Morgunblaðið - 20.06.1968, Side 23
í
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 1908
23
Brynjólfur Jóhannesson og Jón Aðils í hlutverkum sínum í
Koppalogninu.
Koppalogn um landið
LEIKFÖR Leikfélags Reykjavík-
ur í ár verður með „Koppalogn"
eftir Jónas Árnason, og verður
fyrsta sýningin á Akranesi í
kvöld, en alls verður sýnt á um
20 stöðum á vestur-, norður og
austurlandi.
Koppalogn Jónasar var frum-
sýnt á jólum í vetur og hefur
verið sýnt við mjög mikla að-
sókn í Iðnó í vetur, samtals 53
sinnum, en sýningum var hætt í
maí, vegna þess að einn aðal-
leikandinn, Steindór Hjörleifss-
son, fór þá utan.
Þetta er annað leikrit Jónasar
Árnasonar, sem sýnt er á vegum
Leikfélags Reykjavíkur, en fyrir
níu árum lék félagið Deleríum
búbónis eftir þá þræður Jónas og
Jón Múla Árnasyni. Sú sýning
varð, sem kunnugt er, mjög vin-
sæl, Deleríum búbónis var sýnt í
Iðnó í tvo vetur og síðan í leik-
för víða um land, samtals 144
sinnum.
firði, Egilsstöðum, Seyðisfirði,
Reyðarfirði, Neskaupstað, Eski-
firði, Fáskrúðsfirði og Höfn í
Hornafirði, en þar lýkur leikför-
inni þriðjudaginn 9. júlí.
Leikfélag Reykjavíkur hefur
efnt til leikfarar nærri árlega nú
15 ára skeið. Komið hefur til tals
að fara í leikför með aðra af sýn-
ingum félagsins í haust, yrði þá
Hedda Gabler sýnd á Akureyri.
Heildsalar - verzlanir
Þátttakendur í þessari leikför
Leikfélagsins með Koppalogn
eru tíu og eru það leikararnir
Brynjólfur Jóhannesson, Stein-
dór Hjörleifsson, Jón Sigurbjörns
son, Jón Aðils, Sigríður Hagalín,
Margrét Ólafsdóttir, Guðmundur
Pálsson, Borgar Garðarsson og
Pétur Einarsson, og Ragnar
Hólmarsson, sem verður sýning-
arstjóri í ferðalaginu. Leikstjóri
Koppalogns er, sem kunnugt er,
Helgi Skúlason og mun hann
leika með í nokkrum sýningum
í ferðinni. Leikmynd er eftir
Steinþór Sigurðsson.
Fyrsta sýningin . verður á
Akranesi í kvöld, en síðar verð-
ur sýnt á eftirtöldum stöðum:
Búðardal, Ásbyrgi, Blönduósi,
Siglufirði, Ólafsfirði, Akureyri,
Skjólbrekku í Mývatnssveit,
Raufarhöfn, Þórshöfn, Vopna-
Kúrant og ókúrant vörukaup.
Viijum kaupa ódýran nærfatnað, tilb. barna- og
unglingafatnað svo sem peysur, buxur, skyrtur,
blússur og margt fleira. Aðrar vörutegundir koma
einnig til greina. Sími 11670.
Til sölu
Höfum til sölu OLDSMOBILE ’64. Greiðsluskil-
málar. Til greina gæti komið að taka skuldabréf
fyrir hluta kaupverðs.
BÍLASALAN, Ármúla 18.
Sími 8-44-77.
ÞETTA GERÐIST
I MA 1968
VEÐUR OG FÆRÐ
Nærri því ísbrú milli íslands og
Grænlands (3).
Hríð linnir á Norðurlandi. Fjallveg-
ir aftur færir (4).
Frost mælist allsstaðar á landinu
nema í Vestmannaeyjum (5).
Hitinn 5—9 stigum lægri hér á landi
það sem af er mai en 1 meðalári (7).
Austfirðirnir fullir af hafís (7).
Stapafell fast á Raufarhöfn 1 hálfan
mánuð vegna hafíss 9).
Jörð gaddfreðin og snjór í Mývatns
sveit (10)
Bátar bundnir saman í siglingu
gegnum ísinn (12).
