Morgunblaðið - 30.05.1968, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 1068.
23
Sjötíu ára tvíburaafmœli:
Herdís Guðmundsdóttir, Hufnur-
firði, Gunnur Guðmundsson, Hofi
I DAG eiga 70 ára afmæli tví-
fourasystkinin. Herdís Guðmunds
dóttir ljósmyndari Álfaskeiði 70
í Hafnarfirði og Gunnar Guð-
mundsson fyrrum bóndi á Hofi
á Dýrafirði, en nú búsettur á
Þingeyri.
Þau eru fædd á Skarði í
Lundarreykjadal í Borgarfirði 30.
maí 189® og voru foreldrar
þeirra Katrín. Gunnarsdóttir og
Guðmundur Einarsson síðar
bóndi og refaskytta á Brekku í
Önundarfirði.
Herdís og Gunnar eru því úr
hinum stóra barnahópi Guð-
mundar, sem átti alls 21 barn og
eru nú lð þeirra á lífi.
Herdís giftist ung að árum
Guðbjarti Á&geirssyni, er lengst
aevinnar var matsveinn á togur-
um og síðar nálega til hinztu
stundar matsveinn á Goðafossi.
Hann andaðist fyrir þremur ár-
um, skömmu áður en fimmtíu
ára hjúskaparafmæli þeirra
hefði orðið.
Guðbjartur var víðkunnur fyr-
ir ljósmyndir sínar úr atvinnu-
lífi íslendinga á fyrri h-elmingi
aldarinnar og einkum þó af tog-
veiðunum um langt árabil. Ó-
hætt er að fullyrða, að Herdís,
sem einnig er prýðilegur ljós-
myndairi, hafi einnig þarna lagt
manni sínum mikið og gott lið
og bæði hjónin þannig spunnið
ómetanlegan þátt í atvinnu og
menningarsögu okkar á merku
framfaratímabili. Þetta ljós-
myndasafn er nú komið í eigu
ríkisins.
Þau Herdís og Guðbjartur áttu
ellefu börn og eru nú 7 þeinra
á lífi.
Gunnar kvæntist Guðmundu
Jónsdóttur, Guðmundss. smiðs
frá Valþjófsdal í Önundarfirði.
Var Guðmunda á sinni tíð ein
yngsta brúður, er sagnir fóru af
þar vestra um þær mundir, því
hún var aðeins 16 ára, þegar
hún gekk í hjónabandið.
Þau hófu búskap á Hofi í
Dýrafirði og bjuggu þar óslitið,
þar til fyrir nokkrum árum, að
þau fluttust til Þingeyrar, þar
sem Gunnar er vélgæzlumaður
í frystihúsi. Þau :hjón eignuðust
9 börn og eru 8 á lífi.
Hér verður ekki sögð ævisaga
þessara tví'burasystkina, þótt hún
væri á margan hátt í frásögur
færandi. Það yrði hins vegar
®aga um dugandi manneskjur, er
við hlið maka sinna hafa unnið
langan og strangan vinnudag og
komið stórum og mannvænlegum
barnahópi á legg.
Það eitt er mikið búsílag fyrir
þjóðfélagið, því að allir sem til
þekkja, eru sammála um dugnað
og marga dýrmæta hæfileika
þeirra frændsystkina. Má þar
nefna, að öll bafa þau sérlega
hagax og listrænar bendur til
margvíslegra starfa. Enda munu
þau öll sækja það í báðar ættir
sínar. Herdís er mjög listhneigð
og hefur hið mesta yndi af
fallegri vinnu og ljósmyndir
Guðbjarts heitins bera lista-
mannsauga hans glöggt vitni.
Þá er Gunnar hinn mesti hag-
leiksmaður og völundur. Má í
því sambandi geta þess, að hann
smíðaði að öllu leyti spunavél,
sem notuð var um langt árabil
í sveitinni og þótti kjörgripur,
og í ætt Guðmundu, konu hans,
eru miklir snillingar og völund-
arsmiðir.
