Morgunblaðið - 13.02.1969, Side 13

Morgunblaðið - 13.02.1969, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1960. 13 ERLENT YFIRLIT -jc Hvað gango flustur-Þjóðverjar langt? -j< Bntnondi sambúð Frakklands og USA j< Eldflauga-samkomulag ú langt í land -j< Hlutverk Gunnars Jarring verður eflt Verða flugferðir einnig heftar? NÝJAR deilur hafa risið út af Benlín vegna þeirrar ráðstöfun- air Austur-Þjóðverja að banna vestur-þýzkum þingmönnum að ferðast landleiðina til Vestur- Berlínar, þar sem ætlunin er að kjósa nýjan forseta Vestur- Þýzkalands í marzbyrjun. Vest ur—Þjóðverjar sökuðu Austur- Þjóðverja um að auka á spenn- una í sambúð austurs og vest- urs með þessari ákvörðun og kröfðust þess að Vesturveldin tækju mjög ákveðma afstöðu gegn aðgerðum Austur-Þjóð- verja. Vesturveldin hafa orðið við þessari áskorun og mótmælt mjög eindregið takmörkunum Austur-Þjóðverja á frjálsum ferð um ti'l Vestur-Berlínar sem broti á samningum og bent á að Rúss- ar beri ábyrgðina á óhindruðum ferðum en ekki Austur-Þjóð- verjar. Austur-Þjóðverjar hafa til- kynnt, að bannið tabi gildi á laugardaginn, einum degi eftir að Harold Wilson, forsætisráð- herra Breta, kemur í heimsókn til Berlínar. Richard Nixon Banda- ríkjaforseti fer í fyrirhugaða heimsókn sína til Vestur-Berlín- ar síðar í þessum mánuði eins og ekkert hafi í skorizt. Flestar líkur benda einnig til þess, að forsetakosningamar fari fram án þess að alvarleg tíðindi ger- iat. Þingmennimir geta ferðazt með flugvélum til Vestur-Berl- ímar og ólíklegt er talið að neynt verði að hefta flugferðir til Ber- línar vegnia forsetakosnimgannia. Slíkt mundi að sjálfsögðu skapa mjög alvarlegt ástand, því að Vesturveldin mundu grípa til róttækra gagnráðstaíana. NÝJAR TILSKIPANIR En nokkur óvissa ríkir þó vegna þess, að austur-þýzka stjómin hefur bannað öllum þeim sem ’hún teiur nýnazista og öll- um vestur-þýzkum ráðherrum og háttsettum embættismönnum að ferðast yfir austur-þýzkt yfir- ráðasvæði. Um þetta eru ákvæði í tveimur tilskipunum, sem aust- uir-þýzka stjórnin gaf út í fyrra. Ljóst er, að Austur-Þjóðverjum gremst mest, að meðal þeirra þing manna, sem kjósa vestur-þýzka forsetamn, verða nokkrir fulltrú ar nýnazistafiokksins NDP. En tilskipanimar frá í fyrra leiða því aðeins til alvarlegs ástands að reynt verðúr að hefta flug- ferðir til og frá Berlín Ástæðan til þess að Vestur- Þjóðverjar vilja halda forseta- kosningar í Vestur-Berlín er sú, að þá tekur sárt hvernig komm- úmdstar einangra Vestur-Berlín. Þeir vilja sýna, að Vestur-Berl- ín sé ekki gleymd og leggja áherzlu á þá von, að Þýzka- liand verði einhvern tímann sam- einað og að Berlín verði höfuð- borg sameinaðs Þýzkalands. Ul- bricht-stjórnin getur ekki saett sig við það að forsetakostningar nar fari fram í Berlín, enda grundvallast tilvera hennar á skiptingu Þýzkalands. Samkvæmt Potsdamsamningnum fara her- hernámsveldin fjögur með völd- in í Berlín og þeim var ætlað að gera Berlín að höfuðborg Þýzka- lands og tryggja óhindraðar sam göngur til borgarinnar frá öll- um hlutum Þýzkalands. Hins veg £U- hefur sovétstjórnin fálið Ul- bricht-stjórninni landamæraeft- irlit, en hún getur ekki skipt sér af flugsamgöngum. Ákvörðun austur-þýzku