Morgunblaðið - 24.01.1969, Side 14
14
MOKGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. JANtJAR 1969.
______________- - ..........
HaHdór Jónasson frá
Hrauntúni — Minning
ÞÁ hefur síðasti bóndinn frá
sauðfjárbúskaparárum >ing-
vallabænda beizlað hrímhvitan
hestinn og lagt upp í sína
hinztu för. Eg þykist vita að í
þeirri ferð hafi hann farið um
slóðir bernskustöðvanna, Þing-
vallasveitina, um lyng og kjarri
vaxið landið þar sem hann forð
um fór með heylestir milli
Hofmannaflatar og Hrauntúns,
þar sem bæjartóftirnar standa
ehn innan hins fallega hlaðna
grjótgarðs kringum heimatúnið,
með kafgresi. Vafalítið hefur
andi hans víðar farið um Blá-
t
Eiginmaður minn og faðir
okkar
Þorsteinn Árnason
Suðurgötu 8
andaðist í Sjúkrahúsi Kefla-
víkur, 23. janúar.
Ingveldur S. Pálsdóttir
og börn hins látna.
t
Eiginmaður minn og faðir
okkar
Thorolf Smith
fréttafulltrúi
er andaðist 16. þ.m. verður
jarðsunginn frá Dómkirkjunni
laugardaginn 25. þ.m. kl. 10.30
fyrir hádegL
Unnur Gísladóttir Smith,
Jóhanna Smith,
Hjördís Smith,
Einar Páll Smith.
t
Jarðarför móður minnair
Jóhönnu Jónsdóttur
Hvanneyrarbraut 50, Sigluf.
fer fram laugardaginn 25. jan
úar og hefst með húskveðju
frá heimili hennar kl. 2 e.h.
Svavar Kristinsson.
t
Jarðarför
Sveins Gíslasonar
frá Siglufirði
sem andaðist á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu Akureyri 16. þ.
m., fer fram frá Akureyrar-
kirkju laugardaginn 25. þ.m.,
kl. 13.00. Vegna aðstandenda.
Jón Gíslason.
t
Systir okkar
María Eiríksdóttir
Krosseyrarvegi 3, Hafnarfirði,
verður jarðsett frá Þjóðkirkj-
unni laugardaginn 25. jan. kl.
2 e.h. Blóm afbeðin.
Guðrún Eiríksdóttir,
Eiríkur Bjömsson,
Margrét Bjömsdóttir,
Jón Bjömsson.
skógaheiðina, um óbyggðir lands
ins þar sem hann forðum átti
mörg spor og handtök við vörðu
hleðslur og hann átti margar
minningar frá.
Halldór Jónasson frá Hraun-
túni lézt að dvalarheimili DAS
Hrafnistu hinn 18. janúar. Var
hann þá kominn tæplega 4 mán-
uði yfir nírætt. Elísabet systir
hans sem emnig er komin á efri
ár, sagði um daginn ér ég hitti
hana, skömmu eftir fráfall Hall-
dórs: Þetta mun vera hans önn-
ur sjúkdómslega alla hans löngu
ævi. Halldór hafði verið svo
hraustur alla sína táð, a!ð engir
vina hans eða kunningja minnt-
ust þess að honum hefði nokkru
sinni orðið misdægurt. Fram til
síðustu stundar var sálarþrek
hans óbilað, en heyrnin biluð
og nokkrum dögum fyrir andlát
ið endurnýjaði hann glerin í
gleraugunum sínum með nýjum
lítið eitt sterkari. Það er senni-
legt að ég muni ekki komast aft
ur á fætur í bráð, — til að spila
— og verð ég þá að nota tímann
enn meir til bóklesturs sagði
hann — og gleraugun að vera
í lagi.
Eftirminnilegt verður okkur
t
Kveðjuathöfn um eigin-
mann minn,
Gunnlaug Pétur
Sigurbjörnsson
fyrrum bónda að
Ytri-Torfustöðum,
verður í Akraneskirkju laug-
ardaginn 25. þ.m. kl. 2 e.h.
Jarðsett verður að Melstað,
miðvikudaginn 29. þ.m., kl.
2 e.h. Bílferð frá Reykjavík
um Akranes norður þriðjudag
inn 28. þ.m.
Soffía Jónsdóttir
og aðrir ástvinir.
t
Innilegar þakkir fyrir sýnda
samúð og hluttekningu við
andlát og jarðarför móður
okkar,
Pálínu Jóhannesdóttur
Mávahlið 44.
Synir hinnar látnu.
t
Alúðarþakkir færum við
öllum sem sýndu okkur vinar
hug við andlát og útför móður
okkar, tengdamóður og ömmu
Diljáar Tómasdóttur
Sérstakar þakkir færum við
læknum og hjúkrunarliði
Laridakotsspítala svo óg starfs
fólki Hrafnistu.
Fyrir hönd aðstandenda.
