Morgunblaðið - 20.10.1968, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. OKTÓBER 1968
Fyrsta starfsvika Alþingis
hefði orðið tíðindalítil, ef
Hannibal Valdemarsson hefði
ekki reynzt trúr þvi hlutverki
sinu að krydda ofurKtið stjórn
máiaMfið i þessu landi. Ég' hef
enga trú á því, að samningar
þremenninganna við Framsókn
arflokkinn séu vísbending um
nánara samstarf þeirra við
þann flokk í framtíðinni. Al'la
vega er ljóst, að þeir hafa ekki
viljað þiggja sæti í þingnefnd-
um með tilsityrk hinna sjö þing
manna Alþýðubandalagsins, en
tilmæii, þeirra tit Framsóknar-
flokksins hafa bersýnilega kom
ið þingflokki hans í nokkurn
vanda, sem hann hefur ákveðið
að leysa með því að skerða að-
stöðu eigin þingmanna í nefnd-
um fremur en að 'liggja undir
ákúrum um að hafa neitað til-
mælum Hannibals eða tekið þátt
í að bola þingmönnum Alþýðu-
bandalagsins að öðru leyti úr
nefndum.
Það stormaði um Hannibat,
þegar þing kom saman fyrir ári
og það var einnig óróasamt um
hann að þessu sinni. Þar fyrir
utan má segja, að einhver stór-
tiðindi í kringum Hannibal séu
orðin árviss atburður. Hvað
veldur? Hannibal Valdemars
son er tvímælalaust orðinn sér
stæðasti stjórnmá'lamaður lands
ins í dag. Hann hefur hvað eft-
ir annað staðið frammi fyrir að
stæðum, sem fyrir venjulega
menn hefðu þýtt pólitískan
„dauða“. Eftir tveggja ára for-
mennsku í Alþýðuflokknum
hafði hainn komið sér út úr húsi
þar. Hvað blasti þá við? Hon-
um tókst í samvinnu við komm
únista að ná yfirráðum yfir Al-
þýðuisambandi ísland's. Hann
hefur verið forseti þess síðan
þótt á ýmsu hafi gengið. Hann
var búinn að næla sér í öruggt
þingsæti í Reykjavík 1956, en
hann yfirgaf það fyrir algjöra
óvissu á Vestfjörðum 1959. Þar
náði hann kjöri og 'hefur stöð-
ugt aukizt fylgi síðan. Hann
yfirgaf það örugga kjördæmi
skyndilega á sl. ári til þess að
fara út í eitt mesta ævintýri
á öl'lum stjórnmálaferli sínum,
framboð I-Iistans í Reykjavík.
Hann vanri glæsilegan sigur —
og hefur síðan gert nákvæmlega
allt, sem hægt var að gera til
þess að eyðileggja þann sigur
og gera harin að engu. Hann
hefur ekkert samráð haft við
helztu stuðningsmenn sína frá
því í fyrra með þeim afleiðing-
um, að þeir eru ýmist búnir
að gefa hann upp á bátinn eða
eru honum mjög reiðir og and-
snúnir. Hann hefur jafnanbrot
ið öll óskráð lög stjórnmá’la-
manna, Sem æðsti verkalýðsleið
togi land.sins leyfir hann sér
þá ,,ósvífni“ að segja. að geng-
islækkun geti verið „drengileg
asta“ lausnin út úr efnahags-
erfiðteikum þjóðarinnar. Slík
yfirlýsing hefði nægt til að
gera úf af við álla venjulega
menn — en ekki Hannibal.
Hann flýtur alltaf ofan á hvað
sem á dynur. Hvers vegna?
