Morgunblaðið - 24.01.1969, Blaðsíða 1
24 SÍÐUR
19. tbl. 56. árg. FÖSTUDAGUR 24. JANUAR 1969 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Gerstenmaier hættir
Bonn, 23. janúar AP—NTB
EUGEN Gerstenmaier, forseti
vestur-þýzka þingsins, skýrði frá
því í dag, að hann hefði ákveðið
að segja af sér 1. febrúar, og er
ástæðan sú, að risið hafa deilur
út af skaðabótum sem hann hef-
ur fengið vegna ofsókna er hann
sætti á Hitlerstímanum. Hávær-
ar kröfur hafa verið uppi um
að hann láti af embætti.
Gerstenmaier skýrði frá á-
kvörðun sinni á fundi með leið-
togum Kristilega demókrataflokks
ins. Hann hefur sætt harðri
gagnrýni síðan hann svaraði
um skaða af völdum nazista.
Hann hefur fengið bætt laun og
eftirlaun, sem hann hafði hlotið
fyrir prófessorsstörf ef hann
hefði ekki sætt ofsóknum naz-
ista og fengið embættið. Alls hef
ur Gerstenmaier fengið 70.250
dollara í skaðabætur. Sjálfur
kveðst hann hafa sótt um að fá
greiddar skaðabætur árið 1965
til þess að fá staðfestingu dóm-
stóla á því, að hann hefði tek-
ið þátt í andspyrnunni gegn Hitl
er á nazistatímanum.
Gerstenmaier, sem er einnig
guðfræðingur og einn af leiðtog-
um evangelísku kirkjunnar í
Vestur-Þýzkalandi, var dæmdur
árið 1945 í sjö ára fangelsi fyrir
þátttöku sína í tilræðinu við
IHitler 20. júlí 1944. Gerstenmai-
er var þá yfirmaður utanríkis-
•deildar kirkjunnar. Hann kveðst
ekki hafa hlotið embætti pró-
fessors í guðfræði þar sem hann
var ekki nazisti.
Framhald á bls. 23
Gerstenmaier
þeim, er gagnrýnt hafa skaða-
bótagreiðslur þær, sem hann hef
ur fengið, með þessum orðum:
„Ég hefði átt að vera nazisti.
Þá hefði ég ekki þurft að verja
mig.“ Talið er, að með þessu
hafi hann meðal annars átt við
Kurt Georg Kiesinger kanzlara,
sem var nazisti.
Deilurnar hófust þegar frá því
var skýrt í tímaritsgrein, að
Gerstenmaier hefði fengið greidd
ar skaðabætur fyrir fjárhagsleg
Stúdentar með fána, spjöld og myndir af Jan Palach í mótmæla göngu í Prag.
Dubcek sagöur undirbúa nýja umbótabaráttu
Oflugur Hðsauki sendur til Prag
Prag, 23. janúar. NTB-AP.
UM leið og leiðtogar Tékkó-
slóvakíu reyna af fremsta
megni að halda tilfinningum
landsmanna í skefjum af ótta
við að öngþveiti skapist, er
þrálátur orðrómur á kreiki
um að Alexander Dubcek,
aðalritari kommúnistaflokks-
ins, vinni að undirbúningi
nýrrar sóknar til að hrinda í
framkvæmd hinni frjálslyndu
stefnuskrá, sem samþykkt var
í fyrravor.
Óvænt heimkoma dr. Ota Sik,
sem var driffjöður þeirra efna-
hagsumtoóta sem komið hefur
verið til leiðar, er af sumum tú'lk
uð sem liður í undirbúninigi nýrr
ar „umbótasóknar." Um leið eru
á sveimi sögusagnir um Dubcek,
sem hefur ekki sézt opinberlega
í marga daga. Ludvik Svoboda,
forseti, gaf í skyn í gær, að hann
væri í Bratislava, sér til „hvíldar
og hressingar", en sögusagnir eru
ýmist á þá lund, að hann sé sjúk
ur og niðurbrotinn eftir erfiði
síðustu mánaða, eða að hann
vinni að undirbúningi nýrrar
sóknar til að hrinda í fram-
Tilrœði hjá múrum Kreml:
Sovézkur geimfari særður
eftir skotárás á bílalest
— Ekkert sagt um tilrœðismanninn og ástœður verknaðarins
Moskvu, 23. jan. NTB-AP.
RÚMLEGA tvítugur maður
skaut að sovézkum geimför-
um þegar þeir óku í bifreiðum
í gær til Kreml þar sem fagn
að var síðustu afrekum Rússa
í geimnum. Bílstjóri og lög-
reglumaður á vélhjóli urðu
fyrir nokkrum skotum og
Georgi Beregovoy geimfari
særðist lítilsháttar af gler-
brotum, en þrjá aðra geim-
fara, sem sátu í bifreiðinni
með honum, sakaði ekki.
Samkvæmt opinberum heim-
ildum er tilræðismáðurinn geð-
klofi. Rannsókn er hafin í mál-
inu, en hvorki sovézka utanríkis
ráðuneytið né fréttastofan Tass,
sem staðfestu fréttina í dag, vilja
láta nokkuð uppi um það hver
tilræðismaðurinn er og hvaða
ástæður lágu að baki tilræðin/u.
Orðrómur er á kreiki um, að
tilræðismaðurinn hafi ætlað að
myrða æðs-tu leiðtoga Sovétríkj-
anna. Fámælska opinberra aðila
þykir gefa til kynna, að meira
Georgi Beregovoi.
búi bak við tilræðfð en gefið
hefur verið til kynna.
