni
samvinnu við löggæzluyfirvöld
ýmissa staða, eða þá aðila, sem
haft hatfa með höndum umtferð-
arfræðslu áðux.
Skipulagning starfsins.
Að tilhlutan Framkvæmda-
nefndar hægri umferðar var 20.
nóv. s.l. skipuð samstarfsnefnd
til að skipuleggja þessa fræðslu
og er hún skipuð þessum mönn-
um:
Stefán Ól. Jónsson, námsstjóri,
formaður, Stefán Kristjánsson, í-
þróttafulltrúi Reykjavíkurborg-
ar, Jón Oddgeir Jónsson, full-
trúi, Ásmundur Matthíasson, lög
regluvarðstjóri, Guðmundur Þor
steinsson, kennari, skólafulltrúi
H—nefndar.
Nefndin hefur skipulagt
fræðslustarfið í skólunum og lát
ið útbúa fræðsluefni. Er fræðslu
starfinu skipt í áfanga og nem-
endum skipt í flokka eftir aldri
og þroska sem hér segir:
Fræðsluáfangar:
Fræðsluáfangar:
1. áfangi 25. nórv. — 20. dies.
1967.
2. áfangi 1. feb. — 15. marz
1968
3. áíangi 15. marz — 25. apríl
1968
4. áfangi 24. maí — 27. maí
1968
Fl'okkun skólanem-enda.
1. Baímaskólar 7—9 ára aldiur.
2. Barnaskólar 10-12 ára aldur.
3. Gagnfræðastig og húsmæðra
Skólar.
4. Framihalds- og sérskólar.
f fyrsta fræðsluáfanga fór
fram kynning á fræðslustarfinu
í vetur, en í öðrum og þriðja
áfanga eru kennd öll megin at-
riði umferðarlaganna og reglur,
er snerta bæði gangandi, ak-
andi og hjólandi vegfarendur.
Miðast kennslan við aldur og
þroska nemenda, og fræðsluefn-
ið valið í samræmi við það.
Bein kennsla er veitt öllum
nemendum í barna— og fram-
haldsskólum þeim, sem eldri nem
endur sækja, verða flutt erindi
um umtferðarmáil og dreitft
fræðsluefni til nemenda og þeir
kvattir til að kynna sér um-
ferðarlög og reglur.
FræðsluefnW.
Mikil vinna hefur verið lögð
í að útbúa fræðsluéfni handa
nemendum og sérstakar leiðbein
ingar fylgja til kennara um það,
hvernig skuli farið með fræðslu
efnið.
Skólaútvarp.
Beinar útsendingar til skól-
anna verða í gegnum Ríkisút-
varpið nú á næstunni. 26. febrú
ar verður skólaútvarp fyrir 7
—9 ára börn kl. 10.45 — 11.00
og endurtekið kl. 14.00. Daginn
eftir 27. febrúar verður á sama
tíma þáttur fyrir 10—12 ára
börn, og síðan 1. . marz fyrir
nemendur gagnfræðaskóla og
aðra skóla. í þessum þáttum verð
ur tekið til meðferðar efni, sem
skólarnir hafa fengið áður. Er
það gert til þess að leggja aukna
áherzlu á mikilvægustu atrið-
in. Guðbjartur Gunnarsson kenn
ari annast þessa þætti í útvarp-
inu.
Aftur verður skólaútvarp dag
ana 2., 3. og 4. apríl með sama
fyrirkomulagi. Þá er gert ráð
fyrir skólaútvarpi 24., 25. og 27.
maí í vor, en frá því hefur ekki
verið gengið enn.
Fræðslufundir með kennurum.
Til þess að tryggja betur að
kennslan fari vel úr hendi, er
þegar búið að halda fundi með
fulltrúum barna— og gagnfræða
skóla í Reykjavík og nágrenni,
og verður þessum fundum hald-
ið áfram á næstunni. Á fundum
þessum er kennurunum leiðbeint
með fræðsluefnið.
Heimsóknir í skóla úti á landi.
Erindrekar Framkvæmda-
nefndarinnar heimsækja skólana
á ferðum sínum um landið, og
er þannig ráðgert að heimsækja
alla skóla landsins.
I Reykjavík vinnur nú hópur
lögreglumanna að umferðar-
fræðslu í skólum. Því starfi
stjórnar Ásmundur Matthíasson
lögregluvarðst j óri.
Umferðaræfingar.
Einn þáttur umferðarfræðsl-
unnar eru verklegar umferðar-
æfingar í þriðja og fjórða á-
fanga. Verið er að skipuleggja
þær núna, en þær munu fara
Skólabörn læra umferðarreglur.
fram í íþróttasölum skólanna að
nokkru leyti, a.m.k., eða þá á
leikvangi skólans. Munu íþrótta
kennarar skólanna annast þær
að mestu leyti. Hver bekkjar-
deild í barna— og gagnfræða-
skólum mun fá tvær kennslu-
stundir í umferðaræfingum. Þá
er og gert ráð fyrir því sums-
staðar, að lögreglumenn taki að
sér ákveðnar umferðaræfingar
úti.
Ritgerðarsamkeppni í fram-
haldsskólum.
