Morgunblaðið - 26.08.1970, Qupperneq 11
MOBGUNBLAÐIÐ, MIÐVTKUDAGUR 26. ÁGÚST 1970
11
Frá iðnstefnu samvinnumanna 1970:
Mikil framleiðslu- og
söluaukning hjá S.Í.S.
IÐNSTEFNA samvinnumanna
I samkomusal Gefjunar
á Akureyri, hin 8. í röðinni,
markar að ýmsu leyti þáttaskil
1 þróunarsögu verksmiðjuiðnað-
ar SfS. Hún er haldin, þegar
endurreisn þeirra verksmiðja,
sem verst urðu úti í brunanum
mikla i ársbyrjun 1969, er lokið
eða langt komið, vélakostur
nokkurra annarra verksmiðja
hefir verið endurnýjaður að
miklum hluta og stóraukinn og
skipulegar aðgerðir eru hafnar
í stórum stíl til framleiðslu út-
flutningsvara og markaðsöflun-
ar erlendis umfram það, sem ver
ið hefir. Vörumar, sem sýndar
eru, eru margar hverjar hinar
glæsilegustu og bera vitni um
hugkvæmni og vandvirkni, bæði
þær, sem ætlaðar eru til útflutn
ings að mestu og hinar, sem eink
um eru framleiddar fyrir innan-
landsmarkað.
Við setningu iðnstefnunnar
flutti Erlendur Einarsson, for-
stjóri SfS, fróðlega og efnis-
mikla ræðu, og verður hins
helzta úr henni getið hér í efnis-
legu ágripi.
SKÓVERKSMIÐJAN IÐUNN
í eldsvoðanum gjöreyðilagðist
verði sem fyrst, en það fer eftir
því, hve fljótt tekst að þjálfa
fólk í fullvinnslu pels-mokka-
skinna. Af framleiðslunni munu
90—95% verða ílutt út.
Til nýjunga telst, að settur
hefir verið upp norskur raf-
magns-gufuketill, 3000 kw, en
með litlum kostnaðarauka má
stækka hann i 6000 kw með því
að bæta við elektróðum. Ketill-
inn hefir reynzt mjög vel. Verk-
smiðjan er mjög vatnsfrek,
og var borað eftir vatni á verk-
smiðjulóðinni sjálfri, þar sem
hreinsun vatns úr Glerá. hefði
orðið mjög dýr. Nægilegt vatn
fékkst úr borholunni.
Yfirumsjón með byggingafram
kvæmdum og teikningum hefir
verið á vegum teiknistofu SÍS,
en Gunnar Þorsteinsson, bygg-
ingafræðingur, er forstöðumað-
ur hennar. Náið samstarf hefir
verið við verkfræðinga hjá
finnska fyrirtækinu Friital-
an Nahka, sem veitt hafa tækni-
aðstoð við hönnun og skipulagn
ingu sútunarverksmiðjunnar.
Páll Lúðvíksson verkfræðingur
hafði yfirumsjón með hitalögn-
um og loftræstingu og Sigurður
Sigurjónsson tæknifræðingur
Skóverksmiðjan Iðunn, öll leður 1969 1970 Mism. %
deild sútvmarverksmiðjunnar, Ulilarv. Gefjuin, Ak. 56.876 74.386 + 17.510 30.79
samkomusalur Gefjunar og Hekla 44.700 52.602 + 7.812 17.44
nokkur hluti loðsútunarinn Sjöfn 32.668 38.203 + 5.545 16.98
ar. Minnstu munaði, að ullar- Kaffiíbrernnsla Atoureyrar <h.f. 26.740 32.071 + 5.331 19.94
verksmiðja Gefjunar, ullar- Iðiuinin sútun 17.(01 31018 + 14.582 85.62
þvottastöðin og kyndistöð verk- Iðtaran skógerð 221 14.862 + 14.682 662.08
smiðjanna færu sömu leið. Þegar Fatajvertosnn. Gefjiun 1)1.694 13.854 + 2.160 18.47
í stað var hafizt handa um end- urreisn. Nýjar vélar voru keypt 190.010 257.581 + 67.572 35%
ar í skóverksmiðjuna fyrri hluta
árs 1969 og framleiðsla hafin í
leiguhúsnæði i júní það ár. 1
april 1969 var endurreisn verk-
smiðjuhússins hafin, og var því
verki lokið i júní s.l. Starfsemin
er nú að fullu rekin í hinni end
urbyggðu verksmiðju. Ársfram-
leiðslugetan er 200.000 pör, en
var í gömlu verksmiðjunni
90.000 pör. Til þess að mæta vax
andi samkeppni frá innfluttum
skóm, einkum frá EFTA-löndun
um, leggur Iðunn nú áherzlu á
sérhæfingu í framleiðslu, og
stefnt er að útflutningi á sér-
stökum gerðum. Skóverksmiðj
an er nú vel búin að vélum og
tækjum, en sérfræðingar frá
United Shoe Machinery Co.
skipulögðu verksmiðjuna. Sam-
ráð var haft við sænskan sér-
fræðing um vélvæðingu.