Stjórnmálaferill og tiltektir
Hannibals Vatdemarssonar eru
raunar forvitnilegra og marg-
breytilegra rannsóknarefni en
svo, að hægt sé að gera því skil
í stuttu máli. En ég hef á ti'l-
finningunni, að Hannibal tali
eins og fólk vilil, að stjórnmála
menn tali. Hann vegur ekki
og metur hvert einasta orð, sem
hann lætur frá sér fara, hann
segir það sem honum býr i
brjóstS og skeytir því engu,
þótt hehningur fylgismanna
hans geti ekki litið hann réttu
auga eftir á. Um leið og menn
komast á það stig að farið er
að titla þá stjórnmá'lamenn —
í flestum tilfellum að ósekju
B Ú S L v O Ð
Luxor Luxor
Ný
sending á morgun
I
t—
Bt JS L jr O o
HÚSGAGNAVERZLUN
VIÐ NÓATÚN - SlMI 18520
— tileinka þeir sér sér-
staka framkomu, sérstakan
klæðaburð og sérstakt fas og
alveg sérstaklega gæta þeir
þess vandlega að segja aldrei
neitt, sem geti styggt nokkurn
eða vaídið nokkru fjaðrafoki.
.Hannibal Valdemarsson brýtur
állar þessar óskráðu reglur og
ég hygg, að árangurinn sé sá,
að hann komist í nánari tengsl
við fólkið í landinu en nokkur
annar stjórnmálamaður Ég
vildi ekki vera í sama flokki
og hann — en ég held að það
yrði mikil eftirsjá af Hannibal
af vettvangi stjórnmálanna.
Fjárlagafrv. var lagt fyrir A1
þingi sl. mánudag. Frv. er að
þessu sinni mun betur úr garði
gert en áður og gefur gleggra
yfirlit um helztu þætti
ríkisrekstursins en nokkru
sinni fyrr. Raunar kom fjárlaga
frv. í sinni nýju mynd, fyrst
fram á sl. ári. en nú eru í því
mun fyllri upplýsingar en þá.
Sérstök ástæða er til að vekja
athygli á þeim breytingum, sem
orðið hafa í fjármáíaráðuneyt-
inu hin síðari ár. Þar hafa kom
ið til istarfa ungir og velmennt-
aðir menn, sem hafa hafizt
handa um að ná mun betri tök-
um á öllum þáttum ríkisrekstr-
arins en áður. Stofnuð hefur
Framhald á bls. 24
Glæsileg 200 ferraetro hæð
í nýju húsi við Skipholt til sölu. Hæðin er einn
salur. Tilvalin fyrir félagasamtök. heildsölufyrir-
tæki, skrifstofur, iðnað og fleira. Áhvílandi mjög hag-
stæð lán, 5—14 ára. Útb. samkomulagsatriði. Tilb. til
afhendingar,strax.
Fasteignasalan MIÐBORG
Vonarstrasti 4 (V.R. húsinu) sími 19977,
Sjólfstæðiskvenna-
félngið HVÖT
heldur fund miðvikudaginn 23. þ.m. í Sjálfstæðishús-
inu kl. 8.30.
Fundarefui:
1. I.ögð fram Jillaga að nýjum lögum fyrir félagið.
2. Önnur mál.
3. Skemmtiatriði. — Kaffidrykkja.
Félagskonur fjnlineunið.
Allar sjálfstæöiskonur velkomnar.
STJÓRNIN.
ÆFINGATÆKIO
BULLWORKER 2
hefur valdið gjörbyltingu i líkamsrækt um heim
allan. Myndskreytt æfingatafla og þýddar æfinga-
1. Þessi æfing styrkir brjóst-
vöðvaua, og eru það aðaláhrif
hennar. Önnur áhrif: Upphand-
leggsvöðvar, framhandleggsvöðv-
ar og avlavöðvar.
2. Aðaláhrif: Tví-
höfði (vöðvar fram-
an á upphandlegg).
Önnur áhrif: Axla-
vöðvar og framhand-
leggsvöðvar.
§aiiiM
t" "
..
5. Aðaláhrif: Styrkir
bjóstvöðvana. Önnur
áhrif: Framhand-
leggsvöðvar og fram-
vöðvar axla.
