Morgunblaðið - 02.08.1970, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 02.08.1970, Qupperneq 12
12 MORGUMBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. ÁGÚST 1970 Kann vel við verzlunarstörfin - Rætt við Guðrúnu Tómasdóttur, afgreiðslustúlku Tengiliður vörugeymslunnar við skrifstofuna - Rætt við Gísla Kristjánsson, yfirmann í vörugeymslu Mikill fjöldi fólks hefur þan/n st'arfa að afgreiða í verzl unum. Það hefur dagleg sam- skipti v.ð hundruð manna og hlutverk þess er að aðstoða og leið’beina um leið og það stund ar sölu. í nýlenduvöruverzlun á Grundarstíg 2a í verzluninni Þiingholti, starfar ung og föngu leg stúlka, Guðrún Torfadóttir. Hún er jafnframt því sem hún afgreiðir aðstoðarverzlunar- stjóri og leysir hann af í frí- um. Við hittum Guðrúnu einn sólríkan sumardag, þar sem hún var að afgreiða í verzl- uniruni. — Vinnudagur hér hjá okk- ur hefst sem hjá öðrum, sem við þessi sitörf fást kl. 9.00. Mitt hlutverk er að fylla upp í hill- ur — fylla skörðin, sem mynd- uðust í gær. >á leysi ég af við afgreiðsluna á meðan aðrir fara í kaffi, en nota þá einnig morg- uninm til þess að panta inn vör- ur. Ég hringi í sölumennina. — Jú, við seljum allar ný- lenduvörur, svo og kjötvörur. Viðskiptavimmir eru mest- megnis hinir sömu ár eftir ár. Hér er ákaflega gott fólk í hverfinu og við þekkjum orðið mikið af fólki. Þá er ocBt miikið af skemmtilegu fólki, sem kem- ur og ratobar — gerir að gamni sínu. — Ég er gagnfræðingur og hef verið við þetta allt frá því er ég lauk skólanum. Ég kann vel við þetta — á stundum er mað- ur þreyttur, en hvað er það. Um það talar maður ekki. — Jú, stundum kemur ýmis- legt broslegt fyrir. Dag einn fyrir skömmu voru hér staddir tveir bifreiðarstjórar, sem koma með vönu. Annar þeirra er dá lítið erfiður á skapsmunum og hefur gjarnan ýmislegt á horn- um sér. Þeir mættust hér í dyr- unum. Og einhvern veginn í þann mund er þeir mættust datt annar þeirra kylliflatur og hafnaði niðri í kjallaratröpp- um. Þetta hefði að sjálfsögðu getað farið illa, en til allrar hamingju varð manninum ekki meint af — en broslegt var þetta. Þá er og einn, bílstjórimn alveg iogandi hræddur við ketti. Hér í húsagarði hafa villi kettir haldið til, svo að það er mikil þraut fyrir manninn — og Guðrún brosir um leið og við kveðjum hana. Eggert Kristj ánsson & Co. h.f. hafa reist og tekið í notk- un að Sundagarði 4, stórt og mikið vöruhús, sem er ein full- komnasta og hagkvæmasta vörugeymsla landsins. Verk- stjóri og lagermaður þar er Gísli Kristjánsson, sem starfað hefur við fyrirtækið í 18 ár. Með honurn vinna þar að jafn- aði 10 manns við vörumóttöku og dreifingu. Einn dag fyrir skömmu hittum við Gísla að máli til þess að forvitnast um það hvemig venjulegur vinnu- dagur líði. Hann sagði: — Við byrjum hér kl. 8 á morgnana og skipuleggjum þá starfið, tökum til athugunar, hvaða vörur þarf að sækja til skipaafgreiðslanna. Til þess höfum við vörubíla, en smærri bílar okkar eru hins vegar not- aðir við vörudreifinguna. Vöru dreifinguna höfum við undirbú- ið daginn áður, svo að unnt er að hefja hana þegar að morgni. Um kl. 9 fer svo síminn að hringja. Þá opnar skrifstofan og líf færist í fyrirtækið. — Ég set næst manmskapinn í ýmis störf, sem þarf að vinna og gef jafnframt skýrslu um það til skrifstofunmar, bóka skemmdir á viðteknum vörum o.s.frv. Þá er mitt starf og fólg- ið