Morgunblaðið - 20.06.1968, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 1908
21
Ólafur Pálsson, verkfræðingur:
UM SAMGÖNGUMÁL
Stjörnubíó sýnir um þessar mundir myndina. Fórnarlamb safn
arans (The Collector), sérstæða mynd með íslenzkum texta. Fjall
ar söguþráðurinn um ungan, sérlyndan bankaritara, sem stundar
fiðrildasöfnun, unz hann vinnur mikla fjárfúlgu og „veiðir“ þá
stúlkuna sem hann unni og býr henni allsnægtir á traustum felu
stað í þeirri von að hún felli hug til hans. Myndin fjallar síðan
um þennan óskadraum hins geðbilaða unga manns. Aðalhlutverk
leika Terence Stamp og Samantha Eggar.
U'NDANFARHÐ hefur verið rætt
talsvert um samgöngumál hér-
lendis, enda hefur harður vetur
gefið ærið tilefni til þess. Minn-
umst við frétta af stórhríðum,
ofsaveðri, hitabylgju og þíð-
viðri með stórflóðum, stillum,
hörkufrosti, fannfergi svo aðeins
sést í reykháfa og hafís umlykj-
andi hálfa strandlegjuna. Það ar
ekki tilviljun að landið heitir
ísland.
Við þessar aðstæður hafa sam-
göngur einkum á landi og sjó
verið mjög stopular. Við minn-
umst tíðra fregna af að heiðar
voru ruddar einn daginn en lok-
uðust um kvöldið, farþegar veð-
urtepptir, vöruskortur í af-
skekktum kauptúnum og svo
kom hlákan margþráða og klak-
inn þiðnaði úr vegum landsins,
umferðarþunginn takmarkaður
vegna þess að hjól farartækjanna
skáru sig niður í frostlagið og
ristu vegkafla að endilöngu.
Samgöngur á sjó hafa hingað
til verið taldar tryggar, en nú
hefur reynslan sýnt að svo er
alls ekki. Við vitum að skipin
áttu fullt í fangi með að bjarga
sjálfum sér undan hafísnum,
þegar hann sýndi sig í sínu al-
mætti, og í alllangan tíma hefur
ekkert skip rennt inn í hafnirnar
norðan og austan lands.
Þriðja samgönguleiðin er loft-
ið og segja má að umferðin þar
hafi gengið eftir vonum, þótt
komið hafi fyrir að flug hafi fall-
ið niður í nokkra daga vegna
stórviðra, en er þeim slotar er
yfirleitt auðvelt verk að
hreinsa snjóinn sem setzt hefur
á flugbrautirnar.
Segja má að nú sem stendur
geti engin hinna þriggja sam-
gönguleiða fullnægt þörfum
landsbyggðarinnar þannig að
íbúarnir uni vel við, og á þetta
einkum við þau héruð landsins,
þar sem samgöngur eru erfiðast-
ar, frá Vestfjarðakjálkanum aust
ur til Hornafjarðar. Allir eru á
einu máli um það, að til þess að
blómleg byggð megi dafna og
menn uni glaðir við sitt á hinum
afskekktari svæðum, verði íbú-
arnir að hafa svipuð lífsskilyrði
og annars staðar er bezt gerist,
og á það ekki aðeins við það að
hafa nægilegt að bíta og brenna,
heldur gera menn kröfu til að
geta verið í góðu sam'bandi við
aðra landshluta, menn vilja hafa
útvarp og sjónvarp og það að
geta ferðazt hvert sem þá lystir.
Menn sætta sig ekki við það
lengur að fá ekki t.d. kartöflur
og mjólk vikum saman eins og
komið hefur fyrir á afskekktum
stöðum undanfarin ár. Eða fá
dagblöð og póst 1-2 vikna göm-
ul svo ekki sé meira sagt.
Góðar samgöngur eru sem
sagt veigamikill þáttur í athafna
lífi landsbyggðarinnar, og virð-
ist að daglegar ferðir til stærri
staðanna vera það minnsta, sem
menn sætta sig við og a.m.k.
tvær ferðir í viku til hinna
smærri. Hvaða samgöngutæki
er líklegast til að leysa þetta
verkefni er auðsvarað, en það
eru flugvélarnar, og verður rætt
nánar um það hér á eftir.
