Morgunblaðið - 20.07.1968, Síða 22

Morgunblaðið - 20.07.1968, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ 196« Lofsverð nýjung í hand- knattleiksstarfinu — Þjálfunarmiðstöð starfrækt — j Réttarholtsskólanum Handknattleikssamband fs- lands og Handknattleiksráð Reykjavíkur hafa í sameiningu komið á fót þjálfunarmiðstöð fyrir handknattleiksmenn í Rétt arholtsskóianum. Er þarna um Stökkkrafturinn æfður. Guðjón Þór Ragnarsson og Ingvar Ragnarsson, báðir úr Fram stökkva upp og skjóta í gegnum kaðallykkju. Lamaður maður reynir Ermarsund í gær henti lamaður Banda ríkjamaður, sem áður var fall hiífahermaður, frá hér hækj- um á ströndinni við Dover og varpaði sér í Ermarsund og ætlar að reyna að synda yf- ir sundið til Frakklands. Harry Hinken heitir hann og er 43 ára. Hann lamaðist af völdum Iömunarveiki frá brjósti og niður úr og synd- ir því einungis með höndun- um. — Ég held ég hafi það á 18 kiukkustundum, sagði hann. Síðan kyssti hann konu sína og börn, Douglas 11 ára og Kimberley 8 ára og lagði síð- an af stað á baksundi. Þetta er önnur tilraun hans við Ermarsund. Honum mis- tókst sú fyrri á s.l. ári Varð hann þá að gefast upp eftir að hafa gleypt olíu og orðið veikur af. Þá hafði hann synt í 8 tíma. Landskeppni í sundi ÁKVEÐIN er landskeppni í sundi milli íslands og Danmerk- ur á næsta ári og fer hún frarn ytra fyrir Norðurlandamótið í sundi það ár. Verður um gagn- kvæma keppni að ræða og munu löndin heyja aðra keppni 1971 fyrir Norðurlandamótið þá, sem að líkindum verður haldið hér á landi. Upplýsingar þessar eru frá Garðari Sigurðssyni, form. SSÍ, sem nýkominn er af þingi norr- ænna sundsambanda. Garðar sagði og að bæði Skot- ar og írar hefðu sýnt mikinn áhuga á að á kæmist samskipti um landskeppni við íslendinga í sundi til skiptis í löndunum. Er unnið að þeim málum. að ræða lofsverða nýjung í hand knattleiksstarfinu, sem gefa mun handknattleiksmönnum tæki færi til að æfa flest atriði leiks- ins, samkvæmt sérstöku æfinga- prógrammi. Sagði Karl Bene- diktsson, er blaðamaður Mbl. ræddi við hann fyrir skömmu, að allmargir hefðu orðið til þessa að nota sér þessa æfingaaðstöðu og að aðsókn mundi sennilega aukast þegar landsliðsförinni til Færeyja væri lokið. — En það er áberandi að þeir leikmenn sem komið hafa hér einu sinni, koma aftur og sýna mikinn áhuga, sagði'Karl. Þá ræddum við einnig við þrjá unglingalandsliðmenn í handknattleik, sem voru þarna á æfingu, og allir voru sammála um að æfingar þessar hefðu mik ið notagildi, og voru þakklátir íþróttaforystunni fyrir þetta framtak. Æfingaprógrammið er byggt upp af þeim Birgi Björnssyni, landsliðsþjálfara, Karli Bene diktssyni, Hilmari Björnssyni og Viðari Símonarsyni er allir þjálfa 1. deildar lið. Karl Benedikts- son gekk með okkur um æfinga- salina og skýrði hvernig æfing- arnar eru byggðar upp. Má segja að allt húsið sé nýtt til hins ýtrasta, og meira að segja fara fram upphitunaræfingar í stigunum. Sagði Karl það mikils vert að leikmenn reyndu að fara sem mest eftir æfingaprógramm- inu og fá þannig fram heild í æfingu sinni. Karl sagði, að enn væri þjálf- unarmiðstöðin ekki nógu vel sótt en kenndi um, sem áður segir, að landsliðið er í ferð til Færeyja og ennfremur að nýlokið er fs- landsmótinu utanhúss. Landslið- ið mun æfa þarna í framtiðinoi og einnig gefst hverju félagi kostur á að fá pláss fyrir a.m.k. fimm leikmenn sína. Þjálfunarmiðstöðin