Morgunblaðið - 29.09.1970, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 29.09.1970, Blaðsíða 30
30 MORGUÍNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. SEÍPT. 1970 Evertonmenn koma í dag JLeikurinn er á ENGLANDSMEISTARARNIR í knattspyrnu, liðsmenn Everton eru væntanlegir tii Keflavikur í ílag kl. 3.45 með einkaþotu. Leika þeir hér við Keflvíkinga annað kvöld á Eaugardalsvelli, en halda síðan heimleiðis að snæðingi loknum eftir leikinn. Everton liðið er nú komið aft- ur í sinn kunna sigurham. Það hefur unnið fjóra síðustu leiki sína í Englandi og komið sér á góðan stað á töflunni eftir erf- iða byrjun, sem vakti mikið um- tal. Evertonliðið hefur annars ver- ið sigursælast liða í ensku deild- morgun kl. 5.30 inni á sl. áratug, hefur 9 sinnum verið í 6. sæti eða ofar og einu sinni í 11. sæti. Tvívegis hefur liðið unnið Englandsmeistara- tign og tvívegis verið í úrslita- leik um enska bikarinn. Nú vona allir unnendur knatt- spyrnu eftir góðu veðri en leik- urinn verður kl. 5.30 á morgun. Sala aðgöngumiða hefur stað- ið yfir undanfarna daga og í dag er selt frá kl. 2—6 við Útvegs- bankann og á morgun kl. 9—3, en síðan á veilinum. Segja Keflvíkingar að forsalan gangi vel. Sjálfsmark gaf aukaleik VALUR sá til þess á sunnudag- inn með sigri yfir Kelfavík 2:1, að fslandsmótinu er enn ólokið. Þrátt fyrir að endir var bundin mjög skyndilega á baráttuna um hikarinn, þá er Akurnesingar unnu Keflvikinga 2:1 og að örlög Vikinga urðu kunn löngu fyrir mótslok, fáum við eigi að síð- ur aukaleik í mótinu. Það er Keflavík og Fram sem munu berjast um annað sætið, en það veitir nú rétt til þátttöku i Borga keppni Evrópu að ári. Valsmenn voru ágengir mjög og ákveðnir frá byrjun, en Kefl- víkingar tóku lifinu létt og þótt- ust öruggír með allsterkan vind í bakið. En móti þessu roki börðust Valsmenh af ákveðni og oft með góðum tilþrifum. Góðar sóknar- lotur þeirra báru árangur á 18. Akranes — Sparta 1 KVÖLD leika Akurnesingar siðari leik sinn gegn Sparta Hol- landi í Borgarkeppni Evrópu. Leikurinn fer fram á velli ADO í Haag. mín. er Jóhannes Eðvaldsson hóf sókn og frá honum gekk knött- Framhald á 1)1 s. 23 Landsliðsmennirnir Ólafur (t.v.) og Einar eigast við. — (Ljósm. Mbl. Sv. Þonm.) Haustsvipur á hand- boltaleikjum ÍR og KR unnu, Valur og Víkingur skildu jafnir ÞAÐ KOM i ljós á fyrsta kvöldi Reykjavíkurmótsins í handknatt- leik á sunnudag, að haustsvipur er á leik liðanna enn og nokkurt kæruleysi umfram það er síðar verður og mótslokin taka að nálg- ast. Er nú sem fyrr erfitt að fá liðsmenn til æfinga fyrir alvöm meðan knattspyrnan er enn í fulliim gangi. En vonandi lagast þetta fljótt. staðan varð 15:13 KR í vil. Unnu þvi Þróttarar siðari hálfleik með 10:4. Þetta var þvi vægast sagt einkennilegur leikur. GRÓFUR VARNARLEIKUR Reykjavikurmeistarar Vals mættu Víkingum og leikurinn Framhald á bls. 23 ÍR VANN FYRSTA LEIKINN Auk margra leikja i yngri ald- ursflokkum voru leiknir 3 leik- ir í meistaraflokki karla fyrsta kvöldið. iR og Ármann mættust í fyrsta ,stóra leiknum". iR-ingar höfðu yfir allan tímann og gott for- skot í fyrri hálfleik. I hléi var staðan 11:7 ÍR í vil. Er á leið sóttu Ármenningar Glæsilegt af- rek Erlends — kastaði kringlunni 59,58 m ERLENDUR Valdimarsson, ÍR, setti glæsilegt Islandsmet í kringlukasti á svokölluðu „kastmóti ÍR“, er fram fór sl. laugardag. Bætti Erlendur met sitt um rúmlega 1 metra og kastaði 59,58 metra. Skip- ar Erlendur sér þar með á bekk með fremstu kringlu- kösturum heims og ætti hann að hafa góða möguleika á að ná 60 metra markinu þegar í haust. Hagstætt veður var til keppni í kringlukasti á laug- ardaginn, en Erlendur hefur hingað til ekki hagnazt svo ýkja mikið á því þótt hvasst Erlendur Valdimarsson sé þegar hann keppir. Hefur hann t.d. hvað eftir annað kastað 55-57 metra í logni í sumar. Erlendur setti einnig annað met á þessu sama móti, í lóða kasti, sem er lítt kunn íþrótta á og tókst