stjórn arinnar kom síður en svo á óvart enda hefur hún oft áður gripið til svipaðra ráðstafana. Það sem alltaf býr á bak við siíkar þving unarráðstafanir er sú stöðuga viðleitni austur-þýzku stjórnar- innar að afla sér viðurkenning- ar. Rússar hafa mótmælt fyrir- huguðum forsetakosningum í Vestur-Berlín á þeirri forsendu, að þær samræmist ekki stöðu borgarinnar sem hernumins svæð is. En allt bendir ti'l þess, að Rússar hafi áhuga á góðu sam- komulagi við hina nýju stjórn Nixons í Washington. Þess vegna er talið ólíklegt að þeir láti aust ur-þýzku stjórnina koma af stað alvarlegri fjórveldadeilu. Rússar gera sér grein fyrir því, að nýtt hættuástand getur hæglega leitt til þess að öfga- sinnaðir hægrimenn auki fylgi sitt verulega í vestur-þýzku þingkosningunum, sem fara fram í haust. Austur-Þjóðveirjar hafa einnig ástæðu til að sýna gætni meðal annars vegna kiaupstefn- unnar í Leipzig sem hefst eftir nokkra daga. En Austur-Þjóð- verjar eru sárgramir Vestur- Þjóðverjum vegna ákvörðunar þeiirra um að halda forsetakosn- ingarnar í Vestur-Berlín. Og þeir hafa töluverð áhrif í Moskvu vegna þess, að þar er litið svo á. að hernám Austur-Þýzkalands sé hernaðarleg nauðsyn. Þess vegna getur skapazt alvarlegt hættuástand, ef Austur-Þjóðverj ar ganga of langt í ógnunum sín- um. Ágreiningur um bannsamning MEÐ heimsókn sinni til Vestur- Evrópu síðar í þessum mánuði vill Richard Nixon forseti greini lega leggja áherzlu á þann yfir- lýsta ásetning sinn að efla At- lantshafsbandalagið. Þessi við- ’leitni gefur til kynna, að Nix- on vilji reyna að bæta sambúð- ina við Frakka, og einn mikil- vægasti þáttur ferðarinniair verða viðræður hans við de Gaulle forseta í París. Heimsókn hans til Bonn getur haft mikla þýðingu vegna þess að Vestur-Þjóðverjar haf-a neit- að að undirrita samninginn um bann við frekari útbreiðslu kjarnorkuvopna. Heimsókn hans til Vestur-Berlínar verður sennilega notuð til þess að leggja áherzlu á þann ásetning Bandaríkjamanna að verja frelsi borgarhlutans þrátt fyrir síðustu hótanir Austur-Þjóðveirja. KLOFNINGUR í BONN Samndngurinn um bann við frekari útbreiðslu kjarnorku- vopna er einn af hornsteinum góðrar sambúðar Bandaríkja- manna og Rússa. Fyrir nokkru skoraði Nixon mjög eindregið á öldungadeild Bandaríkjaþings að staðfesta samninginm, og sýndi það hve mikla áherzlu hann legg ur á þetta mál. Ljóst er, að í Bonn mun Nixon reyma að sann- færa vestur-þýzku stjórnina um, að ótti hennar um að samning- urinn geti torveldað friðsamlega hagnýtingu kjarnorkunnar í Vest ur-Þýzkalandi og hindrað þann ig eðlilegar tækniframfarir sé ýktur. Berut verður á mikilvægi samningsins fyrir heimsfriðinn. Eins og greinilega hefur kom- ið fram á undamförnum m'ánuð- um er vestur-þýzka stjórnin klofin í afstöðu sinni til bann- samningsins. Willy Brandt utan- ríkisráðherra hefur beitt sér mjög eindregið fyrir því, að samn iingurinn verði undirritaður. En nú fyrir nokkrum dögum lýsti Kurt Georg Kiesinger kanzlari yfir því að loknum vikulöngum umræðum í vestur-þýzka þinig- inu um samninginn, að ekki kæmi til mála að Bonn-stjómin undir- ritaði hann fyrr en Rússar hættu að skipta sér af vestur-þýzkum innanríkismálum. Vera má að síðustu