Morgunblaðið - 24.01.1969, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 24.01.1969, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 1969. 5 litið inn á œfingu í Þjóðleikhúsinu á gamanleikritinu Candida eftir Shaw V' v v „CANDIDA hér og Candida þar og Candida alls staðar“, segir piparmærin Fróserpína um Sandidueiginkonu prests- ins vinsæla, séra Morells. Ekki er þó víst hversu stóran sess piprunin skipar hjá ung- frúnni, en víst eru ummæli hennar um Candidu rétt, því a'ð rauði þráðurinn í þessum gamanleik Bernards Shaw er Candida, konan sem leikur sér djarflega að vissu marki með andstæðumar, andstæð- uraar í persónugerfi eigin- manns síns, prestsins og hins vegar unga skáldsins. Og lík- lega verður persónan Candida til um ófyrirsjáanlega fram- tíð á tilþrifum hversdagslífs- ins á mannlífstorginu. Við litum inn á æfingu hjá Þjóðleikhúsinu eitt kvöldið og fylgdumst með æfingu á Cand idu, en frumsýning leikrits- ins er í kvöld. svo mikið upp úr í leikritun sinni. Það hefur að vísu verið sagt um Shaw að hann væri hvort tveggja í senn niðurrifs maður og siðaprédikari, en ugglaust hefur það verið ætl- an hans að hinir fyndnu gam- anleikir hans myndu siðbæta heiminn, George Bernard Shaw er af írsku bergi brotinn. Hann fæddist í Dyflini árið 1856 og voru foreldrar hans mótmæl- endur. í upphafi rithöfunda- ferils síns ritaði Shaw skáld- sögur, en þær náðu ekki vin- sældum. Síðar aflaði hann sér frægðar fyrir gagnrýni sína, sem hann ritaði um flestar greinar listarinnar m.a. leik- list og tónlist. Þau skrif Shaw þykja mjög markverð enn og einnig þykja þau sýna ljós- lega ritsnilli Shaw. Þá skrif- aði Shaw einnig margar merk ar ritgerðir um ýmsa menn og má þar nefna t.d. Ibsen og Wagner. Ekki lét Shaw sinn hlut eftir liggja í stjórnmála- þrasi þessara ára og reyndi hann við flest tækifæri að koma fram sósíalistískum skoðunum sínum. Á fertugsaldri, eða árið 1892 kemur Bernard Shaw svo fram sem leikritaskáld í hinum svo kallaða „nýja stíl“ sem sætti harðri andspyrnu framan af hjá ýmsum áhrifamönnum og skriffinum. Upp úr aldamót- unum var Bernard Shaw orð inn viðurkenndur almennt, sem áhrifamikill leikritahöf- undur. Eins og áður er getið var Shaw harður gagnrýnandi og tók mjög upp hanzkann fyrir hina „Nýju leikritun“, en orð ræður og skoðanir um þá stefnu virtust á tímabili ætla að koðna niður og hverfa. Ef til var það einmitt þetta, sem varð til þess að Shaw hóf Séra Morell. Candida. Æfingin rann svo að segja snurðulaust, en einstaka sinn- um stöðvaði Gunnar Eyjólfs- son leikstjóri leikinn og ræddi við leikarana um þau atriði, sem hann vildi brjóta sérstak lega til mergjar. Leikarar í Candidu eru 6, með hlutverk fara: Herdís Þorvaldsdóttir, Candida, Erlingur Gíslason, séra Jakob Mavor Morell, Sig urður Skúlason í hlutverki Eugene Marchbanks skálds, Valur Gíslason í hlutverki Burgess verksmiðjueiganda, föður Candidu, Jónína Her- borg Jónsdóttir í hlutverki Próserpínu vélritara og Gísli Alfreðsson í hlutverki séra A1 exanders Mill aðstoðarprests. Bernard Shaw samdi gaman leikritið Candidu árið 1895, en þó að Candida teljist til gam- anleikja Shaw er undirtónninn í leikritinu á ströngum sið- ferðisgrundvelli siðbótarkenn- inga Shaw, sem hann lagði LONDON Eugene. leikritun, því að hann vildi ekki una við slík leikslok í baráttu sinni fyrir stefnu „nýju leikritunarinnar." Ég hafði að hvatvísi kastað hanzk anum“, sagði Shaw, „og frem ur en að horfa á málstaðinn verða sér til skammar bjó ég sjálfur til sönnunargagnið." Georg Bernard Shaw hafði heitið því að verða allra karla elztur, svo fremi að hann kæm ist ekki undir læknishendur. Þetta kom á daginn þó að ugg laus sé það ekki lækninum að kenna, en árið 1950 var lækn- ir kvaddur til Shaw vegna þess að hann hafði verið að klifra uppi í tré og fallið nið- Framhald á bls. 23 Séra Mill. Gunnar Eyjólfsson leikstjóri, á miðri mynd, ræðir leikatriði við Erlingj, Herdísi og Sigurð. Ljósm. Mb.l Kr. Ben. Próserplna. ALLT MEÐ EIMSKIP ALLT MEÐ EIMSKIF HULL Manafoss 29. januar Askja 6. februar Manafoss 17 februar * Skipið losar í Reykja vík, ísafirði, Akureyri og Húsavík. Skip, sem ekki eru merkl með stjörnu. losa aðeins i Rvik. Á næstunni ferma skip voi tii islands, sem hér segir: ANTWERPEN Skógafoss 29. janúar * Reykjafoss 10. febrúar Skógafoss 20. febrúar ROTTERDAM Skogafoss 31 januar Dettifoss februar. Reykjafoss 12 februar. Skogafoss 22. februar HAMBORG Reykjafoss 24. janúar Hofsjökull 27. janúar. Skógafoss 3. febrúar Dettifoss 11. febrúar Reykjafoss 15. febrúar. Skógafoss 25. febrúar Mánafoss 27. janúar Askja 4. febrúar Mánafoss 14. febrúar LEITH Mánafoss 31. janúar Askja 8. febrúar * Mánafoss 19. febrúar GAUTABORG Tungufoss 6. febrúar Laxfoss 19. febrúar KAUPMANNAHÖFN Laxfoss 25. janúar Gullfoss 1. febrúar Tungufoss 7. febrúar ' Gullfoss 15. febrúar Laxfoss 21. febrúar KRISTIANSAND Laxfoss 28. janúar Tungufos's 4. febrúar Laxfoss 17. febrúar GDYNIA Fjallfoss 7. febrúar KOTKA Fjallfoss 4. febrúar * TURKU Fjallfos's 5. febrúar VENTSPILS Fjallfoss 5. febrúar Bútasala — bútasala — bútasala Axminster, Grensásvegi 8

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.