Morgunblaðið - 17.10.1969, Side 3
MORGUlNBLAÐiÐ, FÖSTUDAGUR 17. OKTÓBER 1060
3
Búnaðarfélagið kaupir kynbóta-
naut fyrir 40 þús. kr.
— Samtal við Ólaf E. Stefáns-
son, ráðunaut
MOR)GUNB>LAÐEÐ átti stutt sam
tal við Ólaf E. Stefánsson, naut-
griparælktarráðunaut og innti
hann eftir því, hvað helzt væri í
fréttum í nautgriparsektanmál-
um.
„Það, sem nýjast er og telja
má fréttnæmt, er það, að Bún-
aðarifélag íslands hefur fest ’kaup
á nauti fyrir hærra verð en nökk
urt naut hefuir til þessa verið selt
á 'hérlendis, en kaupverðið er 40
þúsund krónur“, segir Ólafur.
,.Naut þetta er Soklki N-146, eign
Sambands nautgriparæktarfélaga
Eyjafjarðar, og hefur lengi verið
notað á sæðingarstöðinnd á
1 undi“.
„Eins og að líikum lætur,
standa að Soiklka sterkar ættir.
Faðir hans var Fylkir N-88 frá
Hellishoiltum í Hrunamanna-
hreppi, 1. verðlaunanaut, sem
notað var í Eyjafirði, og móðir
Ó:-'k 47, Skarði við Alkureyri,
dóttir Viga-Skútu N-4 og Ljóma
lindar 17. Afkvsemarannsúkn á
Lundi leiddi í ljós, að Sokki
ha-fði milkið kynbótagildi, og var
hann óispart notaður eftir það,
enda voru sýndar fleiri dætur
hans en noklkurs annans nauts á
nautgripasýninguim í Eyjalöirði
nú í sumar eða 198 kýr, og hlutu
150 þeirra 1. verðlaunaviðurkenn
ingu, sem er algjört met. Hefði
verið skemmtileg sjón að sjá
þann systrahóp saman ikaminn á
einum stað.. f rauninni er þó
verðið elkki hátt, þó að það sé
tvöfalt nautsverð, þar sem hér
er um úrvalsgrip að ræða og í
hlut á aðabúgrein landbúnað-
arins“.
Hvað ætlar svo Búnaðarfélagið
að gera við Sökka?
„Þegar heilbrigðisdkoðun hef-
ur farið fram á honum og noíkkr
um nautum öðrum, sem keypt
hafa verið í Eyjafirði, verða þau
fiutt á nautastöð Búnaðarfélags
íslands á Hvanneyri, þar sem
þau verða notuð í sambandi
við að koma upp birgðum af
nautasæði. Nú þegar haifa verið
keypt 7 naut, sem fyrir voru á
stöðinni á Hvanneyri, þar af 2
1. verðlaunanaut, Glói V-87 og
Fjölnir V-110. Drög hafa verið
lögð að kaupuim á Kolskegg S-
288 frá Laugardæluim, 1. verð-
launanauti, sem mörgum er minn
isstætt frá því, er það var á
landbúnaðarsýningunni í fyrra-
sumar. Væn.tanilega verða keypt
eitt eða tvö naut frá Bllönduós-
stöðinni, þegar hún verður lögð
niður, en aðaikaupin nú eru úr
Eyjafirði. Aulk Solkka verður
'keypt annað 1. verðlaunanaut,
Dreyri N-139, og tvö rösklega árs
gömul naut, aulk þess sem líkur
eru til, að reynt verði að fá fest
kaup á enn yngri kálfuim.
Með þessu er annars vegar
verið að tryggja áhrif beztu elztu
nautanna, jafnvel eftir að þau
hafa verið felld, en hins vegar
valin ung naut, sem að jafnaði
eiga að vera betri en meðallagið
af eildri nautunum, þar sem erfða
framfarir verða með hverri nýrri
kynslóð af nautum.
Á stöðinni á Hvanneyri er
geymir sem tekur 80000 ákammta
aif nautasæði, og því verður imn
ið af kappi að því að satfna birgð
um, þar sem rekstrarkostnaður
er hinn sami við geyminn, hvort
sem hann er notaður mikið eða
lítið. Nautasæðið er geyxnt við
4- 196° C í fljótandi köfnunar-
efni, sem fraimleitt er í Áburðar
verksmiðjunni í Gufunesi".
