Morgunblaðið - 20.07.1968, Side 8

Morgunblaðið - 20.07.1968, Side 8
r. 8 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ 1968 „Þótt slfpist hestur og slitni gjörð" hafa hann“. Sigurður mælti þetta hlæjandi. ..Geturðu lýst því 1 stórum dráttum hvernig tamning fer fram?“ Sigurður bóndi í Krossanesi sóttur heim I Oft sást hann koma þeysandi eftir Vallabökkunum, stundum með þrjá til reiðar, sitjandi létti- lega í söðlinum, sönglandi e.t.v. vísu eins og þessa: Þótt slípist hestur og slitni gjörð slettum ekki kvíddu. Hugsaðu hvorki um himin né jörð, haltu þér fast og ríddu. Enska derhúfan á höfði reið- mannsins lyftist aftur á hnakka, snerist og hallaðist á víxl, og jörðin dúaði undir hófum snill- inganna. Sigurður bóndi Óskarssón var á leið til síns heima. Hann einn með sína gæðinga, þegar hann er í sínum rétta ham. er enn tignarlegri en riddaraliðssveit úr konunglegum lífverði. Á hestbaki er þessi skagfirzki bóndi höfðingi í sínu veldi. „Ég hef ekki minni áhuga á hestum en áður var nema síður væri“ sagði hann við greinar- höfund, sem skrapp í stutta heim sókn til Sigurðar í s.l. mánuði, daginn eftir að hafa spjallað við nágranna hans og bróður í leik, Reimar á Löngumýri. Því miður gafst ekki færi á að hitta líka Jón Hallsson á Silfrastöð- um, sem er einn þessara þriggja síðustu Móhíkana, hestamann- anna af gamla skólanum, í Skaga firði. Bærinn í Krossnesi var um- luktur harðfenni. Hesthúsið við bæinn var hljótt. Þó heyrðist lágt hnegg þaðan um leið og bónda hafði verið heilsað á hlað- inu. Kona Sigurðar er Ólöf, systir Ingibjargar á Löngumýri. Börn hjónanna eru orðin uppkomin, farin að heiman, og þau ein eft- ir yfir veturinn. Á sumrin fyll- ist allt af fólki, smáfólki, barna- börnum og börnum frænda og vina og öðrum mannverum. Vegna gamals kunningsskapar úr firðinum" fékkst Sigurður tii þess að leysa pínulítið frá skjóð- unni. Fæddur er hann og alinn upp 1 Lýtingsstaðahreppi. Um ferm- ingu fer hann að vinna fyrir sér hingað og þangað, átti heima á Vindheimum fram til tvitugs, hjá Magnúsi Sigmundssyni. „Svo þegar ég fór þaðan, vann ég við plægingar víða í sýslunni. Ann- ars fór ég aldrei alveg að heim- Salisbury, 19. júlí. AP. TIL átaka kom í dag milli ör- yggissveita Rhodesiu og afrík- anskra skæruliðaflokka og i fyrstu fréttum var sagt að ellefu hefðu fallið. Það fylgdi og sög- unni, að bardagar héldu áfram. an, því að í fríum leitaði hug- urinn alltaf þangað.“ „Hvenær byrjaðirðu að stunda hestamennsku?" „Það var ekki fyrr en ég var kominn í Vindheima. Það var mikið um hesta þar, og ég man það, að Sigmundur á Vindheim- um, faðir Magnúsar fór að segja mér að fara að temja, og ég var óskaplega mikið upp með mér af því, að mér skyldi vera trúað fyrir því að temja tryppi — ég var fimmtán ára . . .“ „Var fyrsta lexían hörð?“ „Nei, nei, þetta gekk allt sam- an vel. Ég var ófeiminn við þetta og hafði gaman af þessu. Mað- ur var kannski mikið montinn, þegar maður fór að vera með tvær ótemjur í einu.“ „Sigurður — heldurðu að það búi í hestamanninum sjálfum, hvað hann gerir úr hestinum?“ „Fyrst og fremst er það upp- lagið í hrossinu". „En bregður ekki fjórðungi til fósturs?" „Það hefur ákaflega mikið að segja og er mikið undir tamn- ingamanninum komið og hvernig tamningarmaðurinn fer að hest- inum. Það er þýðingarmest hvern ig farið er að hestinum“. „Hefurðu einhverjar reglur par um?“ „Engar reglur — ég fer bara eftir köllun hjartans, eftir því sem mér finnst við eiga við hvert trippi í það og það skiptið. Mað- ur tekur fyrst tryppið og um- gengst það og þá finnur maður fljótt hvað í því býr. Það er hægt að kynnast því, alveg eins óg manneskju". Hann heldur áfram: „Þetta hefur svo mikið að segja að fara rétt að hest- inum frá byrjun. Ég get sagt þér það t.d., að það hefur varla komið fyrir að tryppi hafi hríkkt mig, sem enginn hefur komið á bak áður.