Morgunblaðið - 02.08.1970, Page 15

Morgunblaðið - 02.08.1970, Page 15
MORGUNIBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. ÁGÚST 1070 15 Minningargjafir til Félagsstofnun- ar stúdenta Eina og greint hefur verið frá hér í blaðinu, hafa verið gefn- ar stórgjafir til minningar um Bjarna Benediktsson forsætisráð herra, frú Sigríði Björnsdóttur klon.u hans og dóttunson þeirra, Benedikt Vilmundarson. Hafa gjafir þessar runnið til Félagsstofnunar stúdenta og verður þeiim varið til byggingar stúdentagarðs fyrir hjón, en hjónagarð hefur mjög skort, enda margir heimilisfeður við framhaldsnám og stundum hjón- in bæði. Morgunblaðinu er kunnugt um það, að ýmsir aðilar, bæði opinberir aðilar, einstaklingar og félög, óska að fá að gefa minningargjafir. Er vel til fund ið að beina þeim öllum á einn stað, og æskilegra verkefni verð ur ekki fundið en einmitt bygg- ing hjónagarðsins. Félagsstofnun stúdenta er sá aðili, sem sér um þetta verkefni, og væntanlega mun hún semja skipulagsskrá eða reglugerð fyr ir sjóð þann, sem varið verður til framkvæmdanma, en þeim ber að hraða sem mest má verða, enda ætti hjónagarðurinn að geta risið af grunnd strax á næsta ári, ef undirbúningur er þegar hafinn. V er zlunar manna- helgin Um þessa helgi fer fjöldi þeirra, sem í bæjum búa, í ferða- lög um landið. Þótt þessi helgi sé kennd við verzlunarmenm, þar sem frídagur þeirra er fyrsti mánudagur í ágúst, er fjöldi annarra en þeirra, sem mikil- vægustu verzlunarstörf vinna, í fríi eimmitt um verzlunarmanna helgina. Víða um lamd eru skipulagðar samkomur, og öll farartæki eru meira og minna í notkun. Um þessa helgi má því ætíð búast við enfiðleikum og óhöpp- um í umferðinmi, og þess vegna er aldrei um of brýnt fyrir mönnum að gæta fyllstu varúð- ar. Þá hefur það og stundum henft, að samkomur hafa ekk'i farið fram með þeim hætti, sem vera skyldi, þótt mikið hafi ver- ið gert til þess að bæta þar um og til dæmis reynt að útrýma áfengi af slíkum samkomum. Vonandi er, að um þessa helgi fari allt vel fram, og þeir, sem hyggjast njóta rnáttúrufegurðar og sumartíðar geti snúið heim hraustari en þeir voru, er þeir lögðu upp í för sína. Auk þeirra samkoma, sem beimlínis eru bundnar við verzl- umarmannahelgina, er nú háð skátamót, þar sem æskulýður margra landa er saman kominn, og væntanlega verður gest- kvæmt hjá skátunum um helg- ina. Skátafélagsskapurinn er sem kuinnugt er hinn þroska- vænlegasti fyrir öll ungmenni, og mætti skátahreyfingin eflast og aukast enn hér á landi. Verzlunarkjör og verðlagshöft Á frídegi verzlunarmanna er eðlilegt, að fólk leiði hugann að þeim mikiivægu störfum, sem verzlunars'téttin vinnur og geri sér grein fyrir aðstöðu hemnar og verzlunarkjörum þjóðarinnar yfirleitt. Við fslendingar búum enn við verðlagshöft, en allar nágranna- þjóðirnar hafa fyrir löngu af- numið slíkt fyrirkomulag, því að imen.n Ihafa sa.nnfæirzt um, að það væri engum tii góðs, hwrki neytendum, né heldur þróun heiibrigðs og öflugs atvinnulífs. Á síðasta þingi var gerð tilraun til að breyta um til batnaðar í þessu efni, en þótt hún hafi mis- vakið athygii á og þannig verði grundvöllur félagsins breikkað- ur. Foss í Fjarðará í Seyðisfirði. Ljióisim, Maits Wilbe Lund jr.) Reykjavíkurbréf Laugardagur 1. ágúst tekizt, má ekki láta þar við sitja, heldur verður að vinna að heil- brigðri skipan verðlagsmála áfram. Og hjá því getur ekki farið, að umbætur verði skjótt gerðar, því að menn skilja nú æ betur, hve fáránlegt er að viðhalda því úrelta kerfi, sem verið hefur við lýði. Lengi vel tókst að telja mönn- um trú um, að verðlag almennt mundi