Morgunblaðið - 02.08.1968, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 02.08.1968, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLABIÐ, FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 1968 við hliðina á henni. Phyllis var ein þessara kvenna, sem fæðast fullorðnar. Pan gat ekki að sér gert að finnast hún einna líkust einhverju grannvöxnu skógar- dýri, sem kann að berjast fyri því, sem það langar í, og gerir það samvizkulaust og án tillits til allra siðareglna. En falleg er hún samt! Pam gat ekki láð Jeff þó að hann væri alltaf að horfa á hana. Nei, hún gat ekki láð honum það. Og samt kvaldi afbrýðisemin hana eins og hníf- ur, sem snúið er í sári. Pyllis var sezt hjá Jeff við skipstjóraborðið. Sumar konur eru eins og sjálfkrafa settar við skipstjóraborðið hvort sem nokkur ástæða er til eða ekki. Þær kunna að hrífa þjónana, og það kunni Phyllis. En svo kunni hún líka að vera skemmtilegur borðfélagi. Pam gat séð úr sæti sínu, að hún var stöðugt að koma karlmönnunum kring um sig til að hlæja. Það var ekki trútt um, að hún öfundaði hana. Alla ævi hafði hún þráð að vera svona örugg um sjálfa sig Var Phyllis raunverulega eins sjálfsörugg og hún lét, eða var þetta bara leikaraskapur? Þetta kvöld dansaði Jeff álíka oft við þær báðar. Annað gat ' hann ekki verið þekktur fyrir, ; fannst Pam. Phyllis var, hvort sem var, gamall kunningi, sem hann varð að vera stimamjúkur við. En eftir því, sem á kvöldið leið gat henni ekki annað en fundizt, að þessi innileiki, sem var orðinn með þeim, hefði held ur látið undan síga eftir að Phyll is kom til sögunnar. Bráðlega tók Phyllis að geispa og sagði, að nú yrði hún að fara í rúmið. Hún hefði átt svo erf- j iðan dag. Og auk þess hefði hún ! varla neitt sofið síðustu tvær næt ur, af því að kunningjarnir hefðu endilega viljað halda samkvæmi henni til heiðurs, og svo í morg un hafði hún orðið að vera eld- snemma á-fótum til þess að nú í flugvélina. 18 ---------------- i — Komdu bara með mér nið- ur í káetuna mína, Pam. Þá get j um við skrafað saman og kynnzt betur, meðan ég er að hátta. En Pam fann það á sér, að þetta boð var gert í þeim til- gangi að afstýra því, að þau Jeff yrðu eftir ein saman. — í kvöld get ég ekki komið niður í káetuna þína, Phyllis. en það er sama og þegið, sagði hún. — Ég er með höfuðverk og ætla að ganga ofurlítið uppi á efsta þilfarinu. — Það er vel til fundið, sagði Jeff og var fljótur til. — Sjálf- ur vildi ég gjarna ganga ofur- lítið. Á ég að koma með þér? Pam? — Já, ef þú vilt Jeff, svaraði hún brosandi. Phyllis sagði, snögg í bragði: — Jæja, þá. . ég ætla að fara niður. En hún virtist ekki vera í sem beztu skapi þegar hún bauð þeim góða nót.t. Uppi á efsta þilfarinu var hressandi gola. Það var heitt í veðri þessa nótt, eins og al- gengt er í heitu löndunum. Og myrkrið virtist hanga yfir skip inu eins og mjúk svört ábreiða. Stjörnurnar voru mjög skærar þetta kvöld, rétt eins og þær hefðu verið fægðar sérlega vel. Þær skinu skærar en tunglið, sem var hálfhulið af skýjum. Þetta var ástar- og ævintýranótt Og Pam þráði ævintýri — ævin týri með þessum hávaxna unga manni, sem hún var farin að til- biðja. Hvílíkur léttir að vera Lögfaksúrskurður Hér með úrskurðast lögtak fyrir ógreiddum trygginga gjöldum til Tryggingastofnunar ríkisins, sem greiðast áttu í janúar og júní sl., svo og öllum gjaldföllnum ógreiddum þjnggjöldum og tryggingagjöldum ársins 1968, tekjuskatti, eignarskatti, námsbókagjaldi, al- mannatryggingagjaldi, slysatryggingaiðgjaldi lífeyris- sjóðsgjaldi, atvinnuleysistryggingasjóðsiðgjaldi, launa- skatti, kirkjugjaldi og kirkjugarðsgjaldi, iðnlánasjóðs- gjaldi og iðnaðargjaldi, sem gjaldfallin eru í Kópavogs kaupstað. Ennfremur