SÞ« im
6. Aðaláhrif: Axla-
vöðvar. Önnur áhrif:
Upphandleggsvöðvar
og efstu bakvörðvar.
'u am
3. Aðaláhrif: Þríhöfði
(vöðvar aftan á upp-
handlegg). Önnur
áhrif: Tvíhöfði og
bakvöðvar.
4. Aðaláhrif: Upp-
handleggsvöðvar.
Önnur áhrif: Breið-
vöðvar á baki.
I 'Í!0r.
7. Þessi æfing er í
flokki megrunaræf-
inga. Aðaláhrif:
Kviðvöðvar. Önnur
álirif: Breiðvöðvar á
baki og upphand-
Ieggsvöðvar.
skýringar fylgja hverju tæki.
Þessar myndir sýna sjö æfingar með Bullworker 2.
Bullworker-æfingarnar eru ýmist þrýstings- eða tog-
æfingar, og er hverri æfingu ætlaðar 7 sekúndur
á dag.
Olynipíulið Bandarikjanna og Vestur-
Þýzkalands notuðu það til æfinga fyrir
tHympíuleikina í Tokyo 1964, og er notk-
un þess talin hafa átt mikinn þátt i fram-
úrskarandi árangri þeirra.
Þótt þessi staðreynd tali sterku máli um
þau not sem íþróttamenn geta haft af
tækinu, er þó liitt eftirtektarverðara, að
það er EKKI SÍÐUR VIÐ HÆFI ÞEIRRA,
SEM EKKI STUNDA ÍÞRÓTTIR, en
þurfa að sýna líkama sínum ræktarsemi
til nauðsynjaþarfa. Flestir láta sig hafa
það að slá slöku við, og þótt þeir „kenni
sér einskis meins“ séu „í fullu fjöri“ eins
og sagt er, er staðreyndin engu að síður
sú, að þeir eru að eldast um aldur fram.
Menn fara yfirleitt undan í flæmingi,
bera fyrir sig tímaleysi, æfingar séu tíma-
frekar og kref jast átaks sem þeir hafa sig
ekki pup í. SLÍKAR AFSAKANIR ERU
ÓFRAMBÆRILEGAR EFTIR AÐ BULL-
WORKER 2 KOM TIL SÖGUNNAR. Eftir
10 ára þrotlausar rannsóknir tókst hinni
heimsfrægu Max Planck-stofnun í Vestur-
Þýzkalandi að skapa æfingatæki og æf-
ingakerfi, sem kemur bæði þaulæfðum
íþróttamönnum og oftálguðum eða of-
tútnuðum almenningi að gagni.
í Bullworker 2 kerfinu geta menn valið
eftir þörfum á milli 24ra æfinga, en í EIN-
FALDASTA ÆFINGAFLOKKNUM ERU
7 ÆFINGAR. HVER ÆFING TEKUR
7 SEKÚNDUR, OG ÞARF EKKI AÐ
GERA ÞÆR NEMA EINU SINNI Á DAG.
Engin ástæða er til að fara í æfingabún-
ing, því að þér getið gert æfingarnar
heima hjá yður eða á skrifstofunni, hvar
sem er og hvenær sem er ÁN SVITA OG
ERFIÐIS, EN EKKI ÁN ÁRANGURS.
Hafi tækið ekki sannfært yður um að
yður sé gagn að því, að 14 dögum liðn-
um, er yður frjálst að endursenda það
og mun þá endurgreiðsla fara fram um-
yrðalaust.
Tækið fæst aðeins hjá
Bull worker - umboðinu,
Kópavogi. Pósthólf 69.
Sent gegn póstkröfu
um land allt.
--------- Klippið hér — og sendið í dag ------------
Vinsamlegast sendið méf litmyndabækling yðar um Bull-
worker 2 mér að kostnaðarlausu og án skuldbindinga
frá minni hálfu.
Nafn .........................
HeimiHsfang ......................
Skrifið með prentstöfum.
BULLWORKER UMBOÐIÐ
M/20108 Pósthólf 60 — Kópavogi