Morgunblaðið - 01.08.1970, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 01.08.1970, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, UAUGARDAGUR 1. ÁGÚST 1970 21 ur-Aíríku, og heima fyrir voru vanclamálin mörg og stór. Börn in voru upp á móti foreldrum sínum, eiturlyfjaneyzla var þá vandamál, því börnin lásu hin- ar geysivinsælu sögur um Shar loök Holmes og Fu Manchu hin kínveska, en báðir þessir sögukappar neyttu eiturlyfja, Sherlock var morfínneytandi en Fu reykti ópíum. Þá höfðu börn in ek'kert að gera, engin þrosk- andi viðfangsefni, og Baden- Powell sá unga fólkið standa þúsunduim saman og horfa á örfáa menn leika knattspyrnu. Hann stofnaði því s;kátáhreyf- inguna til að reyna að leysa úr vandanum, reyna að fá börn og unglinga til að gera eitthvað upp á eigin spýtur og lifa hollu og þroskandi útilífi. Nú eru háð í Asíu og fyrir botni Miðjarðarhafs mjög óvin- sæl stríð. Börnin snúast gegn foreldrum sínum, eiturlyfja- neyzlan er gífurleg, unga fólk- ið hefur engin verkefni og enn- þá standa ungir menn og kon- ur í stórum hópum og horfa á 'knattspyrnu og aðrar íþróttir, en taka ekki þátt í þeim sjálf- ir. Ég tel þess vegna, að ákáta- starfið eigi enn meiri rétt á sér nú en þá, vegna þess, að nú er fólkið mun fleira og vandamál- in miklu stæn-f — Það er jafnan lögð á það mikil áherzla í skátahreyfing- unni í Bandaríkjunum að vera í takt við tíimann. Við höldum uppi nákvæmri skrásetningu á félögum í hreyfingunni og þeg ar innritun sýnir, að skátunum hefur fækkað. er jafnan lögð mikil áherzla á að innrita fleiri nýliða. Og því höfum við reynt að endurskoða reglulega alla ckkar starfsemi til að okkur ta'kist að vekja áhuga nýlið- anna. En þó viljum við ek'ki brenna okkur á sarna soðinu og Englendingar, sem endurskoð- uðu allt sitt starf fyrir nokkru og gerðu ýmsar róttækar breyt ingar. Þeir náðu ekki nýliðum inn í hreyfinguna svo neinu næmi. en misstu hins vegar ýmsa gamla og reynda skáta úr henni af þessum orsökum. — Annars má segja, að skáta starfið í Bandarí'kjunum og raunar víðar hafi alla tíð ver- ið á undan sínum tíma, en ek'ki á eftir. Það kom glöggt í ljós, þegar sérfræðingar fóru að gera breytingar á skólakerfinu þar. Þá komu þeir fram með ýmsar nýjungar í kennsluhátt- um, sem s'kátar höfðu notað í starfi sínu í áratugi. Til dæmis lpgðu þeir áherzlu á, að unga fólkið gæti kennt og þjálfað hvert annað, en þetta hafa skátarnir verið að gera í 60 ár. Sérfræðingar vildu meira val- frelsi, en það hafa skátarnir lagt áherzlu á frá uppthafi. Og aðaltillaga sérfræðinganna var um meira sjálfstæði einstakling anna í námi, að menn reyndu að læra sjálfstætt, en það er einmitt eitt af aðalatriðunum í starfi skátans að hann reyni að læra og starfa sjálfstætt. Bill Hillcourt hefur verið starfandi skáti hátt í 60 ár. Á þessum tíma hafa miklar breyt ingar orðið á mannlífinu í heiim inum og framfarir verið mikl- ar á flestum sviðum. Bill hef- ur fylgzt með öllum þessum breytingum og dregið sinn lær dóm af þeim. Hann telur skáta- starfið eiga meiri rétt á sér en fyrir 60 árum og það er vist, að þar hefur hann rétt fyrir sér. — s. h. I FJÖLSKYLDUBÚÐUNUM er skipulagið ákaf lega gott á flestum hlutum. T.d. eru bar afmark- aðar gangbrautir, sem hafa hlotið hin ágætustu nöfn. A hominu á Fremri-skógi og Stóra-skógi eru nokkur tjöld þétt saman og hafa þau hlotið viðurnefnið Belgsbúð. Eigendur tjaldanna eru nefnilega eigendur Belgjagerðarinnar og auðvitað eru tjöldin framleidd þar. Framan við eitt tjaldið sátu kona og tveir drengir við borð og drukku siðdegiskaffið. Konan kvaðst heita Mar- grét og vera eiginkona Guðmundar Jónssonar. Han.n er skáti og synir þeirra eru i lireyfingunni líka, en hún er sjálf ekki skáti, lætur sér