Vegir nyrðra lolkast vegna sjnóa (12.
Vetrarhörkur á Norður- og Austur-
landi í vorbyrjun (14).
Landfastur ís austur við Hornafjörð
(15) .
Hafisinn þéttist upp að suð-austur
strönd landsins (16).
Veðurfar líkt og 1882 í Skagafirði
(16)
Logn og bliða, en svali við hafið og
ísbelti um hálft landið (21).
Siglingaleið enn torsótt kringum
land vegna íss (25).
ísinn getur lónað að og frá landi í
allt sumar (26).
Hægt að sigla vestur um til Þórs-
hafnar, þar sem ísinn hefur lónað þar
frá (30).
ÚTGERÐIN
Afli Hornafjarðarbáta 6500 lestir frá
áramótum (1).
Útgerðarmenn í Bretlandi krefjast
taikmörkunar á löndunum íslenzkra
togara (4).
Vestmannaeyjar aílahæsta verstöðin
á vetrarvertíðinni (11).
Margir bátar róa til 16. maí (12).
Afli Hornaifjarðarbáta rúmum 1600
lestum meiri en í fyrra (18).
Afli Vestfjarðabáta minnkar ár frá
ári (14).
Togarar afla vel við Austur-Græn-
land (14).
Togarinn Víkingur kemur með met-
afla til Akraness, 500 lestir af þorski
og kanfa (15).
Ekki grundvöllur fyrir karfafryst-
ingu í sumar að dómi SH 17).
Tveir Patreksfjarðarbátar gerðir út
á Grænlandsmið í surnar (17)
Rækjuvinnsla ný atvinnugrein í
Grundarfirði (19).
SR leigja tankskip til síldarflutninga
í sumar (19).
Togarinn Maí kemur með 540 lestir
af Grænlands- og Nýfundnalandsmið-
um 21).
Togarinn Sigurður selur 182 lestir 1
Hull fyrir kr. 16,22 hvert kg. (22).
Vélsikipið Gísli Árni kemur með 120
lestir af Grænlandsmiðum (28).
FRAMKVÆMDIR
Byrjunarframlkvæmdir Hafnarfjarð-
arvegar í Kópavogi boðnar út (1).
Byggingaráætlunin tekur við fyrstu
Íbúðunum í Breiðholti (1).
Brauðborg flytur í nýtt húsnæði (7)
Ákveðið að reisa gufuaflstöð við
NámafjaJl (7).
Sendibílastöðin hif. reisir nýtt stöðv-
arhús (8).
Áburðarverksmiðjan framleiddi fyr
ir 102,8 millj. kr. árið 1967 (6).
48 íbúðir í byggingu á vegum at-
vinnubílstjóra (8).
Nýtt elliheimili reist að Fellsenda
í Miðdölum (9).
Fyrsti kísilgúrinn fluttur frá verk-
smiðjunni við Mývatn (10).
Miiklar framkvæmdir í Reykjavik
vegna H-umferðar (11).
Fyrstu íbúar Breiðholtshverfis að
flytja inn (11).
Sérleyfisbifreiðar Keflavlkur kaupa
fjóra Steindórsbíla (12).
Loftleiðir fá fimmtu R-400 vél sína
(15).
Miklar framkvæmdir við Flókalund
og Bjarkarlund (16).
Byggingu dráttarbrautarinnar í Nes
kaupstað lokið (18).
Nýr skemmtistaður, sem ber nafnið
Las Vegas, opnaður í Reykja-vík (22).
Ný kirkja vígð í Hólmavík (25., 28).
Slysavarðstofan flytur 1 nýtt hús-
næði í Borgarsjúkrahúsinu í Foss-
vogi 30).
Sjálfvirk símstöð tekur til starfa á
Patreksfirði (31).
Nýju sundlaugarnar í Laugardal
opnaðar 1. júná (31).
MENN OG MÁLEFNI
Yfirmenn ,,Óðins“ heiðraðir í Grims
by fyrir björgunarafrek (4., 8.)
Dr. Björn Sigurbjörnsson ráðinn
varaforstjóri hjá FAO og Kjarnorku-
stofnuninni (4).