hækka, ef verðlagshöft yrðu afnumin, því að kaupmenn og kaupfélög myndu stórhækka álagningu sína. En nú skilja menn, sem betur fer, að málið er ekki svo einfalt. Þess er í fyrsta lagi að gæta, að samkeppni á að ríkja um hylli viðskiptavina, og sjálf- sagt er að hafa eftirlit með því, að engin samtök séu mynduð um verðlagningu, enda miðaði verð- lagsfrumvarpið að því, og var hugmyndin að hafa um þetta efni svipaðar reglur og gilda í nálægum löndum. Álagningarreglur, sem miða við ákveðinn hundraðshluta, eru beinlínis til þess fallnar að draga úr hvöt manna til að leita eftir hagstæðum innkaupum, og íslenzkir kaupsýslumenn lenda oft í vandræðum, er þeir skipta við eriendia viðsemjlendur, sem kunnugt er um þessar reglur hér, og eru þess vegna ekki til- takanlega fúsir að veita hag- stæð kjör, þar sem þeir geta bent á, að báðir aðilar skaðist á lægra verði. Fyrir þjóðarheildina er auð- vitað frumskilyrði að ná sem hagstæðustum kjörum við inn- flutning vara, og þau nást því einungis, að hörð samkeppni sé. Hitt skiptir minna máli, þótt álagning kunni í einstökum til- fellum að vera hærri að hundr- aðshluta til en núverandi regl- ur bjóða. Varan getur samt sem áður orðið ódýrari en ella og, þar að auki er eiinungis um til- flutning tekna að ræða hér inn- anlands og engan skaðar það, þótt kaupmaður eða verzlunar- félag hagnist af sérstakri út- sjónarsemi og du'gnaði, ef al- menningur nýtur samt sem áður betri kjara en ella. Hækkanir og verðlagsreglur Einhverjir kunna að segja, að illa fari saman að afnema reglur um hámarksálagningu og tala jafntframt um það, að naiuðsyn beri til, að sem flest þjóðfélags- öfl sameinist um að stemma stigu við þeim miklu verðlags- hækkunum, sem fyrirsjáanlegar eru af völdum kauphækkananna í vor. En þau rök, sem að fram- an eru greind, hníga að því, að þarna sé ekki um andstæðar að- gerðir að ræða. Þvert á móti er fullkomlega samræmanlegt að leitast við að örva sem mest má verða samkeppni atorkumanna við að gera sem bezt innikaup til landsins og neyta jafnframt aninarra ráða til að stemma stigu við öðrum hækkunum vöruverðs, og svonefndum víxl- hækkunum kaupgjalds og verð- lags, sem fyrirsjáanlega verða mjög miklar, ef ekki er spymt við fótum, en það tekst því að- eins, að það samstarf komist á milli ríkisvalds, lauiniþegasam- taka og vinnuveitenda, sem rík- isstjórnin hefur óskað eftir. f þessari viðleitni er hlutverk Verzlunarstéttarinnar vissulega ekki lítið; hún á að leggj'a sig alla fram um að bæta þjón- ustu og ná hagstæðum viðskipta kjörurn og ekkert er við það að athuga, að verzlunin beri úr býtum sæmiiegan arð, þegar vel er að innkaupum staðið. Jurtabók Almenna bókafélagsins Almenna bókafélagið hefur gefið út fallega bók um íslenzk- an gróður, -grös og jurtir, sem mjög vel er til þess fallin að örva áhuga manna á flóru lands- ins. Ferðaflóra, nefnist þessi bók og er hin þriðja, sem félag- ið getfur út í ferðabókarbroti um máttúru landsins, fuglalíf og fiska. Þessar bækur Almenna bóka- féliagsins, ættu sem flestir að hafa með sér í ferðalögin, fletta upp í þeim, auka þekkingu sína og ánægju af dvöl úti í náttúr- unmi. En úr því að verið er að tala um Almenna bókafélagið má gjarnan miinmast þess, að það er nú 15 ára gamalt og hefur á þessu tímabili gegnt merkilegu hluitverki í ísienzku mtenninigar- lífi. Baldvin Tryggvason, fram- kvæmdarstjóri Almenna bókafé- lagsins, gat um það á aðalfundi fulltrúaráðs félagsins fyrir skömmu, að uppi væru um það hugmyndir að breyta á ýmsan hátt skipulagi félagsins, fá nýja starfskrafta og áhugamenn til að örva starfsemina og auka þann- ig enn