Morgunblaðið - 24.01.1969, Page 10

Morgunblaðið - 24.01.1969, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 1969. „Hin miklu landssvæði morgundagsins“ Framtíð heimskautalandnnna liggur í vélum og sjólfvirkni — f sunnudagsblaði Chicago Sun Times birtist nýlega grein eftir Michael Cope, þar sem hann fjallar um Norðurskautsvæðið, en hann hafði þá nýlokið tveggja mánaða ferðalagi um norðurslóð ir frá Alaska til Norðurlanda. Hann ferðaðist 42 þúsund kíló- metra veglengd og ræddi við eskimóa, lappa, indjána, land- nema, visindamenn, námumenn, stjórnarerindreka o.fl., en lönd in kringum Norðurpólinn kallar hann „Hin miklu landsvæði morgundagsins". í upphafi greinarinnar segir höfundur, að 20. öldin sé á hraðri leið inn yfir harðfrosnar fjárhirslur norðursins. Sagnir um að þessi lönd hæfi ekki öðrum en hjörnum, eskimóum og landkönnuðum, sé að víkja fyrir spennandi sögum um auðlindir í iðrum jarðar og vísindaleg af- rek. En hver eru Norðurskauts- löndin? Landkönnuðir og þeir sem gamlir eru í hettunni telja gjarnan að þeim tilheyri allt svæðið norðan Norðurheimskauts baugs eða 66. breiddarbaugsins. Landfræðilega er það rétt, segir höfundur. En nú er litið á öll lönd norðan við breiddarbaug- inn sem Norðurheimskautslönd, en hann liggur um suðurhluta Alaska og Youkon og Norðvest- urhéruð Kanada. Þannig nær þetta svæði líka yfir mestan hluta Grænlands, allt fsland, mestan hluta Noregs og Sví- þjóðar, allt Finnland og nærri hálft Rússland. Alls nær þetta yfir 6 milljón ferkílómetra land, þar sem aðeins búa 700 þúsund manns. Þrátt fyrir það, er algerlega óraunhæft að halda að á Norður skautasvæðinu sé að finna lausn ina á mannfjölgunarvandamáli heimsins, segir höfundur. Sann- leikurinn er sá, að þessi svæði hafa ömurlega, ef ekki hættu- lega lítið aðlaðandi loftslag. Fátt fólk mundi kjósa að flytja af sæmilega þægilegu landi í suð- rænu loftslagi og norður í drunga lega vetur, ömurlegar sléttur og í ískulda. Það eina aðlaðandi eru peningamir. En há laun ét- ast upp af miklum tilkostnaði og verðbólgu, sem er mesta vanda- málið á öllu norðursvæðinu nú á dögum. Lausnin á þróunarvandamál- inu er að miklu leyti falin í vél- væðingu. Hún kemur í stað fólksfjölgunar og leysir vand- ann við að fá fólk til að setjast þarna að. Þeir sem raunverulega eru kunnugir á Norðurheimsskauta- svæðunum, hafa fyrir hugskot- sjónum auðugt, hrjúft land, ál- sett neti af risastórum pípu- lögnum, sem sjálfvirkar námur dæla eftir. Byggðin verður að- eins miðuð við það, að þar geti búið fáir tæknimenntaðir menn rétt nægilega margir til að þrýsta á nauðsynlega hnappa, skipta um öryggi og smyrja vél- arnar. Þegar eru þó til borgir á þessu norðursvæði, eins og An- chorage í Alaska. Murmansk og Norilsk í Rússlandi og jafnvel Kiruna í Svíþjóð, sem eru alger ar andstæður við þessa hug- mynd um fámenn framleiðslu- lönd norðurskautssvæðisins. En afrekin í byggingarlist frá því fyrir nokkrum árum, eru nú þeg ar farin að láta á sjá á þessum stöðum. Án þess að vi'lja gera lítið úr hinum geysimikla árangri Rússa, þá hafa þeir ekki ennslegið út þessar næstum ótrúlegu bygg- ingar, sem komið hefur verið upp í sambandi við radarað- vörunarkerfið DEW, í löndum þar sem enginn hefur áður kom ið nema farand eskimóar og nokkrir landkönnuðir. Stórfljót in níu á rússnesku landsvæði, sem fær eru skipum, og opn- ast út í Norðurheimskautshöfin, veita Rússum yfirburði, þar sem Hestamenn — hestamenn Ég hef verið beðinn að selja nokkra hesta á aldrinum 10—13 vetra. Upplýsingar í síma 66223. Sinfóníuhljómsveit íslands TiI áskrifenda Tónleikarnir 23. janúar voru hinir