Morgunblaðið - 24.01.1969, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 24.01.1969, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 1969. ■Oltgefandi H.f. Árvakuir, Reykjaiváik, Fnamkvæindiaistjóri HaraJdur Sveinsson. Œtibstjórai* Sigiurðiur Bjarniason frá Vigur. MattMas Jdhanneaáen. Eyjólfur Kornráð Jónsson. i Hitsrtj ómarfulltrúi Þorbjöm Guðmundsson. Fréttaistjóri Bjöm Jólhannssom Auglýsingtastjöri ÁÍni Garðar Kristánsson. EiMjórn og afgreiðsla Aðalstræti 6. Sími 10-100. Auglýeingaa? Aðalstræti 6. Sími 22-4-80. Ásilcriftargj'ald kr. 160.00 á mánuði innanlands. í lausasölu kr. 10.00 eintakið. HVER DAGUR ER DÝR Erfiðleikar í sjávar- útvegi Færeyinga Cáttafundir í sjómannadeil- ^ unni hafa reynzt árang- urslausir fram til þessa. Bát- ar í flestum verstöðvum landsins utan Vestfjarða liggja bimdnir við bryggju. Þetta er dýrt spaug fyrir þjóð, sem hefur orðið fyrir gífurlegu áfalli í efnahags- og atvinnumálum á sl. tveim- ur árum. Hver dagur sem líður, án þess að samningar takist er þjóðinni býsna dýr. Á undanförnum mánuðum hefur verið unnið að því, að rétta efnahag þjóðarinnar við eftir þau áföll, sem við höf- um beðið. 'Að því marki stefndi gengisbreytingin í nóvember og ennfremur þær aðgerðk í atvinnumálum, sem náðst hefur samkomu- lag um. Þær ráðstafanir koma hins vegar að litlu gagni, ef bátaflotinn liggur bundinn við bryggju. Aukning útflutningsfram- leiðslunnar er tvímælalaust það meginverkefni, sem ein- beita verður kröftum þjóðar- innar að á næstu mánuðum ^og árum. í því sambandi skiptir auðvitað höfuðmáli að efla sjávarútveg og fisk- vinnslu svo sem kostur er. Sterk rök hafa verið færð fyrir því, að imnt sé að auka mjög verðmæti útflutnings- framleiðslunnar með breytt- um vinnsluaðferðum. Enn- fremur má gera ráð fyrir, að töluverðum hluta þeirra fjár- muna, sem Atvinnumála- nefnd ríkisins hefur til um- ráða verði varið til þess að örva útflutningsframleiðsl- una. Allt bendir því til þess að aðstaða sjávarútvegs og fiskvinnslu verði hagstæð á næstu mánuðum. Hins vegar er ljóst, að dragist sjómannaverkfallið á langinn er öllu stefnt í voða. Atvinna í verstöðvun- um um land allt, sem byggist fyrst og fremst á fiskvinnslu fellur niður og atvinnuleysið verður enn átakanlegra en nú er. Þess vegna verður að leggja höfuðáherzlu á að samningar takist hið skjót- asta milli sjómanna og út- gerðarmanna. Þjóðin má ekki við því, að þetta verkfall . dragist á langinn. SÓSÍALISTA- FÉLAGIÐ STARFAR ÁFRAM ÍZ ommúnistablaðið birti í “ gær frétt þess efnis, að félagsfundur í Sósíalistafé- lagi Reykjavíkur hefði sam- þykkt að „starfsemi félagsins skuli haldið áfram“. Fregn þessi staðfestir það, sem Mbl. hefur margsinnis bent á að undanförnu, að Sósíalistafé- lag Reykjavíkur var ekki lagt niður um áramótin og að ætl- unin væri að það starfaði áfram. Jafnframt leiðir frétt þessi í ljós, að fullyrðingar kommúnistablaðsins um að félagið hefði verið lagt nið- ur um leið og Sósíalistaflokk urinn, hafa við engin rök að styðjast. Sósíalistafélag Reykjavík- ur hefur jafnan verið öflug- asti hluti Sósíalistaflokksins. Með því að halda starfsemi þess áfram er sú staðreynd undirstrikuð að tilkynningin um að Sósíalistaflokkurinn hefði lagt niður starfsemi sína var blekking ein og furðulegur skrípaleikur. í lögum Kommúnistaflokks ins er meðlimum hans bönn- uð aðild að öðrum stjórn- málasamtökum. Vitað er, að um áramótin sögðu tveir með limir Kommúnistaflokksins, þeir Guðmundur Vigfússon og Sigurður Guðgeirsson sig úr Sósíalistafélagi Reykja- víkur. Hins vegar hefur kommúnistablaðið í rauninni staðfest, að aðrir forustu- menn Kommúnistaflokksins hafi ekki gert það. Þess vegna liggur ljóst fyrir, að ýmsir helztu áhrifamenn hins endurfædda Kommúnista- flokks eru ólöglegir meðlim- ir í honum. Þess vegna ber forustu flokksins skylda til að gera ráðstafanir til að víkja þessum mönnum úr flokknum. Meðan það er ekki gert og meðan ekki koma skýlausar yfirlýsingar um hverjir hafi sagt sig úr Sósíalistafélagi Reykjavíkur með löglegum hætti, er ljóst, að hér er hafður í frammi ósvífin blekkingarleikur. ÓSANNINDAIÐJA FRAMSÓKNAR- BLAÐSINS að er alveg furðulegt hvað Framsóknarblaðið leyfir sér að ganga langt í beinum ósannindum, þótt blaðinu hafi margsinnis verið bent á hverjar staðreyndir málsins eru. Enn einu sinni heldur blaðið því fram, að frestun á Þórshöfn, Færeyjum, 15. jan. Einkaskeyti