Morgunblaðið - 20.10.1968, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. OKTÓBER 1968
21
Sjóvátryggingarfélag Islands
h.f. 50 ára í gær
Sjóvátryggingafélag íslands
hf. var stofnað hinn 20. okt.
1918 eða nokkrum vikum áð-
ur en sjálfstæði landsins fékk
viðurkenningu.
Starfsemi félagsins er einn-
vottur þeirrar alhliða endur-
reisnar, sem hrundið hefur
verið í framkvæmd á þessari
öld á landi hér. Félagið hef-
ur á starfsferli sínum ann-
azt margháttaða trygginga-
starfsemi fyrst í samkeppni
við erlend vátryggingafélög
og síðar við innlend trygging-
félög, sem fetuðu í fótspor
þess, þegar landsmönnum óx
fiskur um hrygg og öll við-
skipti margfölduðust.
Skapað er öryggi í stað ó-
vissu með því að vátryggja
eigur sínar og margskonar hags
muni fyrir hverskonar á-
hættu. Öryggið skapast ekki
einungis fyrir þann, sem kaup
ir tryggingu, heldur einnig
fyrir þá, sem honum eru nán-
astir og fyrir aðra, sem eiga
velfarnað sinn undir velgnegni
hans.
Iðgjöld eru greidd fyrir vá
tryggingar og aðrar trygging
ar, mismunandi há eftir á-
hættu, til þess að njóta þeirra
réttinda og öryggis, sem trygg
ingarnar veita. An þessara
trygginga myndi nútíma þjóð
félag, með sínum flóknu og
margháttuðu viðfangsefnum og
Sveinn Benediktsson.
skyldum, vera svo laust í reip
unum að stappa myndi nærri
upplausn, bæði í rekstri þjóð
arbúsins og viðskiptum manna
í milli. Eitt höfuð markmið
hvers lýðfrjáls þjóðfélags er
að veita þegnum öryggi. Lög-
gjafarvaldið hefur því í þessu
skyni m.a. sett lög um margs-
konar skyldutryggingar, en
.mýmargar eru þó þær áhætt-
ur, sem unnt er að kaupa
tryggingu gegn og er einstak-
lingum og öðrum í sjálfsvald
sett, hvort þeir gera það.
>ví miður vanrækja menn
oft að vátryggja sig gegn
tjóni, sem ef til vill ríður
þeim að fullu fjárhagslega,
er það skellur yfir líkt og
brimskafl. Sannast þá að: „Vits
lér vá, en vells eigi,“ þ.e.
„Skaðinn gerir mann hygg-
inn, en ekki ríkan.“
Það er gaman að minnast
þess, að á þjóðveldistímanum
settu íslendingar lagaákvæði
um gagnkvæma ábyrgð á bú-
fé og eldsvoða, sem bundinn
var við bændur í sama hrepps
félagi, sbr. Staðarhólsbók Grá
gásar.
Þessi ábyrgð náði þó ekki
til þess að bæta nema allt
að helmingi tjónsins. Til þess
ara fornu lagaákvæða má ef
til vill rekja hið fomkveðna:
„Betri er hálfur skaði en all-
ur“.
Á þeim tímum þekktust ekki
hliðstæð lagaákvæði með öðr
um norrænum þjóðum.
Segja má með sanni, að með
allri tryggingastarfsemi beri
menn hvers annars byrgðar.
Er það ánægjulegt fyrir oss
fslendinga, að tryggingastarf-
semin hefur aukizt og dafn-
að hér á landi síðustu fimm-
tíu árin svo raun veri vitni
þrátt fyrir skálmöld þá, sem
ríkt hefur víða um heim á
þessu tímabili.
í þessari þróun hefur S.ió-
vátryggingafélag fslands hf.,
átt drjúgan þátt.
Megi heilbrigð vátrygginga
starfsemi vaxa og blómgast
í landi voru um alla framtíð
til heilla fyrir land og lýð.
— SJÓVÁ 50 ÁRA
Framhald af bls. 12
lagsins til húsa í húsi Nathan
og Olsen, sem nú er Reykjavík-
ur Apótek. Eftir byggingu húss
Eimskipafélags íslands voru
skrifstofur SJÓVÁ þar ósíitið
itil ársins 1957. Flutti aðalskrif-
stofan þá í eigið húsnæði í Ing-
óflsstræti 5, en bifreiðatrygging
ar voru áður fluittar í Borgar-
tún 7. Er öll starfssemi félaga-
ins nú í eigin húsnæði í Ing-
ólfsstræti 5 og að Laugavegi
176A og eru aðalskrifstofurnar
nú nýfluttar í mýtt húsnæði á 1.
,hæð i Ingólfsstræti 5.
— Hver eru stærstu tjónin,
sem SJÓVÁ hefur orðið að
greiða?
— Stærstu einstöku tjónin
voru tvimælalaust á stríðsárun-
um, þegar Goðafossi og Detti-
fossi var sökkt. Bæði skipin
voru tryggð fyrir eðKlegar upp
hæðir og einnig farmur þeirra.
Stærsta tjónið i kránutölu
var í fyrra, þegar Borgarskála-
bruninn varð. Hlutur okkar þar
nam um 20 mílljónum króna.