síðustu á fyrra misseri og eru því misserismiðar falinir úr gildi. Vegna mikillar eftirspumar er nauðsynlegt að til- kynna um endurnýjun nú þegar í síma 22260. Síðasti söludagur skírteina er 29. janúar. Fyrstu tónleikar síðara misseris verða hinn 6. febrúar. aðeins eitt slíkt stórfljót, Mack- enzie í Kanada, opnar þangað leið frá Norður Ameríku. Rétt er að minnast þess í þessu sam- bandi, að heimskautalönd Rússa voru þróuð með því að senda þangað vinnuafl í formi þræla, (5000.000 til 20.000.000) á tímum zarsins og kommúnistastjórnar voru sendir þangað pólitískir hvorki sætt sig við að fara aftur í frumstæð þorp sín að lokinni skólagængu né falla inn í lifn- aðarhætti hvítra manna. í norðurhéruðum Kanada er vandamálið mesta, hefur höfund ur eftir heimamönnum, að öllu er stjórnað frá Ottawa og gæði landsins fara út af svæðinu í formi óunninnar vöru. Þessi Heimskautasvæðin, en til þeirra telur höfundur öll lönd, norð an 60. breiddarbaugs. og áttu þeir ekki um annað að geysimiklu svæði eru svo strjál- velja en vera skotnir eða fara norður eftir. Hin miklu Norður- skautslönd Rússa og árangurinn þar eru þó enn að mestu óþekkt Vesturálfubúum, en nokkuð mikið er vitað um hin svæðin fimm, sem gefa hugmyndir um vandamálin og vonirnar, sem bundnar eru við Norðurheim- skautssvæðin. Síðan fjallar höfundur um heimskautslöndin í Norður-Am- eríku. í Alaska er auðugt námu land, sem frjáls verzlun og kapi talismi hafa unnið. Þar hefur ris- ið upp stórborgin Anchorage me’ð góðum hótelum og verzlunum, sem sýna að maðurinn geturhaft yfirhöndina yfir hörðum höfuð- skepnum. Við olíuvinnslu þarna hafa vísindamenn komizt að raun um, að olía heldur áfram að vera vökvi í 17 stiga frosti, sem tákn ar það að hægt er að láta hana renna í pípum og dæla henni eftir þeim í hvaða veðri sem er. En vandamálin í Alaska eru eskimóarnir. Þó búið sé að koma upp skólum fyrir þá, eiga þeir erfitt með að finna sér sama- stað í breyttu lífi. Þeir geta AKRANES — Almennur fundur F.U.S. ÞÓR og Samband ungra Sjálfstæðismanna efna til fundar í félagsheimili karlakórsins Svanir sunnud. 26. janúar kl. 3 e.h. Fundarefni: ÞJÓÐMÁLAVERKEFNI næstu ára — ATVINNUMÁL Frummælendur: Birgir ísl. Gunnarsson og Styrmir Gunnarsson. ÖLLUM HEIMILL AÐGANGUR. Birgir Styrmir byggð að ekki er mannskapur til að vinna þar eitt eða neitt Þrátt fyrir námuauðæfi, flytjast þangað ekki margir, allt fer út úr landinu. Sums staðar er verið að reyna að fá indjána eða eski- móa staðanna til að búa þar við nútímaaðstæður. Hefur höfund- ur það eftir fylkisstjóranum á Norðvestursvæðinu að tilkoma aðvörunarradarkerfisins hafi gert þáttaski'l. Með því hafi menningin hafið göngu sína norð ur til þeirra, og það í svo stór- um stíl, að ekki verði snúið aft- ur. Komnir eru skólar fyrir 96 prs. af íbúunum og mótorsleðar fyrir eskimóa og indjána, svo þeir geti komið inn á almennan vinnumarkað og hlotið almenni- leg laun, meiri heimastjórnar norður frá og þróun landsvæð- anna sjálfra. Hann villl að fólkið sem þarna býr, fari að hugsa í austur og vestur, í stað þess að suðrið eigi hug þess allan. Og hann lætur sér jafnvel detta í hug bandalag Norðurheimskauts þjóðanna, eitthvað í áttina við Evrópumarkaðinn, þar sem Kan ada Bandaríkin, Rússland Norð urlönd og ísland þ.e öll löndin sem ná norður í heimskautssvæð ið, taki höndum saman. Og hann hefur áformað íþróttamót heim- skautslandanna í Yellowknife árið 1970. Mesta þjóðfélagsvandamálið í heimskautslöndunum nú á tímum er vafalaust drykkjuskapur, seg ir höfundur greinarinnar. Þar eru norðurhéruð Kanada engin undantekning. Ástæðan liggur ljós fyrir: leiðindi, sjónvarps- leysi og skortur á dægrasttyt- ingu, of margir karlmenn, þar sem svo margir koma til að vinna fyrir háum launum og ski'lja fjölskyldur sínar eftir heima. í drykkjuskap eru eski- móar og indjánar engir eftirbát ar hinna. Þeir hafa ekki alizt upp til að vinna fimm daga i viku og fá þá vikukaupið sitt Þeir voru vanir að fara á veiðar eða fiska þegar þeir voru svang- ir, og borðuðu þá þar til þeir stóðu á blístri. Það sama gerist, þegar þeir hafa leyst af hendi viku vinnu sína. Er þeir hafa fengið laun og geta keypt sér flösku, fara þeir auðvitað og drekka úr flöskunni. Þá lagði höfundur leið sína til Grænlands, þar sem 9/10 hluti landsins er undir jökli og þar sem 40 þúsund Grænlands- eskimóar eiga í basli við að flytj ast yfir í 20. öldina. Hann segir, að Norður Ameríka fylgist af áhuga með aðferðum Dana til að fá tæknimenntaða menn til Græn lands með því að gera þá skatt- frjálsa og láta þeim í té frítt húsnæði. ísland kveður höfundur allt annars eðlis. Það sé gott dæmi um hvað hægt sé að gera á gróð- ursnauðu landi í norðlægu lofts lagi. Þetta sé eina Norðurheim- skautslandið, þar sem ekki séu neinir innfæddir, því fslending- ar hafi komið frá Norðurlönd- um. Því miður byggist efnahag ur íslands á fiskiveiðum og því sé landið vafalaust á leið til mikilla efnahagsörðugleika með fallandi fiskverði á heimsmörk- uðum, auknum tilkostnaði við alla hluti og sívaxandi sam- keppni frá Evrópu og Norður- Ameríku á mörkuðum. íslending ar séu nú að reyna að dreifa áhættunni yfir á stóriðnað með byggingu verksmiðja. Það muni þó ekki duga, en aukinn ferða- mannastraumur geti kannski fyllt í eyðuna, sem þar verður á milli. Þrátt fyrir slæmt útlit, efast höfundur ekki um að hinir harðgerðu íslendingar nái sér aftur á strik. Þeir hafi gert það og lifað í Norðurskautslandi í þúsund ár og hundrað árum bet ur. Þá heldur höfundur austur á bóginn, til heimskautalanda Sví þjóðar, og hann er hrifinn af því sem gert hefur verið í námu bænum Kiruna. Samt gengur maður þar fram hjá auðum hús- um, þar sem málningin sé að flagna af, segir hann, og Kir- una minnir, þrátt fyrir nútíma- þægindi og lifnaðarhætti, á fram farabæ. Auðsæld sína á Kiruna að þakka járnnámum, og þær séu nægilega miklar til að end- ast lengi enn. Samt kveður höf undur sérfræðinga í Stokkhólmi fylgjast af áhuga með námu- vinnslu í norðurhéruðum Amer- íku, þar sem reknar séu sjálf- virkar vélar með fáum þjálfuð- um starfskröftum. Hver verður þá framtíð þess- ara víðáttumiklu landssvæða framtíðarinnar? Það fer eftir efnahag, eftir milljónum tonna af námuefni, sem lokað er í sí- frosnum iðrum jarðar. Norður- skautslöndin munu blómstra, þeg ar nægilega mikil þörf verður fyrir þessi efni. Spurninigin, sem nú er glímt við, er þessi: Með hvað litlum tilkostnaði er hægt að grafa málma úr jörðinni og koma þeim á iðnaðarmarkaðinn 1—2 milljón km í burtu. Leynd- ardómar heimskautalandanna eru þegar að mestu kannaðir, vís- indi og tækni hafa náð undra- verðum árangri, en framtíðin liggur að mestu í vélum og sjálf virkni. Óþægindin fyrir mann- inn við að búa í heimskauts- löndunum skiptir ekki svomiklu máli lengur. Hagsæld mun einn- ig mjög háð flutningum. Ekki á vegum sem þola hvers kyns veð urlag eða endalausum járnbraut arteinum draumóramannanna, heldur í stærri og hagkvæmari þotum og þúsundum kílómetra af pípulagningum. Eskimóar, Ind jánar og Lappar koma líka inn í myndina. Þá þarf að mennta og fella þá inn í lifnaðarhætti nútímans, svo þeir geti líka átt sitt sæti í hinu víðáttumikla landi morgundagsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.