Morgunblaðið - 24.01.1969, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 24.01.1969, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 1969. - BJARNDÝR Framhald af bls. 3. „Allt í lagi ég held í homin“ Vordag einn, árið 1914 var uppi fótur og fit austur á Seyð isfirði. Fréttir bárust af því eð isbjörn hefði sézt á sundi úti á firðinum. Fóru þrír bát- ar vel vopnaðra manna í skyndi út á fjörðinn og eftir harða skothríð var dýrið af velli lagt. En þessi „ísbjörn" var að því leyti frábrugðinn öðrum að hann var hyrntur vel. Á þessum árum var kirkju- setur Seyðfirðinga á Vestdals eyri, miðju vegar milli kaup- staðarins og prestsetursins að Dvergasteini. Leiðin til kirkj unnar lá eftir svokölluðum Háubökkum, sem eru snar- brattir bakkar upp frá sjón- um. Ekki var búið að leggja veginn yfir Fjarðarheiði þeg- ar þetta skeði, heldur fóru út héraðsmenn þá oftast yfir Vestdalsheiði. Atburðurinn skeði á sunnu- degi og voru fermingarbörn úr kaupstaðnum á leið til kirkjunnar, þar sem prestur- inn, séra Björn Þorláksson, veitti þeim kristilega upp- fræðslu. Með börnunum var fullorðinn maður, Stefán Ingv ar Sveinsson. Á sama tíma var bóndi á ferðinni niður á Seyðisfjörð og fór hann Vest- dalsheiði. f neðstu brekkunni ofan við Vestdalinn varð fyr- ir honum hvítt hreindýr. Hundur var með bónda, og komst hann í mikinn víga- móð, • er hann sá hreindýrið og stökk í það. Varð dýrið ofsahrætt og stökk niður Vest dalinn með hundinn á hælun- um, fram af Háubökkum og beint í sjóinn. Sáu þau sem í kirkjuferðinni voru dýrinu bregða fyrir í svip um leið og það stökk í sjóinn og voru ekki í vafa um að þarna hefði ísbjörn verið á ferð. Hröðuðu þau ferð sinni til Vestdalseyr- ar og þaðan var hringt til Seyðisf jarðar og sagt að bjarn dýr hefði hlaupið í sjóinn af Háubökkum og hefði það synt út fjörð. Á Seyðisfirði var til mikið af góðum vopnum og brugðu menn skjótt við og mönnuðu þrjá báta, og reru út á fjörð. Sáu þeir dýrið og byrjuðu að skjóta á það af löngu færi, þar sem ekki þótti fýsilegt að koma mjög nærri svo hættu legu dýri. Fór svo að dýrið var fljótlega drepið. Brugðu menn síðan tógi í það og reru sem leið lá til Liverpool- bryggjunnar, þar sem mikill hópur manna var samankom- inn, m.a. allir helztu fyrir- menn staðarins. Er jullan sem dýrið var fest í, var dregin upp að bryggjunni losnaði bandið á dýrinu og hrópaði þá einn þeirra er á bryggj- unni stóð: „Ætlið þið að missa dýrið.“ Einn þeirra er í jullunni var hafði skjót við- brögð og tókst að ná taki á því, kallaði hann síðan tU hryggjumanna: „Engin hætta, ég held í hornin." Þá urðu ýms ir skrýtnir í framan. Hreindýr voru alfriðuð þeg ar þetta skeði, en skotmönn- unum var sleppt á þeirri for- sendu að þeir hefðu skotið dýr ið sem ísbjörn." Bjarndýr og varðhundar— ÉG minnist þess ekki, að hafa heyrt eða lesið um það í sam- bandi við komu bjarndýra hing- að til lands, að hundar hafi nokkurntíma komið verulega við sögu er dýrin fundust. Þetta er harla furðulegt þegar það er haft í huga hvað hundar gegna miklu hlutverki á heimskauta- svæðum við að vara við bjarn- dýrum, þeir verða varir við dýr in í margra kílómetra fjarlægð ef vindur stendur af þeim. Að hugsa sér annað eins og það, að bjarndýr er búið að valsa um Grímsey