þau áhrif, sem þetta merka félag getur haft til góðs fyrir islenzka menningarstarf- semi'. Taldi hann eðlilegt, að menn stöldruðu við á þeim tímamótum, er félagið væri hálfs annars áratugar gamalt, og hugieiddu hvaða breytinga væri þörf til að fylgjast ætíð með tímanum. Að þessum málum er nú unnið og vonandi, að víðtækt samstarf ná- ist um þær úrbætur, sem fram- kvæmdastjóri félagsins hefur Kosningaverkföll f þættinum „Um daginn og veginn“ síðastliðið mánudags- kvöld minntist Halldór Blöndal á það, sem hann nefndi kosn- ingaverkföll, og taldi að huga bæri að því við breytingu á viinniuiöggjötfiinini , ihivort bann ætti að leggja við því að grípa til verkfallsvopnsins skömmu fyrir kosningar, hvort heldur um væri að ræða Alþingiskosn- ingar eða sveitastj ó.rnarkosning- ar. Hér í blaðinu, hefur verið bent á, að tilgangslitlar mundu þær breytingar á vinnulöggjöf- iinni, sem ekki næðist sæmileg samstaða um, og gætu þær jafn- vel orðið til tjóns. En um þetta atriði, sem hér er vakin athygli á, ætti svo sannarlega að geta náðst sæmileg samvinna. Það er vissulega andstætt heilbrigðri lýðræðisþróun að grípa til þving unaraðgerða eins og verkfalla eða verkbanna, örskömmu fyrir kosningar, þar sem fólkið á að dæma með atkvæði sínu um menn og málefni. Á því leikur heldur ekki vafi, að það getur orðið til stórtjóns fyrir laun- þega, ef foringjar þeirra telja sig tilneydda að leggja út í verkfallsaðgerðir rétt fyrir kosningar eða hrekjast undan eins og átti sér stað í vor, þar sem yfirboð á pólitískum at- kvæðamarkaði voru látin ráða, en ekki hagsmunir verkalýðs- ins. Vissulega er athugandi að setja í lög ákvæði um það, að engin verkföll megi heyja t.d. einn mánuð fyrir kosningar, því að „kosninigaverkföU“ hljóta að verða atf pólitískum toga spunn- in, en ekki til þess gerð að bæta kjör launlþega. Hitt er annað mál, að enginn veit, hver hagn- ast af slíkum þvingunaraðgerð- um rétt fyrir kosninigar, en ein- mitt sú staðreynd á að geta stuðlað að samkomulagi í þessu efni. Það veit t.d. enginn, hvort Sjálfs'tæðisflokkurinn hefði haldið meirihluta sínum í Reykja vík, ef ekki hefði verið gripið til verkfallsvopnsins — og raun ar veit heldur enginn nema flokkurinn hefði unnið enn stærri sigur, ef ró hefði verið á vinnumarkaðnum. En aðalatriðið er, að æskileg- ast er að firra menn áhyggjum af því að reyna að reikna út slíka hluti, kaupgjaldsbarátta og kosningar eru tveir aðskild- ir þættir — og eiga að vera það. Árangurinn í Kollafirði Ánægjulegar eru þær fréttir, að lax skuli nú leita til baka í Kollafjarðarstöðina í þúsunda- tali. Þar með er endanlega sann- að, að fiskirækt jafnvel í litl- um ám og lækjum getur orðið geysiþýðingarmikill atvinnuveg- ur í framtíðinni eins og margir hafa raunar haldið fram, en aðrir aftur á móti dregið í efa. Fiskigengdin í Kollafjarðar stöðinni mun án efa verða þess valdandi, að miíkill skriður komist nú á öll fiskiræktarmálefni. Eig endur straumvatna muftu nú huga að þeim verðmætum, sem þeir ekki hafa sinnt um áður og um land allt mun fiskirækt stór- eflast á komandi árum. Mikill styrr, hefur sem kunn- ugt er staðið um Kollafjarðar- stöðima og vafalaust má benda á ýmislegt, sem betur hefði getað farið. En þarna er um tilrauna- stöð að ræða og auðvitað hljóta einhverjar tilraunir að mistak- ast. Raunar verður í slíkri stöð að leggja út í tilraunir, sem lík- ur eru til að illa muni fara um, einungis til þess að sannfærast um, að ekki sé unnt að fara ein- hverja ákveðna leið, heldur þurfi að leita annarra úrræða. Framhald á bls. 21 ,

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.