Tryggingarlega séð tók það tjón
bæði til brunatrygginga og sjó-
trygginga á vörum, sem nýkomn
ar voru 'til landsins.
— Voru stríðsárin erfiður
tryggingatími?
— Stríðsárin voru sá tími,
sem mesta árverkni þurfti að
sýna til að ekki sköpuðust dauð
ir tímar, þ.e.a.s. að gæta þess,
að allt, sem þá var tryggt væri
líka í endurtryggingu.
— Hvar endurtryggið þið
mest?
— Fram til ársins 1928 voru
nær öíl endurtryggingaviðskipti
okkar við Dani, en þegar Dan-
mörk var hertekin lokuðust all-
ir mögúleikar á breytingum eða
aukningum í endurtryggingum.
Gerðir samningar giltu hins veg
ar áfram.
— Við hófum þá samstarf við
Lloyd's í London og hefursama
fyrirtæki annast þau allan tím-
ann.
— Hversu mikinn hluta endur
tryggið þið?
— Þess ber að gæta, að sá
hluti, sem endurtryggður er er-
lendis dreifist á margar hendur.
En við tökum i hverju tilfelli
þá eigin áhættu, sem við áKtum
skynsamlega.
— Nú er starfandi eitt ís-
lenzkt endurtryggingafélag, en
einstök tryggingafélög skiptast
nú í vaxandi mæli á endur-
tryggingum, áður en þau fara
með tryggingar á erlendan mark
að.
íslenzk endurtrygging er
framhald af Striðstrygginga fé-
lagi islenzkra skipshafna, sem
SJÓVÁ var stofnaðili að, en með
sérstökum lögum var þvi félagi
svo breytt í fstenzka endur-
tryggirugu.
— Þið hafið líka tjónaumboð
fyrir erlend tryggingafyrirtæki?
— Já. Á árinu 1966 fóru
SJÓVÁ að berast tilmæ’Ii frá
þýzkum vátryggingafélagasam-
steypum, svo sem „Verein Ham-
burger Assecuradeure" og „Ver
ein Br:mer Assecuradeure“, að
félagið tæki að sér tjónaumboð
fyrir þá aðila hér á landi. Þótti
sjálfsagt að verða við þessum
tilmælum.
Eftir að þessi starfsemi okkar
varð kunn erlendis, leitaði
,,,Lloyd‘s“ í London til okkar
sömu erinda. f samráði við
„Lloyd‘s“ og eftir nána athugun
þótti eðli'legra að slík starfsemi
yrði rekin af sérstöku félagi,
Stofnuðu nokkrir stjórnarmeð-
limir SJÓVÁ, ég og fleiri starfs
menn fyrirtækisins þá hlutafé-
lagið „Könnun“, sem tók til
starfa um síðustu áramót. Fjöldi
erlendra tryggingafyrirtækja hef
ur síðan leitað tií þessa fólags
og falið því að annast tjóna-
skoðanir hérlendis fyrir sig.
— Og hvernig er svo útlitið
i dag, Stefán?
— Að sjálfsögðu hefur verð-
bólgan innanlands haft bæði bæt
andi áhrif: á tímum aukinna við
skipta, og letjandi: á erfiðum
tímum eins og nú ríkja, jafnvel
þett gengisbreyting hafi verið
framkvæmd. \
Hins vegar hefur SJÓVÁ áð-
ur þekkt svipaða tíma og nú
og komst þá klakklaust frá þeim,
þannig að ég er á engan hátt
svartsýnn.
— Hverjir eru svo ykkar
beztu viðskiptavinir?
— Það er auðvitað ákaflega
mikilsvert að eiga viðskipti við
stóra og stönduga atvinnurek-
endur á hinum ýmsu sviðum, en
hjá okkur er einstaklingurinn
ekki síður mikiís virði, því þar
er áhættujöfnunin mest dreifð,
sagði Stefán að lokum.
TIL LEIGU
eftirtalin húsnæði að Suðurlandsbraut 10:
Verkstæðis- og iðnaðarhúsnæði í bakhúsi, stærð um
240 fermetrar.
Skrifstofuhúsnæði á 2. hæð í framhúsi, stærð um 125
fermetrar. Húsnæðið er fullfrágengið og með skil-
rúmum. Leigisit í einu eða tvennu lagi eftir sam-
komulagi.
Skrifstofuhiisnæði á 3. hæð í framhúsi, stærð um 125
fermetrar. Húsnæðið er einn salur án skilrúma. Heppi-
legt húsnæði fyrir skrifstofur, teiknistofur eða léttan
og hreinlegan iðnað.
Upplýsingar veittar á skrifstofu okkar.
HAGTRYGGING H.F.
EIRÍKSGÖTU 5, R.
SÍMI 38580 (5 línur).
lí'VW' .VAVíW.V', j
■ ■ *• v.».,. ;
7 NYJAR HESPULOPAUPPSKRIFTIR
No. 14
No. 15
No. 16
No. 17
No. 18
No.19
No. 20
Þjóðleg — hlý og ódýr jólogjöí — Prjónuð úr hespulopa — Umboð um ollt Iond
ÁLAFOSS