Morgunblaðið - 26.08.1970, Síða 19

Morgunblaðið - 26.08.1970, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1970 19 Ingibjörg Ingimundar- dóttir — Minning HINN 18. ágúst lézt á Land- spítalanum Ingibjörg Irugimund- ardóttir, en útför hennar verður gerð í dag. Fyrir tæpum fimm árum tók hún þann sjúkdóm, er nú hefur orðið öllum mannl&g- um mætti yfirsterkari og leitt til þessara umskipta. Ingibjörg var komin af kunn- um vestfirzkum ættum, fædd 19. október 1915 á Kletti í Gufudals- sveit. Foreldrar hennar voru merkishjónin Sigríður Þórðar- dóttir og Ingimundur Þórðarspn er þar bjuggu. Þau hjónin eign- uðust átta börn, en misstu einn son í frumbernsku. Þá Ingibjörg var aðeins á níunda ári, missti húin föður sinn og stóð móðir hennar þá ein uppi með barna- hópinn, að undanskilinni elztu dótturinni, Þorbjörgu, er þá var farin að heiman til náms. S'igríður var að áliti allra, er hana þeikíktu, glæsileg og óvenju- lega vel gerð kona. Eftir lát manns síns tókst henni með ein- dæma dugnað'i og fyrirhyggju að halda saman heimilinu og koma öllum bömum sínum til manns, enda hlaut hún að launum ást þeirra og virðingu. sérstökum myndarbrag, og öllu er þar fyrir komið af smekkvísi og vitnar um þá alúð, sem hús- móðurinni var svo eiginlegt að sýna við öll sín störf. Enda var þar gott að koma og með þeim að dvelja. Ingibjörg var mjög vel að sér í sinu fagi, matreiðslunni, ákaf- lega rösk til verka, stjórnsöm og því til þess kjörin að hafa manna forráð. Enda naut hún trausts og virðingar allra er höfðu af henni einfhver kynni. Störf henoaar eru orðin mikil, bæði utan heimilis og innan, þótt ævin yrði ekki lengri. Hún hefur fljótt gert sér ljóst að „tíminn er fugl, sem flýg- ur hratt“ og megnaði því að af- kasta meiru í lífinu en margur, sem er eldri að árum. En hún átti einnig það í fari sinu, sem kryddar lífið, ef svo má að orði komast. Hún var gædd góðum listasmekk, músíkölsk og hafði fallega söngrödd og mikla ánægju af lestri góðra. bóka. í önn dagsins gaf hún sér einn- ig tima til að setja sig inn í og fylgjast með þjóðmálum. Hún hafði og skilning á gildi mennt- unar í nútímaþjóðfélagi, og því lagði hún sig fram úm að synir sínir hlytu hina beztu menntun við sitt hæfi. Mi'kil vinátta hefur ætíð verið á milli heimila okkar og höfum við átt með þeim hjónum marg- ar ánægjustundir, sem ljúft er að minnast og þakka. Mikill harmur er við fráfall Ingibjargar kveðinn, að eigin- manni hennar, sem gerði allt sem í hans váldi stóð til að létta henni þungbær veikindi, sonum hennar, sem eiga mömmu sinni svo ólýsanlega margt upp að inna, og öðrum ástvinum. Votta ég og fjölskylda mín þeim öllum dýpstu samúð. Og henni, sem hér er kvödd, bið ég guðs blessunar. Bergljót Guttormsdóttir. Ég á erfitt með að átta mig á að vinkona mín sé fallin frá svo langt fyrir aldur fram. Mynd hennar kemur upp í hugann eins og hún var, er leiðir okkar tóku fyrst að liggja saman, þá ungar að árum. Ingibjörg var hraust- byggð og hafði aldrei kennt sér meins framan af ævi. Hún var kona fagur'limuð með mikið og fallegt hár, sviphrein og með akýrleg, græn augu, drenglunduð og hreinskiptin. En það sem ef til vill einkenndi hana mest var hinn mikli þróttur og sú lífs- orka, er með henni bjó. Einis og áður er vikið að ólst Ingibjörg upp í glöðum og mynd- arlegum systkinahópi, er