Þau tvífourasystkinin geta því
á þessum timamótum ævi sinnar
horft ánægð um öxl, þrátt fyrir
harða og stranga lífsbaráttu og
ýmsa skugga, sem fallið hafa á
veginn. Þau hafa sjálf verið öðr-
um til fyrirmyndar um dugnað
og mannkosti og skilið um leið
okkar litla þjóðfélagi góðum og
ósviknum arfi.
Því munu margrr, skyldir og
vandalausir, senda þeim hlýjar
kveðjur og þakkir í dag.
H.
í DAG er 70 ára frú Herdsí Guð-
mundsdóttir, Álfaskeiði 70 í
Hafnarfirði. Herdís er fædd að
Skarði í Lundarreykjadal, dótt-
ir Guðmundar Einarssonar og
Katrínar Gunnarsdóttur. Til
Hafnarfjarðar fluttist Herdís ár-
ið 1916 og hefur verið búsett
þar síðan.
Sama ár og Herdís fluttist til
Hafnarfjarðar giftist hún Guð-
bjarti Ásgeirssyni frá Isafirði.
Stofnuðu þau heimili að Lækj-
argötu 12B í Hafnarfirði og þar
áttu þau síðan heima í 50 ár.
Þau hjónin eignuðust 11 börn,
þar af dóu þrjú, Jón, Þórarinn
og Hallgerður í æsku, en eina
dóttur, Sveindísi, misstu þau er
hún var um tvítugt. Börnin sjö,
sem upp hafa komizt, er Guð-
munda, búsett í Hafnarfirði,
Katrín gift William Richard,
skipstjóra og eru þau búsett í
Bandaríkjunum, Magnús, mat-
sveinn í Hafnarfirði kvæntur
Höllu Guðmundsdóttur, Gu'ðný,
gift Jóni Björnssyni, rafvirkja í
Hafnarfirði, Ásgeir matsveinn í
Hafnarfirði, kvæntur Guð-
mundu Guðbjörnsdóttur, Sól-
veig gift Guðmundi Guðmunds-
syni, trésmið í Hafnarfirði og
Sveinn Þ. Guðbjartsson, útvarps
virki í Hafnarfirði, kvæntur
Svanhildi Ingvarsdóttur. Þá ólu
þau upp tvö fósturbörn.
Ævistarf Guðbjartar var alla
tíð á sjónum. Hann hafði í upp-
hafi lært prentiðn vestur á Isa-
firði hjá Magnúsi Ólafssyni. En
strax upp úr tvítugu fór hann
til sjós, og var síðan stöðugt
matsveinn, ýmist á togurum eða
flutningaskipum, unz hann var
kominn á áttræðisaldur. Guð-
bjartur lézt 17. okt. 1965.
Það var hlutverk Herdísar að
stýra fjölmennu heimili. Það
gerði hún af miklum myndar-
skap. Oft var Guðbjartur lang-
dvölum fjarverandi á sjónum.
Þá varð Herdís, eins og títt er
um sjómannskonur, að annast
daglega forsjá heimilisins, jafnt
störf húsfoónda, sem húsmóður-
innar. Oft hefur verið annríkt
og um margt að hugsa, en með
dugnaði og forsjálni unnust
verkin, heimilið var móta'ð af
rausn og myndarskap og börn-
unum, sem lifðu, komið til
manns.
Þau hjónin voru mjög sam-
hent og áttu sér ýmis sameigin-
leg hugðarefni. Snemma hófu
þau að taka Ijósmyndir. Sjálf-
sagt fyrst sem tómstundargam-
an, en með árunum varð ljós-
myndunin sífellt stærri þáttur í
lífi þeirra beggja, og nú liggur
eftir þau stórt og mjög merki-
legt ljósmyndasafn. Safn þetta
er mjög þýðingarmikið fyrir
Hafnarfjörð. Það sýnir atvinnu-
og byggðaþróun Hafnarfjarðar í
50 ár. Þá eru og myndir þær,
sem þau hafa tekið af störfum
sjómanna á hafi úti, af íslenzk-
um fiskiskipum og vinnslu fisk-
afurða í landi, einstakar í sinni
röð og sýna þróun íslenzks sjáv-
arútvegs í hálfa öld. Margsinn-
is sendu þau hjónin myndir sín-
ar á sýningar áhugaljósmyndara
og hlutu myndir þeirra oft sér-
staka vfðurkenningu. Hafa þau
með ljósmyndatöku sinni unnið
hið merkasta starf, og enn í dag
er Herdís sífellt á þönum með
myndavélina sína og sístarfandi
að ljósmyndagerð.