í því að svara í síma og er ég eins konar tengliður milli skrifstofunnar og vörugeymsl- unnar hér. — Hingað fluttumst við fyr- ir þremur árum — vorum áður á Hverfisgötu 54. Hér er að sjálfsögðu allt önnur vinnuað- Staða, og var gamli staðurinn alls ekki sambærilegur. Breyt- ingarnar eru gífurlegar. Er varan kemur frá skipaafgreiðsl unni er hún sett hér á bretti og síðan staflað upp í rekka með lyftara. — Meðferð vörunnar hjá skipafélögunum hefur stórbatn að, þrátt fyrir að þar sé ekki alltaf allt sem skyldi. — Með bættum vélakosti, stærri og betri húsakynnum hefur tekizt hér að gera dreifingarkostnaðinn eins lág- an og hægt er. Á Hverfisgöt- unni vorum við um 18 að jafn- aði en hér vinna nú um 10 manns. — Jú, margt skemmtilegt kem ur að sjálfsögðu fyrir við slíkt starf. Hingað kemur margt fólk til þess að sækja vörur. í samskiptum við fólk fer allt eft ir því hvemig maður sjálfur er upplagður, en árekstra talar maður ekki um. Eitt sinn henti sjálfan mig þó smáóhapp. Síð- an þá hef éig áivallt minnzt þess að kapp er bezt með forsjá. Þetta var áður en við fluttum hingað. Mikil snjókoma hafði verið, siðan hlánað og fryst. Á götum mynduðust miklir skorn- ingar, þar sem bifreiðir höfðu ekið um. Verið var að aka til okkar molasykri, 300 25 kg. kössum og átti að fara tvær ferðir eftir þeim. Er bíll- inn var að koma upp Vatina- stíginn með sykurinn hallaðist bíllinn í skorningunum og var sykurinn að detta af. Ég hljóp þá að bílnum og sagðist ætla að styðja við binginn. En er ég er kominn að pallinum detta kassarnir yfir mig. Ég slapp þó með brotinn fót, en frá þess- um atburði, hef ég ávallt tek- ið hlutunum með mikilli gætni. Og að svo búnu kveðjum við Gísla Kristjánsson. Hann fylg- ir okkur til dyra í þessu tæp- lega 3000 fermetra húsi. Við okkur blasir Viðey sólböðuð á Sundunum. — Gunnar Jónss. Framhald af bls. 11 ið við nögl og þá má segja að aðalstarf sölumannsins hafi ver ið að reyna að gera eitthvað fyrir alla og gleyma engum. Ef kaupmaður ætlaði t.d. að kaupa 100 kg af sykri, varð að útbúa umsókn tid skömmtunarskrifstof unnar í þríriti og þar þurfti að fá plöggin stimpluð, áður en unnt var að afhenda vöruna kaupandanum. Skömmtunin og innflutningshöftin var leiðin- legit tímabil, sem vonandi á aldrei eftir að hrjá íslenzka verzlun oftar. Þá hafa verzlanir stækkað og orðið nýtízkuilegri með hverju ári. Þessar stóru verzl- anir þurfa mikið vöruival. — Já ég hef aliltaf fyltgt þeirri deild hér, sem annazt sölu matvara. í þessi 30 ár hef ég unnið með þreimur forstjór- um hér og hefði ég ekki getað kosið mér betri húsbændur, Carl Olsen, John Fenger og nú Hilmar Fenger. Starfið er lif- andi og skemmtilegt — skemmti legast, þegar mest er að gera og í sem flestu að snúast. Ætti ég að gefa unigtum mönn.um, sem eru að hefja störf í sölu- mennsku heilræði vildi ég segja þetta: Sannleiikurinn er alltaf sagna beztur. FrumSkilyrði í sölu- menneku er ávallt að segja við- skiptavininum satt og rétt frá — það sem hann veit sannast um vöruna. Þessi frumskylda hefur ávallt reynzt mér happa- drj'úg, sagði Gunnar Jónsson að lo.kum. Og við kveðjum Gunnar. Hann fer aftur að vinna. Við veitum því athygli að hann not ar ekki símaskrá — hiann man öll símanúmer, einingarverð, magn í pökkum o.fl. Það er svo sannarl'ega góður eiginileiki söliumanns.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.