Er djúpfrystingarstöðin þá tek
in til starfa?
„Já, en þó 'hefur verið farið
hægt af stað, enda margis að gæta
við slí'ka nákvæmnisvinnu. Fram
kvæmdastjóri var ráðinn Diðrik
Jóihannisson, sem áður var sér-
fræðingur við sæðingarstöðina á
Hvanneyri, sem búnaðansaimbönd
in á Mið-Vesturlandi áttu, en
Búnaðarlfélag fslands keypti ®töð
ina á þessu ári og fóru eigna-
dkipti fram 1. júlí. Sæðingar-
menn á því svæði nota nú ein-
göngu djúpfryst sæði, og mun
notkun stöðvarinnar aukast í vet
ur, en aðallega næsta vor. Verða
því miáli væntanleiga gerð nán-
ari s'kil fyrir bændur og aðra,
sem áhuga hafa á nautgriparækt
áður en 'langt um líður. Hluta af
nautatfjósi, sem hafði verið notað
fyrir heygeymsliu, er nú
verið að innrétta fyrir þau naut,
seim verið er að safna saman á
stöðina".
Eru Eyfirðingar ökki tregir til
að láta SoMka úr héraðinu?
„Nei, Auðvitað munu þeir sjá
eftir honum, en forráðamenn
S.N.E sýndu velvilja og fram-
sýni í málinu. Þeir vita, að etf vel
te'kst til, eiga eyfirzikir bændur
eins og aðrir bændur landsins
kost á að nota nautið enn meir en
ella og líka eftir að það fellur
frá Sotkfci er nú 10 vetra og þó að
vonandi eigi hann eftir að lifa
enn um skeið, þá er elkki óal-
gengt, að svo gömul naut verði
ónothæf af einhverjum ástæðum.
Og þó að Eytfirðingar láti nú tvö
1. verðlaunanaut, hafa þeir feng
ið þá viðurkenningu handa tveim
ur öðrum nautum nú í vikunni.
Það stendur nefnilega svo á, að
aBkvæmarannjsiókn á tveimur
nautum var að Ijúka á Lundi.
Voru í henni 16 dætur Þjáltfa N-
185 og 14 dætur Bægifótar N-186.
Ég sá þessa systrahópa í sumar,
en beðið var með að ákveða við
urikenningu á nautunum, unz
rannsókninni lyki. Svo undar-
lega vildi til, að þeseir hópar
mjólkuðu að meðaltali á fyrstu
304 dögunum eftir burð að
fyrsta káltfi nákvæmlega jatfnmik
ið eða 2934 kg. Hins vegar hatfa
Þjáófadætur hærri mjólkurfitu
eða 4,38% á móti 4,08% í hinum
hópnum, en hvort tveggja er
gott“.
„Þá má að lokum geta þess“,
segir Ólafur, „að Rannsóknastofn
un iandbúnaðarins hetfur ‘keypt
meiri hiuta þessara kvigna til
fóðrunartilrauna, og hatfa þser nú
verið fluttar að Galtalæk við Ak-
ureyri, en þar rakur sú stofnun
tilraunastöð, sem hingað til hef
ur verið eingöngu á sviði jarð-
ræktar. En til þessa tíma hafa
fóðrunartilraunir með nautgripi
verið fáar í landinu vegna skorts
á aðstöðu og sérfræðilegri um-
sjón og hilutur þessarar búgrein-
ar verið furðu rýr á tilraunasvið
inu< Er þess að vænta, að þetta
sé upphaf þáttaskila í þeiim etfn
uim og munu bænduir fagna því.
Kynbæturnar atftur á móti eru í
’höndum búnaðarfélagsskaparins
og þar hetfur miðað vel fram á
veg. Ættu framifarimar á því
sviði jatfnvel að verða enn örari
á næstunni, þegar rælktunará-
ætlanir hatfa verið endurskoðað
ar með tilliti til hinnar nýju
tæikni".
Nautastöðin á Hvanneyri
Sokki
ÞETTA EB AUGLTSIHG FBA
@ KARNABÆR
TÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS — TÝSGÖTU 1 — SÍMI 12330.