Hörður Karlsson, listmálari, sigrar
í samkeppni um teikningu á frímerki
í tilefni af 50 ára afmæli flugpósts
í Bandaríkjunum (4).
íslendingar unnu Skota í lands-
keppni í bridge með 104 gegn 70 stig
um (6).
S. W. Rostoft, iðnaðarmálaráðherra
Noregs, kemur hingað í opinbera heim
sókn (5.-7.)
Ein verðlaun og 10 viðurkenningar
veittar 1 ritgerðarsamkeppni u-m um-
ferðarViál (8).
Tveir islenzkir menntaskólanemar
hljóta ársdvöl í USA á vegum eiganda
Readers Digest (8).
Steindór Steindórsson skipaður
9kólameistari M. A. (9).
Rolf R. Nielsen, framkvæmdastjóri
Iðnrekendafélags Noregs í heimsókn
hér (10).
Gagnfræðaskóli Kópavogs sigrar í
skákmóti gagnfræðaskóla (10).
Fyrstu íbúarnir flytja í Breiðholts-
hverfi (11).
Harry Eddom, sfýrimaður, aftur á
leið á íslandsmið (14).
Flugmaður kemur hér við á smá-
flugvél á leið frá meginlandi Evrópu
til Ameríku (15).
Telpnakór Öldudalsskólans í Hafn-
arfirði sækja mót norrænna barna-
skóla (16).
Ungur íslendingur, Jón Benedikt
Björnsson, hlýtur styrk til þess að
læra grænlenzku (17).
íslenzkur námsmaður, Jóhannes Örn
Björnsson, veitt þrenn verðlaun við
Hamilton College í New York (22).
Vilhjálmur Lúðvíksson ver doktors
ritgerð við efnaverkfræðideild há-
skólans í Wiscounsin (25).
Kristján Ó. Jónasson, skipstjóri á
m.s. Þórsnesi hlýtur afreksverðlaun
sjómannadagsins (26).
Halldór Laxness gerður heiðursdokt
or við háskólann í Aabo í Finnlandi
(27).
Fjórir gamlir sjómenn heiðraðir á
sjómannadaginn (27).
Lord Errol, fyrrum viðskiptamála-
ráðherra Breta, í heimsókn hér (28).
Hannes Kjartansson flytur ræðu hjá
SÞ um bann við útbreiðslu kjarnorku
vopna (29).
Sr. Óskar Finnbogason kosinn prest
ur í Bíldudalsprestakalli og sr. Hall-
dór Gunnarsson prestur í Holtspresta
kalli í Rangárprófastsdæmi.
Hálfdán Guðmundsson, viðskipta-
fræðingur, 9kipaður skattstjóri Suður-
landsumdæmis (30).
Sir Herbert A. Brechen, borgarstj.
í Edinborg og kona hans 1 heimsókn
hér (31).
Einar Eiríksson á Hvalnesi leitar
gulls í landi sínu 31).
FÉLAGSMÁL
Gunnar Friðriksson endurkjörinn
forseti SVFÍ (1. og 8).
Kaupmannasamtö'k íslands gangast
fyrir námskeiðum í sölutækni og við
skiptaháttum (1).
Sjálfstæðisflokkurinn gengst fyrir
iðnþróunarráðstefnu (3. og 5).
Borgarstjórn Reykjavíkur samþyfck
ir, að fyrirframgreiðslu útsvara skuli
lokið fyrir 31. júli til þess að þau
verði frádráttarbær (3).
Kjartan J. Jóhanns9on, endurkjör-
inn formaður Geðverndarfélags ís-
lands (4).
Bergsteinn Guðjónsson endurkjör-
inn formaður Bifreiðastjórafélagsins
Frama (5).
Fulltrúar 16 þjóða á ráðstefnu hér
um fiskveiðar á NA-Atlantshafi (7, 8.
og 15).
Námskeið um skipulags- og bygg-
ingamál haldið á vegum Sambands
ísl. sveitarfélaga (8).
Félag skrúðgarðyrkjumeistara stofn
að. Formaður Björn Kristófersson (8)
Atli Ágústsson kosinn formaður
Verkstjórafélags Reykjavíkur (8).