skipaskoðunargjaldi, lestagjaldi og vitagjaldi, bifreiðaskatti, skoðunargjaldi bifreiða og -slysatryggingargjaldi ökumanna 1968, matvælaeftir litsgjaldi, vélaeftirlitsgjaldi svo og ógreiddum iðgjöldum og skráningargjöldum vegna lögskráðra sjómanna, auk dráttarvaxta og iögtakskostnaðar. Fer lögtak fram að liðnum 8 dögum frá birtingu þessa úrsku.rðar án frekari fyrirvara ef ekki verða gerð skil fyrir þann tíma. Bæjarfógetinn í Kópavogi, 23. júlí 1968 Sigurgeir Jónsson. Gúmm'ibátar Margar gerdir Gott verð Gastæki — Pottasett Matarsett 5 gerbir Dönsku vindsœngurnar komnar aftur. Verð trá 495.— Koddar — Pumpur — Vatnspokar Allt í ferðalagið íslenzk tjöld Dúnsvefnpokar 4 gerbir Svefnpokar Verð frá kr. 830— Sportval ! Sportvara — Ferðavara — Ljósmyndavara — Ég sel þjófalykla — þurfið þér á slíkum að halda? laus við Phyllis Bevan. Hún von aði, að hann færi ekki að nefna hana á nafn. Eins og hún var nú í skapi var hún dálítið hrædd við það, sem hún kynni að segja, og hún vissi að engin stúlka kemur sér í mjúkinn hjá karlmanni með því að bakbíta aðrar konur. Hann tók hana undir arminn og þau gengu stundrkorn eftir þilfarinu, þegjandi. Golan feykti hárinu á henni frá enninu og aflagaði kvöldkjólinn, sem hún var í. Allt í einu fann hún, að hann tók hönd hennar og stakk henni í vasa sinn. Þessi litla hreifing gladdi hana svo mjög, að hún hefði getað farið að gráta. Nú var allt í lagi aftur. Phyllis var ekki orðin annað en hvim- leið martröð. Hún ákvað að hætta að hugsa um hana og gera sér rellu út af henni. Og auk þess var ekki sagt, að Jeff væri neitt hrifinn af henni þó að hún væri það af honum. — Það er nú það versta við LITAVER Teppi — teppi Bcigísk, þýzk og ensk gólfteppi. Verð pr. ferm. frá kr. 255,— Góð og vönduð teppi. 2. ÁGÚST. Hrúturinn 21. marz — 19. apríl. Hugarflugið er auðugt í dag.Nú er tíminn til að endurskoða eigin fjárhag og sameiginlegan. Nautið 20. apríl — 20. maí. Reyndu að stuðla að nýju framtaki I dag, einslega eða í félagi við aðra. Samstarf veitist auðvett. Gleddu maka þinn í dag. Tvíburarnir 21. maí — 20. júní. Gakktu hreint til verks. Sanmleikurinn kann að vera óþægilegur en það kann að valdam isskilningi að reyna að fara í kringum hann. Samvinna gefst vel í öllu öðru en fjármálum. Krabbinn 21. júní — 22. júlí. Það er auðvelt að finna fólk til þess að koma hæfileikiun þínum á framfæri, en varaztu oflof. Það veldur einungis misskilningi. Ljónið 23. júlí — 22. ágúst. Þeir sem ein/hverjax eignir eiga að hlutabréf, eiga þess gjam- an kost að auka verðgildi þeirra. Farðu ekki leynt með eigin áhugamál. Meyjan 23. ágúst — 22. sept. Forðaztu sjálfshólið, og eins fólk, sem kann að vera farið að þreytast á aðgerðum þinum, leitaðu nýrra sambanda. Vogin 23. sept. — 22. okt. Það fer lítið fyrir atviki sem kann að hafa mikil áhrif á fram- tíð þína, vertu athugull, og gættu fjárhagsins. Sporðdrekinn 23. okt. — 21. nóv. Þér veitist auðvelt að gefa heilsunni meiri gaum, en undanfarið. Reyndu að lagfæra einflhvert hættuspil, sem þú ert að reyna að framkvæma. Bogmaðurinn 22. nóv. — 21. des. Það er erilsamt í kringum þig þessa dagana, en þinn meðfæddi eignleiki til að halda fafnvægi mun reynast þér vel, sem endra nær. Steingeitin 22. des. — 19. jan. Hafðu ekki hátt um áform þín 1 dag, en vinir þínir munu reyna að liðsinna þér með langþráðan draum íkvöld. Vatnsberinn20.jan.—18.febr. Nú er mikið rætt um framtíðarmöguleilka. Þú Skatt heldur ver® tannhvöss, en að slaka til. MisskUningur getur skapað mikil vand ræði. Fiskarnir 19. febr. — 20. marz. Þér er sköpunarveikið ofarlega I huga. Byrjaðu anemma að vinna og gættu þess vandlega, að þú hafir engu gleyrnt. Hlýddu ekki á slefburð. /

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.