eitt sinn að jafna 13:13, en ÍR náði aftur yfirhönd inni og komst í 16:14 og það tryggði sigurinn þó Víkingar hefðu síðasta orðið og leik iykt- aði 16:15 ÍR i vil. SVIPTINGAR í leik Þróttar og KR urðu um- svif mikil. Ungt Þróttarlið var í byrjun eins og leikfang í hönd- um KR-inga og í hálfleiknum skoraði KR 11 mörk gegn 3. í síðari hálfleik snerist þetta við og nú tóku Þróttarar öll völd á vellinum. Þeir söxuðu jafnt og þétt á forskot KR og loka- Leikvr £6. aeptember 1970 i X 2 Bumley — Wolvea 2 2 - 3 Chelsea — Ipswich ^ . / 2 • 1 Everton — Cryslal P. / 3 - 1 Huddersfld — West Ham X 1 - 1 Man. Utd. — Blackpool X 1 - 1 Newcastle — Coventry X 0 - 0 Notth. For. — Leeds X 0 - o Soutb’pton — Livcrpool / / - o Stoke — Arsenal / S - 0 Tottenham — Man. City i Z - 0 W3A. — Derby i 2 - 1 Middleshro — Q.P.R. i é - 2 185 þús. fyrir „flýtisverk66 — Ég var mjög að flýta mér og mátti í raun og veru ekki vera að því að hugsa neitt um hvemig ég fyllti út seðUinn, sagði einn af leik- mönnum knattspyrnunnar í Reykjavík, er hann tilkynnti seðU sinn til Getrauna með 11 réitum lausnum. Allt var í lagi með útfyll- inguna og hann var einn með 11 réttar lausnir og fær u. þ. b. 185 þús. kr. fyrir „flýtis- verkið“. Fjórir seðlar r-eyndust vera með 10 réttum lausnum og koma um 20 þúsund krónur í hlut hvers. Þetta var 28. leikvika Get- rauna og jókst nú enn í pott- inum. Voru þar um 265 þús. kr., en nákvæmt uppgjör er ekki fyrir hendi. Enn hef- ur komið í ljós ágæti þess fyr- irkomulags að skipta verðlaun unum í L og 2. verðlaun. Valbjörn tugþrautar- meistari 10. árið í röð — M.Í. í frjálsíþróttum lauk um helgina grein hérlendis. Er Ióðinu kastað á svipaðan hátt og sleggju, en það er hins vegar rúmlega helmingi þyngra, eða 15 kíló. Kastaði Erlendur lóðinu 16.09 metra. í TÍUNDA skiptið í röð varð Valbjörn Þorláksson, Á, íslands- meistari í tugþraut, en tugþraut- arkeppni Meistaramóts íslands fór fram á Laugardalsvellinum um helgina. Hlaut Valbjörn 6425 stig að þessu sinni, en veður var mjög óhagstætt til keppni, sérstaklega þó á laugardaginn. Annar í tugþrautinni varð hinn efnilegi ÍR-inigur, Elías Sveinsson, og hlaut hann 6083 stig, og þriðji varð Stefán Hall- grimsson, UÍA, sem hlaut 6035 stig, sem er nýtt UÍA met. Var keppnin milli þeirra Elíasar og Stefáns mjög skemmtileg, og var ekki úr því skorið fyrr en í síð- ustu greininni, 1500 metra hlaup inu, hver hlyti silfurverðlaunin. I fjórða sæti í þrautinni varð Hafsteinn Jóhannesson, UMSK, og náði hann sínum bezta ár- angri í greininni, 5525 stigum. Aðrir keppendur voru Guð- mundur Jóhannesson, HSH, sem hlaut 4921 stig, Karl West Fredr- eksen, UMSK, sem hlaut 4479 stig og Siigurður Kristjánsson, ÍR, sem hlaut 3945 stig. Árangur Valsbjörns í einstök- um greinum var þessi: 100 m hlaup 11,2 sek., langstökk 6,58 m, kúluvarp 12,58 m, hástökk 1,74 m, 400 metra hlaup 54,8 sek., 110 metra grindahl. 15,3 sek., kringlukast 37,10 m, stangar- stökk 4,00 m, spjótkast 52,22 m, og 1500 metra hlaup 5:49,5 mín. Sem fyrr segir er þetta í 10. skiptið í röð, sem Valbjörn verð- ur íslandsmeistari í þessari grein og er það glæsilegt afrek út af fyrir sig. Á sunnudaginn var einnig keppt í 10 km hlaupi og þar varð Islandsmeiistari hinn ungi ÍR -ingur, Sigfús Jónissom, sem hljóp á 33:34,8 mín., sem er mjög þokkalegur tími miðað við að- stæður. Sex keppendur voru 1 hlaupinu og varð Ágúst Ásgeirs- son, ÍR, í öðru sæti á 33:58,8 mín. og Gunnar Snorirason, UMSK, þriðji á 36:21,0 mín. Þá var einnig keppt í þeim tveimur kvennagreinum, sem eft- ir voru frá aðalhluta meiistara- mótsins. f fimmitarþraut lauk að- eins ein stúlka keppni, Kristin Björnsdóttir, UMSK, sem hlaut 2690 stig. í 400 m hlaupi varð svo Hafdís Ingimarsdóttir, UMSK, sigurvegari og hljóp hún á 65,2 sek., öninur varð Björg Kristjánsdóttir, UMSK, á 65,5 sek. og þriðja Guðbjörg Sigurð- ardóttir, ÍR, á 71,5 sek.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.