Morgunblaðið - 03.08.1969, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 03.08.1969, Qupperneq 24
24 MORG UNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. ÁGÚST 196® inn í vélinni, heyrði hann nú smellina í vélbyssu. Meðan hann lægi svona flatur gátu þeir ekki séð hann og þykkt tréð í skipinu mundi nægja til þess að vernda hann. Svo fremi þeir hittu ekki neinn mikilvæg- an vélarhluta eða skrúfurnar, eða eldsneytisgeyminn, væri allt í lagi. -Með þeim hraða, sem nú var á og með því að snúa bátn- um sitt á hvað, mættu þeir telj- ast heppnir, ef þeir næðu al- mennilegu miði. og auk þess yrði hann bráðum kominn nægilega langt frá þeim. Þetta virtust mennirnir um borð í snekkjunni gera sér ljóst, því að skothríðin hætti Eftir nokkra stund settist • Tucker í stjórnsætið, en bakið á því var allt orðið götugt eftir bvssukúl- ur. Rétt við fæturna á honum, fór varðmaður Gass að hreyfa sig. Tucker festi stýrið og dró manninn út á afturþilfarið. Með erfiðismunum dró hann hann út að riðinu og hélt honum þar föst um. Nú tóku brúnu augun að depla, en Tucker vildi ekki eiga neitt á hættu. Hann hélt mann inum föstum á skyrtunni og sagði: — Þú þarft ekki annað en synda að snekkjunni Hann sá hræðsluna í augum mannsins og handleggirnir á honum tóku að hreyfast. Tucker tók á og maðurinn steyptist fyrir borð og hvarf í sjávarfroðuna. Nú athug aði hann stefnuna, tók eftir því á mælinum, að eldsneytisgeym- irinn var næstum fullur en hve lengi hann mundi endast og hve langt hann væri frá landi, hafði hann enga hugmynd um. Þegar hann leitaði í káetunni, fann hann þar kort yfir strönd Túnis, loftskeytatæki og kíki. Hann horfði nú gegnium hann og aftur fyrir sig, eftir röstinni undan bátnum. Rétt í bili elti hann enginn, og sem snöggvast varð hann hissa á þessu. Við nánari athugun þóttist hann sjá, að Capelli mundi hafa tal- ið það vonlaust verk að elta hann. En hann gat beitt ótal öðrum aðferðum og feiti ftalinn mundi neyta hverrar þeirra sem væri til að ná í Pont og Tucker — nú mundi hann beita liði sínu með fullum krafti til að hefta för þeirra og framgang. Grár þokubakki var við sjón- hringinn, en veðrið var enn ágætt og Tucker var viss um, að þarna var strönd Túnis. Hann hafði verið á ferð í fjörutíu mínútur, og gerði sér því Ijóst, að þeir höfðu farið lengra út á sjó en hann hafði haldið.Hann leit enn aftur fyrir sig, og enn var ekkert að sjá. Einstakir bát ar frá ströndinni voru nú að koma í ljós, og hann gekk fyrir fullum krafti og vélin hámaði i sig eldsneytið, og nú áttaði hann sig á því, að enda þótt hraðinn væri mikilvægui', mátti hann ekki verða eldsnevtislaus. Hann reisti sig upp úr sæt- inu, stóð fyrir framan stýrið og horfði á þokubakkann smám saman taka á sig myndir. Nú suðaði í loftskeytasímanum. Hann leit á hann og vissi ekki, hvað gera skyldi. Suðið hélt á- fram, svo að loks tók hann sím ann, forvitinn og hræddur í senn. — Herra Tucker? Það var raffinerad 0 strumpelegans Vel klœdd notar VOGUE Viljið þér hafa fallegri fætur, þá ráðleggjum við Vogue-sokka og sokkabux- ur. Vogue er sænsk gæðavara, sem framleidd er úr fínu og mjúku úrvalsgarni. Vogue hefur úrvalið í sokkum og sokkabuxum. Vogue hefur gæðin. Fætur er reynt hafa Vogue biðja aftur um Vogue. Sölustaðir: Vogue, Skólavörðust. 12, Vogue, Laugav. 