Morgunblaðið - 20.06.1968, Page 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. JÚNf 196«
Sýning á skákritum Fiskes
í anddyri Landsbókasafnsins
Skrá um erlend skákrit í safninu kom út í gœr
í GÆR kom út hjá Landsbóka
safninu skrá yfir erlend skáid
rit í eigu safnsins. Af þessu
tilefni bauð Finnbogi Guð-
mundsson, landsbókavörður,
blaðamönnum, auk þátttak-
enda á Fiske-skákmótinu til
fundar og sýndi þeim skákrita
safn Landsbókasafsins, sem
er ágætt að gæðum, sérstak-
lega eldri ritin,
Finnlbogi Guðmundsson
sagði, að raunar hefði verið
lengi um það rætt að gefa út
þessa skrá, ekki sízt vegna
hinnar ómetanlegu gjafar
Willards Fiskes, prófessors,
sem gaf safninu hið merka
skáldritasafn sitt, sem er um
1400 bindi. „Þegar við frétt-
um, að Taflfélag Reykjavíkur
ætlaði að halda sér skáikmót
til minningar um þennan
merka mann, þótti okkur rétt
Nokkur hinna fágætu rita úr bókagjöf Willard Fiske. Bókin, sem er næst, er prentuð í
Napólí 1723. Hún er mjög fágæt en mest er þó vert, að hún hefur verið í eigu tveggja
kunnustu skákmeistara 19. aldarinnar. William Lewis gaf hana Paul Morpy 21. apríl 1859,
eins og áritunin sýnir. Fiske eignaðist ritið eftir Morpy.
Williard Fiske að tafli í bú- stað sínum á Ítalíu
að eiga samflot með þeim og
réðumst í að gefa þessa skrá
út, auk þess sem nú stendur
yfir sýning á úrvali skákrita-
gjafar Fiskes í anddyri safns
ins‘‘.
„Þeir Pétur Sigurðsson,
fyrrum háskólaritari, og safn
verðirnir Haraldur Sigurðs-
son og Ólafur Pálmason
sömdu skrána og bjuggu ritið
til prentunar. Ennfremur sá
Ólafur um val bóka á sýning-
una hér í andidyrinu‘‘.
Bókaskráin skiptist í þrjá
hluta. Fremst er bókagjöf
Fiskes, þá skrá yfir þau skák-
listanrit, sem Fiske lét prenta
og gaf Taflfélagi Reykjavík-
ur og loks skrá yfir önnur rit
erlend í eigu safsins. Enn-
fremur eru myndir af þeim
W. Fiske oig Pétri Zophanías-
syni, sem var ráðunautur
safsins í vali á skákritum um
árabil. Ritið er 47 bls.“
Það sem vekur strax at-
hygli manna, er hve geysivel
er búið um skáldritasafnið frá
hendi prófessors W. Fiskes.
Bækumar eru svo vel bundn-
ar inn, að unun er á að horfa
og til marks um það, hve
mikla rækt hann lagði við
bókbadið má nefna, að ef rit-
ið var lítið, lét hann binda
laus blöð með — til þess að
ná gyllingunni.
Margt merkra bóka er á
sýningunni í anddyri Lands-
bókasafnsins, sézt þar glögg-
lega hvílíkan dýrgrip íslend-
ingar fengu með þessari bóka
gjöf Fiskes.
Erlendu skákmennirnir,
sem voru þarna viðstaddir,
höfðu líka orð á því, hve safn
ið væri vandað að allri gerð,
sérstaklega þótti þeim til um,
að ein bókin er árituð, gjöf
Williard Lewis, sem var fræg
ur skákmeistari á síðustu öld,
til Paul Morpy, eins frægasta
skákmeistara allra tíma. Þeg
ar bandaríski skákmeistarinn
Addison, sem sjálfur er bóka
vörður, sá þessa merku bók
varð honum að orði: „Þetta
hefur verið meiri maðurinn
þessi Fiske, hann virðist hafa
haft fingurna alls staðar“.
Söngmót Heklu
Akureyri 13. júní
Hekla, samband norðlenzkra
karlakóra heldur 10. söngmót
sitt í Suður-Þingeyjarsýslu og
Skagafirði um aðra hclgi. Fyrsti
samsöngurinn hefst I Húsavíkur
kirkju kl. 14 laugardaginn 22.
júní, en um kvöldið kl. 21. verð-
ur sungið í Skjólbrekku í Mý-
vatnssveit. daginn eftir fara
söngmennimir vestur í Skaga-
fjörð. Þar verður kaffisamsæti í
félagsheimilinu Miðgarði við
Varmahlíð kl. 15 og hugsanlega
verður söngur kóranna hljóðrit
aður þar að einhverju leyti.
Lokasamsöngurinn hefst svo í
Miðgarði kl. 19 sunnudaginn 23.
jum.
