Morgunblaðið - 20.06.1968, Qupperneq 32
Héraðsmót Sjálfstæð-
isflokksins í sumar—
Hljómsveif Ragnars Bjarnassonar og
Róbert og Rúrik annast skemmtiatrióin
í SUMAR efnir Sjálfstæðisflokk-
urinn til héraðsmóta víðsvegar
um landið. Er ákveðið að halda
22 héraðsmót á tímabilinu S. júlí
til 25. ágúst. Samkomur þessar
verða með svipuðu sniði og hér-
aðsmót flokksins undanfarin sum
ur, en þá hefir verið tekin upp
nýbreytni við framkvæmd mót-
anna, er hefir mælzt mjög vel
fyrir, svo sem kunnugt er.
Á héraðsmótunum í sumar
munu forustumenn Sjálfstæðis-
flokksins flytja ræður að venju
og auk þess mun sérstakur full-
trúi ungu kynslóðarinnar tala á
hverju móti.
sonar leikur fyrir dansi og koma
söngvarar hljómsveitarinnar þar
að sjálfsögðu fram.
Héraðsmótin verða að jafnaði
þrjá daga í viku, föstudaga, laug
ardaga og sunnudaga. Mótin
vera á þeim stöðum sem hér seg-
ir:
Búðardal 5. júlí
Arnarstapa, Mýrum, 6. júlí
Hellissandi 7. júlí
Miðgarði, Skagaf. 13. júlí
Víðihlið, V-Hún. 14. júlí
Bíldudal 19. júlí
Framhald á bls . 31.
YNGSTA Kjarvals-myndin á
sýningunni í Listamannaskál
anum er mynd númer 21, sem
heitir „Vorlitir". Eigandi
myndarinnar er Geir Hall-
grimsson, borgarstjóri, og í
gær hittum við hann að máli
og spjölluðum við hann um
„Vorliti".
— Þegar ég var beðinn að
benda á einhverja fallega
Kjarvals-mynd til sýningar-
hér, sagði Geir, duttu mér
strax í hug tvær myndir, sem
ég hef daglega fyrir augun-
um. Önnur er Bláskógaheiði,
númer 12 hér á sýningunni,
sem er í eigu Reykjavíkur-
borgar og prýðir skrifstofu
mína — hin er þessi hérna
„Vorlitir“, sem ég á sjálfur.
Kjarval málaði „Vorliti“ ár
ið 1965, en eins og við sjá-
um verða ekki greind á henni
nein ellimörk hjá meistaran-
um. Ég vissi af því, að Kjar-
val var að vinna að einutn
þremur myndur eftir sama
mótívi — litum vorsins — og
fylgdist nokkuð með starfi
hans. Þessar myndir urðu þó
í sjálfu sér mjög ólíkar hver
annarri, þegar lauk, og ég
eignaðist þessa strax og Kjar-
val lauk við hana.
Eins og þið sjáið, eru lit-
irnir í þessari mynd einstak-
lega lifandi og fallegir. Ég
held, að ég verði aldrei þreytt
ur af að horfa á hana, því
raunverulega breytist mynd-
in eftir því, hvernig birtan
fellur á hana — en nýtur sín
þó alltaf jafn vel. Það er eins
og öll vornáttúran sé í þess-
ari einu mynd .
(Ljósm.: Mbl. Ól. K. M.)
Geir HaHgrímsson við myn d sína „Vorlitir"
Skemmtiatriði verða fjölbreytt.
Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar
mun leika og annast ýms
skemmtiatriði. Hljómsveitina
skipa Ragnar Bjarnason, Grettir
Björnsson, Árni Scheving, Jón
Páll Bjarnason og Árni Elfar.
Söngvarar með hljómsveitinni
eru Erla Traustadóttir og Ragnar
Bjarnason. Þá munu hinir
þekktu leikarar Róbert Arnfinns
son og Rúrik Haraldsson flytja
þætti og gamanmál af ýmsu tagi.
Ennfremur verða spurninga-
þættir, sem fram fara með þátt-
töku gesta á héraðsmótunum.
