Morgunblaðið - 29.01.1970, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 29.01.1970, Blaðsíða 10
10 MORGUNBL.AÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1®70 I umsjá í»órarins Magnússonar Maggi semur músik fyrir kvenfélagið Yfirgefur Shady og Jökullinn Trúbrot? ÞAÐ Á ekki að þeim að ganga í>AÐ ERU fleiri en Júdasað- dáendurnir, sem njóta tónlistar- gáfu Magnúsar Kjartanssonar og má þar m.a. nefna Kvenfé- lag Ytri-Njarðvíkur, en Magnús hefur nýlokið við að semja fyr- ir það félag hljómlist við ljóð- ið „Tröllin” eftir Davíð Stefáns son frá Fagraskógi og er ætlun- in að sýna stykkið á Þorrablóti Kvenfélagsins, sem haldið verð- Ur n.k. laugardag. Mun Magnús Georg líka NÚ HEFUR George Harrison farið að dæmi hinna Bítlanna og gefið út sína eigin plötu. Er það L.P.-skífa með lögum eftir George og auðvitað er hann sjálfur í fremstu víglínu flytj- endanna. Meðal laganna á plötunni er að finna gömul og góð lög eins og t.d. „Old Brown shoe”, „Inn er light”, „Sour milk sea” og auðvitað það alira bezta: „Some thing”. Platan er væntanleg á markaðinn upp úr næstu mán- aðarmótum. Af „Brúðkaupsplötu” John og Yoko Ono er það að frétta, að hún selst eins og heitar pyls ur á þjóðhátíðardegi — þótt hún sé óheyrilega dýr. Lítið hef ur aftur á móti heyrzt frá sóló- plÖtu Ringó Starr, hverju sem það er nú að kenna. annast undirleikinn og hefur hann hugsað sér að nota orgel sitt til að koma þeirri hljómlist til skila. Einnig fær hann Hrólf trimbil Júdasar sér til að- stoðar. Og þá má geta þess, að Magnús hefur prýðisgóða söng- rödd, sem þeir í Júdas nota ó- spart, en auk þess hefur kirkju kór Ytri-Njarðvíkur hana til af- nota við sálmasöng út í Stapa á sunnudagsmorgnum, en Magnús syngur þar við messur ásamt Vigni gítarleikara í Júdas. Loks hefur verið hafizt handa við upptöku fyrstu hljómplötu Júdasar, en það er tveggja laga plata, útgefin af Tónaútgáfunni, þegar þar að kemur. Bæði lög plötunnar eru erlend, en í út- setningum Magnúsar Kj. og hef ur textunum verið snarað yfir á ástkæra ilhýra málið — ís- lenzkuna, en á frummálinu hétu lögin „Everybody lovers a lov- er” og „You never walk alone”. í síðannefnda laginu (sem hlot- ið hefur íslenzka heitið „Þú ert alldred einin á ferð“) er notiazit við blásara og fleiri fínerí, auk þess sem gefur að heyra nýja söngrödd í því lagi, og freist- ast maður ósjálfrátt til að láta sér til hugar koma, að þar sé á ferðinni annar nýliðanna, sem heyrzt hefur að komið hafi fraan með Júdasi í klúbbum Keflavík urvallar að undanfömu ... Júdas hefur verið boðið að koma fram „í góðu tómi” sjón- Maggi kenndi tónfræði við Bamaskóla Keflavíkur í fyrra- vetur — núna er hann að spreyta sig á landsprófin.u. varpsins, en afþakkað boðið á þeim forsendum, að þeir telji slíkt ekki tímabært og vilja heldur fá að eiga það til góða (það stendur þá sem sé eitthvað til á þeim vígstöðvum???). félögunum í Trúbrot. Þeir eru ekki fyrr lausir við umtalið og „útilokunina” út af hash-reyk- ingum sínum en nýtt vandamál blasir við þeim og það all ill- kynjað engu síður en hið fyrra. Shady Owens söngkona þeirra hefur sem sé látið á sér skilja, að hún muni segja skilið við Trúbrot frá og með næstu mán- aðamótum og þeysa síðan á eft- ir móður sinni til Kalíforníu Bandaríkjanna, en Shady hefur ameriskan ríkisborgararétt frá því hún bjó með móður sinni (íslenzkri) og föður sínum (bandarískum) þar í landi. Það var árið 1967, sem Shady flutt- ist hingað til lands átján ára gömul með móður sinni og ári síðar hóf hún upp raust sína með Óðmöonum og söng síðan í því „bandi” þar til Hljómar nældu sér í hana og höfðu hana seinna með sér yfir í Trúbrot. Trúbrotsfélagarnir eru að von um all óhressir yfir þeirri skyndilegu ákvörðun Shadyar að yfirgefa þá, en telja þetta þó ekki vera heimsendi fyrir þá, eins og einum þeirra varð að orði. En hvað tekur við hjá þeim, ef Shady gerir alvöru úr því að hætta? Eitt er víst, að ekki geta þeir haldið áfram án þess að fá nýjan söngkraft í hljóm- sveitina í hennar stað, ef svo illa færi, því það hefur sýnt sig, að söngurinn er hin veika hlið Trúbrots — ef frá er skil- ið framlag Shadyar til þeirra mála — og það viðurkenna Trú- brot möglunarlaust. „Hvað tekur nú við?”, spurð- um við Rúnar Júlíusson