Morgunblaðið - 28.06.1969, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 2®. JÚNÍ 1909
13
Þessir tveir glæsilegu íslenzku stóðhestar sýndu yfirtjurða
mikla reiðhesíahæfileika. Sá brúni er islenzkum hestamönnum
kunnur. Er það Vörður frá Kýrholti í Skagafirði, en í eigu
Walters Feldmanns í Aegidienberg. Er Vörður sonur Harðar frá
Kolkuósi, sem stóð fremstur stóðhe.sta hér i Reykjavik si. sum-
ar á landbúnaðarsýningunni, en móðir hans er dóttir Nökkva
frá Hólmi. Hlaut Vörður hæs; stig á sýningunni sem alhiiða
gæðingur og afkastahestur. Tók hann þátt í flestum keppnis-
greinum og var oftast meðal þriggja beztu hesta.
Frú Ursula Becker er svo á Hrappi þarna með á myndinni,
sem er tekin meöan á yerðlaunaveitingu stendur.
LRNDSKEPPNIN
í TÖLTREID
Sviss, Þýzkalandi, Hollandi,
Danmörku, Svíþjóð og fslandi.
Formaður sambandsins var
kjörinn Svisslendingurinn Dr.
Ewald Isenbiigel, kennari við
landbúnaðardeild háskólans í
Zúrich. Dr. Isenbúgel varði
doktorsritgerð fyrir þremur
árum síðan við þennan sama
háskóla, og fjallaði doktors-
ritgerðin um íslenzka hestinn. Áð
ur hafði Þjóðverji varið doktors-
ritgerð um sjúkdóma í íslenzkum
hestum, og á næsta hausti verður
varin doktorsritgerð í Berlín,
sem fjallar að mestu leyti um ís-
lenzka hestinn, en gerir einnig
skil öðrum smáhestakynjum á
eyjum og strandhéruðum við
norðanvert Atlantshaf. Ekki er
vitað um, að annar íslenzkur bú-
peningur hafi vakið jafn mikinn
áhuga hjá erlendum fræðimönn-
um. Er þetta góð vísbending um
mikilvægi hestsins okkar og hvers
við megum af honum vænta í
framtíðinni.
Aðrir í stjórn áðurnefnds 'Ev-
rópusambands eru: Gunnar
Bjarnason frá íslandi (varafor-
maður), Walter Feldman frá
Þýzkalandi (íþróttaleiðtogi), Max
Indermaur frá Sviss (gjaldkeri),
og Gunnar Jónsson frá Dan-
mörku (ritari).
Hér á eftir verður sagt frá ýms
um keppnisgreinum og birtar
myndir af sigurvegurunum. Frá-
sagnirnar koma fram í mynda-
textunum.
Einn athyglisverðasti og skemmtilegasti þá tur sýningarinnar vai
að sjá Kurt Hilzensauer frá Saarbrúcken þeysa um á sýningar-
svæðinu með íslenzku fimm-eyki. Það var sem snillingurinn spil-
aði á vel samæfða hliómsveit. Þetta er glæ iieg íþrótt, sem íslend-
ingar þurfa að læi a og stunda. Það liæfir hestelskri þjóð.
Þátttakendur í þjálfunarkeppni.
í Þessari keppni þarf hesturinn að sýna fullkomna hlýðni og
láta fyrirhafnarlaust að stjóm. Því minna sem knapinn sést
hreyfa sig og því meira, sem hesturinn geiir, þeim mun beiur
er riðið. Þessir 4 vel þjálfuðu hestar hreyfðu sig um sýningar-
svæðið undir knöpunum sem leikfimismenn á gólfi.
Hér sjást frá vinstri:
1. Walter Feldmann, junior, á Funa, syni Svips frá Akureyri.
2. Frú Ursula Becker á Hrapp frá Garðsauka.
3. Ungfrú Dagmar Schmidt frá Pforzheim á blesótta hestin-
um Gáska. Var hún sigurvegari í keppninni.
4. Walter Feldmann, senior, á Verði frá Kýrholti.
Pííngstsonntag.den 25,RIai,vOH 8-12 und
von 15-16 Uhraufiium tiesfut itegídicnberg
s Pf)HfcstKHmt3$í.e*a» 2$. Wa».«» n
?,öe«ts<Ae fefaflriþfpnf*; Aúktiðt!
Víðs vegar á vegamótum Sjö-
fjallalanda (Sibengebirge) mátti
á hvítasunnu sjá merki sýning-
arinnar, en það sýnir íslenzkan
hest á skeiðtölti.
„Quadrilja“ er ein hin vandasamasta reiðmennsku íþrótt, sem kostur gefst á. Þeir, sem heimsótt
hafa spánska reiðskólann í Vín, minnast þessarar glæsilegu sýningariþróttar, því að sýningar
þar hefjast oftast á „quadrilju". Saariendingarnir, sem fjölmenntu á sýninguna í Aegidienberg,
sýndu þarna vel þjálfaða og samstillta „quadrilj u“. Er þessari íþrótt helzt hægt að líkja við gólf-
æfingar og göngu leikfimismanna. Bar mönnum saman um, að íslenzki hesturinn væri mun bet-
ur gerður fyrir þessa íþrótt en menn höfðu haldið, því að samanburðurinn frá Vín er svo harð-
ur. Þetta mun vera í fyrsta skipti, sem „quadrilja“ er sýnd á íslenzkum hestum. Vak i þetta mikla
hrifningu áhorfenda. Hér er enn nýr þáttur fyrir islenzka hestamennsku. Hvað vantar hina hest-
elsku, íslenzku þjóð, sem er orðin heimsfræg af gæðingum sínum, jafnvel orðin frægari af þeim
en af skáldum sanum og rithöfundum. — Hana vantar reiðskólann.