Herdís er að skaphöfn glaðleg
og hjartahlý. Hún er trygglynd
og vinaföst með afbrigðum, sem
bezt má sjá af því, að snemma
í hennar búskap kom á heimili
hennar nærri blind kona, Guð-
finna Sigurðardóttir frá Deild á
Álftanesi. Þau Herdís og Guð-
bjartur tóku Guðfinnu að sér og
var hún sfðan á heimili þeirra
yfir 40 ár, eða þar til hún lézt
fyrir fáeinum árum.
Herdís er félagslynd og hefur
starfað í ýmsum félögum. Hún
hefur átt sæti í stjórn Sjálfstæð-
iskvennafélagsins Vorboðans í
Hafnarfriði um áratuga skeið og
starfað mikið innan slysavarna-
deildarinnar Hraunprýði í Hafn-
arfirði.
Ég vil að lokum flytja Her-
dísi mínar beztu árnaðaróskir á
70 ára afmælinu. Þeir verða
áreiðanlega margir, sem minn-
ast Herdísar í dag, á þessum
merku tímamótum ævi hennar.
Árni Grétar Finnsson.
GUNNAR Guðmundsson frá Hofi
er sjötugur í dag. Gunnar fædd-
ist að Skarði í Lundareykjardal
í Borgarfirði 30. maí 1898, For-
eldrar voru þau Katrín Gunnars-
dóttir og Guðmundur Einarsson
refaskytta og bóndf Brekku á
Ingjaldssandi og víðar. Gunnar
er tvíburi og er foinn tvífourinn
frú Herdís Guðmundsdóttir ljós-
myndari í Hafnarfirði. Gunnar
ólst upp í Borgarfirði og var
meðal annars hjá séra Arnóri
á Hesti og sat Gunnar þar hjá
ánum á sumrin eins og siður var
í þá daga. Gunnar fluttist úr
Borgarfirði suður í Njarðvíkur
og stundaði þar sjóróðra um
þriggja ára skeið. Á þessu sést
að Gunnar hefur byrjað snemma
að vinna fyrir sér og hefur feng-
izt við margt um dagana síðan
Og hefur honum fleygt niður á
margt enda hagleiksmaður góð-
ur. Féfckst hann í fjölda ár við
aktygja. og hnakkasmíði í hjá-
verkum, með búskapnum og var
slíkt ómetanlegt í afskekktum
stöðum, ennfremur smíðaði Gunn
ar nokkrar spunavélar og hafði
spunavél á heimili sínu um
mörg ár og nutu margir góðs af.
Gunnar kvæntist árið 1921
Guðmundu Jónsdóttur bónda á
Kirkjubóli í Vaiþjófsdal og konu
hans Marzifoilar Kristjánsdóttur.
Guðmunda liefur reynzt Gunn-
ari hin bezta kona. Þau stofnuðu
heimili á Kirkjubóli og voru þar
í tvö ár.
Árið 1923 fluttust þau að Hofi
í Dýrafirði og bjuggu þar í tæp
35 ár. Skömmu eftir að þau hjón
fluttu að Hofi fór Gunnar á nám-
skeið til að læra meðferð drátt-
aævéla, og var hann við jarð-
vinnslu bæði vor og haust, og
hefur þá hlutur Guðmundu ekki
verið lítill með hóp af börnum,
en við þessi störf fékkst Gunnar
aUt fram til 1942, en þá hætti
foann ræktunarstörfum á veg-
um Búnaðarfélagsins. Búskapur
þeirra hjóna á Hofi var um
margt á undan öðrum, en Gunn-
ar fékk hér fyrstur manna hey-
skaparvélar svo sem rakstrar-
vél, sláttuvél og múgavél, enn
fremur setti hann upp fyrstu
súgþurrkun hér í hreppi. Þá
fékk hann fyrstur jeppabifreið
og segir það sína sögu að maður
inn hefur viljað fram á leið
í hverju máli.
