Morgunblaðið - 03.12.1970, Page 18

Morgunblaðið - 03.12.1970, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. DBSíEMBER 1970 — Matvælasýningin henni allur vökvi. Þannig á hún svo að geymast vel, og þeg- ar hún er matreidd, er hún soð- in i vatni og tekur aftur í sig vökvann. Ég kom í sýningarbás fyrirtækisins Blanchaud, sem byrjaði á slíkri framleiðslu fyrir tveimur árum og rekur fimm verksmiðjur fyrir slíkar þurr- frystar matvörur, í héruðum ná- lægt ræktunar- eða framleiðslu stöðvum í Frakklandi og eina í Belgíu. Matvaran kemur þá í ákaf- iega léttum dósum og pökkum. Þama sá ég kaffi, ávaxtasalat, rækjur í dósum og í pökkum blandaðan réft með bjúgum, skinku og steiktu kjöti. Einnig ábætisrétt með ávaxtabitum í sangría eða rauðvínsblöndu. Fékk ég þær upplýsingar, að þetta væri nýkomið á markað- inn eða fyrir um það bil ári. Þurrfrystur fiskur hefði verið á tilraunastigi hjá fyrirtækinu og væri nú að koma á markaðinn. En þurrfryst kjöt væri enn á til raunastigi, þó komið vel á veg. Kváðust forráðamenn sannfærð- ir um að þarna væri framtíðar- geymsluaðferð. Bæði geymdist matur vel þannig og væri mjög meðfærilegur. Auk þess væri mikið hagræði í að flytj'a svo létba vöru, þegar um einhverjar vegalengdir er að ræða. Skyldi slikt eiga eftir að létta okkur Is lendingum útflutning um langan veg? Ég sá á myndum úr einni verksmiðjunni hvernig sveppir eru þurrfrystir. Þeir eru hreins aðir og settir á 5 sm háa bakka, sem síðan fara í kuldaherbergi, í fyrstu ekki mjög kait, en siðan hægt og hægt í meiri kulda, allt niður í 35—40 stiga fro«t og vatnið fer smám saman úr þeim. Þessi aðferð til geymslu á mat væluim var einnig kynnt í deild, sem nefndist „Nýjungar í mat- vælaframleiðslu“ og rædd á um- ræðufundi, sem efnt var til um slíkar nýjungar. Þarna voru kynntar og ræddar tiiraunir, sem eru í gangi viðs vegar um heim á sviði matvælafram leiðslu, eins og líka var gert á fyrri SIAL sýningum, 1966 og 1968. Þama voru bæði vörur sem ekki eru á markaði, vörur sem komu á markað í löndun- um eftir 1. jan. 1970 og vörur á tilraunastigi, sem sáust nú fyrst á SIAL. Þessar nýjungar komu frá 13 löndutm. Virðist áberandi hve mikil áherzla er lögð á til- raunir til nýrra geymsluað- ferða, til framleiðslu á megrun arfæðu og léttri fæðu með nægj- legum eggjahvituefnum og víta- mínum fyrir fátæku löndin. Þarna sá ég margt skrýtið. Þama voru Japanir með kæld- an rjóma sem geymist vel í um- búðum eins og undir hárlakk, og er sprautað út með þrýstingi. Bandarikjamenn sýndu brauð úr fiskimjöli, sem er á tilrauna- stigi og ætlað vannærðu fólki í fátæku löndunum. Einnig sáust vítamínríkir, þurrkaðir soya- baunaréttir frá FAO ætlaðir i sama skyni. Þá var þama tilbú inn réttur, hakkaðar þurrkaðar kökur úr skinku og nautakjöti. Og þarna voru tilbúnar á pönn una, kökur úr fiski og svína- kjöti, sem fullyrt var að ekk- ert fiskibragð væri að. Það var þó sagt enn á tilraunastigi. Þarna var alls konar hollur matur, þjappaður i piilum, eins og ávaxtasafi, eggjahvítuefni o. fl., duftrjómi, sem má þeyta, frystiþurrkaðar omelettur og margar kaffitegundir, wisky í sprautupakkningum, vodka í formi græns dufts frá Afriku, Skuldabréf fasteignatryggð til 8—10 ára óskast. Ennfremur rlkistryggð bréf til 15 ára. FYBIRGREIÐSLUSKRIFSTOFAN Fasteigna- og verðbréfasala Austurstræti 14, sími 16223. Þorleifur Guðmundsson heima 12469. Jólafundur Kvenstúdentafélags Islands verður haldinn í Þjóðleikhús- kjallaranum í kvöld fimmtudaginn 3. desember. 