verður op in 5 daga í viku frá kl. 6-8, þannig að leikmenn geta einnig æft með félögum sínum sem flest hver byrja æfingar sínar ekki fyrr en eftir þann tíma. Á staðn um verður þjálfari sem leiðbein- ir mönnum gegnum æfingarpró- grammið og útskýrir það, en hver og einn ræður síðan hversu oft og lengi hann gerir sömu æf- ingarnar. Ekki er vafi á því að hand- knattleiksmenn hafa mikið til þessarar þjálfunarmiðstöðvar að sækja. Prógrammið er vel upp byggt og menn fá þjálfun í nær öllum atriðum handknattleiks. Þessi tími árs, eftir að íslands- mótinu úti líkur, og þar til fé- lögin fara að æfa af krafti und- ir innimótin, v ilja einnig oft verða „dauður tími“ hjá hand- knattleiksmönnum. En þarna gefst tækifærið fyrir þá sem áhugann hafa að vinna sig upp. Tækninefnd H.S.f. stjórn H.S.Í. og H.R.R. eiga heiður skilinn fyrir framtakið Stefán Gunnarsson, Val í við ureign við erfiðan mann“. „varnarleik- Baráttan stóð milli ÍR- og Ármenninga — á Unglingameistaramóti Reykjavíkur UNGLINGAMEISTARAMÓT Reykjavíkur var haldið á Laug- ardalsvellinum dagana 3. og 4. júlí. Úrsiit urðu sem hér segir: Langstökk: 1. Friðrik Þ. Óskarsson, ÍR, 6.08 2. Hróðmar Helgason, Á, 5.87 3. Finnbj. Finnbjörnss., ÍR, 5.79 Spjótkast: 1. Finnbj. Finnbjömss., ÍR, 47.40 2. Stefán Jóhannsson, Á, 45.00 3. Hallur Þorsteinsson, ÍR, 41.60 110 m grindahlaup: 1. Borgþór Magnússon, KR, 18.8 2. Hróðmar Helgasom, Á, 19.1 100 m hlaup: 1. Sigþór Guðmundssson, Á, 11.9 2. Finnbj. Finnbjörnss., ÍR, 11.9 3. Rúdolf Adolfsson, Á, 12.2 400 m hlaup: 1. Rúdolf Adolfsson, Á, 55.4 2. Ævar Guðmundsson, ÍR, 58.0 1500 m hlaup: 1. Þórarinn Sigurðs., KR, 4:44.9 2. Birgir Halldórsson, Á, 5:26.7 Kúluvarp: 1. Guðni Sigfússon, Á, 11.95 Síðustu kennsludagar enska gollkennarans Meistarakeppni Colfklúbbs Ness NÚ eru síðustu forvöð að njóta tilsagnar og kennslu enska golf kennarans Robert McWinney, sem starfað hefur á vegum Golf klúbbs Ness undanfarnar vikur. Kennarinn heldur utan n.k. fimmtudag og því vakin athhygli golfiðkenda á því að nota sér síðasta tækifærið sem gefst til kennslu hjá honum. Kennslan er öllum opin meðan tímar kennarans leyfa og skrá- setning tíma í skála klúbbsins. Fyrir dyrum stendur árleg meistarakeppni Nessklúbbsins og hefst hún n.k. föstudag. Verð ur keppt í ölLutn flokkum á því móti. 2. Gísli Árnason, Á, 11.2S 3. Bergþór Einarsson, Á, 10.68 Hástökk: 1. Elías Sveinsson, ÍR, 1.65 2. Ágúst Þórhallsson, Á, 1.60 3. Friðrik Þ. Óskarsson, ÍR, 1.60 400 m grindahlaup: 1. Rúdolf Adolfsson, Á, 63.8 2. Hróðmar Helgason, Á, 68.0 200 m hlaup: 1. Sigþór Guðmundsson, Á, 24.4 2. Hannes Guðmundsson, Á, 24.9 3. Ævar Guðmundsson, ÍR, 26.2 800 m hlaup: 1. Rúdolf Adolfsson, Á, 2:26.3 2. Birgir Halldórsson, Á, 2:38.0 3000 m hlaup: 1. Þórarinn Sigurðs., KR, 10:40.3 4x100 m boðhlaup: 1. Sveit ÍR 2. Sveit Á 48.1 48.6 Þrístökk: 1. Friðrik Þ. Óskarsson, ÍR, 13.09 2. Borgþór Magnússom, KR, 12.45 3. Hróðmar Helgason, Á, 12.36 Stangarstökk: 1. Guðjón Magnússon, ÍR, 3.10 2. Elías Sveinsson, ÍR, 3.00 3. Friðrik Þ. Óskarsson, ÍR, 2.89 Kringlukast: 1. Guðni Sigfússon, Á, 33.20 2. Elías Sveinsson, ÍR, 28.45 3. Ævar Guðmundsson, ÍR, 21.18 Sleggjukast: 1. Magnús Þórðarson, KR, 34.49 2. Rúnar Sigfússon, Á, 31.00 3. Stefán Jóhannsson, Á, 30.59 1000 m boðhlaup: 1. Á a-sveit 2. Sveit tR 3. Á b-sveit 2:15.0 2:17.7 2:30.0

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.