Morgunblaðið - 02.08.1968, Side 20

Morgunblaðið - 02.08.1968, Side 20
r, 20 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 1968 Volvo 104 467 model 115 hcstafla vél — með útvarpi. Er í scrflokki. FYRIR VERZLUIUARMAIUUAHELGIIVA Ljósar KARLMANNASPORTBUXUR Verð kr. /95.— Ljósar KVENSPORTBUXUR stærðir 36—38—40. Verð kr. /95.— TELPNASPORTBUXUR stærðir 10—12—14—16. Verð kr. 150.— DRENGJA-GALLABUXUR Verb kr. 135.— Verzlið þar sem verðið er bezt og úrvalið mest. AUSTURSTRÆTI 9. Þennan bíl byggði Ósvals sjálfur, og er drjúgur skriður á hon um á brautinni. (Ljósm. S.vÞ.) Kappakstursklúbb- urinn Hraðbraut KAPPAKSTURSKLÚBBAR eru vinsælir víða um heim, og nú hefur einn slíkur verið stofn aður í Reykjavík. Hann heitir Hraðbraut og formaður er Ós- vald Ólafsson. Til þess að fyrir- hyggja allan misskilning er víst rétt að taka það fram strax, að bílarnir sem notaðir eru eru ekki stærri en lófi manns, og að félagar klúbbsins smíða þá sjálf ir. Bílarnir eru með litlum rafmót orum og er ekið eftir sérstökum bílabrautum. Brautirnar eru nokkuð dýrar og klúbburinn hef ur ekki enn efni á að eignast eina slíka. Hinsvegar hafa þeir aðgang að brautum í Tómstunda höllinni við Laugaveg, þar eru fimm brautir með þrem sporum hver. Þeir 34 sem þegar eru orðn ir klúbbsfélagar hafa orðið sér úti um ýmsa þá hluti sem þarf til að byggja hraðskreiðan kapp- akstursbíl og selja þeim sem þess óska. - EIGA ÞEIR ... Framh. af bls. 19 þykkt sem gerð var um kaup á einni gröfu til landsins og það einmig að hún ætti að fara til Eyjafjarðar. Þar með lásu þeir Þórður og Björn dauðadóm yfir ininflutningi á sinni gröfu. Þeg- ar svo var komið varð ekki lemg ur beðið átekta, Björn Lárusson fór til Reykjavíkur til viðtals víð Árna G. Eylands og land- búnaðarráðherra. Það er þetta samtal sem Ámi talar um. En Björn fór ekki til fundar við Árna til þess að biðja hann um að panta skurðgröfu fyrir þá Þórð og Bj öfn. Sú grafa var pöntuð löngu áður. Þegar Björn var korhinn til Reykjavíkur í þetta sinn fékk landbúðaniarráð herra fyrst vitneskju um áhuga Þórðar og Björns á kaupum á skurðgröfu. Landbúnaðarráð- herra, Hermann Jónasson, tók á málinu eins og hans var von. Hanin gerði ráðstafanir til þess að bæta úr glöpum Áma ef hægt væri. Útkoman varð sú að til landsins komu tvær skurð- gröfur nær samtímis. Ástæðu- laust er fyrrr Ároa G. Eylands að draga nöfn þeirra Pálma Einarsisonar og Runólfs Sveins- sonar inn í þessar umræður. En verður þó til þess a'ð fría þá ámæli vegna andstöðu við inn- flutnimg skurðgröfu 1941. Það liggur nokkuð ljóst fyrir að Árni hefur dulið þá samverka- menn sína í verkfæramefnd hins sanma í málinu. Árni G. Eylands vildi eiga heiðurinn að því að verða upphafsmaður að inn- flutningi skurðgrafna til lands- ins. Hann tapaði áf strætiisvagn- inum með þá áætlun. f krafti valds síns sem formaður verk- færanefndar, framkvæmdastjóri Grænmetisverzlunar rikisins og forstjóri Vélasjóðs virðist hann hafa ætlað að þvinga hjól sög- umnar sér í hag. En ein ósann- indin bjóða öðrum heim. Svo hefur Áma G. Eylands farið í þesisu máli. Hcinn hefur skrifað ritgerðir og bækur, sem fjalla um þetta mál, en allt er það með sama markinu brennt að forðast rétta frásögn af fyrsta aðdrag- anda að innflutningi skurðgröfu 1940 eða 1941. Röng frásögn af því atriði hefur dregið á eftir sér keðju af samkonar frásögn- um. Það virðist hafa verið mjög að vonum að Bjöm Lárusson sagði eftir lestur einnar ritgerð ar Áma: „Því miður var ekkert skriflegt, við treystum þeim.“ Þessi ummæli segja sína sögu. Ég mun ekki hafa þessi orð til Árna G. Eylands mikið fleiri að sinni. Öll grein hans og skæting ur til mín er ofinn í kring um þau ósannindi Árna að hann hafi ekki vitað um tilraunir Þórð ar Ásmundssonar og Björns Lár ussonar fyrr en í árslok 1941 þó sannleikurinn sé sá að Árnl fylgdist með tilraunum Þórðar frá byrjun árs 1941. Og með þeirri fullvissu er öll uppistaða og ívaf í grein Árwa G. Eylands ókræsilegur grautur, sem eng- inn lítur til nema með ógleði. Þeár eiga sorglega sjaldan sam- leið, Ároi G. Eylands og sann- leikurinn. Kópavogi 20. júní 1968 Þorvaldur Steinason. 