Morgunblaðið - 13.02.1969, Blaðsíða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1969.
BRUNAVARÐAFÉLAG Reykja-
víkur var stofnað fyrir réttum
25 árum — hinn 13. febrúar
1944. Félagið er hagsmunafélag
brunavarða í Reykjavík án samn
ingsréttar og hefur það stuðlað
að ýmsum umbótum fyrir bruna
verði þennan aldarfjórðung, sem
það hefur starfað.
Árið áður en félagið var stofn
að hafði brunavörðum í Reykja-
vík verið fjölgað í 22, en áður
höfðu aðeins 12 menn gegnt
störfum brunavarða. Stofnfélag-
ar voru því 22 og enn eru 8
þeirra starfandi brunaverðir.
Fyrsti formaður félagsins var
Anton Eyvindsson og árið 1963
var hann gerður að fyrsta heið-
ursfélaga félagsins, þá sjötugur.
Kjartan Ólafsson er einnig heið-
ursfélagi. Nú eru félagar 52
starfandi brunaverðir og að auki
eldvarnareftirlitsmenn, verkstæð
Núverandi stjóm Brunavarðafélags Reykjavíkur, talið frá vinstri: Guðbrandur Bogason, gjald-
keri: Sigurjón Kristjánsson, sjóðsritari: Valur Þorgeirsson, ritari: Finnur Fichter, formaður og
Matthías Eyjólfsson, varaformaður. — Ljósm. Mbi. Ól. K.M.
V "*v-
Brunavarðafélag Reykjavíkur 25 ára
ismenn Slökkvistöðvarinnar, svo
og fyrrverandi brunaverðir.
Aðalhvatamenn að stofnun fé-
lagsins voru þeir Karl Bjarna-
son og Sigurbjörn Maríusson,
þeir eru báðir látnir.
Eitt merkasta verkefni félags-
ins á þessum éirum var stofnun
bókasafns brunavarða. Var það
stofnað haustið 1945 eftir bruna,
sem varð í prentsmiðju Guten-
bergs. Prentsmiðjustjórinn, Stein
grímur Guðmundsson gaf þá 1000
krónur til safnsins og voru það
verðlaun til brunavarða fyrir
vasklega framgöngu í prentsmijð
unni. Síðan hefur sérhver bruna
vörður greitt árlega í safnsjóð
og telur safnið nú tæplega 1500
bindi og er brunavörðum mikil
dægrastytting á næturvöktum og
um helgóir.
Sumarið 1966 réðst félagið í
það stórvirki að halda hér nor-
rænt brunavarðamót. Undanfar-
in ár höfðu þrír fulltrúar fé-
lagsins sótt álík mót á hinum
Norðurlöndunum, en ‘66 komu
til íslands 40 brunaverðir frá
Norðurlöndunum, og Bretlandi.
Tóku einnig þátt í mótinu all-
flestir íslenzkir brunaverðir.
Þegar nýja Slökkvistöðin var
reist, var mjög bættur hagur fé-
lagsins. Félagið fékk húsnæði til
afnota bæði fyrir starfsemi^ sína
og einnig fyrir bókasafnið. í dag
stofu Slökkvistöðvarinnar var og
aðstaða til fundahalda. Félagið
á nú sjónvörp, kvikmyndasýn-
ingavél og knattborð til afnota
fyrir félaga sína í Slökkvistöð
inni.
Slökkviliðsstjórinn í Reykja-
vík hefur ætíð verið mjög hlynnt
Anton Eyvindsson —
fyrsti formaður félagsins
Jón Sigurðsson —
lengst af slökkviliðsstjóri í tíð
félagsins.
ur félaginu að sögn. Finns Richt
ers, formanns félagsins, Pétur
Ingimundarson gegndi því em-
bætti er félagið var stofnað, en
lengst gegndi því í tíð félagsins
Jón Sigurðsson eða í 1'9 ár. Bftir
maður hans var Valgarð Thor-
oddsen og núverandi slökkviliðs-
Hér birtist ein fyrsta myndin, sem tekin var af brunavörðum íReykjavík eftir stofnun félags
ins. Myndin er frá vorinu 1945.
stjóri er Rúnar Bjarnason.
Stjórn félagsins er kosin ár-
lega. Frá upphafi hafa alls 9
menn gegnt formannsstörfum,
lengst þeir Leó Sveinsson og
Bjami Bjiarnason, báðir í 8 ár
samfleytt. Núverandi stjórn fé-
lagsins skipa: Finnur Richter, for
maður: Matthías Eyjó’lfsson, vara
formaður: Valur Þorgeirsson rit
ari: Guðbrandur Bogason, gjald
keri og Sigurjón Kristjánsson,
sjóðsritari.