Styrktarfélag aldraðra stofnað í
Hafnarfirði. Jóhann Þorsteinsson kos-
inn formaður (14).
Leiifur Sveinsson hrl. kosinn form.
Húseigendafélags Reykjavíkur (14).
Hermann Guðmundsson endurkjör-
inn formaður Hlífar í Hafnarfirði (15)
Ingólfur Finnbogason endurkjörinn
formaður Iðnaðarmannafélagsins í
Reykjavík (17).
Halldór Einarsson endurkjörinn for-
maður Lúðrasveitar Reykjavíkur (17).
Hermann Guðmundsson, endurkjör-
inn formaður Sparisjóðs alþýðu (16).
Átján prestaköll prestslaus (18).
Hafísnefndin kemur saman til
fundar (19).
Bæjarstjórn Siglufjarðar gerir sam-
þykkt á hátíðafundi um íþróttamið-
stöðvar í kaupstaðnum o. fl. (21).
Ferðamálaráðstefna haldin að Höfn
í Hornafirði (21).
Kennslurækt heldur fjölmennan
fund um skólamál (21).
Aðalfundur Vinnuveitendasambands
ins haldinn 1 Reykjavík (21., 22).
Gunnar Guðbjartsson kosinn for-
maður Búnaðar- og ræktunarsam-
bands Snæfellsness- og Hnappadals-
sýslu (21).
Páll Guðmundsson kosinn formaður
Samtaka síldveiðisjómanna (21).
Aðalfundur ISALs haldinn hér (21.
22).
Ingólfur Bjarnason endurkjörinn
formaður Fiskiræktarfélagsins Lár-
vík h.f. (22).
Útsvör í Reykjavík 755,8 miNi. kr.
Gjaldendur eru 28.927 (23).
..íslendingar og hafið“, mikil sýning
í Sýningarhöllinni í Laugardal (25. og
26).
Flugmálafélagið gengst fyrir fundi
um flugvallarmál Reykjavíkur (28.
og 30).
Deilt um stofnun starfsmannafélags
ísals (30. og 31).
Aðalfundur SH haldinn í Reykjavík.
Um 9% samdráttur á útflutningsverð-
mætum frystra sjávarafurða (30).
Aukin æskulýðsstarfsemi á vegum
Reykjavíkurborgar í sumar (31).
Erfiður rekstur Flugfélasg íslands
9l. ár Félagið flutti alls 182.668 far-
þega (31).
BÆKUR OG LISTIR
Leikfélag Akureyrar sýnir „Óvænta
heimsókn", eftir J. B. Priestley (1).
Tveir ungir málarar, Haukur Dór
Sturluson og Jens Kristleifsson, halda
sýningu (3).
Valtýr Pétursson heldur málverka-
sýningu (4).
Kristján Davíðsson heldur málverka
sýningu (4).
Ný bók „Skurðgröfur Vélasjóðs
1942—1966“, eftir Árna G. Eylands,
komin út (7).
Jóhannes Geir heldur málverkasýn-
ingu (12).
Leikfélag Reykjavikur sýnir Leyni-
mel 13, eftir Þrídrang (16).
Þjóðleikhúsið sýnir óperettuna —
„Brosandi land“, eftir Franz Lehár
(1S).
Karlakórinn Geysir á söngför um
landið (16.
Sinfón'íphljómsveitin frumflytur sin
fóníuna „Esjuna“, eftir Karl Ó. Run-
ólfsson (16).
Bragi Ásgeirsson heldur málverka-
sýningu 1 vinnustofu sinni (18).
Jónas Guðvarðsson heldur fyrstu
málverkasýningu sína (18).
Gunnar Hjaltason heldur málverka-
sýningu í Hafnarfirði (19).
Llstaverk eftir Sigurjón Ólafsson á
Stöðvarhúsinu við Búrfell unnin um
leið og húsið er steypt (19).
Ný bók, Jarðfræði, eftir Þorleif Ein
arsson, komin út (21).
Hörður Karlsson heldur málverka-
sýningu 1 Washington (23).
Sinfóníuhljómsveitin heldur tón-
leika á Akureyri i tiledni af 25 ára
afmæli Tónlistarfélagsins þar (23).