★
Ekki verður hér rakin þróun
flugsins, enda hefur það verið
gert rækilega áður, en ef hugsað
er aðeins 10 eða 20 ár aftur í
tímann er hverjum manni ljóst
hve stórstígar framfarir h^fa
orðið. Sem dæmi má nefna að
síðustu þrjú árin hafa farþega-
flutningar hjá Flugfélagi fslands
vaxið um 34%, en vöruflutning-
arnir (og póstur) um 104%. Far-
þegafjöldi á innanlandsleiðum
var á sl. ári 117800 farþegar —
og má segja að mestur hluti
farþegaflutnigs á lengri leiðum
fari loftleiðis. Þá er það mjög
athyglisvert að vöruflutningar
með flugvélum vaxa örar en
farþegaflutningarnir og er ein-
sýnt að svo verður í framtíðinni.
Sama er uppi á teningnum hjá
öðrum þjóðum, jafnvel þar sem
gott járnbrauta- og vegakerfi er
fyrir hendi, og eru á stærstu flug
völlum þar reistar risastórar
vöruflutningageymslur til að
taka við hinu sívaxandi flutn-
ingsmagni. Miðast við önnur sam
göngutæki vinna loftflutningarn
ir stöðugt á.
Til gamans má geta þess, að
ekki alls fyrir löngu átti Cun-
ard-skipafélagið stórafmæli og í
því tilefni gaf það út afmælis-
rit og fékk ýmsa framámenn til
að skrifa greinar í það. Einn
þeirra, kunnur brezkur hagfræð
ingur, skrifaði um framtíð flutn
inga með skipum í framtíðinni.
Komst hann að þeirri niðurstöðu
að eftir einn til tvo áratugi yrði
ekki um aðra flutninga að ræða
að ráði #n olíu, kol, sement,
málmgrýti og korn og það í
mjög stórum förmum. Annað
svo sem matvæli, iðnaðarvarn-
ingur o.fl. yrði flott loftleiðis.
Ástæðan er m.a. sú að loft-
flutningarnir verða stöðugt ódýr
ari, betri og hagkvæmari flug-
vélar eru smíðaðar, og eins það
að þegar nýjar gerðir ryðja hin
um eldri úr farþegaflutningun-
um eru þær síðarnefndu seldar
við lágu verði og verða margar
hverjar notaðar til vöruflutn-
inga.
★
Þegar um slík mál er fjallað
er hollt að gera sér grein fyrir
hvernig þessu verður háttað eft-
ir svo sem einn áratug. Getur
oft borgað sig að vera framsýnn
og velja e.t.v. ekki ódýrustu
leiðina í dag, heldur þá sem
kemur og sleppa þar með hugs-
anlegum hliðarsporum (eins og
gert var þegar ekki var notað
gas til heimilisnotkunar heldur
rafmagn, og eins þegar hlaupið
var yfir járnbrautarstigið hér á
landi).
Á þeirri forsendu, að hægt sé
að gera fullnægjandi flugvelli
þar sem á þarf að halda og með
hliðsjón af því hvert stefnir,
geri ég ráð fyrir að samgöngum
verði hagað hér á eftirfarandi
hátt og að sjálfsagt sé að beina
þeim inn á þá braut sem fyrst.
Meginhluti bæði farþega- og
vöruflutninga fari loftleiðis, að
allega milli Reykjavíkur og flug-
vallanna úti á landi. í hverjum
fjórðung verði einn aðalflugvöll
ur. Mestur hluti neyzluvaranna
komi frá Reykjavík, en til baka
verða fluttar framleiðsluvörur
héraðanna á markað hingað.
Þungavaran verði flutt sjóleið-
is beint frá útlöndum og Reykja-
vík en sement og áburður beint
frá Reykjavík til ákveðinna upp
skipunar- og dreyfingarhafnar í
hverjum fjórðung. Beinar sam-
göngur á sjó, með þeim hætti
sem nú er, leggist niður en í
stað annist fjarðabátur dreyfingu
þungavara milli hafna í hverj-
um fjórðung og fólksflutninga
eftir því sem þörf krefur. Ef
málum verður skipað þannig,
verður ekki lengur nauðsynlegt
að ryðja snjó af fjallvegum yfir
vetrarmánuðina, heldur verður
innanhéraðsvegahverfinu haldið
opnu.