deilurnar út af Berlín eigi þátt í þessari harðmandi afstöðu, en það sem Vestur-Þjóðverjum gremst mest er, að síðan Rússar réðust inn j Tékkóslóvakíu hafa þeir áskil- ið sér rétt til afskipta af vestur- þýzkum innanríkismálum sam- kvæmt tveimur greinum stofn- skrár Sameinuðu þjóðanna, nr. 53 og 107, sem kveða á um „óvinaríki". Rússar túlba ákvæð in á þann veg, að þau eigi við um Vestur-Þjóðverja, en Vestur veldin hafa lýst yfir því, að þessi ákvæði séu fyrir löngu fallin úr gildi. Nýega ræddi sovézki sendi- herrann í Bonn, Tsarapkin, við Brandt utanríkisráðherra um bamnsamninginn, og að þessum fundi loknum var sagt að hann sýndi að sambúð Vestur-Þjóð- verja færi batnandi. En síðan gaf Kiesinger hina afdráttar- lausu yfirlýsingu sína í þinginu, og gæti það bent til þess, að Tsarapkin hafi tekið harða af- stöðu á fundinum með'Brandt. BJARTSÝNI í PARÍS í París hafa verið mörg teikn á lofti að undanförnu um að góðar horfur séu á því að sam- búð Frakka og Bandaríkjamanna geti færzt í eðlilegt horf. De Gaui'le er ekki eins fjandsamleg ur NATO og oft áður, fyrst og fremst vegna imnrásarinnar í Tékkóslóvakíu og eimnig vegna gjaldeyriserfiðleikanna, sem hafa meðal annars leitt til þess, að Frakkar hafa dregið úr fram- lögum sínum til kjarnorkumála. Viðræður de Gaulles og Nixons geta reynzt mjög mikilvægar vegna þess, að þær munu móta samskipti Frakka og Bandaríkja mannna næstu fjögur árin. Að þeim tíma liðnum verður de Gaúlle seranillega horfinn af sjón arsviðinu og nýir menn teknir við stjórnartaumunum í París. Frakkar hafa ekki dregið dul á ánægju sína með heimsókn Nixons og virðast gera ráð fyrir að viðræður hams við de Gaulle geti orðið áramgursríkar, fyrst og flremst vegna þess að þeir líta svo á að horfurnar í gjald- eyrismálunum hafi batnað, og einnig vegna þess að þeir álíta að bandaríska stjórnin krefjist þess ekki lengur að Frakkar sanni vináttu sína við Banda- ríkjamenn með nær skilyrðis- lausri fylgispekt. Auk þess eru Nixon og samstarfsmenn hans taldir vinsamlegri Frökkum en Johnson og ráðgjafar hans. Að sögn fréttaritara New York Times, C.L. Sulzberger, munu viðræður de Gaulles og Nixons einkum fjalla um tvennt: eðli samskiptanna við Rússa í framtíðinni og framtíðarhorfur í alþj óðagjaldeyrismálunum. Talið er, að de Gaulle og Nixon telji mkilu varða að ná samkomulagi um framtíðarviðræður við Rússa, en þar er um þá tvo kosti að velja að einskorða þær við fjár- mál og öryggismá'l eða stíga skrefi lengra og hefja samninga- viðræður um pólitísk mál og önn ur mál. í gj aldeyrismáluraum hafa Frakkar áhyggjur af vaxandi tllhraeigingu Bandaríkjanna í þá átt að hverfa til verndartolla- stefnu og þeim áhrifum sem verð bólgan í Bandaríkjunum getur haft erlendis. Að sögn fréttarit- arans telja Frakkar, að gagn- kvæmur skilningur um slík grundvallaratriði sé forsenda nánari samræmingar á heildar- stefnu ríkjanma. Ástandið í löndunum fyrir botni Miðjarðarhafs verður að sjálfsögðu eitt mikilvægasta mál ið á dagskrá viðræðnanraa. Tals- vert skilur á milli stefrau Banda- ríkjamanraa og Frakka í þessum heimshluta, og auk þess er bent á að Frakkar hafia verið vinsam- legri Rússum og Kínverjum en Bandaríkjamenn. En um leið er bent á