25 ára jubilantar frá M.A. sjá um fundinn. Jólahappdrætti. Seld verða jólakort Barnahjálpar Sameinuðu Fundurinn hefst með borðhaldi kl. 8. þjóðanna. Þátttaka tilkynnist í síma 19636. STJÓRNIN. ^ólalóh in l ar verður W ÆT TIBRA skáldsaga eftir Kristnu M. J. Bjömsson, skáldið, sem ann heilbrigðri ást en hefur óbeit á kynórum og klámgræðgi. flöalfundur Fulltrúardðs Sjálfstæðisfélaganna í Kópa- w&tn ? Wm vogi verður haldinn í Félags- tSÓÍBÍ&i: ^ ,ÍjHH heimilinu (niðri) n.k. laugar- dag 5. des. kl. 3 síðdegis IÍÍ^hL>4 : x ' mííwÍm} Forsætisráðherra JÓHANN HAFSTEIN mætir á fundinum og ræðir lUmÍm um hagnýtingu landgrunnsins. STJÓRNIN. Erlendir blaðamenn kynntust gómsætum frönskum réttum í veizlu í Effelturninum. Þetta er forsíðan á matseðlinum. mjólk sem geymist allt að 8 mán uði, pönnukökur úr sjávaraf- urðum frá Bretagne, ísmolar i drykki frá Grænlandi í loftþétt um umbúðum, og heilmikið af frysti og kælivörum á tilrauna- stigi. • VAEAN SÉST 1 GLERKRUKKUM Slíkir hlutir eru forvitnilegir, en meirihlutinn af þvi, sem sýnt er og boðið á matvælasýningu, er auðvitað hinn hefðbundni gómsæti matur, sem kernur víðs vegar að úr heiminum þar sem bezt skilyrði eru til framleiðslu. Og það eru vitanlega réttirnir, sem koma vatninu fram í miumn- inn á manni. Þegar t.d. gengið var í gegn- um svæði Efnahagsbandalags- landanna á neðri hæðinni, sást vel, hvílík gífurleg samkeppni er á matarmörkuðum í Evrópu. Hvert landanna um sig hafði stórar deildir með fallegum og fjölbreyttum vörum frá ótal framleiðendum. Sama varreynd ar að segja um aðrar þjóðir, sem höfðu sínar sýningar á eÆri hæð; Danmörk, sem sannarlega kann að gera matvörur gómsætar í út liti og sýndi undir kjörorðinu C’est bon-ca vient de Dane- rnark" eða „Það er gott, það kemur frá Danmörku," Bretland með sundurhólfaða bása fyrir hverja vörutegund, hvern bás ámóta stóran og íslenzka deild- in öll, Bandarikjamenn, sem veittu óspart að smakka sýnis- horn af sínum góða mat, Argen- tínumenn með sitt gómsæta grill steikta nautakjöt, svo vatnið kom fram i munninn á manni við að smakka, írar með sitt fjöl- breytta kjöt, Indverjar með teið sitt og þannig mætti lengi telja 35 þjóðlönd og einstök fyrir- tæki frá löndunum. Manni blöskrar alveg allar þessar að- laðandi ostategundir, kexteg- undir, vín, ávextir o.s.frv. Islenzkur kaupsýslumaður, Ebeneser Ásgeirsson í Vöru- markaðinum, var þarna kominn til að skoða matvæli. Hann kvaðst mjög ánægður með ferð- ina. Þetta væri geysimikil sýn- ing og hann sæi ekki eftir að hafa farið að skoða hana. Þó ekki væru gerðar beinar pant- anir strax, þá sæi kaupandinn hvað væri á boðstólum og mik- ið af umbeðnum upplýsingum væri á leiðinni til hans, með verði til samanburðar. Það sem einkum vakti athygli Ebenesers var það, hve mikið er komið af ávöxtum og grænmeti í glerkrukkum, þannig að hægt er að sjá strax innihaldið. Það væri að vísu nokkuð dýrara, sagði hann, en geysimikill mun ur að geta séð réttina í krukk- unum. Þessu væri lika svo fal- lega raðað, eins og t.d. blönd- uðu ávöxtunum go aspasnum. Niðursuðuvaran og fjölbreytn- in í kaffi- og hrisgrjónategund- um vakti einkum athygli hans. Þarna voru tugir kaffitegunda og eins hrísgrjónategunda, sem