Matthías Jochumsson.
t
Hjartans þökk til allra er
sýndu okkur samúð og vinar-
hug við andlát og jarðarför
systur okkar,
Rósu Björnsdóttur
Bjarkargötu 12.
Guð blessi ykkur öll.
Systkinin.
níræðisafmæli hans á síðasta
hausti. Þá var þessi gamla lífs-
glaða stríðshetja stjórnmálabar-
áttunnar allt frá tímum Hannes-
ar Hafstein og Jóns Magnús-
sonar og enn síðar Jóns Þor-
lákssonar, gneistandi af lífsfjöri.
Ekki fann hann til þreytu í
sínum beinum þó komið væri
fram á nótt og var þesshvetj-
andi að lengur yrði vakað og
skemmt sér og spjallað saman.
— Okkur vinum hans kom það
þrátt fyrir háan aldur Halldórs
nokkuð á óvart, að á jólaföstu
tók heilsu hans snögglega að
hraka þó sálarkraftar væru enn
óskertir og lífskrafturinn hinn
sami.
Halldór frá Hrauntúni var vin
margur. Margir eru nú horfn-
ir, en samt er vinahópurinn æði
stór enn þegar tekið er tillit til
hins háa aldurs sem hann náði.
t
Alúðarþafckir til allra, nær
og fjær, sem hafa styrkt okk-
ur með ómetanlegum gjöfum
og sýnt okkur annan hlýhug
við fráfall heimilisföðurins
Halldórs Júlíussonar
Guð blessi ykkur öll.
Ásta Guðmundsdóttir
og böm, Súðavík,
Álftafirði, N-fsafj.sýslu.
t
Við þökkum öllum þeim,
sem sýndu hluttekningu við
andlát og jarðarför móður
okkar, tengdamóður og
ömmu
Ingigerðar Kristjánsdóttur
Einnig þökkum við læfenum
og starfsfólki á Elli- og hjúkr
unarheimilinu Girund, fyrir
hjálp og hjúkrun í veikindum
hennar.
Böm, tengdaböm
og bamaböm.
t
Þökkum auðsýnda samúð
við fráfall og jarðarför
Guðbjargar
Aðalsteinsdóttur
Bólstaðarhlíð 48
Sérstaklega þökkum við yfir-
lækni og starfsfólki taugadeild
ar Landsspítalans svo og með
limum úr Kammerkórnum og
félögum úr Sinfóníuhljóm-
sveit íslands.
Jóhannes Eggertsson,
Ilaraldur Örn Haraldsson.
Tryggð hans var engin takmörk
sett við þá sem hann á annað
borð vildi eiga að vinum, en
hann var ekki allra. Halldór var
kominn á efri ár er okkar kynni
tókust að nokkru marki. Hann
var ætíð glaður í viðmóti en var
ekki sem opin bók sem auðveld-
lega varð lesin niður í kjölinn.
Þó hann væri alla tíð mjög ræð-
inn minnist ég þess ekki að hann
hafi rætt trúmál við aðra eða
spurninguna um áframhald lífs-
ins að loknum hérvistardögum.
Landsmál og stjórnmál voru
hans hugðarefni um þau var
hann sjófróður. Margir hinna
eldri stjórnmálamanna voru per
sónulegir kunningjar hans og
vinir, sem hann hafði mikla
ánægju af að segja frá í ýms-
um stórorustum stjómmálanna.
Hafði hann ýmislegt við það «ð
athuga, sem skrifað hefur verið
um þau málefni og þá menn, sem
þar komu við sögu. Og var hann
þá stundum ómyrkur í máli.
Gömul augu hans voru veður-
gilöggt og hann oft forspár um
veðráttuna til lands og sjávar.
Þó Halldór frá Hrauntúni
næði svo háum aldri, var hann
yfirleitt fordómalaus gagnvart
þeirri stórbyltingu þjóðlífsins,
sem hann varð vitni að, og tók
meiri og minni þátt í að sjálf-
sögðu, því muna mátti hann tím-
ana tvenna. Aldrei heyrði ég
hann hallmæla æskufólkinu með
öll sín vandamál og oft á tíðum
torskildu hugðarefni. Hann var
ætíð í hávegum hafður hjá ung
um ættingjum sínum fyrir það
m.a. hve hann var ætíð lifandi
og síungur og áhuga hans á að
ræða við þá án þess a'ð setjast
í dómarasætið yfir þeim.
Halldór Jónasson var fæddur í
Hrauntúni 23. september 1878.
Foreldrar hans voru Jónas Hall
dórsson bóndi þar og hreppstjóri
og kona hans Hólmfríður Jóns-
dóttir. Varð þeim sjö barna auð-
ið og var Halldór elztur, þá Jón
ína sem búsett hefur verið ára-
tugum saman í Bandaríkjunum,
bróðir hans var Ásgeir sem
lengi var skipstjóri hjá Eim-
skipafélagi íslands, og lézt 1946
Elísabet sem áður er getið, býr
ásamt dóttur sinni að Sogavegi
122, en hún var um árabil á
saumastofu Andrésar Andrésson
ar. Þrjú börn misstu Hrauntúns
hjóniin ung að árum. Þá er hálf-
bróðir Halldórs, Bjarni Pétur,
sem er forstöðumaður Skýrslu-
véla ríkisins. Ríkti vinátta milli
hálfsystkinanna og hafði Hall
dór miklar mætur á þeim og fór
oft viðurkenningarorðum um
dugnað þeirra og mannkosti.