2 LESBÓK BARNANNA LESBÓK BARNANNA 3 um getað skemmt okk- ur“, hugsaði hann. „Bara að Kalli kanína og Rauðki íkorni gætu orðið vinir aftur“. Dag nokkurn heyrði Lalli þefdýr í nokkrum drengjum og stúlkum í skóginum. Þau töluðu og hlóu. Hann faldi sig á bak við tré þar sem hann gat horft á þau. Hvað í ósk- öpunum voru þau að gera hérna í skóginum? Börnin voru öll með litlar, fallegar körfur, og þau fylltu þær með blómum. „Hvað á ég að gera við körfuna mína?“ spurði lítill drengur aft- ur og aftur. „Hvað á ég að gera við hana?“ „Þú átt að setja sum- arkörfuna við dyrnar hjá einhverjum, sem þér þyk ir mjög vænt um, kján- inn þinn“, sagði stóra systir hans. „Allir vita hvað á að gera við surn- arkörfu". Eftir skamma stund höfðu öll börnin fyllt körfuna sína. Og þau hlupu aftur heim til sín. Lalli þefdýr stóð og hugsaði. Hann hugsaði um sumarkörfurnár. „Nú veit ég hvað ég á að gera“, sagði hann loks. „Ég veit það sko al- veg“. Hann hljóp um í skóg inum og leitaði og leit- aði. Loks fann hann það — tvö yfirgefin hreiður! Því næst týndi hann allar tegundir blóma, sem hann gat fundið. Hann týndi gul og blá og rauð blóm og einnig nokkur hvít og gulllituð. Síðan setti hann blóm- in i hreiðrin, sem nú litu út eins og fallegustu sum arkörfur. „Aðeins eitt í viðbót", sagði hann. í miðjuna á öðru hreiðr inu setti hann stærðar gulrót. Og í miðjuna á hinu hreiðrinu lét hann stóra, brúna hnetu. Án þess að nokkur sæi hljóp Lalli þefdýr að húsi Kalla kanínu. Hann setti aðra körfuna við dyrnar og hljóp síðan að húsi Rauðka íkorna og setti hina körfuna við dyrnar þar. Því næst hljóp Laili þefdýr í felur. Kalli kanína var heima í slæmu skapi. Hann var að hugsa um hvað það hefði verið gaman í elt- ingaleik. Hann saknaði vina sinna, en það myndi hann aldrei segja asnan- um honum Rauðka íkorna. Eftir stutta stund fór hann út, og þarna á tröppunum var falleg sumarkarfa. Og í miðri körfunni var stór hneta! „Nei sko, þetta er sum- arkarfa", sagði Kalli kan ína. „Falleg sumarkarfa fyrir mig. Og hún er frá Rauðka íkoma. Ég sé það á hnetunni. Líklega vill hann að við ýerðum vin- ir aftur“. Rauðki íkorni var líka heima í húsinu sínu og í slæmu skapi. Hann var að hugsa um hvað það hefði verið gaman að leika sér við Kalla kan- ínu og Lalla þefdýr. En Það myndi hann aldrei segja Kalla kanínu — aldrei! Eftir skamma stund ætlaði hann út — og þarna við dyrnar sá hann sumarkörfu, fulla af blómum. Og í miðri körf unni var stór gulrót. „Þetta er sumarkarfa fyrir mig“, sagði Rauðki íkorni. „Og það er gulrót í henni miðri. Hún hlýt- ur að vera frá Kalla kan- ínu. Hann vill líklega sættast við mig“. Þetta var einmitt það sem Lalli þefdýr hafði vonazt til. Hann flýtti sér út, og þeir léku sér allir saman. Fyrst fóru þeir í felu- leik. Síðan fóru þeir í alls konar eltingaleiki. Og mikið skemmtu þeir sér vel. Þeir léku sér svo lengi að þeir þurftu að hvíla sig á eft- ir. Þá sagði Kalli kan- ína. „Þakka þér fynr sumarkörfuna, Rauðki íkorni". En Rauðki sagði: „Sum arkörfu? Ég hef enga sumarkörfu. En ég þakka þér fyrir þessa fallegu körfu, sem að þú gafst mér“. „Sem ég gaf þér?“ sagði Kalli kanína „Ég gaf þér enga sumarkörfu. Eitthvað er þetta undar- legt“. Og þeir litu báðir á Lalla þefdýr. Vesalingur Lnn. Fyrst horfði hann á Kalla kanínu. Því næst horfði hann á Rauðka íkorna. Og loks leit hann skömmustulega niður. „Þú hefur gert það“, sagði Kalli kanína. „Til þess að við yrðum aftur vinir". „Já“, sagði Lalli þef- dýr niðurdreginn. „Ég gerði það“. Kalli kanína og Rauðki íkorni réttu úr sér og horfðu hvor á annan. Kalli kanína reyndi að vera reiður. Hann reyndi og reyndi. Rauðki íkornl reyndi líka að vera reiður. Hann reyndi og reyndi. Þeir gátu ekki orðið reiðir vegna þess að þeir skemmtu sér svo vel sam an. Þeir gátu ekki orðið reiðir vegna þess að þeir voru svo ánægðir að vera aftur orðnir vinir. „Jæja, þetta var falleg sumarkarfa", sagði Kalli kanína. „Og ég skal geyma fyrir þig hnet- una“. Og Rauðki íkorni hló líka. „Ég geymi í stað- inn fyrir þig gulrótina". Og viniroir þrír héldu áfram að leika sér, langt fram á kvöld. HVAÐ ER ÞETTA? Dragið strik frá 1 til 29 og þá munið þið sjá allt annað en þið bjuggust við.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.