við vitum ekki einu sinni að til eru, og kunnum ekki skil á. Kvaðst hann ekki sjá eftir að hafa farið á þessa geysimiklu sýningu, þó auðvitað sé mikið erfiði að skoða svona stóra sýn ingu. • umbOðir sem EYÐAST En ekki dugði að skéða SIAL matvælasýningMna eina, aðrir sex stórir skálar voru eftir, þar sem hver fermetrinn eftir ann- an var fylltur með vélum og tækjum til mjólkuriðnaðar, kjöt iðnaðar, bökunar, bjórfram- leiðslu og pökkunar í flöskur og hvers konar umbúðir. Þar sést vel hve gífurleg áherzla er orðið lögð á umbúðir um mat- væli hve mikill og margvísleg- ur vélakostur er til þeirra hluta. Allt er orðið sjálfvirkt. Varan kemur fullpökkuð og tilbúin i girnilegustu umbúðum úr vélun um. Tveir íslendingar, þeir Hilm- ar Bentsen og Vigfús Tómasson frá Sláturfélagi Suðurlands, voru komnir þarna tiil að skoða vélar tiíl kjötiðnaðar og Stúlka óskast Viljum ráða stúiku til skamms tíma í ullarverksmiðju okkar. Nauðsynlegt, að viðkomandi sé vön vinnu við tvinningar- eða spóluvél. ULLARVERKSMIÐJAN FRAMTÍÐIN Frakkastíg 8 — Sími 13060. ýmdss konar vélar fyrir uimbúðir til pökkunar. Sagði Hiimar, að það hefði komið mjög á óvart hve umbúðasýn- ing þessi er stór og umfangs- mikil, mun stærri en þeir höfðu búizt við. En mikið af þessum vélum og tækjum, sem þama voru, væru svo stórtækar, að þær hentuðu ekki í okkar litla landi. Þó væri alltaf svo, að mað ur fengi einhverjar góðar og nýtilegar hugmyndir af að skoða svona sýningu. Og það er vissulega rétt. Þeir sem eru að leita að ákveðnum hlutum, geta fundið það sem við á fyrir þá. En að skoða slíkar sýningar í heild, er ekki vinnandi vegur. í öllum áttum ýta véiar hiutunum áfram og spýta þeim úr sér, fullpökkuð- um — í flöskum, plasttúbum, lyfjaglösum, kössum, pokum, dósum og hylkjum úr málmi, pappa, plasti, sellófani, form- uðu frauðplasti, svampi, vatns- þéttum pappa o.fl. • KAVÍAR 1 ALBAUKUM Þar sem við íslendingar hugs- um nú mikið um ál og mögu- leika til framleiðslu úr áli síðar meir, má til gamans geta þess að í sýningarbási Alusuisse veitti ég athygli háum léttum ál baukum, líkum hárlakksbaukun um sem við þekkjum, sem notað ir voru t.d. undir kavíar og sultu. Eins rak ég augun í skemmtilegar umbúðir um kjöt fyrir kjötbúðir. Kjötvörumar eru þá lagðar á sellófanblað, það brotið Mman og brúnir svo bræddar saman með heitri stimp ilvél, þannig að snúa má pakk- anum hvernig sem er, án þess Kavíar í álumbúðum. að leki úr hpnum. Margt fleira mætti nefna af s'líku tagi. Ég sá líka mér til ánægju, að mengunaróttinn, sem nú er far- inn að grípa um sig i veröld- inni, nær líka til umbúðanna. Stór kassaverksmiðja sér sér hag í því á slikri sýningu að leggja áherzlu á í texta og með sýnikennslu að verksmiðjan framleiðir sinn pappa eingöngu úr 10—50 ára gömlum trjám, noti eingöngu náttúrufram- leiðslu, mengi ekkert og planti nýjum trjám — og svo eyðist pappaumbúðir verksmiðjunnar auðveldlega. Ainnað fyrirtæki, sem framleiðir sellofanumbúðir, segir: „Hugsið um umhverfis vandamálið, notið sellófanum- búðir, sem eru nægilega veikar til að eyðast vel." Slíkt hefi ég aldrei fyrr séð, að framleiðend ur noti það sem meðmæli með vöru sinni að hún sé svo veik- byggð og eyðist fljótt. En það er vissulega orðin fullkomin ástæða til og það gladdi mig að sjá þetta. — E. Pá.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.