Þegar Þjóðgarðurinn var gerð
ur á Þingvöllum var brostin for-
senda sauðfjárbúskaparins í
Hrauntúni og næsta bæ Skóga-
koti og lögðust þessir bæir báðir
brátt af. Halldór sem tekið haf ði
við Hrauntúni af föður sínum
hætti búskap árið 1937. Var
Hrauntún um margt erfið bú-
jörð og mjög einangruð. Hraun-
túnsheimilið var alla tíð bóka-
heimili og alltaf mikil lesið þar
af góðum bókum. Það veitti nú
Halldóri brautargengi á mölinni
hér í Reykjavík er hann flutt-
ist hingað frá Hrauntúni, því
fljótlega stofnaði hann fornbóka
verzlun í litlu búðarplássi, Bóka
skemmuna við Klapparstíg, rétt
ofan við Laugaveginn. Undi hann
þar hag sínum vel í mörg ár.
Bækur voru honum dýrgripir
hvort heldur þær voru hans eig-
in bækur, eða þær sem hann
seldi í bókaskemmunni. Eftir að
Halldór kom hingað alfluttur
eignaðist hann marga vini gegn-
um bókasöluna. En ekki komu
allir þangað í þeim erindum ein
um að verzla við hann, heldur
munu þeir hafa verið í meiri-
hluta sem þangað komu til að
skrafa við hann um dægurmál-
in, sem voru hans áhugamál af
lífi og sál.
Nú munu vera nær 20 ár síð-
an Halldór hætti með Bóka-
skemmuna og ákvað að draga
sig í hlé. Hefur hann síðan
lengst af verið vistmaður að
Hrafnistu, þar sem hann var
jafnframt bókavörður heimilis-
bófcasafnsins allt fram á síðasta
haust.
Eru þetta í stórum dráttum
helztu þættir í lífi Halldórs.
Ekki eru talin margskonar störf
sem hann tók að sér fyrir ýmsa
aðila t.d. Ferðafélagið og fjalX-
garpa fyrri tíma sem lögðu leið
sína um óbyggðir löngu áður en
jeppar og önnur láðs og lagar
farartæki komu til sögunnar, en
um það ræddi hann aðeins lí'til—
lega eins og flest annað er varð
aði hans persónulega framlag til
margháttaðra mála sem hann
hafði afskipti af. Honum fannst
það svo litlu máli skipta, hafði
meiri ánægju af að ræða tun
vini sína og kunningja.
Halldór taldi sig vita og sagði
eitt sinn við mig í haust. Ég lifi
ekki annað vor. Ég veit ég velt
svona útaf einhvern daginn og
svo er þetta allt búið.
Einmitt þannig kvaddi Hall-
dór þetta líf. Mig minnir að um
það bil tveim sólarhringum fyr-
ir andlátið, missti hann meðvit-
undina. Hann var þá kominn á
sjúkradeild Hrafnistu og hafði
verið þar um mánaðartíma og
notið þar sem og á vistmanna-
deild góðrar aðhlynningar, vel-
vilja og nærfærni starfsfólks.
Halldór vissi gjörla þá að leiðar-
endinn var ekki langt undan.
Hann komst til me'ðvitundar á
ný, um stund, en svo fjaraði lífs-
þróttur hans hægt og rólega út.
Þessi mæti og merki maður,
sem ætíð hafði unnið sín dags-
verk hávaðalaust hafði lokið
göngu sinni hér og var nú horf-
inn ættingjum og vinum sínum
fyrir fullt og allt. Minninguna
geyma margir ungir og gamlir
og varðveita meðan þeim sjálf-
um endist heilsa og líf. —,
í dag fer bálför hans fram í
Fossvogskirkju, en í vor þegar
frost fer úr jörðu mun aska hans
verða greftruð í Þingvallakirkju
garði þar sem hvíla ættingjar
hans og sveitungar og vinir —
á Þingvöllum hóf Halldór heit-
inn sína göngu — og þar lýkur
hann henni svo endanlega.
Sverrir Þórðarson.
Hestamannafélagið
FÁKUR
ÁRSHÁTÍÐ félagsins verður haldin að Hótel Borg
laugardaginn 1. febrúar 1969. Hefst með sameiginlegu
borðhaldi kl. 19.
Miðar afhentir í skrifstofu félagsins, skrifstofu Hótel
Borg og hjá Kristjáni Vigfússyni Rauðarárstíg 24.
SKEMMTINEFND.