Morgunblaðið - 23.02.1968, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. FEBRUAR 19B8
7
Blessuð rjúpan hvíta
Spjallað við
Arnþór Garðarsson
dýrafrœðing um
vetrarháftu
rjúpunnar
— RJÚPAN er sjálfsagt
ekki feit um þessar mundir.
Hún lifir nú nær einvörð-
ung-u á sölnuðum birkigrein-
um og á raunar ekki annarra
kosta völ. Það er Arnþór
Garðarsson dýrafræðingur, er
þessi orð mælti, þegar við
hittum hann á förnum vegi
okkar í fyrradag uppi í Nátt-
úrufræðiistofnun við Hlemm-
torg. Tilefni þess var, að
laugardaginn 2. marz
flytur hann fyrirlestur í 1.
kennslustofu Háskólans á
vegum Fuglaverndunarfélags
Islands, og talar hann um
vetrarháttu rjúpunnar.
— Annars ætla ég að láta
myndimar mest tala á þess-
um fumdi. Ég mun sýna þar
um 100 rnyndir af rjúpu og
fleiru, sem ég hef sjálfur
tekið. Það eru allt litmynd-
ir. Rétt er það, að ég
hef fengist við rannsóknir
á lifnaðarháttuinr rjúpunn-
ar um alllanga hríð, og
mun ég í þessum fyrirlestri
einbeita mér að því að skýra
frá niðurstöðum mínum á
vetrarháttum hennar. Mest
hef ég verið við rannsóknir
í Norðurárdal í Borgarfirði
og á Holtavörðuiheiði, og auð
vitað hef ég orðið að skjóta
feiknin öll af rjúpu til þess
að geta kannað fæðu henn-
ar, en sarpur hennar og inni
hald hans, ber fæðuiöflun
hennar gleggst vitni.
— Svo að þú hefur fengið
jólarjúptma ódýrt í pottinn?,
skjótum við inn í.
— Víst svo, svarar Arnór,
en hins er að gæta, að ekki
er nú alltaf víst að maður
leggi sér horaða rjúpu til
munns.
— Segðu okkur frá þess-
um rannsóknum •'þínum ei-
lítið.
— Já, það ætti að vera
hægt. Ég hef verið að telja
ofan í hana bitana, blessaða.
Ég nota skeiðklukku við
verkið, og handmæli. því að
ég treysti ekki minni mánu
við þetta. Einbeiti ég mér
við eina rjúpu í senn, tel
hversu mörgum sinnum hún
ber niður, fær sér bita í gogg
inn á einni mínútu,
Þannig get ég gert mér
hugmyndir um, hversu mik
ið hún safnar í sarpinn á ein-
um sólarhring, Það er al-
kunna, að rjúpan fær sér
ekki í svanginn, nema þeg-
ar birta er. Hún virðist ekki
éta í ljósaskiptunum eða þeg
ar myrkur er skollið á. Ég
get sýnt þér hérna innilhald
úr sarpi rjúpna frá ýmsum
Arnþór Garðarsson dýrafræðingur situr þarna við hlið
tveggja rjúpna inni á Náttúrugripasafni í fyrradag. Sveinn
Þormióðsson tók myndina. Fyrir utan rjúpurnar tvær í sýn-
ingarskápnum má greina uglur og fálka og rebbi karlinn gæg-
ist fram með hægri öxl Arnþórs.
árstímum, og það er sann-
ast sagna mjög mismunandi,
eftir því, hvaða mánuður er.
Og Arnþór dregur fram
mörg umslög, og sýnir okk-
ur þar marga og misjafna
fæðu rjúpunnar.
— Og hvað er nú það, sem
rjúpan okkar leggur sér tiil
*
\
förnum
vegi
munns um vetrarmánuðina,
Arnþór?
— Og það er mjög miismun
andi, og raunar hægt að
rekja það eftir mánuðum.
Segja má, að fyrst á haustin
sé aðalfæða rjúpunnar gras-
víðir, eða smjörlaufið svo-
kallaða, allt fram í nóvem-
ber. Þá fyrst fer hún að
leggja sér til munns kræki-
lyng, því að það stendur upp
úr á þúfnakolluim, og ein-
mitt um þær mundir kem-
ur rjúpnalaufið alkunna til
skjalanna, einnig fjalldrap-
inn. Eftir það leitar rjúpan
í birkikjörrin, og byrjar þar
á reklunum.
