Morgunblaðið - 20.06.1968, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 1908
Boðun kirkjunnar á tækniöld
er aðalmál prestastefnunnar
— Kirkjan hefur aldrei haft eins
rýrar fastatekjur frá því á 11. öld
PRESTASTEFNAN hófst í gær
morgun. Var hún sett í safnaðar-
sal Neskirkju um morguninn að
undangenginni messu í Dóm
kirkjunni. Síðan flutti herra
Sigurbjörn Einarsson, biskup,
ávarp og yfirlit um starf kirkj-
unnar á síðastliðnu ári. Þá voru
flutt framsöguerindi um aðalmál
stefnunnar, „Boðun kirkjunnar
á tækniöld“, og höfðu Emil
Björnsson og Bernharður Guð-
mundsson framsögu. Síðan var
skipað í umræðuhópa, og Hólm-
fríður Pétursdóttir, skólastjóri,
flutti erindi um húsmæðraskóla
kirkjunnar að Löngumýri.
Prestastefnunni verður framhald
ið í dag og á morgun.
í yfirlitsræðu sinni um starf
kirkjunnar á síðasta synodusári
gat biskup íslands, herra Sigur-
bjöm Einarsson, breytinga á
prestaskipun landsins.
Þrír prestar hafa látið af störf
um fyrir aldurs sakir, séra Þor-
steinn B. Gíslason, prófastur í
Steinnesi, séra Sigurjón Þ.
Árnason ,annar prestur í Hall-
grímsprestakalli og séra Benja-
mín Kristjánsson, prófastur á
Laugalandi.
Þrír prestar fengu lausn frá
embætti að eigin ósk, sr. Krist-
ján Búason, Ólafsfirði, sem er
við framhaldsnám, sr. Árni Sig-
urðsson, Neskaupstað, sem hefur
kennt við Menntaskólann á Ak-
ureyri í vetur og hefur nú sótt
um Þingeyrarklausturspresta-
kall, og sr. Ásgeir Ingibergsson
sagði lausu starfi sínu sem ráð-
inn prestur meðal fslendinga á
svæði Keflavíkurflugvallar og
hefur gerzt prestur í Kanada. Þá
sagði Einar Einarsson djákni
lausu starfi sínu sem djákni
Grímseyinga, er hann fluttist
þaðan.
Tveir ungir menn tóku prests-
vígslu á árinu, Halldór Gunnars-
son, sem settur er prestur í Holti
undir Eyjafjöllum, og Kolbeinn
Þorleifsson, sem skipaður er
prestur á Eskifirði. Þá útskrifuð-
ust tveir guðfræðingar frá Há-
skóla íslands, Brynjólfur Gísla-
son og Tómas Sveinsson.
Aðrar breytingar á embættis-
þjónustu eru sem hér segir:
Sr. Marínó Kristinsson, Vall-
arnesi, var skipaður sóknarprest
ur í Sauðanessprestakalli, N,-
Þing., frá 1. júlí 1967.
Sr. Sigurvin Elíasson, settur
prestur á Raufarhöfn, var skip-
aður sóknarprestur í Skinna-
staðarprestakalli, N.-Þing., frá 1.
júlí 1967.
Sr. Ingólfur Ástmarsson, bisk-
upsritari, var skipaður sóknar-
prestur í Mosfellsprestakalli,
Árn., frá 1. ágúst.
Frá sama tíma var sr. Erlend-
ur Sigmundsson, fyrrv. prófast-
ur .skipaður biskupsritari.
Sr. Ragnar Fjalar Lárusson,
Siglufirði, var skipaður annar
sóknarprestur í Hallgrímspresta-
kalli í Reykjavík frá 1. janúar
1968.
Sr. Bjartmar Kristjánsson,
Mælifelli, var skipaður sóknar-
prestur í Laugalandsprestakalli,
Eyj., frá 1. júní 1968.
Sr. Kristján Róbertsson, síðast
prestur í Glenboro, Kanada, var
skipaður sóknarprestur á Siglu-
firði frá 1. júní 1968.
Sr. Óskar Finnbogason var
skipaður sóknarprestur í Bíldu-
dalsprestakalli frá 1. júní 1968.
Sr. Páll Þorleifsson, fyrrv.
prófastur, tók setningu til Norð-
fjarðar frá 1. nóv. 1967 og til
miðs þessa mánaðar.
Tveir prófastar hafa verið
settir ,sr. Stefán Snævarr í Eyja
fjarðarprófastsdæmi frá 1. okt.
1967, og sr. Pétur Ingjaldsson 1
Húnavantsprófastsdæmi frá 1.
nóv. 1967.
Þá hafa verið gerð.ar endur-
bætur á kirkjunni á Seyðisfirði
og Strandarkirkju.