dögum sam- an, og hafði nær orðið dreng að bana, án þess að nokkur hund- ur reki upp bofs. Hefði björn komið svona nærri byggð á Grænlandi, þó ekki hefði verið nema stutta stund, hefðu allir hundar í mílufjarlægð tryllzt. Þefvísi hunda þarf ekki að lýsa, en það þarf að kenna hundum þau verk, sem þeir eiga að vinna og geta unnið. Ég þekki einn bónda, Jóhannes Ste- fánsson á Kleifum, sem kann að ala upp og þjálfa hunda, enda landskunnur fyrir og fleiri kunna að vera til sem leggja rækt við að kenna hundum sín- um. En því miður mun það vera staðreynd, að íslenzkir hunda- eigendur virðast lifa í þeirri undarlegu trú, að hundum þurfi ekki að kenna, þeir séu svo miklu gáfaðri en mannskepnan, að öll verkkunnátta sé þeim með- fædd. Árangurinn er líka sá að íslenzkir hundar eru miklu gagnsminni en vera þyrfti. En Eskimóar eru okkur miklu fremri að þessu leyti. Þeir lifa á- hyggjulausu lífi og óttalausu með ísbirnina allt í kring um sig, af því að þeir hafa kennt hund- um sínum að halda vörð og að- vara í fíma. ísinn hefur nú í nokkur ár gert meira vart við sig en um langt skeið og ef framhald verður á því má auðvitað alltaf búast við að einn og einn björn gangi á land. Mér fyndist þá heillaráð að minnast þess, að hundar eru þau alfullkomnustu aðvörunar „tæki“ sem til eru, tæknin á ekki neitt í fórum sínum sem jafnast á við þá. — Ég vona að Grímseyingar og bændur á ísasvæðum gefi hund- um sínum tækifæri til að njóta sinna einstæðu hæfileika til að vara við hættu af ísbjörnum. Trausti Einarsson. Við höfum verið beðnir að selja Iítið trésmíðnverkstæði Einnig kemur til greina að selja vélar verk- stæðisins hverja fyrir sig. Upplýsingar á skrifstofunni. t. ÞOBSTEINSSON 8 JOHIBOI H.F. Ármúla 1 .-. Grjótagötu 7 Simi 2-42.-50 Valið kom mér á óvænt — spjallað vrð nýliðann í landsliðinu Þegar Ingólfur Óskarsson fyrirliði handknattleiks- landsliðsins, hafði tilkynnt að hann teldi sig ekki geta ver- ið með í landsleikjunum, valdi landsliðsnefndin 24 ára leik- mann úr Haukum, Ólaf Ólafs son, í hans stað. Verður þetta jafnframt fyrsti landsleikur Ólafs, sem hefur undanfarin ár verið meðal okkar heztu handknattleiksmanna og átt drjúgan þátt í velgengni Haukanna í íslandsmótunum í handknattleik. f gær náðum við tali af Ól- afi, á vinnustað, en hann er matsveinn í Straumsvík. — Það kom mér sannar- lega óvænt að vera valinn í landsliðið núna, sagði Ólafur, — þar sem ég hef fremur lít- ið getað æft með því. Ég var boðaður á landsliðsæfingar í haust og æfði allvel fram að áramótum, en varð þá að hætta æfingum um sinn, Ólafur Ólafsson vegna vaktavinnunnar sem ég stunda, en núna hef ég svo hafið æfingar aftur. — Ég byrjaði í handbolta með þriðja flokki Hauka, en hætti síðan með þeim um skeið, er ég var norður á Ak- ureyri, en þar æfði ég og keppti með 2. deildar liði Ak ureyringa eitt ár. — Þetta verður náttúr lega allt öðru vísi, en að leika handknattleik með Haukum. Mér lýst mjög vel á taktikina sem landsliðið er með, en er hins vegar ekki mikið inn í henni. Þá kemur það ef til vill til með að há mér nokkuð hvað ég þekki strákana lítið. Hef varla spil að með þeim áður, nema þá Stefáni, en það er mjög gott að leika handknattleik með honum. — Leikurinn legst bara vel í mig. Ég verð sjálfsagt tauga