11, Vogue, Háa- leitisbr., Vogue, Hafnarfirði, Verzl. Skemman, Akureyri, Kaupfélag Þing- eyinga, Húsavík, Femina, Keflavík, og Verzl. Sigurðar Ágústssonar, Stykkishólmi, Verzl. Drífandi Vest- mannaeyjum, Verzl. Böðvars Svein- björnssonar, ísafirði. ekki hægt að villast á yfir sig kurteisiri röddinni i Gass. Tuck- er viðurkenndi hikandi, að hann væri að tala. Gass virt- ist ofurlítið móður. — Ég er feginn, að ég skyldi ná í yður nógu snemma. Þér getið talað frjálslega, hr. Tucker. Ég er kominn á mitt eigið skip og á leið til Túnis. — Ég held ég hafi ekkert við yður að tala, hr. Gass. Og það held ég þér vitið. Tucker brosti — í fyrsta sinn í margar klukkustundir. — Jú, það held ég þér haf- ið, eftir að hafa hlustað á mig. Capelli rífur allan framburð yðar í tætlur. Hann getur safn- að nógum fjarverusönnunum og það er slæmt, þegar þér fóruð um borð í óleyfi, eins og þér gerðuð. — Pont veit, að ég fór um borð. — Já, ég þykist vita, að hann viti, að þér lögðuð af stað með það fyrir augum. Er. hann veit alls ekki, hvort yður tókst það. 49 — Hvernig ætti ég annars að vita um allt fyrirkomulag á skipinu. Ég get lýst því ná- kvæmlega. — Virkilega, hr. Tucker? Lögfræðinigamir hans Capelli rífa það allt í tætlur. Þeir rounu sanna, að þér hafið haft eða séð teikningu af skipinu, og gætu sennilega stunigið slíkri teikningu á yðurl Og svo má breyta allri innréttingu á einni nóttu. Allt í einu fann Tucker, að Gass var eitthvað að snúa við blaðinu. Hann breytti stefn- unni ofurlítið og spurði síðan: — Hvað eruð þér nú að brugga, Gass? Það varð þögn, svo að ekkert heyrðist annað en brakið í sím- anum. — Munduð þér viðurkenna, hr. Tucker, að ég hefði getað skotið yður í hnakkann um leið og þér fóruð út úr káetunni hans Cap- elli? Tucker hikaði og minntist þess, að einmitt þetta hafði honum dóttið í hug þá. — Þér hefðuð sjálfsagt getað skotið á mig, en ég veit bara ekkert, hversu góð skytta þér eruð. — Ég er fullgóð skytta á svo stuttu færi, get ég fullvissað yður . . . Tucker greip fram í: — En þér voruð bara ekki alls kostar sáttur við Capelli á þeirri stundu, eða hvað? — Nei, og það er ég ekki, hr. Tucker. Og einmitt þess vegna er ég að hringja til yðar. Hann lofaði Tucker að melta þessa at- hugasemd dálítið, vel vitandi, að hann roundi taka henni með tortryggni. — Og samt leyfði Capelli yður að snúa aftur til skútunnar yð- ar? Það var ekki ofmælt, að Tucker væri tortrygginn. Skríkjurnar í Gass mátti heyra gegn um suðið í tækinu. — Já, og hann léði mér meira að segja bát. Við skulum líta- raunsæilega á þetta. Ég hafði fullan rétt á að vera reiður við Capelli og það vissi hann. Hann var í sjálfsvörn, eins og ég núna. Hann tók segulbandið og fleygði því fyrir borð, og meira gat ég ekki farið fram á. — Til hvers eruð þér þá að hringja í mig? Tucker leit snöggt á kompásinn og kortið og veik bátnum ofurlítið til Hrúturinn, 21. marz — 19. apríl. Þú hagnazt á þvf að fara yfir bókhaldið í dag, þótt allt kosti meira en þú gerðir ráð fyrlr. Nautið, 20. apríl — 20. maí. Nú er tími til að koma með uppástungur þínar. Tvíburarnir, 21. maí — 20. júni. Þú ert vel vakandi og kynnist því fleira fólki en þú áttir von á að hitta. Krabbinn, 21. júní — 22. júlí Þú gerir breytingar heima fyrir, sem falla í góðan jarðveg. Not- aðu þér samböndin, en hciðarlega. Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst. Er þú álítur, að kringumstæðurnar vcrði þér að fótakefli, skaltu skipuleggja vel. Allt að því til þriggja ára. Meyjan, 23. ágúst — 22. september. Ef þú gerir áætlun, sem er of margslungin, er hætt við að hún komi ekki að fullu gagni. Reyndu að láta hverjum degi nægja sína pjáningu. Vogin, 23. september — 22. október. Vertu hógvær, þvi að á þvi græðirðu mest. Sporðdrekinn, 23. október. — 21. nóvember. Þér ber ekki fyllilega saman við aðra i dag. Láttu ekki aðra bera allan kostnaðinn. Bogmaðurinn, 22. nóvember — 21. desemb-er. Þú færð góð tækifæri í dag, ef þú ert nógu alvarlega þenkjandi. Steingeitin, 22. desember — 19. janúar. Góður dagur fyrir unga fólkið. Þeir, sem eru ungir í anda finna til úýþri, varanlegri áhrifa . . . en þó aðeins í augnablikinu. Gerðu ekki framtíðaráætlanir. Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar. Erfiðleikar í fjarlægð verða viðráðanlegri, en naertæk verkefni erfiðari. Fiskarnir, 19. febrúar — 20. marz. Allir vilja láta Ijós sitt skína, hlýddu á þá, en hafstu ekkert að. stjórnborða. Nú sá hann vel til lands. — Við höfum fengið okkar að- vörum, hr. Tucker. Jafnvel þó að við drepum ykkur Pont, get- ur tryggingafélagið orðið erfitt viðureignar. Það getur ekki sannað neitt, en það mun heimta skýringar á hinu og þessu. Ég fyrir mitt leyti held, að þetta hafi misheppnazt, en það held- ur Capelli ekki. — Það er alveg sama, hvað tryggingarnar halda. Það eina, sem máli skiptir nú, er hvernig krafan stendur, lagalega. Þær verða alltaf að borga út, áður en lýkur. Tucker áttaði sig á því, að nú var hann farinn að tala eins og einn hinna. — Já, eins og málið stendur nú. En ég hef orðið að taka á- kvörðun. Of margt hefur farið út um þúfur og þessi vandræði halda áfram að hrella okkur. Þetta skeður öðru hverju, mað- ur verður fyrir óhöppum, og þau halda áfram. Og ég vil helzt sleppa við blóðbaðið, sem ég held að sé yfirvofandi. Tucker sagði: — Við verðum að ræða þetta betur seinna. Ég geng út frá, að þét viljið kom- ast að einhverjum samningum. upplýsingar, sem þér þurfið á að halda. En svo vil ég vera kominn burtu um það leyti sem þér þurfið að nota þær með dkrif lóga yfirlýsingu frá tryggingun- um upp á vasann, að þær ætli að láta mig i friði. — Það mundu þær aldrei sam- þykkja. — Þér eruð barnalegur, hr. Tucker þær myndu sam- þykikja hvað sem væri til þess að sleppa við að tapa hálfri milljón punda. Tucker var tekinn að svitna. Gæti hann treyst Gass? — Þér ættuð sakamálshöfðun yfir höfði yðar,' engu að síður. — Nei. Ég er ekki í þessu öðruvísi en sem málamynda- kaupandi, og svo á ég að dreifa ósviknu frímerkjunum. Ég átti engan þátt í fyrirætlunum hinna um að eyðileggja flugvélina. Þetta var nú sama sem játn- ing. Ef Gass talaði öðruvísi en undir fjögur augu, gat hann allt af haldið því fram, að einhver hefði verið að herma eftir hon- um gegn um símann, en meira vissi Tucker heldur ekki. Mað- urinn var þarna að játa hlut- deild sína í þessu fjöldamorði. Eitthvað var loðið við þetta, en var Gass að segja honum sann- leikann, éða var hann að reyna að blekkja hann? — Ég skal hringja til yðar úr landi. — Það getur orðið um seinan. Capelli er þegar farinn að ná sambandi við alla sína menn. Ef þér haldið, að þér hafið verið ofsóttur hingað til, hr. Tucker, þá megið þér trúa mér, að það verður eins og hveitibrauðsdag- ar í samanburði við það, sem á eftir að koma. Capelli vildi yð- ur feigan áður, enda hefði hann verið öruggari þannig. En nú er það honum áríðandi og það taf- arlaust. Og það er engin hætta á að hann nái ekki í yður. Og Pont og stúlkuna og prófessor- _ Ég skal gefa yður allar »nn' Hann mun ekki eiSa neitt a hættu, og pegair hann er Ramóna Álfhólsvegi veitir Ijúffenga sérrótti — Frá RAMÓNU getið þér tekið sérréttina með yðúr heim. — Sími 41845. í þessu skapi, hættir konum til að ganga heldur otf langt en of skammt. Hvar eruð þér núna? Tucker var næstum búinn að svara þessu ósjálfrátt, svo mjög fór þessi meinleysislega spum- ing, sem skotið var inn í sam- talið, framhjá honum. Túnis var fyrir stafni, heill hrærigrautur af byggingum við víkina. Hann dró aftur úr ferðinni. Hann vildi komast sem fljótast í land til þess að geta aðvarað Denise og Pont, en hann gat ekki lokið þessu samtali strax. — Látið þér ekki eins og bölv aður asni! sagði hann. Tucker sá næstum fyrir aug- um sér, þegar Gass yppti mjóu öxlunum, og svaraði: — Gott og vel. Ég ætla að orða þetta öðru- vísi. Leggið þér ekki bátnum í höfrinni. Nú þegar eru menn í landi með kíkja, til þess að grennslast eftir ferðum yðar. Farið þér hvert sem yður dettur í hug, en bara ekki til Túnis eða La Goulette. Án þess að hugsa sig um, tók Tucker langa beygju til stjórn- borða. Þetta væri sennilega gott

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.