Morgunblaðið - 26.08.1970, Blaðsíða 13
MORGUNBtLAÐlf), MI£>VIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1970
13
Sjötug í dag:
Björg Einarsdóttir
SJÖTÍU ára er í dag Bjöorg Ein-
arsdóttir, húsfreyja á Stapa í
Nesjahreppi, A-Skaft.
Hún fæddist 26. ágúst 1900 að
Holtum á Mýrum. t>ar bjuggu
þá foreldrar hennar hjónin Jó-
hanna Snjólfsdóttir og Einar
Þorleifsson, sem bæði voru ætt-
uð úr Nesjum.
Þegar Björg var í bernsku
fluttu foreldrar hennar búferl-
um að Mpðalfelli í Nesjum og
bjuggu þar upp frá þvi Voru
böm þeirra þrettán, komust
flqpt þeirra til þroska og eiga
marga afkomendur. Björg ólst
upp með foreldrum sínum og
systkinum og mun hún snemma
hafa verið liðtæk við störf úti
sem inni. Ekki mun Björg hafa
notið annarrar kennslu í æsku
en bamaskólalærdóms í stuttan
tíma, eins og títt var á þeim tím-
um. En síðar naim hún karl-
mannafatasaum á Seyðisfirði um
tíma. Hefur það löngum þótt
koma sér vel fyrir húsmóðurina
að geta sniðið og saumað á sig
og sína.
9. júní 1927 var mikill ham-
ingjudagur í lífi Bjargar er hún
giftist Sigurbergi Sigurðissyni á
Stapa, miklum mannkostamanni.
Hafa þau búið þar síðan og lengst
af í tvíbýli við systkin Sigur-
bergs. Hafa þau eignazt þrjú
börn: Sigurð b. Stapa, kvænt-
an Valgerði Gunnarsdóttur frá
Vagnsst., Rannveigu, húsfreyju,
Dynjanda, gifta Jens Ólsen frá
Reyðarfirði, bónda þar,. og Einar
bónda í Þinganesi, kvæntan
Hönnu Jónsdóttur frá Akumesi.
Em bamabörniin þrettén.
Frændur og vinir Bjargar Ein-
arsdóttur senda henni innilegar
hamingjuóskir á afmælisdaginn
og biðja henni allrar bleasunar
um ókomin ár.
Frændkona.
íbúð óskast
Læknir óskar að taka á leigu frá 1. desember rúmgóða
4ra—5 herbergja íbúð á góðum stað í bænum.
Raðhús kemur einnig ttl greiria.
Tilboð sendist afgr. Morgunblaðsins fyrir 5. september, merkt:
„Desember — 4025".
Kennara vantar
að Barnaheimilinu að Skálatúni i Mosfellssveit.
Handavinnukennsla stúlkna nauðsynleg.
Umsóknir sendist barnaheimilisstjóminni fyrir 15. sept. n k.
Lengið
sumarið
Tvær skemmtiferðir með m/s Gullfossi
til meginlands Evrópu
Fyrri ferð:
30. sept. til 19. okt.
Nokkur farþega-
rými laus fyrir
kr: 15.400 —
Seinni ferð:
21. okt. til 9. nóv.
Reykjavík, Dublin,
Amsterdam,
Hamborg,
Kaupmannahöfn, Leith.
Ferðizt ódýrt - Ferðizt með Gullfossi
Fæði og þjónustugjald innifalið:
Allar nánari upplýsingar veitir: FARÞEGADEILD EIMSKIPS, SÍMI 21460
H.F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS
NYTT NÝTT NYTT
MALLORCA MEÐ
3 DAGA VIÐ-
DVÖL í LONDON
BROTTFÖR 22. SEPT.
Vegna mikillar eftirspurna höfum við ákveðið, að bæta við
áætlun okkar, einni Mallorca-ferð með viðdvöl i London 3
daga. i þessari ferð er hægt að velja um dvöl í sömu hótelum
á Mallorca og hinum venjulegu Mallorca-ferðum Sunnu.
Fólki er ráðlagt að panta far sem fyrst.
ÓDÝRAR
VIKUFERÐIR
TIL MALLORCA
BROTTFARARDACAR 25. ÁCÚST
I. SEPT. OG 8. SEPT. VERÐ KR. 9,800,00
Vegna hagkvæmra samninga okkar við nýtt „tourist class"
hótel á Mallorca, getum við boðið Mallorca-ferðir með viku-
dvöl á hagkvæmara verði en áður hefur þekkzt. Öll herbergi
með steypubaði. Tvær sundlaugar og skemmtilegir veitinga-
salir. Innifalið í verði flugferðir, hótel og 3 máltiðir á dag.
5 DAGA FERÐ
Á EVRÓPUMÓT
ÍSLENZKRA
HESTAMANNA
lí RÍNARLÖNDUM
BROTTFÖR 4. SEPT. VERÐ 10.600.00
Evrópumót verður haldið í fyrsta sinn í Rínarlöndum í byrjun
september.
Koma þangað hundruðir manna víðs vegar úr Evrópu með ís-
lenzka hesta, sem sýna þar listir sínar og taka þátt i keppni.
Eru hestar sendir frá íslandi til þátttöku í keppni þessari. Til að
gefa sem flestum tækifæri til að heimsækja Rínarlönd í nokkra
daga, efnir Sunna til ódýrar ferðar þangað í þessu tilefni.
Fararstjórar verða Sveinbjörn Dagfinnsson, form Fáks, og
Gunnar Eyjólfsson, leikari.
MALLORCA
LONDON
Þægilegt dagflug alla þriðjudaga, beint til Palma á 5 klukku-
stundum með skrúfuþotu.
Þér veljið um dvöl á 1. flokks hótelum eða i nýtizku ibúðum
Hægt að velja um dvöl í 1—4 vikur. Tveggja daga viðkoma
í London í flestum ferðum.
125% fjölskylduafsláttur og sé^at I íffu
fyrir starfsmannahópa og félög,
samkvœmt samningum SUNNU við
hótel á Mallorca. Athugið að þegir er
upppantað í 3 ferðir og fá p'áss
í öllum hinum
mi
ferðaskrif stofa bankastræti 7
simar 16400 12070
NÝTT NÝTT NÝTT