fil Morgunbl. f ræðu sem Christian Djur- huus, lögmaður Færeyja, flutti fyrir skömmu ræddi hann um árferðið á liðnu ári hjá sjávarútvegi landsmanna, og sagði þar m.a.: Árið 1968 hefur verið sér- stakilega slæmt fyrir allar fisk veiðigreinar og það hefur leitt til þess, að sjómannafé- lagið hefur sagt upp sam- komulaginu við útgerðar menn. Það hefur einnig haft í för með sér, að landsstjórn- ínni hafa borizt margar kröf- Osló, 22. janúar. NTB. i— ÞAÐ eru umfangsmiklar og |mjög herskáar aðgerðir, sem nú |er verið að byrja af norska rit- Ihöfundasambandinu, sambandi norskra revíuhöfunda og félagi norskra þýðenda, sagði formað- ur norska rithöfundasambands- ins, Odd Bang-Hansen í viðtali við NTB í dag, en þessir fimm aðilar sendu sl. þriðjudag bréf til stjórnar norska útvarpsins, þar sem vakin var athygli á því, að samningar allra þessara fé- laga við norska útvarpið myndu renna út á þessu ári, sá síðasti þeirra 31. okt. n.k. segir í bréf- inu, að frá þeim tíma muni norsk útvarpið vera án samn- inga við «11 félög rithöfunda. Bang-Hansen sagði, að félögin myndu krefjast sameiginlegra samningaviðræðna við útvarpið. — Við viljum ekki, að rætt sé við okkur hverja í sínu lagi og við munum ekki lengur sætta okkur við það, að það sé gert lítið úr okkur. Ef útvarpið vill fá gott efni til flutnings, verða launin fyrir það að hækka upp á allt annað stig en þau eru nú, sagði hann ennfremur. Fjögur þessara félaga áttu fund með stjórn norska útvarps- ius í síðustu viku. í þréfinu til þess segir, að á þessum fundi hafi verið lögð fram gróf dæmi þess, hve meðlimir þessara fé- laga hafi verið undirborgaðir og um arðrán á höfundum and- legra verka í Noregi. — Það ern boðin kjör, sem hvorki koma okkur eða menningarlífi í Nor- egi að gagni. Bein afleiðing verð ur sú, að skapandi listafólki hjá norska útvarpinu fækkar, sök- ákvörðun fiskverðs sé laga- brot og að þessu sinni breið- ir það þessi ósannindi yfir þvera forsíðu. Vill ekki sá blaðamaður Framsóknarblaðsins, sem sér sóma sinn í að birta þessi ósannindi undir nafni gera ur um greiðslu á afborgun- um af skipslánum, sem lands- sjóður hefur ábyrgzt. Þetta hefur valdið efnahagsörðug- leikum og þanið greiðslugetu bankanna til hins ýtrasta. Lögþingið kom saman 8. janúar til þess að ræða til- mæli frá deiluaðilum í fiski- deilunni um uppbætur á fisk- verðið og hærri lágmarks- laun til sjómanna. — Ég er ekki í vafa um, að bæði Lög- þingið og 'landsstjórnin eru fús til þess að veita aðstoð sín-a til þess að efla fisk- veiðiflotann og landið í heild. um þess að það telur sig betur setta með því að starfa hjá öðr- svo vel að kynna sér laga- ákvæði um Verðlagsráð sjáv arútvegsins. Geri hann það, kemst hann að raun um að frestun á ákvörðim fiskverðs með leyfi sjávarútvegsmála- ráðuneytisins er fyílilega lögum samkvæm. Til þess að veita sjómönnum og útgerðinni uppbætur, verð ur hins vegar að tak-a féð frá borgurunum í þjóðfélag- inu með sköttum og það er í rauninni ekki annað eti að flytja peningana úr einum vasanum í annan. Djurhuus lögmaður lét í ljós þá ósk mína, að á nýja árinu myndu félag útgerðar- manna og sjómannafélagið koma sér saman um að koma á fót ráði, sem gæti orðið því opinbera til leiðbeiningar er gjarnan myndi greiða hluta af kostnaði þessa ráðs. Eitt af þeim verkefnum, sem þetta ráð gæti tekið að sér, væri að finna út, á hvern hátt gera mætti rekstur fiski- skipana ódýrari. Eins og sak- ir stæðu væri sérstaklega miki'll munur á reksturskostn aði ódýrasta og dýrasta skips ins, sagði lögmaðurinn. um menningarstofnunum. Þetta mun síðan rafa í för með sér lé- legra efni hjá norska útvarpinu. Á þann hátt kunnum við að vill- ast inn í víta-hring, sgm svo aft- ■ur kann að leiða til lækkandi almenns menningarstigs, segir í bréfinu. En kannski er tilgangs- laust að benda Framsóknar- blaðinu á að kynna sér stað- reyndir. Það stundar nefni- lega dyggilega þá iðju að birta staðleysur og vísvitandi ósannindi. — Arge. Norskir höfundar byrja aðgerðir gegn útvarpinu — Slítum öllum samningum við NRK á þessu ári, segir formaður norska rithöfundasambandsins Brezka leikkonan Audrey Hepburn gekk í hjónaband að nýju í síðustu viku. Sá hamingjusami er ítalskur geðlæknir, dr. Andreas Dotti að nafni. Mynd þessi var tekin af brúðhjónun- um eftir hjónavígsluna, sem fram fór í grennd við Genf í Svisslandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.