Morgunblaðið - 29.09.1970, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 29.09.1970, Blaðsíða 32
VÁTRYGGINGAFÉLAGIO HF. HATÚN 4A REYKJAViK SlMI 25850 25851 SfMNEFNIj SAMVA ior$nwM&í)ííí> KÆLISKAPAR FRYSTIKISTUR RAFTORG SÍMI. .. 26660 RAFIÐJAN SÉMI. .. 19294 ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1970 Úrslit í prófkjör- inu í Reyk j av ík Atkvæði greiddu 9271 PRÓFKJÖRI Sjálfstæðis- manna í Reykjavík lauk í gærkvöldi og hófst talning þegar er kjörstað var lokað og lauk henni um kl. 3.30 í nótt. Atkvæði greiddu 9271, en auðir og ógildir voru 149. Úrslit urðu sem hér segir: 1. Geir Hallgrímsson, 6605 atkvæði 2. Jóhann Hafstein 6040 atkvæði Maður drukkn- ar í Húnaflóa ÞRJÁTÍU og átta ára gamall maður drukknaði í Húnaflóa í grennd við eyna Grímsey, sem er við mynni Steingrímsfjarð- ar. Slysið var síðastliðið laugar- dagskvöld og í birtingu á sunnu- dag fannst maðurinn örendur í flæðarmálinu í Grimsey. Hann Otaði hnífi ÞRÍTUGUR maður var handtek- inn í Umferðarmiðstöðinni snemma sunnudagsmorguns fyr- ir að ota hnáfi að fólki. Þegar lögreglan kom á vettvang hafði einn viðstaddra reynt að ná hnífnum af manninum með þeim árangri einum að skerast lítillega á hægri hendi. Lögreglunni tókst að ná hnifnum af manninum vandræðalaust. Vi)ð yfiríhieyrslu á sumniudag kvaðst miaðurinm ekkert muina fró því, sem gerðist í Umíerðar- mdðstöðinind, en kvaðst hiafa haft Ihinjífiinin að lámii frá kunmimigja sín- uim. hét Hörður Jóhannsson, vélvirki, Hvammstanga. Lætur hann eftír sig konu og tvö börn, 14 og 16 ára. Samkvæmt upplýsingum, aem Mbl. fékk frá Slysavarnafélagi fslands, hafði Hörður farið í skemmtisiglingu éinn sins liðs á laugardag á plastbáti með utan- borðsvél. Um kl. 20,30 varð heimilisfólk á bænum Sauða- dalsá á Vatmsnesi vart við bát- inn úti á flóanum. í honum sá það mann og jafnframt virtist eitthvað vera að, því að bátimn rak undan vindi og stefndi á Grímsey. Fólkið gerði strax viðvart. Björgumarsveitin á Hvamms- tanga mannaði þegax í stað bát- inn Straum SI 222 og fór til að- stoðar, en þar eð skuggsýnt var orðið, fannst ekki báturinn. Þá voru gerðir út tveir bátar frá Drangsnesi og 4 frá Hólmavík og fannst þá báturinn um kl. 10, en mannlaus. Árla á sunnudagsmorgun, er birti var hafin leit að Herði. Fannst hann þá í flæðarmálinu Grímeey. Er talið að Hörður heitinn hafi ætlað að freista þesa að ná landi í Grímsey á sundi'. 3. Gunnar Thoroddsen 5738 atkvæði 4. Auður Auðuns 5584 atkvæði 5. Pétur Sigurðsson 4568 atkvæði 6. Ragnhildur Helgadóttir 3990 atkvæði 7. Ellert B. Schram 3919 atkvæði 8. Birgir Kjaran 3443 atkvæði 9. Geirþrúður Bernhöft 2990 atkvæði 10. Ólafur Björnsson 2892 atkvæði 11. Hörður Einarsson 2381 atkvæði 12. Guðmundur H. Garðarsson 2340 atkvæði. Bifreiðin eftir veltuna. Ljósm. Friðþjófur. Bílvelta í Hvalfirði LAUST fyrir kl. 13,00 á laug- ardaginn varð það óhapp að bif- reið valt út af veginum skiammt fyrir vestan Kalastaði á Hval- fjarðarströnd. Bifreiðin var á leið suður, er skymdilega sprakk á hjólbarða á afturhjóli og við það miun ökumanni hafa fatazt stjórnin og fór bifreiðin út af veginum og hafnaði á hvolfi, sem áður er sagt. Fjórir fullorðnir og tvö börn voru í bifreiðinni og voru öku- maður og einn farþegi fluttir í sjúkrahús á Akmnesi og munu meiðsli þeirra ekki bafa verið al- varleg, en aðrir sluppu ómeidd- ir. Mjög hvasst var í Hválfirð- inum á laugardag þegar slysið varð og hefur það efiaust átt sinn þátt í því hvernig fór. Bif- reiðin er mikið skemmd eftir veltuna. Kanna styrkleika fiskistofna — með seiðarannsóknum umhverfis ísland í SUMAR hafa farið fram fyrsta sinni rannsóknir á ungfiski og «r ætlunin að halda þeim áfram í framtíðinni. Með þessum rann- sóknum er ætlunin að komast að því og geta sagt til um það fyr- irfram, hve sterkir árgangar verða. Enn er lítið unnt að full- yrða, þar