Á Hofi byggðu þau hjón öll
hús óg stórbættu jörðina á allan
hátt. Lengst af allan sinn búskap
ráku þau hjón fcúabú og voru
þau með stórt kúabú á okkair
vísu hér 1 firði hin síðari ár og
fór Gunnar með mjólkina til
Þingeyrar, en þær ferðir voru
oft á tíðum erfiðar bæði vegna
vegleysis, og svo voru þá engin
tæki til að moka snjó af vegum
eins og nú. Árið 1957 hættu þau
hjón búskap og fluttu til Þing-
eyrar, en þar hefur Gunnar
stundað ýmis störf. Á vorin hef-
ur hann fengizt allmikið við
hrognkelsaveiðar.
Gunnar hefur alla tíð verið
áhugamaður í félagsmálum bæði
í ungmennafélagi og öðrum fé-
lögum, meðal annars í stjórn
Búnaðarfélags Þingeyrarhrepps í
mörg ár. Þau Gunnar og Guð-
munda eignuðust níu börn, en
eitt þeirra dó í æsku, en hin eru
öll uppkomin og myndarfólk.
Eru synirnir allir hagleiksmenn
svo að af ber, til allra starfa.
Börn þeinra eru Jón bóndi á
Þverá á Snæfellsnesi, Gunnar
bifvélavirki, Reykjavík; Guð-
munda frú í Reykjavík, Aðal-
steinn vélsmiður Þingeyri, Björg-
vin bifvélavirki í Reykjavík,
Marzifoil búsett á Þingeyri,
Katrín frú, Kristján vélsmiður
einnig á Þingeyri. Afkomendur
þeirra hjóna munu vera orðnir
um fjörutíu talsins.
Einn er sá þáttur sem Gunnar
hefur fengizt við hin síðari ár, en
það er ljósmyndun og eru mynd-
ir hans með ágætum góðar.
Ég vil svo að lofcum flytja
þeim hjónum báðum beztu þakk-
ir fyrir ágætt samstarf alla tíð
og óska þeim GuðSblessunar um
ókomin ár.
Þórður Jónsson.
ATVINNA
Húsgagnaverzlun óskar eftir laghentum karlmanni
til starfa hálfan eða allan daginn.
Umsóknir óskast sendar í pósthólf nr. 1238.
Auglýsing nm breyttan stofutíma
Sumarmánuðina júní til og með september verður
stofutími minn kl. 10 — 11.30 f. hád. alla daga
nema fimmtudaga, en þá er stofutíminn kl. 17.00
— 18.30. Símatími er 1 klst. fyrir stofutíma.
Engin móttaka er á laugardögum í sumar.
JÓN R. ÁRNASON, læknir.
Námskeið í notkun rafreikna
Ráðgert er að halda FORTRAN námskeið á næst-
unni. Miðað er við, að þátttakendur hafi stundað
háskólanám í verkfræði, náttúruvísindum, hagfræði
eða viðskiptafræði.
Væntanlegir þátttakendur hringi í síma 21347 kl. 14
til 17 fyrir 5. júní n.k.
Reiknistofnun Háskólans.
LAUGARDAGSLOKUN
Frá og með 1. júní n.k. verða
heildsöluafgreiðslur og skrifstofur
okkar lokaðar á laugardögum sumarmánuðina. Við biðjum við-
skiptavini okkar vinsamlegast að liaga pöntunum sínum sam-
ræmi við þetta. Verzlanir okkar verða opnar eins og venjulega.
SÖLUDEILD S. S.
Skúlagata 20.
VORUMIÐSTÖÐ
Grensásvegur 14.
SLÁTURFÉLAG SUÐURLANDS