NÝJA
SOTTJNARVERKSMIÐJAN
Hinn 7. júní 1969 var byrj
að að grafa fyrir nýju sútunar-
verksmiðjuhúsi, og er það nú
fullbyggt. Ætlunin var að form-
leg vigsla færi fram í sambandi
við iðnstefnuna, en af því gat
ekki orðið vegna tafa á af-
greiðslu véla frá Italíu af völd-
um verkfalla þar, svo og vegna
verkfallanna hér í vor. Fram
leiðsla í votvinnsludeild hófst
þó 2. maí, og hafa síðan verið
hálfunnin 20.000 skinn. t'Jtflutn
ingur þeirra er hafinn, en fyrst
um sinn verður hluti framleiðsl-
unnar fluttur út hálfunninn.
Húsið er að grunnfleti 3880
fermetrar, en að gólffleti 4500
fermetrar, þar sem húsið er að
hluta á tveimur hæðum. Árs-
vinnslugeta verksmiðjunnar er
nú 300.000 gærur, en unnt er að
stækka hana síðar, svo að
vinnslugetan vaxi um 50%. Þessi
áfangi verður væntanlega kom
inn í fullan gang í október n.k.
Verksmiðjan mun framleiða pels
mokkaskinn, kápu- og kraga
skinn, teppagærur (skraut
skinn) og að hluta hálfsútaðar
gærur, þar til öll ársframleiðsl-
an verður fullunnin i verksmiðj
unni. Stefnt er að því, að það
fyrir brunann varð veruleg
framleiðsluaukning. Heildarsala
iðnaðardeildar Sambandsins á ár
inu 1969 varð kr. 472 millj. og
jókst um kr. 140 millj.’ eða 42.17%
frá árinu á undan. Verðmæti út-
flutnings í fyrra nam kr. 119
millj. Útflutningurinn skiptist
þannig, að af heildarsöluverði
fóru um 60% til Sovétríkjanna,
um 14% til Bandaríkjanna og
til Vestur-Evrópulanda um 26%.
Fyrstu 6 mánuði þessa árs hef
ur orðið veruleg framleiðslu-
aukning í verksmiðjunum og
söluverðmæti Sambandsverk-
smiðjanna, — þar með taldar
Efnaverksm. Sjöfn og Kaffi-
brennsla Akureyrar, sem eru
saméign Sambandsins og KEA,
— var samtals pr. 30.6. 1970
257.5 millj. og hafði aukizt um
67.5 millj. miðað við fyrstu
6 mánuði 1969, eða um 35,5%.
Söluverðmæti útflutnings fyrstu
6 mánuði 1970 jókst um 46%
miðað við sama timabil ársins
1969.
Eftirfarandi. tafla sýnir sölu
hinna ýmsu verksmiðja fyrstu 6
mánuði ársins 1970 og til saman
burðar árið 1969 í þúsundum
króna:
Erlendur Einarsson, forstjóri SlS, flytur ræðu við setningu iðn
stefnu samvinnumaima 1970. Ljósm.: Sv.P.
ouikninig
Hliðstæðiar sölutöliur hjá verksmiðjum KEA voru sem hér segir:
Kjöfti'ðnaðarsitöð KEA
Efruagierfön Flóra
Smjörl'ikisgerð KEA
1969
23.026
3.139
13.756
1970
31.470
3.630
13.621
Mism.
+ 8.444
+ 401
-í- 135
%
36.67
15.64
0.98
með rafmagnslögnum. Verkíræði
stofa Sigurðar Thoroddsehs á
Akureyri gerði járnateikningar.
Gunnar Austfjörð annaðist pípu
lagnir í sútunarverksmiðjuna og
samkomusalinn, en Júlíus
Björnsson í skóverksmiðjuna.
Magnús Jónsson hjá Rafdeild
Gefjunar og Ljósgjafinn sáu um
raflagnir, og málarameistari var
Guðmundur Jónatansson. Hagi
h.f., Haukur Árnason, tæknifræð
ingur, og Sigurður Hannesson,
múrarameistari, önnuðust bygg-
ingu húsanna.
LÓ» OG VÉLVÆÐING
Unnið er nú að snyrtingu
verksmiðjulóðarinnar á Glerár-
eyrum, en stærð hennar er um
70.000 fermetrar. Grunnflötur
bygginga á lóðinni er um 20.000
fermetrar og gólfflötur um
26.000 fermetrar. Samtals eru
byggingarnar 110.000 rúmmetrar.