nægja að fara með eiginmanni og sonum á skátamótin. Til vinstri við Margréti sat sonur hennar Meyvant, og hann er nýorðinn ylfingur, en til hægri við hana sat lítil fjölskylduvinur, sem heitir Michael, og hann er að byrja í ylfingastarfinu. Og öll voru þau sammála um, að skátamótið væri alveg dýrðlegt. Símaþjónusta er nú góð EINS og sagt hefur verið frá í Mbl. var símaþjónustan á lands- móti skáta mjög slaem fyrstu dag ana. Var það vegna þess, að skátamótið fékk aðeins afnot af sameiginlegri línu Hreðavatns- skála og Bifrastar, og var sú lína þó fullnýtt fyrir. Urðu mótsgest- ir og starfsmenn þvi oft að bíða langtknuim saman eftir símasam- m GARÐBÚAR úr Bústaðahverfinu í Reykjavík buðu hlaðamanni Mbl. í kvöldmat og á matseðl- inum voru fiskibollur og kartöflur. Maturinn bragðaðist ágætlega, en því miður var borðhald- ið ekki fest á filmu. Hins vegar náðist mynd af morgunverðinum, kakói og franskbrauði með osti. Á myndinni má einnig sjá stúlkurnar, sem voru að innbyrða morgunverðinn. bandi til Reykjavíkur og annarra staða á landinu. Mynduðust þá langar biðraðir framan við sím- stöðvarskýlið á mótinu, en sem betur fer eru þær nú alveg úr sögunni á mótinu. Brá Lands- síminn fljótt og vel við og bætti úr vandræðunum hið snarasta. eftir að Mbl. hafði skýrt frá vandræðaástandinu. Tengd var bein lína frá landsmótinu til Reykjavíkur án nokkurra milli- stöðva. Reynir Ármannsson, póst- og símamálastjóri mótsins, sagði í viðtali við Mbl., að strax eftir að lagl'æringin var gerð á símamál- unum, hefðu farið að berast pakk ar og sendingar til skátanna á mótinu, því þá hefðu skátarnir loksins fengið tækifæri til að tala heim til sín. Þá sagði Reynir, að um helg- ina væri búizt við miklum fjölda gesta í heimsókn á mótið, foreldra og ættingja og annarra velunnai'a skátanna, og myndu skátarnir þá gangast fyrir sölu frímenkja og umslaga, sem stimpluð hafa verið með móts- stimplinum. Allur ágóði af söl- unni rennur til að standa straum af mótskostnaði. en lauslega áætlað er kostnaðurinn talinn um 2,7 milljónir króna, en greidd mótsgjöld eru áætluð 2,7 millj- ónir króna líka, svo að ekki má miklu muna til að halli verði á mótinu. A VARÐELDINUM: Óli Silla tekur nýliðaprófið hjá Magga Júl.: „Hvort ég kunni skátalögin? Ég held nú það! Skáti segir ávallt satt og gengur aldrei á bak orða sinna — bara á bak hesti eða belju!“ Skátamót: Landsmóti að ljúka! NÚ ER farið að síga á seinni hluta landsmóts skáta að Hreðavatni. Hinum eiginlegu skátastörfum er að mestu lok- ið, í dag lýkur einstaklings- og flokkakeppni í skátagrein- um og skipulagðar göngu- og könnunarferðir hafa allar ver ið farnar. En um þessa helgi eru heimsóknardagar á mót- inu og mun starf skátanna að mestu snúast um móttöku gestanna. í dag er heimsókn boðsgesta eftir hádegi. Forseti íslands og forsetafrúin munu heimsækja mótið ásamt öðrum gesturn. Að þessu sinni verður ekíki efnt til sérsta'krar skemmtun- ar fyrir bessa gestú heldur verður þí.im sýnt mótssvæðið og hinar ýmsu tjaldbúðir. Munu skátafélögin sjá um stutt fræðslu- og skemmtiatr- iði hvert fyrir sig. Á morgun verður móts- svæðið opið almenningi og er búizt við miklum fjölda for- eldra og annarra velunnara skátanna í heimsókn. Ekki verður um neina sérstaka dag skrá að ræða, nema hvað hald inn verður gestavarðeldur kiukkan 5. í fyrramálið verða haldnar tvær guðsþjónustur á mótinu, önnur þeirra kaþólsk og mun prestur af Keflavíkurflugvelli messa. Sóknarpresturinn sér um hina almennu messu. Skátamótinu verður slitið á mánudag kl. 4 e.h. Síðan fara menn almennt að tygja sig til brottfarar og má búast við að þá verði handagangur í öskjunum, tjöldunum, bak- pokunum og svefnpokunum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.