óstyrkur þegar dregur nær honum. En við ættum að eiga alla möguleika á að vinna hann, og vonandi verður sú raunin á. Nýir menn reyndir í landsliðinu NK. SUNNUDAG leikur knatt- spyrnulandsliðið æfingaleik við KR. Verður leikurinn á Vals- Vellinum og hefst kl. 13,30, eða •hálftíma fyrr en venjulega vegna handknattleikslandsleiksins, sem fram fer seinna um daginn. Verð •ur landsliðið að þessu sinni KR- inga laust, samkv. sérstakri ósk KR-inga. Verður liðið sem ein- valdurinn valdi, þannig skipað á sunnudaginn: Jóhannes Atlason, Fram. Þor- steinn Friðþjófsson, Val. Baldur Ccheving, Fram. Halldór Einars son, Val. Guðnd Kjartansson, ÍBK. Sævar Tryggvason, ÍBV. Hreinn Eliiðason, Fram. Her- mann Gunnarsson, Val, Sigurð- ur Jónsson, Val. Ingvar Elísson, Val. Varamenn: Þorbergur Atlason, Fram. Sigurður Albertsson, ÍBK Helgi Númason, Fram. Reynir Jónason, Val. NK. SUNNUDAG leikur ungl- ingalandsliðið í knattspyrnu æf- ingaleik við Akurnesinga á Akra nesi. Hefst leikurinn kl. 2.45. Kl. 5 á sunnudaginn verður svo haldinn unglingafundur á Akra nesi, þar sem Árni Ágústsson, Örn Steinsen og Helgj Daníels- son munu kynna starfsemi knatt spyrnusambandsins og knatt- þrautir K.S.l. Unglingalandsliðið er leikur Fjórir leikmanna, þeir Baldur, Halldór, Sigurður og Páll hafa ekkd leikið með landsliðinu fyrr. við Skagamenn verður þannig skipað: Sigfús Guðmundsson, Vík. Björn Árnason, KR. ólafur Sig- urvinsson, fBV. Magnús Þor- valdsson Vík. Rúnar Vi'lhjálms- son, Vík. Gylfi Gíslason, Self. 'Helgi Ragnarsson, FH. Jón Pét- •ursson, Fram. Ágúst Guðmunds- •son Fram. Marteinn Géirsson, •Fram. óskar Valtýsson, ÍBV. Varamenn: Hörður Helgason, Fram. Sigurður Ólafsson Val. Einar Gunnarsson, ÍBK. Pálmi ‘Sveihbjörnsson, Haukum. Rafvirki ósknst strax Föst vinna. — Tilboð sendist Mtíl. ásamt upplýsingum um fyrra starf fyrir 28. janúar merkt: „Rafvirki — 6323“. Unglingalandsliðið Leikmaður varð eftir í U.S.A ÞÝÐINGAR Óskum eftir manni til þýðinga úr þýzku og ensku í heimavinnu. Aðeins fólk með góða þekkingu kemur til greina. Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir 27. þ.m. merkt: „Heimastarf — 6174“. Suðurnesjamenn — Suðurnesjamenn Losum saltfarm í Keflavík um næstu mánaðarmót. Væntanlegir saltkaupendur hafi vinsamlegast sam- band við skrifstofu okkar, Garðastræti 3 sími 11120, eða saltafgreiðslu okkar í Keflavík, sími 2740. SALTSALAN SF. KEFLAVÍKURÚTVARPIÐ skýrði frá því I gær, að skóla- stjóri Branydwina College Bandarikjunum hefði veitt þær upplýsingar að einn leikmanna liðsins Sparta Prag, er lék hér í desember og aftur í fyrrakvöld hefði óskað eftir að gerast nem andi skólans og þar með hætt við að fara með liðinu til Ev- rópu, og sagði skólastjórinn að allt myndi verða gert til þess að þetta yrði mögulegt fyrir hann. Þjálfari Sparta Prag vildi ekki tala neitt um ástæðu þess að pllt ur-inn varð eftir, en sagði, að sér hefði verið kunnugt um að 10 klst. áður en þeir yfirgáfu New York að skóiar í Banda- Tikjunum hefðu sýnt mikinn áhuga á að fá einstaka leikmenn liðsins til þess að verða eftir. Leikmaðurinn, sem eftir varð í Bandaríkjunum, heitir Frantisek Cikán, tvítugur að aldri og á foreldra og sys’tkin á lífi í Tékkóslóvakíu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.