Áætlaður byggingakostnaður
nýju sútunarverksmiðjunnar er
81 millj. kr., en mun fara eitt-
hvað fram úr þeirri upphæð.
Fjárfesting á Akureyri í iðnaði
SlS árin 1969 og 1970 nemur nú
nokkuð á annað hundrað mill-
jóna króna. Auk byggingafram-
kvæmda og vélbúnaðar í sútun-
arverksmiðjuna hefir vélakost
ur eldri verksmiðjanna verið
stóraukinn. Nýjar vélar hafa
verið keyptar til Heklu og Gefj-
unar fyrir 30—40 millj. króna.
Veruleg stofnlán hafa fengizt,
þ.á.m. úr norræna iðnþróun-
arsjóðnum til vélakaupa i Gefj-
uni.
ÞRÓUNIN f IÐNAÐI
SAMBANDSINS Á ÁRINU
197«
Árið 1969 var hagstætt fyrir
iðnað samvinnufélaganna. Þrátt
1 samvinnuverksmiðjunum á
Akureyri vinna nú um 7 —
800 manns. Margt af kvenfólk-
inu vinnur þó ekki nema hálf-
an daginn. Þegar iðnaður sam-
vinnufélaganna hér á Akureyri
er tekinn saman í eina heild,
mun hann hafa fleira starfsfólk
í sinni þjónustu en nokkurt ann
að iðníyrirtæki á íslandi og þeg-
ar miðað er við fólksfjölda, er
augljóst, að Akureyri er mesti
iðnaðarbær á Islandi. Hér hef-
ur margs konar iðnaður náð að
þróast farsællega og það er
nokkuð almennt álit, að verk-
tækni iðnaðarfólksins hér á
Akureyri skari fram úr.
í iðnaði Sambandsins eru ull-
ar- og skinnavörur uppistaðan.
Verksmiðjurnar hér á Akureyri
voru upphaflega stofnsettar til
þess að vinna úr afurðum bænd
anna og þar með tryggja betri
markað fyrir ull og skinn. Segja
má, að þessi iðnaður hafi stuðl-
að mjög að því, að bændur fá
nú hærra verð fyrir þessar af-
urðir. Islenzkar gærur eru nú í
hærra verði en gærur af sauðfé
annarra landa og í sumum til-
fellum munar helming. Þá hef-
ur verð á íslenzkri ull farið
hækkandi, á sama tima og ull-
arverð á heimsmarkaði hefur
staðið í stað eða lækkað í verði.
Stórhækkun á hráefnisverði og
mikil hækkun á flestum fram-
leiðslukostnaðarliðum, veldur
nú vaxandi áhyggjum um mögu-
leika þessara iðngreina hér á
landi, að standast samkeppnina
frá hliðstæðum iðnaði annarra
landa. Söluverð á vélprjónuðum
ullarpeysum hefur heldur farið
lækkandi á erlendum mörkuðum
á undanfömum þremur árum.
Sú verðbólguþróun, sem nú
á sér stað hér á landi, hlýtur
að draga úr þeirri framþróun í
iðnaði, sem hér þarf að eiga sér
stað.
NÝ VERKSMIÐJA 1
BORGARNESI
Á undanfömum mánuðum hef
ur verið unnið að athugunum á
því, að komið verði á fót nýjum
iðngreinum. 1 þessum athugun-
um hafa augu manna beinzt að
þvi m.a., að komið verði upp
smærri iðngreinum, fullvinna
vörur úr þeim efnivörum, sem
unnar eru í Gefjuni og
Sútunarverksmiðjunum. Hefur af
hálfu Sambandsins verið talið
æskilegt, að jafnframt þvi, sem
undirstöðuverksmiðjurnar hér á
Akureyri verði efldar þá væri á
öðrum stöðum á landinu komið
upp smærri iðnaði í sam-
bandi við ull og skinn. 1 sam-
ræmi við þessa stefnu hefur ver
ið ákveðið, að setja á fót verk-
smiðju í Borgarnesi, sem mun
framleiða kuldahúfur úr skinn-
um, sem sútuð verða í nýju
sútunarverksmiðjunni hér á Ak-
ureyri. Verksmiðja þessi hefur
verið hönnuð af finnskum verk-
fræðingi hjá Friitalan Nahka. Á
verksmiðjan, sem veita um 15
manns atvinnu til að byrja með,
að taka til starfa fyrir árslok.
HUGMYNDABANKI
Fyrir ári var stofnað til hug-
Framhald á bls. 1S
Niótið þess að ferðast
:" " * < • I < 7
AfS. CULLFOSS f SEPTEMBER
FERÐIN 2. SEPTEMBER ER FULLBÓKUÐ.
NOKKUR FARÞEGARÝMI LAUS 16. SEPTEMBER.
Nánari upplýsingar hjá farþegadeild.
EIMSKIP.