9 kórar taka þátt í mótinu:
Karlakór Akureyrar, Karlakór
Bólstaðarhlíðarhrepps, Karlakór
Dalvíkur Karlakórinn Feykir
Skagafirði, Karlakórinn Geysir
Akureyri, Karlakórinn Heimir
Skagafirði, Karlakór Mývatns-
sveitar, Karlakór Reykdæla og
Karlakórinn Þrymur Húsavik.
Söngmenn verða nokkuð á 4.
hundrað. Kórarnir syngja bæði
hver um sig og allir sameigin-
lega. Þar að auki syngja þing-
eysku kórarnir saman nokkur
lög.
Hekla, samband norðlenzkra
karlakóra var stofnuð .árið 1934.
Sölumenn
Nokkrir ungir menn óskast til sölustarfa úti á landi
frá og með 1. júlí.
Aðeins duglegir og áreiðanlegir menn koma til greina.
Æskilegt væri að viðkomandi hefði bifreið til um-
ráða. Tilboð skulu hafa borizt til afgreiðslu Morg-
unblaðsins fyrir 20. þ.m. með upplýsingum um aldur
og fyrri störf, merkt: „Júní — 8814“.
Núverandi stjórn skipa Ásgeir
Jónsson, Akureyri, formaður, Þrá
inn Þórisson, Mývatnssveit rit-
ari, Árni Jóhannesson, Akureyri
gjaldkeri, og meðstjórnendur
Guðmundur Gunnarsson, Páll
H. Jónsson, báðir að Laugum
S-Þing. og Jón Tryggvason, Ár
túnum A-Hún. S.v. P.
Fjölbreytt fyrirlestrar-
hald stærðfræðinga
AÐALFUNDUR hins íslenzfca
Stærðfræðafélags var haldinn 22.
mai síðastiliðinm í húsafcynnum
Raun'vís’’ndastofnunar Háskóla
íslands við Dunhaga 3. Frófax-
andi formaður Ottó Björnsson
tölifræðingur stjórnaði fundimum.
í stjóm voru kosnir: Dr. Halldór
I. Elíasson, dósent, formaður;
mag. scient. Þorvalditcr Búason,
eðlisfnæðingur, ritari og N.S.
Hörður Lárusson, kennari, gjald
keri. Dr. Leifur Ásgeirsson,
prófessor og cand. mag. Sigur-
karl Stefánsson, dósent voru
endunkjörnir, sem ritstjórar fyrir
Mathematica Scandinavica og
NordiSk Matematisk Tidskrift.
Til sölu
2ja herb. íbúð á hæð í Þingholfunm. íbúðin er í
mjög góðu ástandi. Stórar sólsvalir með útsýni yfir
Miðborgina. Mjög hagstætt verð.
Fasteigna- og lögfræðistofa
STEINS JÓNSSONAR, Kirkjuhvoli,
símar 14951 og 19090, kvöldsími 23662.
Steypuhrærivél /\ Korkparkett f ^_ \
Æ X MEÐ GLÆRRI PLAST-
Notuð steypuhrærivél með spili óskast til kaups M \ HÚÐ. SÉRICENNILEG
eða leigu. / ¥ 1 m|\ OG FALLEG MYNSTUR.
Upplýsingar á teiknistofu S.Í.S. Hringbraut 119, Æ £ l\| \ J. ÞORLÁKSSON &
sími 17080 og 19325. Æ 'X# "" X & NORÐMANN H.F.
Þessi tvö tímarit eru gieifin út á
vegum stærðfrðafélaganna á
Norðurlöndium, en þeir Leifur og
Sjgurkarl hafa verið í ritstjórn
þeirra frá upphafi.
Fyrirlestrahaild félagssins á
síðastliðnu starfsári hefur heppn-
azt vel, en félagið heldur nú
fundi sína í húsakynnum Raun-
vísindastofmunar Háskólans.
Talsvert hefur færzt í vöxt, að
erlendir stærðfræðingar hafi hér
viðkomu á leið sinni milli meg-
inlandanna og má örugglega
þakka það góðri kynninglu ís-
lenzkra stærðfræðinga ertendiis.
Vilijum við sérstafclega benda á
þá próf. Siigiurð Helgason M.I.T.
og próf. Bjarna Jónsson Vander-
bilt Univ. í þvi sambandi, en
báðir eru þeir mjög kunnir
stærðfræðingar. Próf. Leifur
Ásgeirsson hefur á undanförnum
árum iðulega haft millligöngiu um
hingaðkomu erlendra stærðfræð-
inga og eru þessi sa/mekipti
stærðfræðafélaginu hin mesta
nauðsyn.
Þar sem Háskóli fslands sinnir
ekki æðri stærðfræði, hefur
stærðfræðafélagið orðið að giegna
forystuhlutverki á mörguim svið-
um stærðfræðil'egra mennta.
Fjárskortur hefur verið þvi vaid-
andi að félagið hefur gegnt þessu
hlutverki meira af vilja en raætti,
en stjórnin væntir þess að hagur
félagsirns fari batnandi með vax-
andi skilningi roeðal þjóðaxinn-
ar á gildi raunvísinda.
(Frá hiinu ístenkka
Stærðfræðafélagi).