í Tass-fréttinni, sem auðkennd
var „ögrun“, segir að tilræðis-
maðurinn hafi skoti'ð að bifreið,
sem í sátu geimfararnir Georgi
Beregovoy, Valentína Nikolajeve
Tereshkova, eina konan sem skot
ið hefur verið út í geiminn, eigin
maður hennar Andrian Nikolajev
og Alexei Leonov. Þau voru á
leið til veizlu í Kreml er halda
átti til heiðurs síðustu geimhetj-
um Rússa og til að minnast af-
reka þeirra í geimförunum
„Soyuz-4“ og „Soyuz-5“.
Hvar voru leiðtogamir
I kvöld var enn allt á huldu
um það hvar æðstu leiðtogar
Sovétríkjanna voru staddir þegar
skotin riðu af. Fyrst var haft
eftir óopinberum sovézkum heim
ildum, að aðalritari kommúnista
flokksins, Leonid Brezhnev og
Framhald á bls. 23
kvæmd nokkrum þeim umbót-
um, sem hernám Rússa batt
enda á.
Jafnframt hefur lögreglan látfð
til skarar skríða hvarvetna í
Tékkóslóvakiu til að binda enda
á fjölmennar mótmælaaðgerðir
og hungurverkföll, sem hófust
undirbúningslaust þegar Jan
Palach brenndi sdg til bana. Lög-
reglan í Prag hefur fengið öflug
an liðsauka firá nálægum héruð-
um og sýnt er að gripið verði til
allra tiltækra ráða til þess að
binda enda á þessa hættulegu
bylgju mótmælaaðgerða.
RÆÐA VIÐ STÚDENTA?
Heimkoma prófessors Eduard
Goldstúckers, annars framfara-
sinna, hefur ekki síður vakið
athygli en heimkoma dr. Sik.
Samkvæmt góðum heimildum
hefur Goldstúcker heitið því að
ræða við stúdenta til þess að fá
þá til að gæta stillingar. Sam-
kvæmt sömu heimildum mun
Sik ræða við flokksleiðtoga um
agaráðstafanir er kunni að verða
gripið til gegn honum, en aðrar
heimildir herma að hann verði
a'ðeins nokkra daga í landinu og
að ekki gefist tími til að láta
fara fram yfirheyrslur. Sagt er
að á því leiki lítiU vafi að Sik
og Goldstúcker hafi farið til Prag
með sámþykki flokksins og að
heimkoma þeirra sé Rússum
þyrnir í augum. Enn hefur
ekkert verið sagt um hve lengi
þeir muni dveljast í landinu.
AFP hefur eftir áreiðanlegum
heimildum, að heimkoma dr.
Siks, sem hefur starfað vdð hag-
fræðistofnun í Basel í Sviss eftir
innrásina, hafi veri'ð skipulögð
fyrir hálfum mánuði þegar
tiltölulega rólegt ástand ríkiti
í Tékkóslóvakíu. Hann ferð-
aðist undir dulnefni og sldildi
eftir fjölskyldu sdna í Sviss a'ð
einum syni sínum undanskildum.
í Basel er gert ráð fyrir því, að
hann komi fljótlega aftur og taki
aftur til við fyrirlestrastörf.
Samkvæmt þessum heimildum á
Sik að hafa sagt, að ef heimsókn
hans til Prag drægist á langinn
Framhald á bls. 23
Tveir reyna að
[brenna sig til bana
Prag, 24. janúar. NT(B.
i'ENN hafa tveir ungir Tékkó-
'slóvakar reynt að brenna sig
’til bana. Ceteka hermir, aði
i'26 ára gamall atvinnuleysingi
1 Jan Gabor, hafi kveikt í klæð
'um sínum í Vestur-Slóvakíu.
1 '21 árs gamali vörubilstjóri
I fieyndi að svipta sig lífi með
I sama hætti á Suður- Mæri.
Líðan Gabors, sem hefur set-
ið í fangelsi í eitt ár, er ai-
| varleg. Hinn ungi maðurinn,
Josef Jaros, reyndi að brenna
sig til bana er hann hafði átt
’í deilum við stjúpföður sinn
) 'og segir opinber talsmaður
‘að sjálfsmorðstiiraunin hafi
ekki verið af pólitiskum toga
spunnin. AFP hermir, að 18
I ára gömul stúdína hafi fram-
ið sjálfsmorð.
ðeiröir við Sorbonne
París, 23. janúar — AP —
LÓGREGLA vopnuð kylfum
réðst til atlögu við stúdenta í
Latínuhverfinu í París í dag.
Lögreglan dreifði hópi 800 stú-
denta á aðalgötu hverfisins og
óeinkennisklæddir lögreglufor-
ingjar fóru inn í Sorbonnehá-
skóla, þar sem um 100 stúdent-
ar höfðu skömmu áður lagt und-
ir sig skrifstofu rektors. í kvöld
hafði tekizt að ryðja skrifstof-
una, en aðrir stúdentar náðu ann
arri skrifstofu á sitt vald.
Áður hafði fjölmennasti félags
skapur stúdenta, UNEF, lýst yf-
ir því, að stúdentar yfirgæfu
ekki háskólabygginguna fyrr en
lögreglan yfirgæfi Latínuhverf-
ið og að rikisstjórnin lofaði að
námsstyrkir yrðu hækkaðir um
15%. Líkt og í stúdentaóeirðun-
um í maí í fyrra voru slagorð
máluð á veggi, t.d. „Baráttan
heldur áfram" og „Niður með
lögregluríkið."
Lögreglan hafði sent liðsauka
Frambald á bls. 23