Aðalflugvöllur hvers fjórðungs
var miðstöð fyrir flug innan
hans, en vísir að slíkri starfsemi
er nú þegar á Akureyrarflug-
velli. Auðveldar það ýmsa starf-
semi innan hvers svæðis, svo sem
þjónustu lækna, presta ráðu-
nauta og á sviði menningarmála
og viðskipta og svo má lengi
telja.
★
Hér að framan var gengið út
frá þeirri forsendu, að hægt sé
að gera fullnægjandi flugvelli
víðsvegar um landið. Verður
miðað við að notast verði fyrst
um sinn við 1100 m langar mal-
arflugbrautir, með nauðsynleg-
ustu öryggistækjum. Verða hér
á eftir taldir upp þeir staðir þar
sem til greina kemur að gera
flugvelli.
Vesturland. Ekki virðist hag-
kvæmt að gera flugvelli með
þessu markmiði í næsta ná-
grenni Reykjavíkur, en fjær
koma til greina flugvellir við
Sand, Stykkishólm og Búðardal.
Vestfirðir. Þar má telja Pat-
reksfjörð, Dýrafjörð, Önundar-
fjörð, ísafjörð og Hólmavík. Flug
brautir eru fullgerðar í Patreks-
firði og ísafirði, en byrjað hefur
verið á framkvæmdum í Dýra-
firði.
Norðurland. Þar eru flugvellir
við Blönduós, Sauðárkrók, Akur-
eyri, Húsavík, Kópasker, Raufar
höfn og Þórshöfn. Telja má að
þeir séu allir fullgerðir til þess-
arar þjónustu. Flugvöllurinn við
Raufarhöfn var gerður fyrir
tveim árum og kostaði rúma
1 millj. króna. Fyrsta áfanga að
flugvelli við Siglufjörð er nú lok
ið.
Austfirðir. Þar koma til greina
Vopnafjörður, Neskaupstaður,
Reyðarfjörður, Egilsstaðir, Fá-
skrúðsfjörður, Breiðdalsvík,
Djúpivogur, Hornafjörður og Fag
urhólsmýri. Flugvellirnir við Eg-
ilsstaði, Neskaupstað, Horna-
fjörð og Fagurhólsmýri eru þeg-
ar fyrir hendi. Einnig er hugsan-
leg flugvallargerð við Seyðis-
fjörð og Borgarfjörð eystri en at-
hugun hefur ekki farið fram far-
ið fram ennþá. Flug til nokkurra
þessara staða er allt-torve^t
vegna hinna þröngu fjarða, en
fengin er allgóð reynsla með flug
inu til Neskaupstaðar, svo gera
má ráð fyrir að hægt verði að
halda uppi reglubundnu flugi til
þeirra engu síðar en til Neskaup-
staðar. Yfirleitt eru efnisnámur
nærtækar, þar sem í ráði er að
gara flugbrautir, svo kostnaður
verður ekki mjög hár, en gera
má ráð fyrir að meðalverð braut
ar verði nálægt 2-3 millj. króna.
★
Nú sem stendur eru vöruflutn
ingar loftleiðis talsvert dýrari en
flutningur eftir öðrum leiðum,
enda hefur til þessa ekki verið
lögð sérstök rækt við þá grein.
Hefjist flutningar í stórum mæli
milli staða með hæfilegum flug-
vélum, má gera ráð fyrir að flutn
ingsgjald stórlækki.
Þegar rætt er um þessi mál,
gera menn sér almennt ekki
grein fyrir, að hið opinbera legg
ur stórar fjárhæðir fram á ári til
að halda samgönguleiðunum opn
um en þrátt fyrir það er sam-
gönguleysið eitt tilfinnanlegasta
vandamál dreifbýlisins.
Ef tekin eru tvö dæmi, annað
þeirra er Skipaútgerðin sem
gegnir sínu hlutverki eins vel og
hún getur, en hún flutti um
10000 farþega á sl. ári og 33000
tonn af varningi, en reksturshall
inn varð 33 millj. kr. (Manni
dettur í hug að ríkissjóður greiði
halla sem nemur hátt í eina
krónu fyrir kíló sem flutt er).
Þá er það Vegagerðin sem
greiðir milli 25-30 millj. kr. fyrir
snjómokstur og um 70 millj. kr.
