Morgunblaðið - 02.08.1968, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 02.08.1968, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 1968 rÖ7&7 Slmi 22-0-22 Rauðarárstíg 31 magimOsar ;kipholti 21 SÍMAR 21190 eftir lokun simi 40381 s ^8iM11-44-44 mmifí Hverfisgötu 103. Sími eftir lokun 31160. LITLA BÍT.ALEIGAN Bergstaðastræti 11—13. Hagstætt leigugjald. Sími 14970 Eftir lokun 14970 eða 81748. Sigurður Jónsson. BÍLALEIGAN - VAKUR - Sundlaugavegí 12. Sími 35135. Efti. lokun 34936 og 36217. BÍLALEIGAN AKBRALT SENDUM SÍM6 82347 Iskaunn Bílar af öllum gerðum til sýnis og sölu í glæsilegum sýningar- skála okkar oð Suðurlandsbraut 2 (við Hallarmúla). Gerjð góð bílakaup — Hagstæð greiðslukjör — Bílaskipti — Taunus 15m cube ’67. Taunus 17M station ’66. Taunus 17M ’61. Volkswagen ’65, ’66, ’68. Benz diesel ’61. Daf ’65. Saab ’64, ’65. Zephyr ’66. Moskwitch ’63. Fiat 850 ’67. Willys ’65. Austin Gipsy ’63. Landrover ’64. Tökum ' vel með farna blla I umboðssálu — Innanhúss eða utan _ VERZLIÐ ÞAR SEM úrvalið er mest. UM8QDNI HR HRISTJÁNSSDN H.F SUÐURLANDSBRAUT 2, VIÐ HALLARMÚLA SÍMAR 35300 (35301 - 35302/ Minningarreitur við Gömlu sundlaug amar Gamall Laugnesingur" skrifar: „Kæri Velvakandi! Með söknuði höfum við kvatt gömlu sundlaugamar, þar sem við Reykvíkingar höfum átt svo marga indæla stund. Ný og glæsileg sundlaug er komin í staðinn rétt hjá, sannköiluð stolt Reykjavíkurborgar. En minningin um þær gömlu gleymist seint. Nú hefur verið sléttað yfir gömlu laugarnar. f ljós ksmur, þegar blikkið er farið, að þessi staður er gullfallegur, og hvernig væri nú að gera þarna minmingarreit um sumdmennt okkar að fomu og nýju? Reit- urinn mundi teygjast að hvamminum fyrir neðan Bjarg. Bezt hefði verið, að hluti gömlu lauganna hefði mátt haldast, en nú er það of seint. í stað þess kæmi þarna friðsæll grasreitur með bekkjum, blóm skrúði og gosbrunni ásamt ein- hvers konar minnismerkjum um fornar og nýjar sundhetjur okkar. Ég nefni bara Kjartan Ólafsson og Pál Erlingsson. Gaman væri, ef borgaryfir- völd tækju þessa tillögu til vinsamlegrar athugunar. Virðingarfyllst, gamall Laugnesingur". -k Skríll að skemmta sér Ása Guðmundsdóttir skrifar: „Reykjavík, 22. júlí 1968. Góðan daginn, Velvakandi! Mig langar til þess að koma á framfæri frásögn af atviki nokkru, sem átti sér stað aust- ur í sveit, í síðustu viku. Við hjónin brugðum okkur í Land sveitina sl. laugardag, og hitt- um þar heimafólk að máli. Og það kom á daginn, að nokkrum dögum áður hafði þetta sama fólk orðið vitni að heldur strákslegu atferli, og það svo mjög, að hefðu ung- lingar verið þar að verki, þá hefði æskulýður landsins bor- ið kinnroða fyrir. Svo hagar þarna til, að þ;óð- vegurinn liggur skammt frá bænum, og er ekki að orð- lengja það, að um miðja síð- ustu viku ók þar bifreið hjá, stanzaði í sjónmáli, og sí5a". hófst keppni mikil. Hún var fólgin í því að kasta gosdrykkja flöskum í girðingarstaur, og það má gera ráð fyrir, að sá hafi unnið, sem flestar braut flöskumar. Alla vega lauk henni ekki, fyrr en allar lágu brotnar á víð og dreif kringum staurinn. Mér finnst ekki ástæða til, að svona framkoma liggi í þagn- argildi, og þá þess síður, þeg- ar takmark þessa sumars er kennt við orðin, „Hreint land, fagurt land“. Heimilisfólkið á þessum bæ hafði scerkan grun um, að þessi bifreið væri ein af bifreiðum Vegagerðarinnar, en hvort sem það hefur nú ver- ið, eða ekki, þá væri þessurn mönnum og öðrum slíkum, hollt að minnast þess, að það getur gengið fram af venjulegu, ró- sömu bændafólki við aðfarar eins og þessar. Og ég trúi því tæplega, að hlutaðeigendum finnist upp- hefð í því, að vera umtalaðir vegna slíkra verka. Ása Guðmundsdóttir". ★ Hve lengi? Þannig spyr „Kaplskýl- ingur“ og skrifar síðan: „Velvakandi! „Þú, sem ert hinn góði arf- taki Hannesar á horninu og gefur mörgum greið og góð svör: Ég hefi um langt skeið oft lagt leið mína um Kapla- skjólsveginn og ætíð haft gleði af að horfa á lítið, ljóst og snot- urt hús í grænu túni blasa við (beint á móti K.R.). Nú er alit túnið, sem húsið stendur á, komið undir ný og falleg hús og búið að ganga frá öllu um- hverfi þeirra fyrir löngu. En þetta eina hús stendur nú með andstyggilegt moldarflag fyrir framan sig árum saman, þar sem áður var grænt gras. Nú er víst bærinn búinn að taka við þessari lóð, hugsaði ég með, og snyrtimenska þar með horfin. Hve lengi getur borgin viðhaft svona aðfarir gagnvart fólki? Kaplskýlingur". — Velvakandi telur sig nú fremur arftaka Víkverja, sem sá um svipaða dálka hér 1 Morgunblaðinu um langan tíma. Ekki veit ég, hvort borg- in ber ábyrgð á flaginu, en gott væri að fá þetta upplýst, eða öllu heldur: fá flagið grætt. Annaxs minnir fyrirsögnin á Cicero: Quo usque tandem . . . Verzlunar- og skrifstofuhúsnæði Um 100 ferm. verzlunarhæð og ámóta skrifstofuhæð til leigu í steinhúsi á góðum stað í Miðborginni. Tilboð sendist afgr. Mbl., merkt: „Verzlunarhæð — 8378“ og „Skrifstofuhæð — 8379“. Óska eltir 4ra herb. íbúð sem fyrst í Hiíðunum eða Kópavogi. — Tvennt fullorðið í heimili. Tilboð, merkt: „W W — 8382“ sendist fyrir 7. ágúst. FERÐALAGIÐ Elitra 214x2,74, - hœð 185 - kr. 4.640,00 Maxur IV. með átöstu sóltjaldi, 180,x270, - kr 4.900,00 Wigri 200x260. Hæð 165. Með himni kr. 3.910,00. Mamry 240x265. Hæð 180. Með himni kr. 4.275,00. Warz IV 240x265. Hæð 180. Með himni kr. 4.840,00. ALLT í Pólsku tjöldin Danskar vindsængtir, svefnpokar, tjaldborð og stólar, gassuðutæki, veiðiáhöld og pottasett Aðalstræti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.