— Er þá ekki rjúpan einn
bezti vinur skógræktar á ís
landi með því að dreifa birki
fræi um allar jarðir,? spyrj,-
um við í fáfræði okkar.
— Nei, ekki er það nú svo
vel, því að þetta eru ein-
göngu karlreklar, og eins og
allip vita „skal der to til“.
Og Arnþór hvolfir úr einu
umslaginu eintómum karl-
reklum.
— Það má heifa, að rjúpan
taki 60% af karlreklum á
landinu á þessum tímia. Og
þá kemur sá tími. sem nú er
yfirstandandi, að þarna í
byggðum Borgarfjarðar nær
ist hún nær eingöngu á birki
greinum, og hún á raunar
ekki annarra kosta völ um
þessar mundir.
Rjúpnalauf er frekar lítið
um í Norðurárdal, það er
miklu meira um það fyrir
norðan, í Skagafirði, Húna-
vatnissýshi og í Þingeyjar-
sýslu. Þar er mikið um
rjúpnalauf.
Þessi fyrirlestur minn verð
ur eiginlega ailmennt skraf
um rjúpuna, hvað hún gerir
á dagi'nn, og hivernig hegð-
un hennar er á næturnar.
—Einskonar Kinsey-
skýrsla?
— Það miá orða það svo, en
þetta er alveg „sexlaust"
fram í apríl.
— Hvernig ferðu að nálg-
ast þennan fallega hvíta
f'Ugl?
— Og ég fer mest á bíl,
þar sem ég kemst. Rjúpan
er spakur fugl, og eins og
aðrir fuglar, hræðist hún síð
ur bíl en mann, enda er þetta
á tiíðum kuldalegt starf að
elta rjúpu um hávetur, og
betra að vera inni í skjóli
bílsins.
— Og hvað er svo fram-
undan hjá þér, Arnþór?
— Ja, ég hef svo sem nóg
að gera, og um sinn einbeiti
ég mér að þessu verkefni.
Það bendir allt til, að rjúpna
stofninn fari nú ört fækk-
andi, hann sé nú í öldudal,
en auðvitað er bezt að full-
yrða sem minnst um þetta,
en það er sarnat augsýnileg
greinileg fækkun rjúpunnar,
sagði Arnþór Garðarsson
dýrafræðingur að lokum, um
leið og við kvöddum hann
og héldum á ný út í iðandi
umiferðina við Hlemmtorg.
— Fr S.
Á hverju lifir rjúpan á veturna?
FRÉTTIR
Föstuguðþjónusta
Elliheimilið Grund
Föstuguðþjónusta verður í
dag kl. 6,30 síðdegis. Einar
Sigurbjörnsson, stud. theol.
prédikar. Heimilispretur.
Kristileg samkoma
verður í samfcomusalnum
Mjóuihlíð 16 sunnudagkvöldið
2>5. febrúar kl. 8. Verið hjartan-
lega velkomin.
Boðun fagnaðarerindisihs
Almenn samkoma í Hörgs-
hlíð 12, sunnudag kl. 8.
Aðaldeild KFUK í Hafnarfirði
Fundur í fcvöld kl. 8,30. Katffi
og fleira. Ingunn Gísladóttir
kristniiboðd talar. Allt kven-
fólk velfcomið.
Fuglaverndunarfélag fslands
Fundinum, sem vera átti á
morgun, er frestað um viiku.
Verður hann haldinn laugardag
inn 2. marz kl. 4 í 1. kennslu-
stofu Háskólans. Þar flytur
fyrirlestur með skuggamyndum
Arnþór Garðarsson dýrafræð-
ingur um vetrarhætti rjúpunn-
ar.
Kristniboðsfélagið í Keflavík
heldur samkomu í Tjarnar-
lundi föstudaginn 23. febrúar
kl. 8,30. Allir hjartanlega vel-
fcomnir.
