Morgunblaðið - 21.07.1970, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 21.07.1970, Blaðsíða 17
17 MOBGUNlBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2)1, JÚL.Í 1970 FRETTA- MYNDIR Anna Bretlandsprinsessa gengur niður tröppur bandaríska þing- hússins eftir að hafa skoðað það ásamt bróður sínum, Charles prins, bæði fulltrúadeild og öldungadeild þingsins. í fylgd með prinsessunni er William Wannall úr öldungadeildinni, en til vinstri hliðar við liann sést Tricia Nixon, dóttir Bandaríkjafor- seta. Frá Madrid — Aurelio Calatayud stekkur yfir naut á nautaats- vellinum Las Vestas. Þessi íþrótt, að stökkva yfir nautið, er eldri en sjálft nautaatið, en þar er dulu veifað framan í nautið og það fellt með sverði, er það hefur örmagnazt. En manni er spurn: Hvað gerist, ef nautið stangar í stöngjjia? Norski sægarpurinn Thor Heyerdahl í Barbados. — Mynd þessi var tekin, er verið var að lyfta papýrusbát Heyerdahls, „Ra 11“ í þurrkví. Sæfarinn hefur þama rakað skegg það, sem honum safnaðist á 57 daga langri ferð Ra II yfir Atlantshaf frá Safi í Marokkó. Frá Reggio Calbria á ítalíu — Óeirðaseggir gera gys að lögreglunni, sem komin var til þess að stilla til friðar eftir fjögurra daga samfelldar óeirðir, sem komu upp, þegar borgin Catanzaro var skipuð héraðshöfuðborg í stað Reggio. Að minnsta kosti einn maður hefur þegar beðið bana, en hundruð manna, þar á m eðal 90 lögreglumenn, hafa hlotið meiri eða minni meiðsli. : V :W>V Ví ' I ;; mmmmm Brezkir hermenn á verði við bankabyggingu í Belfast, en mikil sprenging varð sl. fimmtudag. Þrjátíu manns særðust í sprengingunni og gluggar brotnuðu skemmdir urðu á byggingunum umhverfis. I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.