“ „Hefurðu lært af öðrum hesta- mönnum?" „Þegar ég var ungur, þá var mikið um hestamenn. Hesturinn var það tæki, sem allir notuðu.“ „Er hestamennska fremur list en vísindamennska?" Sigurður svaraði snöggt: ,,A1- veg örugglega. Það er náttúru- lega hægt að segja fólki mikið til.“ „Hvaða hvöt — hvaða þörf er á bakvið hestamennsku þína — heldurðu, að það séu sérstakar sálgerðir sem hafa gaman af hestum?“ „Það er eftirtektarvert, að það er eiginlega til í hverju einasta barni að hafa gaman af því að komast á hestbak. Ég hef tekið eftir því. Það hafa verið hjá mér síðan ég fór að búa margir krakk ar úr kaupstöðum og undan- tekningarlaust þrá þeir allir að fara á hestbak. Þetta er upp- runalegt og eðlilegt". Sigurður sagði, að hesta- mennska væri _ sér gleði — og hvíldargjafi: „Ég man eftir því fyrr á búskaparárum mínum, að þegar ég var lúinn að kvöldinu, þá þurfti ég ekki annað heldur en að leggja við góðan hest og skreppa á bak og þá var lúinn úr mér, þæði Sá andlegi og lík- amlegi." „Hvernig lízt þér á þessa hesta mennsku nútímans að ala hest ana upp á uppeldisstöðvum — er hætta á því að hesturinn úr- kynjist við það?“ „Ég skal nú ekki segja ‘, segir hann, „nú er orðið ákaflega mik ið sport t.d. í stærri bæjunum, að eiga hest, og það eru nátt- úrulega margir sem kaupa góða Fyrstu stigin í tamningunni hjá Sigurði í Krossanesi. i Unnið er af kappi við iagn- ingu Reykjanesbrautar gegmim Kópavog. Er nú verið að sprengja fyrir brúarstólpunum undir eystri brúna á veginum, en hún verður, eins og kunnugt er yfir gatnamót Nýbýlavegar og Kársnesbrautar. Er búizt við, að farið verði að slá upp mótura á mánudag. Myndin sýnir gryfj una, þar sem endi brúarinnpr á að verða. Annar brúarstólpinn verður á móts við skurðgröfuna, sem nær er, en hinn verður í hinum enda gryfjunnar, rétt við hina skurðgröfuna. Vegurinn mun svo liggja norð an við núverandi Hafnarfjarðar- veg og tengjast Kringlumýrar- braut við Kópavogslæk. (Ljósm. Mbl. Sv. Þorm) hesta og verður lítið úr þeim. Þeir eru teknir sjaldan, en þeg- ar þeir eru teknir þá eru þeir brúkaðir of mikið, riðið of hratt. Það er þó skylt að geta þess að það eru margir hestanenn í Reykjavík, ég þekki marga slíka. Sigurður sagði af manm, sem hefði keypt af sér nokkra hesta. l sumar kom hann hingað. Hann vissi að ég átti fimm vetra brún- an fola, ákaflega glæsilegan hest og kom hann hingað þegar ég Sigurður í Krossanesi á einum var að þyrja að temja hann, hérna um sumarmálin, og spurði mig hvað ég ætlaði að serja á hann. Ég sagði honum að ég setti á hann — ég veit ekki, hvort ég á að segja það . .' .“ (og nú hlær hann) „glannalega hátt“. „En er ekki erfitt að meta hesta til fjár — þetta eru dýr- gripir“? „Það er alveg rétt“, segir Sig- urður, , og það er ekkert grín fyrir mig að selja hest. Vegna þess að ég hef dálítla framieiðslu þá sel ég nokkra hesta á ári.“ Sigurður á töluvert af hross- um, með stóði og öllu. „í haust átti ég ekki nema þrjá tamda, ég sel alltaf bæði hálftamua og fulltamda. Á síðustu fiinm árum hef ég selt tíu hesta til Reykja- víkur.“ „Hvað ertu lengi að temja hesta?“ „Ef ég á að fulkemja hesta, þá er það ekki gert á minna en tveim árum, þ.e.a.s. ef það er gæðingur." „Hvaða stig fer nestuiinn í gegnum, frá því að þú tekur hestinn, sem trippi, þegar hann er tveggja vetra?