Brunaverðir héldu afmælið há
tíðlegt með hófi í Loftleiðahótel-
inu í gærkvöldi. Barst félaginu
fjöldi gjafa og heillaskeyta í til-
efni afmælisians.
„Glotaðir
snillingar“
f BLAÐINU í gær var frétt um
nýja framhaldsleikritið í útvarp-
inu, sem verður flutt næstu 6
fimmtudaga kl. 7.30 hvert kvöld.
í upphafi fréttarinnar féllu nið-
ur tvær línur úr formála sögu-
manns sem les með leikritinu.
Framlhaldsleikritið er Glataðir
snillingar eftir Færeyinginn
Heinesen og Sveinn Einarsson
stjórnar leikritinu, sem er þýtt
af Þorgeiri Þorgeirssyni. For-
m'álinn, sem fjallar um Færeyj-
ar, er réttur á þessa leið: Óra-
langt úti í kvikasilfursskímu út-
hafsins rís einmana blýgrátt
land. Samanborið við ógnarvíð-
erni hafsins er þetta örsmáa
klettótta land varla fyrirferðar-
meira en sandkorn á dansgólfi.
En skoðað með stækkunargleri
er þetta sandkorn þó heimur út
af fyrir sig. Já, meir að segja er
þar einlhversstaðar duggunar-
lítið þorp og bryggjur og vöru-
skemmur, götur og stíga og
bratta troðninga, gróðurreiti,
torg og kirkjugarða. Þar er líka
gömul kirkja á hæð svo úr turni
henna sést vítt yfir húsþökin í
bænum og enn lengra út á alveldi
hafsins. Það var mörgum árum
fyrr en saga þessi gerðist, að á
hvössu síðdegi sat í tumi þessum
maður ásamt þrem drengjum og
blustuðu á kenjóttar tónasveifl-
ur frá vindhörpu. Þetta var Korn
elíus hringjari ísaksen og synir
hans þrír þeir Moritz, Síríus og
Kornelíus yngri“.
Fasteignasalan
Hátúni 4 A, Nóatúnshúslð
Símar 21870-20988
I smíðum
2ja—4ra herb. íbúðir við
Jörvabakka, fokheldar eða
lengra komnar.
5 herb. íbúð við Dvergabakka
tilb. undir tréverk nú þeg-
ar.
4ra herb. íbúð við Hulduland,
afh. í apríl, tillb. undir tré-
verk.
6 herb. sérhæðir við Álfhóls-
veg og Nýbýlaveg, fokheld-
ar eða lengra komnar.
Raðhús við Barðaströnd og
Látraströnd, fokheld.
Raðhús við Selbrekku, fok-
held.
Raðhús við Giljaland, fokhelt,
eignaskipti möguleg á 3ja—
4ra herb. íbúð.
Garðhús við Hraunbæ, fok-
helt, gott verð.
Einbýlishús í smíðum við
Grundaland, Fagrabæ,
Hjallabrekku, Lyngheiði,
Markarflöt, Tjarnarflöt,
Sunnuflöt og Bröttukinn í
Hafnarfirði.
Lóðir í Arnarnesi, Seltjarnar-
nesi og Kópavogi.
Jón Bjarnason
hæstaréttarlögmaðnr
Hilmar Valdimarsson
______fasteignaviðskiptl.__
16870
í SMÍÐUM
FOKHELT
Raðhús við Barðaströnd
Seltj.nesi. Tvær hæðir,
innb. bílskúr á neðri,
alls 228 ferm. Endahús.
Raðhús við Giljaland,
pallahús, alls 216 ferm.
Húsn.málastj.lán áhvíl-
andi.
Raðhús við Selbrekku,
Kóp. Tvær hæðir, 130
ferm. hvor, inng. bíl-
skúr á neðri. Skipti á
3ja—4ra herb. íbúð æski
leg.
Raðhús við Vogatungu,
Kóp. Tvær hæðir, 120
ferm. hvor. Væg útb.
Einbýlishús á Flötunum
á góðum kjörum.
Einbýlishús 135 ferm.
við Lyngheiði, Kópav.
Verð 850 þús.
6 herb. 140 ferm. efri
hæð, sér við^Nýbýlaveg,
Kóp. Inmb. bílskúr á
jarðhæð. Verð 800 þús.
FASTEIGNA-
PJÓNUSTAN
Austurstræti 17 (Silli & Vatcii)
Ragnar Tómasson hdl. simi 24645
sölumaöur fasteigna:
Stefán J. Richter sfmi 16870
. kvöldsimi 30587
SAMKOMUR
Heimatrúboðið.
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20,30. Allir velkomnir.