Morgunblaðið - 10.12.1970, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 10.12.1970, Blaðsíða 5
MORGUNÐLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. DESEMRER 1970 5 ■ííiS&a TOB^coS Rannsóknir á sviði mengunar Hexecíd í nokkrum smjörsýnum MBL. hefur borizt eftirfarandi fréttatilkynning frá Rannsókna- ráði ríkisins um skýrslu, sem sér- fræðingar unnu um rannsóknir á sviði mengunar. Fréttatilkynning in hljóðar svo: „í Allþýðublaðinu þriðjudag- inn 8. desember sl. birtist frétt á forsíðu úr skýrslu um mengunar- rannsóknir, sem gerð hafði verið fyiriir Rannisóknaráð rí'ki'Sdns. Er notuð feitletruð þriggja dálka fyrirsögn „Eitur finnst í smjöri“. Umrædd skýrsla, ásamt öðrum upplýsingum, fylgir hér með. Jafnframt er nauðsynlegt að taka fram eftirfarandi: Fnamkvæmdanefnd Rann- sóknaráðs ríkisins leitaði i nóv- ember 1969 til nokkurra sérfræð inga og fór fram á álit þeirra og tiillögur um samræmingu meng- unai’rannsókna. Skýrsla sérfræð- inganna lá fyrir nú í haust og hefur síðan verið ítarlega rædd í framkvæmdanefndinni. Skýrsl- an va>r einnig send öllum með- limum Ranosóknaráðs og rædd á fundi ráðsins föstudaginn 5. des- ember sl. Hins vegar hafði verið ákveðið, að skýrsdan yrði ekki birt fyrr en nánari athuganir hefðu farið fram og að sjálfsögðu ekki án leyfis þeirra sérfræðinga sem skýrsluna gerðu. Harma ber, að skýrslunni skuli hafa verið dreift og atriði úr henni birt án heimildar Rann- sóknaráðs eða sérfiræðinganna. Einnig er leitt til þess að vita, að urarætt dagblað skuli hafa birt glefsur úr skýrslunni á þann rnáta, að verulegum misskilningi getur valdið. Eðlilegra hefði virzt að leita nánari upplýsiinga áður en svo alvarlegum ásökun- um, sem fram koma í fréttum blaðsins, er slegið upp. í skýrslunni er drepið á ýmiss konar mengum, sem kanna verð- ur betur en gert hefur verið hér á landi. Eru í þessu sambandi nefnd alimörg einstök og ein- angruð dæmi. Meðal annairs er þess getið „að í nokkrum sýnum mjólkurfitu smjörs var það mik- ið af efninu Hexecíd (Lindan), sem notað er til sauðfjárböðun- ar, að það nálgaðist það sem var- hugavert er talið til mainneldis." Setning þessi þarf að sjálfsögðu langtum ítarlegri skýiringa við, ef ræða á á opimberum vettvangi. Eins og fram mun koma í greimargerð, sem væntanleg er frá sérfræðingum þeim, sem skýrsluna gerðu, er rannsóknum á þessu atriði hvergi nærri lokið. Efnið fannst í örfáum og einangr uðum sýnishornum, sem tekin voru fyrir alllöngu, en seinni at- huganir hafa ekki gefið neiniar sií'kar niðurstöður. Virðist því vægast sagt vafasamt að blása svo út þessa frétt sem gert hefur verið. Nýtt póst- og símahús NESKAUPSTAÐ 7. desemiber. Nýtt póst- og símstöðvarhús hefur verið tekið í notkun hér í Neskaupstað. Grunnflötur húss- ins er 290,7 fermetrar en stærð þess er 1890 rúmmetrar. Á fyrstu hæð eru póst- og símaafgr'eiðslia, skriifstofa stöðv- airstjóra, kaffistofa starfsfóiiks og flei'ra og á aninariri hæð íbúð Btö'ðvarstjóira og loftsikeytastöð. Tvílyft vélalhús fyrir sjálfvirk- an síirnia er í séribyggimigu baka til á lóðinnii en ©r tengt aðafflhúsiinu með tenigilbyggiingiu. Upp úr áramótum verður byrjaið sfS setja 'niðuir vélar fyrir sjálfviirk- an síma og er áætlað að ljúka þvi veriki á miðju mæsta ári. Stöðvarstjóri pósts og síma er Reyrúr Sigurþórssom. — Fréttaritari Það skal að lokum tekið fram, að framkvæmdanefnd Rann- sóknaráðs ríkisins er með um- rædda skýrslu í athugun með tilliiti til þeirra umræðna, sem fram fóru á fundi Ramnsókna- ráðs. Mun nefndin einhvern næstu daga senda ríkisstjóminni tillögur 3Ínar um samxæmingu rannsókna á sviði mengunar. F. h. framkvæmdanefndar Ramnsóknaráðs ríkisins, Steingrímur Hermanusson. RANNSÓKNIR Á MJÓLKUR- VÖRUM í skýrslu nefndarinnar, sem vitnað er til í fréttatilkymning- unni, segir um þetta mál: „í>á hafa um lengri timia verið gerðar rannsóknir á mjólk, mjólikurvörum og ýmsum mat- vælum, til að fylgjast með gerla magni þeirra. Síðan 1967 hafa verið gerðar skipulegar rannsókn ir á meingun mjólkur af sýkla- lyfjum (antibiotika) og skyldum efnum á vegum Mjólkursamsöl- uninar í Reykjavík, og nokkrar sams konar rannsóknir að auki við tvö til þrjú önnur mijólkurbú á landinu. Nýver- ið hafa verið gerðar nokkr- ar rannsóknir á því hve mikið fyndist í mjólkurvörum hér af öðrum varasömum efnum, sem notuð eru til að eyða ýms- um lífverum, svo sem skordýr- um, og hefur komið í ljós, að í nokkrum sýnum mjólkurfitu smjörs var það mikið af efnimu Hexécíd (Lindan), sem notað er til sauðfj árböðunar, að það nálg- ast það sem varhugavert er talið tid manneldis, samkvæmt upplýs inguni frá Rannsóknarstofu í lyfjafræði. DDT-rannsóknir hafa verið framkvæmdar á fiski í Ranrnsóknastofu fis'kiðnaðari-na, sbr. ársskýrslu hennar.“ Síðar í skýrslunni segir: „Ann- að hvert ár eru flutt inn um 12 tonn atf efni, Liindain (Hexecdd), sem notað er til böðunar sauð- fjár og er allsterkt eyðingarefei. Fyllsta ástæða er að rannsakia, hvað um þetta efni verður, þeg- ar það hefur verið notað, hvort því er t.d. einfaldlega veitt beint út í næsta læk eða á, þar sem það gæti gert skaða. Frekari rannsókna er einnig þörf á meng un mjólkur af sýklalyfjum, sem áður er á miinnzt, þannig að sam felldar rannsóknir á þessu sviði verði geiðar um allt land.“ .nutnb°r6-n Ve\kon«0 un' tkor°\°'fr '°e • „a\ toSmok'°ð p\eas°te • rtioaKómaV>°*9’

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.