“ „Það er nú bara þannig með okkur Skagfirðingana, sem eig- um dálítið af stóði, að víð tök- um oft ekki folana fyrr en á fjórða og fimmta vetur. Þar sem þeir eiga færri hross, t.d. i Eyja- firðinum, þar ala þeir betur upp Annars er ég með þá núna hérna í hesthúsinu nokkra sem eru ungir. Ég er að byrja rétt með þá“. Andartaksþögn. Svo fer hann að tala um folann sinn og Reykj- víkinginn: „Og ég ætla að segja þér, að hann kemur hingað þessi maður úr Reykjavík, og hann hafði séð þennan þrúna hest haustið áður. Hann segir við mig: „Þú selur hann aldrei fyrir þet.ta" „Það verður þá að hafa það“ Svo kemur hann í ágúst sl. sumar, segir að sig langi til að sjá, annars ætli hann ekkert að kaupa og hann eigi nóga hesta. „Allt í lagi“. segi ég, „því að ég er líka hættur við að selja Brún“. Þetta var satt, því að hann reyndist ákaflega skemmti legur og glæsilegur. Svo fer hann, þessi maður, sína leið og minnist ekki á neitt. Eftir íimm daga kemur hann aftur í sinni drossíu, kallar á mig út í bíl og segist mega til með að kaupa Brún. Það endaði með því, af því að þetta er ágætismaður og mikill hestamaður, og við höfð- um rkipt saman. að ég lét hann „Ég hef það þannig, að ég tek folann inn, set á hann mUl og reyni að spekja hann. Og þegar hann er búinn að vera nokkurn tíma á múl, við getum sagt hálfan mánuð, þá er hann hættur að taka í. Þá legg ég við hann og fer að teyma hann, og þá er hann yfirleitt fljótur að teymast." „Og þá ertu búinn að járna hann — járnarðu hann yfirleítt strax? Getur það ekki verið hörð raun?“ góðhesti sínum. (Ljósm.: stgr. „Það gengur yfirleitt vel. Við Reimar á Löngumýri járiium van alegast saman og höfum alveg sérstakt lag með það — við járnum hvaða hest sem er tveir. Það getur verið erfitt að jáma hest, ef hann er alveg laus en við bara tyllum þeim, bæði að aftan og framan. Þeir standa á steingólfi og svo bara bindum við þá — þá hreyfa þeir sig ekki mikið.“ Hann hélt áfram að lýsa tamn- ingunni í stórum dráttum: „Þegar hesturinn er orðinn vel teymdur, þá fer maður að leggja á hann. Fyrst er ekki hægt að heimta neitt af trippinu annað en að það gangi vel áfram. Svo þegar það fer að láta vel að stjórn og komið í það vilji, þá fer maður að ríða því til gangs og þreifa fyrir sér hvort ekki sé góðgangur í því. Eftir því sem trippið temst meira fer mað- ur að heimta meira af því. ‘ „Er ekki stundum erfitt fð leggja hnakk á trippið?" „Það getur verið mjög erfitt, en annars er það voðalega mis- jafnt.“ „Finnurðu fljótt hvort það er vilji í skeppnunni?“ „Ég tel það þurfi að koma nokkuð snemma. Annars segja sumir að það þurfi að bíða eftir því í nokkur ár, en mér hefur aldrei reynzt það svo.“ „Getur latur hestur al't í eínu fengið vilja?“ „Þeir segja það — en það hef- ur aldrei komið fyrir )ijá mér. Kannski gera þeir, sem eru sterk ari hestamenn en ég, slík krafta- verk á hestum. Yfirleitt er það þannig, að ef maður er búinn að leggja á hest tíu — tuttugu sinnum og engin sinna eða vilji kominn í hann, þá lízt mér i.eld ur illa á hann.“ „Hafa þínir hestar persónu- leg einkenni?" „Mínir hestar eru yfirleRt allir taumléttir og ljúfir og ég hef aldrei átt neinn hest sem nefur sýnt hér brellu. Ég hef sén-æht- að mín hross æði lengi. Kona mín átti ágæt hrois frá Löngu- mýri. Það var ágætis hestakyn þar og svo á fyrri búskapnr- árum mínum varð ég mér dálítið úti um ágætis hryssur". „Finnst þér þú breytast, þeg- ar þú trt kon-.inn á hest.hak,‘' „Mér líður aldrei eins vel og þegar ég er kominn á bak. Það er sagt að Skagfirðmgar séu hestamenn og þeir séu montnir en það er ekki fyrir það að þeir séu montnir, þótt þeir beri sig vel á hestbaki — það kem- ur af sjálfu sér.... manni líð- ur það vel. — stgr

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.