í annað vegaviðhald og þó tekst
ekki að leysa vandamálið. Við
gerum okkur ekki nægilega vel
ljóst, að mikill hluti vegakerfis-
ins er moldarvegir sem þola ekki
nema takmarkaðan þunga og
umferð og þá aðeins á þeim tím-
um árs, þegar veðráttan gerir þá
ekki meyra. Á hverju vori þegar
frost fer að leysa úr jörðu og fjall
vegirnir eru opnir, koma stóru
og þungu vöruflutningabílarnir
og skera sig niður í vegfylling-
una og valda tjóni á fáeinum vik-
um sem vafalaust kostar milljón-
ir að endurbæta. Nýlega var t.d.
einn langferðabíllinn dreginn eft
ir vegstæðinu af jarðýtu, svo
djúpt var niður á klakann, að
aurinn náði upp undir afturöxul
bifreiðarinnar. Álíka dæmi þekkj
ast úr öllum héruðum landsins.
Ef horfið yrði að treysta á
loftflutningana verður vafalaust
hægt að létta talsvert á starí-
semi Skipaútgerðarinnar og eins
Vegagerðarinnar og spara ríkis-
sjóði þar með stórar fúlgur. Bú-
ast má við að loftflutningar
verði í upphafi eitthvað dýrari
í rekstri en það fyrirkomulag,
sem nú er, er í því tilfelli ekki
óeðlilegt að ríkissjóður styrki þá
flutninga í byrjun.
★
Hér að framan hefur verið
stiklað á stærstu atriðunum um
þetta mál, en þetta er lengra mál
en hægt sé að gera full skil í
einni blaðagrein. En er ekki for-
vitnilegt að sjá hvernig fjárhags-
útkoman á slíkum flutningum
yrði með tilraun? Ákjósanlegt
svæði fyrir slíka tilraun er svæð-
ið frá Axarfirði til Vopnafjarð-
ar (eða jafnvel Borgarfjarðar
eystra). Þetta landshorn hefur
verði einna verst sett með sam-
göngur bæði á landi og sjó. Þar
eru þrír flugvellir fyrir hendi við
Kópasker, Raufarhöfn og Þórs-
höfn. Hafin var flugvallargerð
fyrir áratug í Vopnafirði, en
brautin aldrei fullgerð, þótt ekki
sé það mikið fyrirtæki. Gerum
ráð fyrir, að sagt verði við íbú-
ana: Þið fáið tvær flugferðir í
viku allan veturinn, en engar
reglubundnar áætlunarferðir á
landi og sjó. Þið verðið að treysta
eingöngu á flugvélina, en flutn-
inagjaldi verður stillt í hóf. Ég
tel líklegt að útkoman á þeirri
tilraun verði jákvæð frá sjónar-
miði þjóðarhagsins, jafnvel þótt
styrkur kæmi til úr ríkissjóði, og
ekki sízt það, að í fyrsta skipti
ættu íbúarnir við sómasamlegar
samgöngur að búa.
★
Nú er mikið talað um birgða-
stöðvar m.a. fyrir fóðurbæti og
matvæli á hafíssvæðunum. Þótt
ísinn hafi nú í tvö skipti lagzt að
NA-horni landsins, getur svo
farið að aðalþungi hans verði við
vestanvert Norðurland í næsta
skipti, svo að koma þarf upp
birgðastöðvum frá Horni austur
fyrir miðja Austfirði, ef vél á
vera. Hlýtur það að vera dýrt
fyrirtæki.
Er líklegt að hagkvæmara
verði að treysta heldur á birgða-
flutninga í lofti og geta komið
birgðunum þangað sem skórinn
kreppir að í hvert skipti. Aðra
mannvirkjagerð ætti það ekki að
kosta en að gera flugbrautir á
þeim slóðum, þar sem engar eru
fyrir hendi. Koma þau mannvirki
að gagni á fleiri sviðum.
Sölumaöur óskast
Stórt heildsölufyrirtæki óskar eftir að
ráða ungan mann til sölu á vinsælum
hreinlætis og snyrtivörum. Skemmtilegt
framtíðarstarf fyrir áhugasaman og dug-
legan mann.
Umsóknir ásarnt upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf sendist Mbl. fyrir
26. þ.m. merkt: „Sölustarf — 8233“.