Efnt verður til ritgerðarsam-
keppni um umferðarmál í nokkr-
um framhaldsskólum landsins og
mun skólunum berast erindi um
það næstu daga.
Verða veittar a.m.k. 10 viður-
kenningar fyrir beztu ritgerðirn
Tafir á fræðsluefni.
Vegna skorts á pappír, sem
tafði prentun, og óvenjuerfiðra
samgangna, mun fræðsluefni
ekki ná til skólanna á þeim tíma,
sem áætlað var, og veldur það
einhverjum óþægindum.
Mikilvægi fræðslustarfs kenn
ara.
Kennurum hefur verið falið
mjög mikilvægt fræðslustarf í
sambandi við umferðarbreyting-
una. Þvi veltur á miklu, að
það starf sé vel af hendi leyst,
eins og allt uppeldis— og
fræðslustarf, sem þeir inna af
hendi. Miklu hefur verið til kost
að, í sambandi við þessa stór-
auknu fræðslu í umferðarmálum,
en það er líka vonast til að
starfið beri ríkulegan ávöxt.
ÚTSALA
'TKamneso&qi Q.
4
LESBÓK BARNANNA
Kæri póstuiT,
Ég ætla að segja þér
frá árekstrinum, sem ég
sá einu sinnd mjög greini
lega. Ég var að slást við
tvo stráka, og við vorurn
allir á hjólum. Stirákarn-
ir börðu mig og börðu.
Kom þá þar að fólksbíll,
maðurinn stanzaði og
ætlaði út, en þá kom
Willýsjeppi og ók aftarf
á fólksbílinn og svo ann-
ar fólksfoíll, sem ók aft-
an á jeppann — og þeir
fóru allir í klessu.
Svona var nú árekst-
urinn, sem ég sá.
Vertu blessaður og
sæll,
Sigurður Valur Sig-
urðsson, 9. ára-
SMÆLKI
Mióðirin: Dæmalaus
pörupiltur getur þú ver-
ið, Villi. Nú ertu búinn
að týna. úr þér tveim
tönnum enn í áflogunum.
Villi: Óned, mamma, ég
er ekki búinn að týna
þeim, því ég er með þær
hérna í vasanum.
—.0 —
Magga: Eg vii ekki
láta þvo mér í framan í
dag, amma.
Amma: Jú, það er sjálf
sagt að gera það. Ég hefi
alltatf þvegið mér í fram
an þrisvar á dag síðan
ég var smástelpa eins
og þú.
Magga: Já„ einmitt.
Þess vegna ertu orðin
svona hrukkótt í andlit-
inu, amimia.
— 0 —
Kennarinn (sköllótt-
ur): Jæja börnin mín,
Hvert ykkar getur út-
skýrt fyrir mér orðið
„ekkert“?
Eitt barnið: Ekkert er
það sem kennarinn hefur
á höfðinu.
B\Kna
? 'A R.A
NE SKAi/ p
STA-ÐUíl
A
0
0
Og loks sendir Blma, I okkur þessa skemmtilegu
7 ára, frá Neskaupstað I mynd:
12. árg. Ritstjóri: Kristján J. Gunnarsson 21. fébr- 1968.
HANS HEIMSKI
EINU siinni var piltur,
sem hét Hans. Allt sem
hann gerði var hlægi-
legt og vitlaust, þess
vegna var hann kallaður
Hans heimski.
Bómdi nokkur réð hann
í vilst til sín, á meðan
hann og kona hans fóru
til borgarinnar.
Konan sagði við Hans:
„Þú verður að gæta
barnanna vel og gefa
þeim að borða“.
„Hvað á ég að gefa
þeim' að borða?“
„Blandaðu hveiti sam-
an við vatn, fáðu þér
nokkrar kartöfiur, sem
þú skalt brytja ndður;
9Íðan sýðurðu allt sam-
an og þá færðu fínustu
súpu“.
Og bóndinn sagði:
„Þú verður að gæta
hurðarinnar vel og sjá til
þess að börnin fari ekki
út og týnist í skóginum.
Og gættu þeirra nú vel,
annars skaltu eiga mig
á fæti“.
Þegar hjónin voru far-
in vakti Hans börnin,
dró þau fram úr rúminu,
setti'st niður fyrir fram-
an þau og sagði:
„Jæja þá krakkar, nú
er ég að gæta ykkar“.
(Hann hafði nefnilega
misskilið bóndann og hélf
að hann ætti a-lltaf að
hortfa á börnin).
Þegar börnin höfðu set
ið stundarkorn fóru
þau að kvarta um hung-
ur. Hans kom þá með
vatn-sfötu, hell'ti í hana
hálfum’ poka af hveiti,
fleygði karöflunum út í
og hrærði í m.eð skeið,
því næst sagði hann við
sjáltfan sig:
„Hvað var það nú aft-
ur sem ég á'tti að
brytja?“
Börnin heyrðu til hans
og urðu dauðfhrædd.
„Kannski að hann ætli
að brytja okkur?“ Og
þau hlupu út úr kotfan-
um.
Hann sá þau fara, klór
aði sér í hötfðinu og
sagði við sjálfan sig:
„Hvernig get ég núna
gætt þeirra? Og ég verð
að gæta hurðarinnar svo
að hún hlaupi ekki í
burtu“.