eð rannsóknir þessar eru á byrjunarstigi og saman- burð skortir. Að þessum rann- sóknum hafa unnið fiskifræðing- amir Hjálmar Vilhjálmsson og dr. Sigfús Schopka. Morguníblaðið ræddi í igær við dr. Sigfús og sagði hann aið fyrsta rannsóknarferðin hefði verið fair- iin fyrstu vilkuma í ágúst. Svæðdð, sem kaimniað vair, var undan Vest- urlandi og fu.ndust þar 'aðallega spærlings- og karfaseiði og einn- ig llítið af þorsk- og ýsuseiðum. Samhliða þeissum rannsóknum, sem fóru fnam um borð í Arma Friðrilkssyni var noráka stkipið Geo Sarz við rannsókniir í Græn- Fréttaritari Mbl. á slysstað: Kraftaverk nokkur lifði af Endaslepp ökuferð ÞAÐ er eikki von, að ökuferðir verðd langtar, iþegar vélin er víðs- fjarri bítauim,. Þetta félkk sá að reyma, siem í fyrriiraótt sital Fiat- bíl fyrir utan verkstæði í Ár- múla og hafmaði fyTÍr dyrum iðmarahiúiss nieðian brelkkunnar. Ætla rraá þó, alð lakkrísiimn, siem ökumaðiur þesisi s-tal í yerksmiðju í mágremmdimu, hjafi eitthvað bætt horaum það, siem á ökiuferðiraa vantiaði. Bílliimn skiemmdiist lítið eitt en meira siá á hurð og dyra- uimibúimaðd iðmiaðarhúss'iins. landishafi. Fairan það aðalleiga karfa. Rannsóknix þesaar enu fram- kvæmdar í samvánmu fjögrra þjóða íslendiniga, Þjóðverja, Norðimaimna og Breta. IHinn 20. ágúst kom þýzlka ranmsóknarslkipið Anton Dohrn Framhald á bls. 31 Seldu fyrir tæpar 28 milljónir SlÐASTLIÐNA viku seldu ís- lenzk síldveiðiskip 1930 lestir af síld í Danmörku fyrir 27.9 millj- ónir króna. Meðalverð á kg er 14.48 krónur, sem er heldur lak- ara, en vikuna áður. Hæsta sal- an var hjá Heimi SU, sem seldi hinn 24. september 106 lestir fyr- ir 1.660.000 krónur. Meðalverð er riimar 17 krónur. Síldveiðiskipin hafa fengið þennan afla við Hjaltland eða á slóðum þar í kring. Skipunum ytra hefur nú fækkað eitthvað, en talið er að 18 til 20 skip séu enn við veiðar. EINN af fréttamönnum Mbl. kom á slysstaðinn í Mykinesi í gærmorgun. Hann lýsir að- komunni svo, íið flakið liggi í þremur hlutum á slysstaðn- um, nefið fram að væng sé í heilu lagi en mjög illa far- ið. Skrokkurinn hafi farið í sundur við aftanverðan inn- ganginn og smii stélið öf- ugt. Vængirnir eru heilir, en vinstri skrúfan hefur farið af, þegar flugrvélin skall 1 jörðina. Augsýnilegt sé, að niesta höggið hafi komið á vinstri hreyfil. Þar seim vélin skall niður er grjóturð, en þremur til fjórum metrum framan við þann stað, sem tuin stöðvaðist á er slétt tún. Manni dettur fyrst í hug, þeg ar komið er á slysstað, að það sé kraftaverk að nokkur skyldi hafa komizt af, segir fréttamaður blaðsins. Svo dimm var þokan yfir fjallinu, þegar flugvélin fórst, að færeyski Ieitarmaðurinn, sem kom fyrstur á vettvang sá ekki handa skil og fann ekki flakið, fyrr en hundur- inn hans hafði vísað honum á það. Flugmaðurinn á þyrlunni, sem flutti hina særðu í sjúkra hús, vann mikið afreb við erfiðar aðstæður sagði frétta- ritarinn að lokum. Flakið liggur sunnanvert á fjalistoppinum. Eitt skip með 1000 tunnur SLÆMT veður var á síldveiði- miðunum við Vestmannaeyjar í fyrrinótt og fengu nokkrir bát- ar frá smáslöttum og upp í 500 tunnur. Eitt skip skar sig þó úr, Þorsteinn RE, sem fékk 1000 tunnur af síld. Síldarleitarskipið Árni Friðriksson er nú um 70 milur austur af Jan Mayen og er leiðangursstjóri Jakob Jak- obsson, fiskifræðingur. Mbl. ræddi í gær við Jakob, sem sagði að þeir væru nú að komast á þær slóðir, sem síldar- gömgurnar voru hvað mestar á haustin fyrir nokkrum árum norður í höf. Engin skip hafa verið á þessum slóðum undan- farið og taldi Jakob nauðsynlegt að ganga úr skugga um hvort nokkur ganga væri þar nú, svo sem haustin góðu. Jakob sagði að þeir hefðu ekki orðið varir við neinar síldartorf- ur enn sem komið væri, en dá- lítið af dreifðri síld er þar viða í austurdjúpi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.