Kirkjugerð er hafin á Egils-
stöðum og í Hveragerði. Enn-
fremur er verið að ljúka kirkju
byggingu í Stóra-Dal og í undir-
búningi er kirkjugerð í Njarð-
víkum.
í Reykjavík er Bústaðakirkja
Rússarnii unnu n Fiske-skdk-
mótinu — Friðrik þriðji
Cuðmundur náði tilskyldum árangri til
að hljóta alþjóðlega meistaratign
ÞEGAR Morgunblaðið fór í
prentun í gærkvöldi, voru úrslit
kunn í fimm skákum af sjö á
Fiske-skákmótinu. Vasjukoff og
Taimanoff höfðu gert jafntefli og
unnið mótið, þar sem Friðrik
hafði gert jafntefli við Szabo.
Guðmundur náði jafntefli við
Uhlmann, og þar með náð til-
skyldum árangri til að hljóta
alþjóðlegan meistaratitil.
Dregið í hnpp-
drætti
umferðurvnrðn
í dag var dregið í Happdrætti
Umferðarvarða, sem efnt var til
á vegum Framkvæmdanefndar
hægri umferðar.
I Vikuferð til Bandaríkjanna
kom upp á eftirtalin númer:
5371, 5527, 6290, 6696, 6697.
Vikudvöl í Kerlingarfjöllum
kom upp á eftirtalin nr: 2876,
5400, 6109, 6693, 7310.
Vinningshafar snúi sér til
Framkvæmdanefndar hægri um
ferðar.
Annars urðu úrslit sem hér seg-
ir: Vasjukoff og Bragi gerðu
jafntefli, Taimanoff og Byrne
jafntefli, Friðrik og Szabo jafn-
tefli og Ostojic og Addisson
einnig jafntefli. Enn stóðu yfir
skákir þeirra Inga og Andrésar
og Jóhanns og Freysteins, og
voru þær báðar tvísýnar.
Ljós er því staða efstu manna:
Taimanoff og Vasjukoff eru
efstir með 10% vinning, Friðrik
í þriðja sæti með 10 vinninga,
fjórði er Byrne með 9, Uhlmann
er í fimmta sæti með 8%, Ostojic
og Szabo í sjötta og sjöunda
sæti með 8 vinninga og Guð-
mundur og Addison eru jafnir.
Khöfn, 19. júní. NTB.
GRÍSKI stjórnmálamaðurinn
Andreas Papandreu verður á
morgun tekinn til yfirheyrslu
hjá dönsku lögreglunni, vegna
þess að hann hefur láitið í það
skína, að hann hefði sannanir
um að Grikkinn Georges Mavro-
genis hefði verið myrtur.
Mavrogenis fannst látinn í
fyrra mánuði, og danska lögregl-
an komst að þeirri niðurstöðu,
að hann hefði framið sjálfsmorð.
í smíðum og Grensásskirkja, auk
Hallgrímskirkju.
Biskup gagnrýndi í ræðu sinni
drátt á að skipuleggja og hrinda
kirkjubyggingum fram í Reykja-
vík, þótt prestakallaskipting
næði fram að ganga. Benti hann
í þessu sambandi á Árbæjar-
hverfi, þar sem nú búa um fimm
þús. manns, Breiðholt, þar sem
áætluð er byggð fyrir um tíu
þús. og Kópavogur. Þá taldi
biskup nauðsynlegt að skipta
Kópavogsprestakalli.
Þá vék biskup að viðhaldi
kirknanna og sagði m.a.:
„Það blasir við hverju auga,
að nokkur hluti kirkjuhúsa á ís-
landi er fyrir neðan þær lág-
markskröfur, sem nútíminn ger-
ir um áferð, búnað og þægindi
húsa, sem ætluð eru til manna-
vista og mannfunda. Kirkjan hef
ur að þessu leyti dregizt mjög
svo aftur úr undanfarna hálfa
öld. Ef bornir eru saman skólar
t.d. og samkomuhús annar vegar
og kirkjur hins vegar, eins og
hlutfallið var hér í milli fyrir
hálfri öld og eins og það er nú,
þá er þróunin slík og svo óhag-
stæð kirkjunni, að líkja má við
hrun í ýmsum byggðum lands-
ins. Auðvitað kemur hér til
greina sú eðlilega orsök, að
kirkjur voru fyrir, þær voru að
jafnaði á undan öðrum húsum,
þegar nýbyggingaöldin hófst í
landinu. Það tekur tíma að átta
sig á því, að þessi hús, sem á
sinni tíð voru hin veglegustu í
hverri byggð, dragast aftur úr,
blátt áfram vegna framvindunn-
ar í húsagerð, þótt gert sé ráð
fyrir sómasamlegu viðhaldi, sem
því miður er ekki alls staðar til
að dreifa. í því sambandi er ekki
því að neita, að hagur alls þorra
safnaða er erfiður. Kirkjur á ís-
landi hafa aldrei haft hlutfalls-
lega eins rýrar fastatekjur til
viðhalds sér og nú, aldrei í sögu
landsins síðan á 11. öld.