NYJAR VORUSENDINCAR
★
★
★
Herradeild:
★ NÝ SENDING AF
PEYSUM M/RENNILAS
★ HEILAR PEYSUR —
GOTT VERÐ
BINDI — KLÚTAR — SETT
NÝ SENDING
SKYRTUR — BRODERAÐAR
STAKAR BUXUR TERYLENE
FI.AUELSBUXUR — NÝTT — NÝTT.
Dömudeild:
★ PEYSUR FRA ERICA BUDD
OG HAROLD INGRAM
★ PRJÓNABUXNADRAGTIR
★ ULLARSOKKABUXUR
★ HETTUKAPUR — LITAÚRVAL
★ STRAUFRiAR SKYRTUBLÚSSUR
FRÁ LADY MANHATTAN
★ ..ANTIQUE-VELVET" SÍÐBUXUR.
HVER ER MAÐURINN?
Opið tU klukkan 4 e. h., luugurdng
STAKSTEINAR
Nýjasta úrræði
Framsóknar
Svo sem kunnugt er hefur
Framsóknarflokkurinn einungis
sett fram tvær tillögur um úr-
bætur í atvinnumálum. Önnur er
sú að koma á fót ríkisútgerð tog-
ara. Fyrir utan alla aðra ann-
marka þeirrar tillögu, sem ræki-
lega hefur verið gerð grein fyrir,
er ljóst að smíði margra nýrra
togara tekur það langan tíma að
slíkt getur ekki verið bjargráð
nú á næstunni. Hin tillaga Fram-
sóknar er sú að banna innflutn-
ing á öllum iðnaðarvörúm, sem
hægt er að framleiða í landinu
sjálfu. Þar með hafa Framsókn-
armenn valið einangrunarstefn-
una í iðnaðarmálum í stað fram-
farastefnunnar, sem Sjálfsitæð-
ismenn boða og byggist á þvi að
efla eigi iðnaðinn tii nýrra átaka,
t.il útflutningsstarfsemi. En nú
hefur Framsóknarflokkurinn birt
enn eina tilögu. Það gerði Ólafur
Jóhannesson á Alþingi í fyrra-
dag er hann lagði til að bætt yrði
úr atvinnuskorti með því að
hefja byggingu skrifstofuhúsnæð-
is fyrir ríkisvaldið og Alþingi.
Ólafi datt ekki í hug að Ieggja
til að fjármagni yrði varið til
íbúðabygginga eða bygginga-
framkvæmda fyrir atvinnulífið.
Nei, skrifstofuhúsnæði skal það
vera. Hvemig lízt mönnum nú á
úrræði helzta stjórnarandstöðu-
flokksins?
Hvað vilja kommar?
Það verður að segja Ólafi til
lofs að hann sett fram ákveðna
tillögu, þótt ekki væri hún ris-
mikil. Lúðvík Jósepsson hafði
hins vegar engar tillögur fram
að færa í umræðum þeim sem
fram fóru á Alþingi utan dag-
skrár í fyrradag um atvinnumál-
in. Hann sagði að vísu að það
þyrfti að „bregðast skjótt við“
og gera „nauðsynlegar ráðstaf-
anir“ í atvinnumálunum en hann
hafði engar tillögur fram að
færa. Hins vegar vita allir
hverjar tilögur Lúðvíks eru.
Hann mun leggja til að byggðir
verði 10—15 nýir togarar. Það er
föst venja hjá Lúðvík að leggja
þetta til, þegar hann er beðinn
um tillöigur í atvinnumálum.
Samstarf
Enda þótt forustumenn þing-
flokka stjómarandstöðunnar hafi
ekki komið fram með rajum-
hæfar tillögur um ákveðin úr-
ræði er þó engu að síður ástæða
tii að allir þingflokkamir taki
höndum saman um að gera það
átak sem þarf í atvinnumálum til
þess að koma í veg fyrir atvinnu-
leysi í vctur. Ríkisstjórnin hefur
þegar beitt sér fyrir viðamiklum
ráðstöfunum í þessum efnum en
atvinnuleysi er slíkt böl að allir
aðilar hvar í flokki sem þeir
standa verða að taka höndum
saman um að ráða niðurlögum
þess.
VELJUM ÍSLENZKT