Frá Kristniboðsfélagi kvenna
Aðalfundurinn verður fimmtu
daginn 29. febrúar á venjuleg-
um stað og tíma. Stjórnin-
Fótaaðgerðir fyrir aldrað fólk
Krkjunefnd kvenna Dómkirkj
unnar veitir öldruðu fólki fcost
á fótaaðgerðum á hverjum
mánudegi kl. 9-12 í Kvenskáta-
heimilinu, Hallveigarstöðum,
gengið inn fná öldugötu. Síma-
pantanir í síma 14693.
Árshátíð Sjálfsbjargar, Reykja-
vík
verðuT í Tjarnarbúð 9. marz.
Rauði Kross íslands vill góð-
fúslega minna fólk á söfnun þá
er nú fet- fram til handa bág-
stöddum í Viet Nam. RKÍ.
sá NÆST bezti
James Whistler, aimeríski málarinn heimiskunni, sat eitt sinn
miðdegisveizlu, o>g beint á móti honum sat herramaður einn,
sem stöðugt talaði, og komst enginn annar að við borðið.
„Raunar, herra Whistler, gekk ég fram hjá heimili yðar í
gær“, sagði sá málglaði.
„Ég er yður mijög þafcklátur fyrir það“, svaraði Whistler.
Chevrolet ’57 2ja dyra, hardtop, 8 cyl. gólfskiptur til sölu eða í skiptum fyrir minni bíl. Uppl. á hjólb.verkst. Sigur jóns Gíslas., Laug. 171 í dag Ford-Zodiac ’58 til sölu. Nánari uppl. í síma 16394 eftir kl. 7 á kvöldin.
2ja—3ja herb. íbúð óskast Uppl. í síma 12748 milli kl. 5—7. Vinna óskast Kona óskar eftir eldhús- störfum, önnur hliðstæð störf koma til greina. — Uppl. í síma 22150.
Vélaeigendur Óska eftir að komast á skurðgröfu í sumar. Hef 20 ára reynslu. Uppl. í síma 83708 seimni part laugar- dags og sunnudags. Til leigu ný 4ra—5 herb. efri hæð í tvíbýlish. við Grænutungu í Fossv. Bílsk. getur fylgt. Laus strax. Uppl. í síma 16768 og eftir kl. 6 38287.
Til sölu sem ný Bendix þvottavél með þurrkara, algjörlega sjálfvirk, hagstætt verð. — Uppl. í síma 30989 frá kl. 12 til 7 í dag. Mislitt sængurveradamask, hvítt sængurv.damask, dúnléreft gæsadúnn, fiður, hálfdúnn. Þorsteinsbúð, Snorrabraut 61 og Keflavík
Innréttingasmíði Smíðum eldhúsinnréttingar svefnherbergisskápa og allt inn í íbúðina. Trésmíðaverk stæði Guðbjönrs Guðbergs sonar, sími 50418. Fagurrautt og fagurblátt american twill (Khaki) 67.65 kr. mtr. Röndótt nátt- fataflúnel kr. 43.50 mtr. Þorsteinsbúð, Snorrabraut 61 og Keflavík
Willy’s ’60 til ’63 óskast keyptur, verðtilboð miðað við staðgreiðslu, sendist afgr. Mbl. fyrir þriðjudag merkt: „5300“. Til leigu í Miðbænum 2 saml. stofur, ennfr. lagerpláss. Uppl. í sima 18400. Fasteignasalan, Laugavegi 65, kl. 3—5 e. m.
Matráðskoiia
óskast frá næstu mánaðamótum að mötuneyti
starfsfólks á Símstöðinni Brú í Hrútafirði.
Upplýsingar gefur símstjórinn á staðnum.
Uppboð
sem auglýst hefur verið í Lögbirtingablaði, til slita
á sameign á hluta í húseigninni nr. 12 við Snekkju-
vog, þingl. eign Páis Péturssonar og Ellerts Óskars-
sonar, fer fram eftir kröfu Guðjóns Steingríms-
sonar hrl., á eigninni sjálfri, í dag, föstudag 23.
febrúar 1968, kl. 2 síðdegis.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Uppboð
sem auglýst hefur verið í Lögbirtingablaði til slita
á sameign á lóðinni nr. 13 við Ránargötu, þingl.
eign Ewalds Berndsen o. fl. fer fram eftir kröfu
Kristjáns Eiríkssonar hrl., á eigninni sjálfri, í dag,
föstudag 23. febrúar 1968, kl. 3 síðdegis.