Óperan „Lyfsalinn'*, eftir Haydn
sýnd í Tjarnarbæ (28).
2. árg. af Skagfirðingabók kominn
út (29).
Síðustu tónleikar Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar undir stjórn Bohdan
Wodiczko 30).
SLYSFARIR OG SKAÐAR
Vélskipið Fanney RE 4 sefckur aust
ur af Horni. Mannbjörg (3).
Tvö skip Eimskips skaddast í ís,
Goðafoss og Bakkafoss (8).
Miklar skemmdir á skipum vegna
íss (9).
Gunnar Frederiksen, fyrrv. flug-
stjóri, skýtur Jóhann Gíslason, deild-
arstjóra, til bana (10., 11).
Brezki togarinn Ross Rodney siglir á
Sléttanes ÍS 710 (10., 11).
10 km langur háspennuvír á Hell-
issandslínu ónýtur vegna tæringar(16)
Lík litla drengsins, Haralds Bjarna-
sonar, sem hvarf sl. vetur, finnst við
Akurey (21).
íslenzkur námsmaður, Bergur Gests
son úr Gerðum, 32 ára, drukknar i
ánni Main í Þýzkalandi (21).
Bærinn Fit á Barðaströnd brennur
til kaldra kola (21).
Vatnsflóð eyðileggur nýtt malbik á
Laugarvegi, er aðalvatnsæð springur
(25).
Siglara með 3 piltum hvolfir á Ak-
ureyrarpolli (28).
Trilla með bilaða vél finnst í Faxa-
flóa eftir nokkra leit (28).
Átta ára drengur bíður bana í
Tunguá í Lundareykjardal (29).
Mikil spjöll unnin á leiðum í gamla
kirkjugarðinum í Reykjavík (29).
SKÓLAR
85 nemendur brautskráðir úr verzl-
unardeild V. í. (1).
Þrír einleikarar ljúka burtfarar-
prófi frá Tónlistarskólanum (4).
34 vélstjórar brautSkráðir frá Vél-
skóla íslands (9).
114 nemendur voru í Eiðaskóla I
vetur (14).
22 búfræðingar brautskráðir frá
Hólum (14).
Um 300 nemendur stunduðu nám við
Myndlista- og handtíðaskólann sl. vet-
ur (17).
300 nemendur voru í Barnamúsílc-
skóla Reykjavíkur sl. vetur (17).
219 nemendur voru í Tónskóla Sig-
ursveins D. Kristinssonar sl. vetur(lB)
25 fóstrur brautskráðar frá Fóstru-
skóla Sumargjafar (22).
33 nemendur ljúka lokaprófi í Sam-
vinnuskólanum (25).
AFMÆLI
Kr.attspyrnufélagið Fram 60 ára (1)
Dansskóli Hermanns Ragnars 10 ára
(3).
Meistarasamband byggingarmanna
10 ára (5).
Félag íslendinga í London 25 ára(8).
Landssamband blandaðra kóra 30
ára (9).
Almennar tryggingar 25 ára (11).
Félag matvörukaupmanna 40 ára.
(14).
Kvenfélagið Brynja á Flateyri 50
ára (16).
Félag pípulagningameistara 40 ára.
(17., 23.)
Kvenskátafélagið Valkyrjan á ísa-
firði 40 ára (17).
Siglufjörður á 50 ára kaupstaðaraf-
mæli og 150 ára verzlunarafmæli (19).
Félag íslenzkra stórkaupmanna 40
ára (21).
Ásmundur Sveinsson, myndhöggv-
ari, 75 ára (21).
Pétur Jóhannsson, Aðalstræti 13*
Akureyri, 100 ára (22).
ÍÞRÓTTIR
íslendingar unnu Spánverja í lands-
leik í handknattleik karla með 18:17
(1).
Walter Pfeieffer ráðinn landsþjálf-
ari KSÍ (10).
Óskar Guðmundsson, KR, íslands-
meistari í badminton (10).
Sex íslandsmet sett á Sundmóti ÍR
(11).
Valur Reýkjavíkurmeistari í knatt-
spyrnu 1968 (14). J