Hafa íslendingar nútímans átt-
að sig til hlítar á því, að hrör-
legir helgidómar og vanhirtir
legstaðir framliðinna eru lýti á
þjóðmenningu, sem ekkert land
þolir án álitshnekkis?
Annor sóttn-
fnndur í gær
SÁTTAFUNDURINN með síld-
veiðisjómönnum í fyrrakvöld
bar ekki árangur, en til annars
fundar var boðað kl. 9. Stóð sá
fundur enn, er Morgunblaðið fór
í prentun seint í gærkvöldi Þá
var fundur hjá verðlagsráði sjáv
arútvegsins í gær, en árangur
þess fundar lá ekki fyrir í gær-
kvöldi.
Hæstu gjaldendur
í Vestmannaeyjum
SKATT- og útsvarsskrá Vest-
mannaeyja fyrir árlð 1968 var
lögð fram um síðustu mánaða-
mót. Álögð útsvarsupphæð var
tæplega 41 millj. króna, en að-
stöðugjöld 11.2 millj. krónur. —
Lagt var á útsvör eftir hinum
lögboðna útsvarsstiga og var
enginn afsláttur gefinn, en í
fyrra var afslátturinn 10%.
Tala útsvarsgreiðenda er í ár
1618, og aðstöðugjöld greiða 276
aðilar.
Hér á eftir fara þeir aðilar,
sem hæstu upphæðir greiða sam-
kvæmt skattskránni:
Einstaklingar:
Ársæll Sveinsson útgm. 729.216
Aase Sigfússon lyfsali 447.092
Einar Guttormss. læknir 351.992
Björn Guðmss. kaupm. 322.907
Sig. Þórðarson útgm. 297.153
Sveinn Hjörleifss. úitgm. 284.999
Hilmar Rósmundss. útgm. 283.687
Helgi Benediktss. kaiupm. 280.750
Örn Bjarnason héraðsl. 260.063
Félög:
Vinnslustöðin hf. 1.220.341
Fiskiðjan hf. 1.184.302
ísfél. Vestmeyja hf. 1.084.652
Hraðfrystist. Veyja 814.100
Fisikimjölsverksm. hf. 782.200
Haraldur Eiríksson hf. 508.875
ólaíur & Símon hf. 492.240
Kaupfél. Vestimeyja 421.040
(Birt án ábyrgðar)
Geysifjölmennur kvennafundur
í Hótel Sögu í gær
Á FUNDI sem stuðningskonur
Gunnars Thoroddsens efndu til
á Hótel Sögu í gær, var geysi-
legt fjölmenni. Hvert sæti var
skipað í aðalsal og hliðarsölum
og fjöldi kvenna stóð í göngum
þar sem pláss var og einnig var
hópur kvenna í sal á jarðhæð
og hlýddu þær á dagskrána í há-
tölurum. Yfir 1000 konur sóttu
fundinn.
Fundarstjóri var frú Auður
Auðuns og í fundarbyrjun bauð
hún konur velkomnar og sérstak
lega frú Völu Thoroddsen, sem
var fagnað með lófataki.
Frú Vala Thoroddsen ávarpaði
fundinn með nokkrum orðum og
minntist m.a. á 19. júní, þann
dag er íslenzkar konur öðluðust
full stjórnmálaleg réttindi til
jafns við karlmenn.
13 aðrar konur fluttu stutt
ávörp og hvatningarorð á fund-
inum, en þær voru: frú Auður
Auðuns, frú Emilía Samúelsdótt-
ir, frú Bryndís Jakobsdóttir, frú
Ásta Björnsdóttir, frú Þóra Ein-
arsdóttir, frú Sigríður Ingimars-
dóttir ,frú Soffía Ingvarsdóttir,
frú Geirþrúður Hildur Bernhöft,
frú Borghildur Fenger, frú
Regína Birkis, frú Jónína Þor-
finnsdóttir, frú Sigríður Valdi-
marsdóttir og frú Anna Guð-
mundsdóttir.
Á milli ávarpa sungu 4 óperu-
söngkonur ýmist einsöng eða dú-
etta ,en söngkonurnar voru: Guð-
rún Á. Símonar, Sigurveig
Hjaltested, Svala Nielsen og
Þuríður Pálsdóttir. Undirleikar-
ar voru Unnur Amórsdóttir og
Ólafur Vignir Albetsson.
í fundarlok kom Gunnar Thor-
oddsen og ávarpaði fundinn og
var honum ákaft fagnað.
Frá hinum fjölmenna fundi, sem stuðningskonur Gunnars Thoroddsens héldu á Hótel Sögu
I gær. Yfir 1000 konur sóttu fundinn. (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.)