öll vonu mjög saanrýnd, og var hún þeirra næst ynigst. Þegar okkar kyrusilóð var að vaxa úr grasi, var ekki mikið uim að Stúlkur legðu út i langskólanám. Því var það, að er Ingibjörg hafði aldur til fór hún að vinna á Hótel Skjald- breið hér í Reykjavik. Það hótel ráku þá systurnar Steinunn og Margrét Valdimarsdætur, sem mörgum Reykvíkingum eru að góðu kunnar. Sá staður varð Ingibjörgu sem hennar annað heimili í nær fjögur ár. Dvölin þar varð henni hinn bezti undir- búningsskóli undir lífið, og mun þar hafa vaknað áhugi hennar á að læra matreiðslu- og fram- reiðslustörf. Um þetta leyti unn- um við saman eitt sumar á hóteli í Borgamesi og dáðist ég að, hve mikla kunnáttu og leikni hún hafði þá þegar í störfum. Brátt lá leið Inigibjargar til Kaup- mannahafnar til að læra frekar matreiðslu og kynnast hótel- rekstri. í Höfn gafst henni kær- komið tækifæri til að dvelja af og til hjá systrum sínum, Ing- unni (Iingu) og Þorbjörgu. En þeirra myndarlegu heimili eru mörgum íslendingum vel kunn, sem leitað hafa til Danmerkur. Eftir að Ingibjörg kom heim frá Höfn, haustið 1939, starfaði hún næstu ár hér í Reykjavík og einnig á hótelum úti á landi. Um tíma kenndi hún matreiðslu við Húsmæðraskóla Reykjavíkur, og var mér kunnugt að frú Hulda Stefánsdóttir, þá forstöðukona, lagði hart að henni að halda því starfi áfram. En um þetta leyti urðu þátta- skil í lífi hennar. Hinn 18. nóvem- ber 1944 giftist Ingibjörg eftirlif- andi manni sinum, Gísla Krist- jánssyni verkstjóra. Eignuðust þau tvo syni, Ingimund, sem stuindar nám í læknisfræði, og Gunnstein, teiknikennara og list- málara. Heimili þeirra er með Auglýsing um skoðun bifreiða og bifhjóla í lögsagnarumdæmi Reykjavíkur. Aðalskoðun bifreiða og bifhjóla í lögsagnarumdæmi Reykja- víkur mun fara fram 24. ágúst til og með 30. september n.k.. sem hér segir: Mánudaginn 24. ágúst R-15001 til R-15150 Þriðjudaginn 25. ágúst R-15151 til R-15300 Miðvikudaginn 26. ágúst R-15301 til R-15450 Fimmtudaginn 27. ágúst R-15451 til R-15600 Föstudaginn 28. ágúst R-15601 til R-15750 Mánudaginn 31. ágúst R-15751 til R-15900 Þriðjudaginn 1. september R-15901 til R-16050 Miðvikudaginn 2. september R-16051 til R-16200 Fimmtudaginn 3. september R-16201 til R-16350 Föstudaginn 4 september R-16351 til R-1^00 Mánudaginn 7. september R-16501 til R-16650 Þriðjudaginn 8. september R-16651 til R-16800 Miðvikudaginn 9 september R-16801 til R-16950 Fimmtudaginn 10. september R-16951 til R-17100 Föstudaginn 11. september R-17101 til R-17250 Mánudaginn 14. september R-17251 til R-17400 Þriðjudaginn 15. september R-17401 til R-17550 Miðvikudaginn 16. september R-17551 til R-17700 Fimmtudaginn 17. september R-17701 til R-17850 Föstudaginn 18. september R-17851 til R-18000 Mánudaginn 21. september R-18001 til R-18150 Þriðjudaginn 22. september R-18151 til R-18300 Miðvikudaginn 23 september R-18301 til R-18450 Fimmtudaginn 24. september R-18451 tll R-18600 Föstudaginn 25. september R-18601 til R-18750 Mánudaginn 28. september R-18751 til R-18900 Þriðjudaginn 29. september R-18901 til R-19050 Miðvikudaginn 30. september R-19051 til R-19200 Bifreiðaeigendum ber að koma með bifreiðar sínar til bif- reiðaeftirlitsins, Borgartúni 7. og verður skoðun framkvæmd þar alla virka daga kl. 09.00 til 16.30, einnig í hádeginu, nema mánudaga til kl. 17 30 til 30. apríl, en til 16.30 frá 1. maí til 1. okt. Aöalskoðun verður ekki framkvæmd á laugardögum. Festivagnar, tengivagnar og farþegabyrgi skulu fylgja bif- reiðunum til skoðunar. Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna leggja fram fullgild ökuskírteini. Sýna ber skilríki fyrir því, að bifreiðaskattur og vátryggingariðgjald ökumanna fyrir árið 1970 séu greidd og lögboðin vátrygging fyrir hverja bifreið sé í gildi. Þeir bif- reiðaeigendur, sem hafa viðtæki í bifreiðum sínum, skulu sýna kvittun fyrir greiðslu afnotagjalda til ríkisútvarpsins fyrir árið 1970. Ennfremur ber að framvísa vottorði frá viðurkenndu við- gerðarverkstæði um að Ijós bifreiðarinnar hafi verið stillt. Athygli skal vakin á þvi, að skráningarnúmer skulu vera vel læsileg. Vanræki einhver að koma bifreið sinni til skoðunar á rétt- um degi, verður hann látinn sæta sektum samkvæmt umferðar- lögum og lögum um bifreiðaskatt. og bifreiðin tekin úr um- ferð, hvar sem til hennar næst. Þetta tilkynnist öllum, sem hlut eiga að máli. Lögreglustjórinn I Reykjavík, 24. ágúst 1970. Sigurjón Sigurðsson. Jónína Valgerður Sig- urðardóttir — Kveðja Fædd 27. desember 1893. Dáin 19. ágúst 1970. Skamimt varð milli Miðkotghjóna, — Maðurirm með ljáimn sinn heggur ótt, af ofsa og móði, óspart brýnir tólin stinn. Kveðja skai með litlu ljóði, lífssitanf þafcka heiðuirsfljóði. Þegar horfið allt er yndi, — ástviruur og herlisa á braut, þá er eftir enigu að bíða öðiru en kveðja jarðlífsþraut. Eilífð faðminm opnar blíða, enginn þekkir sorg né kvíða. Vinnufús, til verka iðin, vel hún stóð við Friðriks hlið. Það var honuim hæsta gæfa, — henini æðsta takmarkið. Bæði reynduist hinu hæfa heil'latök að þroska og æfa. Þegar einihvern bölið beygði boðin löngum aðstoð var. Móðuirlaust var barn oft borið beina leið til húsa þar. Þeir, sem eilsika æskuvorið, upp fá rífculega skorið. Lenigi verður mér í minni Miðkotsbær og gengin hjón. Gestrisni og gleði í ranni gaf þar öl!lu léttan tón. Æ þar rikti arndinn sanini. — Ekki gleymist þessi svanni Auðunn Bragi Sveinsson. Op/ð allan sólarhringinn — Sími 51666 B.S.H. — Bí/astöð Hafnarfjarðar Óska eftir að ráða ábyrga konu til að hugsa um heimili i Vesturbæ, 4 daga í viku, fyrripart dags, í fjarveru húsmóður. Þarf að geta unnið sjálfstætt. Tilboð er greini aldur, sendist dagbl fyrir 28. þ.m. merkt: ..Ábyrg — 4411". Rösk og ábyggileg aðstoðarstúlka óskast á tannlæknastofu í Miðborginni strax. Umsókn merkt: „4966" leggist inn á afgreiðslu blaðsins. Landeigendur athugið Starfsmannahópur óskar eftir að fá keypta eða leigða eyði- jörð, innan við 150 km frá höfuðborgarsvæðinu. Eins kemur til greina að kaupa góðan landshluta Æskilegt er að landið sé við á eða vatn. Sölu- eða leigutiiboð sendist á afgr blaðsins fyrir 30. þ m. merkt: „4840”. Sendill Sendill óskast nú þegar Vinnutimi eftir hádegi. Aldurstakmark 15 ára vegna heimildar til aksturs á vélhjóli. Upplýsingar í síma 38540. Tilboð óskast í Renault 12 fólksbifreið árgerð 1970 í núverandi ástandi, en bifreiðin er allmikið skemmd af eldi Bifreiðin verður til sýnis á verkstæði Hafrafells, Grettisgötu 21, Reykjavík í dag og á morgun Tilboðum sé skilað til Samvinnutrygginga, Tjónadeild, Ármúla 3 fyrir kl. 12 á hádegi, föstudaginn 28. ágúst 1970.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.