mikilvægi þess, að Banda ríkjamenn eru í þann veginn að hefja að nýju viðræður við Pek- ing-stjórnina og að allar líkur benda til þess að þeir hefji einn- ig að nýju viðræður við Rússa síðar meir. Auk þess benda fraraskir formælendur á, að bæði Frakkar og Bandaríkjamenn vilji frið við Miðjarðarhafsbotn, þótt þá greini á um leiðir að því marki. Frakkar vona að á sama hátt og í Víetnam-málinu megi takast að minnka bilið, sem að- skilur sjónarmið frönsku og bandarísku stjórnarinnar í Mið- austurlöndum, og þess vegna eru þeir voragóðir um að sambúð land anna muni batna. Vilja sterka samningsaðstöðu MELVIN LAIRD, varnarmála ráðherra Bandaríkjanna hefur lýst yfir því, að síaukinn víg- búnaður Rússa geti orðið til þess að Bandaríkjamenn haldi áfram smíði gagneldflaugakerfis. Þessi yfirlýsirag virðist benda til þess að dregið hafi úr áhuga Banda- ríkjamarana á viðræðum við Rússa um takmarkanir á eld- flaugasmíði. Bandaríkjamenn vilja vera vissir um algera yfir- burði í eldflaugum áður en þeir garaga til samninga við Rússa, og þeir vilja vera vissir um að geta samið úr sterkri aðstöðu. Laird tilkynnti í síðustu viku, að vinnu við gagnflaugakerfið hefði verið hætt til bráðabirgða þar til stjóm Nixons hefði látið fara fram athugun á öllum vam aráætluraum síraum. Skömmu áður hafði Laird tilkynnt að vinn- unmi yrði ekki hætt. Það sem neyddi hann til þess að breyta ákvörðun sinni var hörð gagn- rýni á þingi, enda er kostnaður- iran við smíði gagnflaugakerfis- ins geysihár. Síðasta yfirlýsing Lairds bend ir til þess að hann styðji í raun og veru kröfur þeirra sem vilja aukraar fjárveitingar til alnd- varna. Þó getur verið að hann hafi viljað róa þá mörgu, sem ótt ast hvers konar takmarkanir á kjarnorkumætti Bandaríkjanna og vara Rússa við því að setja of ströng skilyrði fyrir samkomu lagi um takmörkun á eldflauga- smíði. Almennt er búizt við því, að Nixon ræði við Rússa um þetta erfiða vandamál á næstu mánuðum. Svo getur farið, að smíði gagnflaugakerfisins verði hætt fyrir fullt og allit þrátt fyr- ir yfirlýsingu Lairds og þannig verði afstýrt kostnaðarsamri stig mögnun vígbúnaðarkapphlaups- ins. En samkomulag við Rússa á áreiðanlega langt í 'land, þótt við ræður um málið geti dregið úr spennunni. HVOR ER STERKARI? Laird sagði, að Rússar eyddu sjöfalt meira í kjarnorkuvopn en Bandaríkjamenn. Samkvæmt síðustu tölum ráða Bandaríkja- menn og Rússar nú yfir álíka mikluim fjölda eldflauga, sem skjóta má heimsálfa á milli. Bandaríkjamenn eiga rúmlega 1.000 slíbar eldflaugar og Rúss- ar tæplega 1.000. Bandaríkja- menn ráða yfir 650 Pölaris-eld- flaugum, sem skotið er úr kaf bátum, en Rússar ráða yfir 125 slíkum eldflaugum. Rússar eiga 750 meðaldrægar eldflaugar en Bandaríkjamenn ráða yfir engum slíkuim vopnum. Bandaríkjamenn eiga 40 meðallaragfleygar sprengjuflugvélar, en Rússar 1.000. Hins vegar eiga Banda- ríkjamenn 500 langfleygar sprengjuflugvélar en Rússar 150 Fljótt á litið virðast Rússar og Bandaríkjamenn álíka öflugir, en þess ber að gæta að í hverri eldflaug Bandaríkjamanna, sem skjóta má heimsálía á miilli eru 3—4 kjarnorkuhleðslur, en að- Framhald á bls. 17 Austur-þýzkir hermenn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.