Að loknu hverju héraðsmóti
verður haldinn dansleikur, þar
sem hljómsveit Ragnars Bjarna-
Autt n götum
i gærkvöldi
SJÓNVARPS- og útvarpsþáttur-
inn 1 gænkvöldi, þar sem forseta-
efnin bæði svöruðu spurningum
fréttaimanna, var greinilega beð-
ið með mikilli eftirvæntingu. —
Logreglan tjáði Morgunblaðinu,
að allar götur borgarinnar hefðu
tæanzt, bæði af bílum og gang-
andi vegfarendum meðan þáttur-
inn stóð yfir. Sagði varðstjórinn,
að umferðin hefði verið líkust
því sem er klukkan þrjú að
nóttu.
Fyrsti kosningafundurinn í
Laugardalshöll í næstu viku
— með „Ungu fólki64 í Háskólabíói í kvöld
FYRSTI kosningafundur, sem
haldinn er í Laugardalshöllinni,
verður fimmtudagskvöldið í
næstu viku, en þá efna stuðn-
ingsmenn dr. Gunnars Thorodd-
sens til almenns fundar þar. Frá
þessu er skýrt í fréttatilkynn-
ingu, sem Morgunblaðinu barst í
gær, en þar er ennfremur skýrt
frá fundi ungra stuðningsmanna
Gunnars Thoroddsens í Háskóla-
bíói í kvöld, og segir í fréttatil-
kynningunni, að hér sé um að
ræða fyrstu kosningasamkomuna
hér á landi, sem eingöngu er
ætluð ungu fólki. Fréttatilkynn-
ingin fer hér á eftir:
Ungir stuðningsmenn Gunnars
Thoroddsens efna til kosninga-
samkomu í Háskólabíói kl. 20.30
í kvöld. Þetta er í fyrsta sinn
hér á landi, sem unngt fólk efn-
ir til kosningasamkomu fyrir
ungt fólk eingöngu.
Dagskrá samkomunnar er
mjög fjölbreytt, en í fundarlok
mun Gunnar Thoroddsen flytja
ávarp.
Fimmtudagskvöld i næstu
viku, 27. júní, efna stuðnings-
menn Gunnars Thoroddsens síð-
an til almenns kosningafundar í
stærsta samkomuhúsi landsins,
íþróttahöllinni í Laugardal.
Aldrei áður hefur verið haldinn
kosningafundur í þessu veglega
húsi.
Á fundinum verða flutt stutt
ávörp, en síðan mun forsetaefn-
ið, Gunnar Thoroddsen, ávarpa
fundargesti.
Fleedwood-togori í londhelgi
VARÐSKIPIÐ Þór kom í gær-
morgun að brezka togaranum
Loch Melfort FD-228 frá Fleet-
wood, þar sem hann var að
meintum ólöglegum veiðum 1
Lónsbugt úti fyrir Suðaustur-
landi. Mældist togarinn 2,7 sjó-
mílur fyrir innan fiskveiðilögsög
Varðskipið var í gærdag á leið
til Austfjarða með togarann, en
ekki hafði verið ákveðið til
hvaða hafnar yrði farið og mál
brezka togarans tekið fyrir.
Skipherra á Þór er Bjarni
Helgason.
Veiöi í Stóru-Laxá hefj-
ist ekki fyrr en 5. júlí
Ágreiningur risinn upp í Veiðifélagi Ár-
nesinga, þar sem stjórnin virti ekki
meirihlutasamþykkt aðalfundarins
STJÓRN Stóru-Laxárdeildar
Veiðifélags Árnesinga hefur
ákveðið að stangveiði skuli ekki
hefjast í ánni fyrr en 5. júlí n.k.
samkvæmt aðalfundarsamþykkt.
Áður hafði stjórn Veiðifélags
Árnesinga samþykkt að veiðar
skyldu hefjast á venjulegum
tíma, enda þótt aðalfundurinn
hefði samþykkt hið gagnstæða.
Morgunblaðinu barst bréf, sem
Framlh. á bls. 31