s.l. mánudag. „Það er alls óvíst”, svaraði Rúnar. „Við höfum mikið pælt í málinu, án þess að eygja nokkra lausn.” „Hefur nokkuð verið ákveðið, hvort taka skuli frekar í „band ið” söngvara eða söngkonu?” „Nei, það hefur engin ákvörð un veirið tekin þar um. Enda ekki fullvíst hvort við tökum nokkurn í staðinn, að minnsta kosti er ekki uim auðugan garð að gresja hér á landi hvað „progressiv”-söngvurum viðkem ur.” „Væri hugsanlegt, að t.d. Guð- mundur Haukur eða Björgvin Halldórsson verði fyrir valinu?” „Nei, það tel ég ólíklegt og ástæðan er sú, að hvorug- ur þeinra fellur inn í Trúbrots- stöflfið — að mínum dómi, að minnsta kosti.” ,En er eitthvað til í því, að þið hafið fengið til ykkar á reynsluæfingar þá Engilbert Jensen og keflvís/ka söngvar- ann Ingva Stein?” „Ha?” Og lengra varð það ekki, en það geta líklega allir verið sam „Brýtur hún samningana við Trúbrot". mála Rúnari um það, að það sé ekki á hvers manns færi að hoppa allt í einu umsvifalaust í hljómsteitina, sem með þrot- lausum æfingum og samspili hef ur byggt upp sinn sértsaka stíl, sem er um svo margt ólíkur stíl annarra íslenzkra pop-hljóm- sveita. En, er það nú fulvíst, að Shady geri alvöru úr þessari hugmynd sinni? Það er að minnsta kosti margt, sem hald- ið gæti aftur af henni hvað það áhrærir, t.d. mundi hún brjóta með því samninga þá, er hún og hinir Trúbrotsmeðlimirnir hafa gert við hljómblötudeild Fálkans og Umboðsskrifstofuna „Bendix Music” — en síðar- nefndi samningurinn hljóð- ar upp á spilerí frá hendi Trú- brots í Kaupmannahöfn í apríl n.k. Slær Shady strilki yifir það allt saman og hættir í Trúbrot í næsta mánuði??? Og hver er þá ástæðan fyrir þeirri skyndi- legu ákvörðun hennar? Þessum spurningum og mörg- um fleiri vonumst við til að geta fengið svör við í viðtali við Shady, sem birtist hér á síð- unni í næstu viku. HÆTTIR GUNNAR JÖKULL EINNIG? Sá orðrómur hefur verið á á kreiki, að Gunnar Jökull hafi hugsað sér að hætta í Trúbrot á næstunni vegna heymar- skemmda af völdum of mikils hávaða. Hefur það fylgt sög unni, að Sveinn Larson, trommu leikari Ævintýris, taki sæti Gunnars við trommusettið og trommuleikari Tatara, Áskell Máson, taki við trimblisstarf- inu í Ævintýri. ,Síðan” sneri sér til Erlings Björnssonar, umboðsmanns Trú- brots, og spurði hann hvað hæft væri í öllum þessum sögusögn- um. „Þetta er allt saman tóm della”, var svarið. Athyglis- verð samsteypa ALL ATHYGLISVERÐ hljóm- sveit hefur hafið æfingar hér í bæ, en það er samsteypa tveggja pop-hljómsveita, sem kölluðu sig Tárið og Tjáning. Þessar tvær hljómsveitir höfðu leikið nokkuð mikið sam- an á dansleikjum áður en þeim hugkvæmdist að rugla saman reitum sínum og koma fram sem ein hljómsveit. Til að byrja með var þetta aðeins hugsað sem skemmtiatriði og gert til að skemmta gestum Þórscafés í leik hléi, en þegax til kom leizt þeim félögum svo vel á útkom- una, að þeir ákváðu að halda samspilinu áfram og eru nú að æfa upp fullt prógram sem dans hljómsveit. f þessari nýju sjö manna hljómsveit eru: Þorgils Baldursson (áður í Föxum og Tárinu og nú síðast í Tjáningu), hann spilar á gítar og munn- hörpu, Ólafur Torfason orgel- leikari, Sigþór Hermannsson saxafónleikari og Páll Eyvinds- son bassaleikari. Þeir, sem steyptu sér út í samsteypuna úr Tárinu, voru: Sven Arve tromp etleikari og Benedikt Torfason söngvari (bróðir Harðar þjóð- lagasöngvara Torfasonar). Um- boðsmaður og menningairlegur ráðunautuir hljómsveitarinnar er eiranig kominn úr Tárinu og ber hann nafnið Páll Dungal. Trommuleikari nýju hljómsveit- arinnar heitir aiftuir á móti Ein- ar Baldursson og lék hann síð- ast á trommur sínar með Föx- um. Þessi nýstofnaða hljómsveit mun líklega koma fyrst fram á nokkurs konar Pop-Festivali nofckura pop-hljómsveita, í Glaumbæ 3. febrúar n.k. Hluthafafundur í Sameinaða vátryggingafélaginu hf. skv. áður sendu fundarboði, verður haldinn í kvöld fimmtu- dag 29 janúar kl. 20.30 í Norræna húsinu. DAGSKRA: Greint frá byrjunarstarfsemi félagsins. STJÓRNIN. Shriístoíuslúlko óskust Stórt fyrirtæki óskar eftir að ráða vana stúlku til starfa við bókhaldsvél og útskriftir reikninga. Góð laun. Umsóknir sendist blaðinu merkt: „Vélabókhald — 8274".

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.