Morgunblaðið - 10.12.1970, Síða 7
MORGUNB!LAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. DESEMÐER 1970
7
Um tímann á íslandi
á 18. og 19. öld
1 fomöld skiptu menn sól-
arhringnum í 8 jafna hluta,
sem þeir kölluðu eyktir og
for þessi skipting mjög eftir
vinnubrögðum. Hver eykt var
þrjár stundir. Fyrsta eyktin
hófst kl. 12 að kveldi og var
þá kallað miðnætti. Kl. 3 var
ótta, kl. 6 var miður morgun,
Kl. 9 voru dagmál og kl. 12
var hádegi. Svo var undorn
eða nón kl. 3, miðaftan var
kl. 6 og náttmái kl. 9.
En vegna þess að þá voru
engar klukkur til, miðuðu
menn sólargang við einhver
kennileiti og víða voru
hlaðnar vörður. Allt var
þetta kallað eyktamörk, sem
sýndu hvað framorðið var þeg
ar sól var þar yfir. Til þessa
siðar eiga mörg örnefni enn
í dag ætt sina að rekja, svo
sem Dagmálavarða, Hádegis-
hnjúkur, Nónklettur, Miðaft-
ansfjall og Náttmálaskor. 1
Húnavatnssýslu er bær, sem
heitir Undornfell. Nú hefir
hann lengi verið kallaður
Undirfell, og sýnir það að
langt muni síðan að eyktar-
nafnið undorn lagðist niður
og nón kom i staðinn. Það
væri þjóðrækni að láta ekki
fleiri eyktaörnefni glatast. Þá
eru ýmis eyktamörk gerð af
mannahöndum, ekki á sama
stað og þau voru upphaflega
og á þetta einkum við í ná-
grenni við hafnir. Er það að
allega erlendum skipstjórum
að kenna, því að þeir töldu
l'slendingum trú um, að öll
eyktamörkin væru á skökk-
um stöðum eftir áttavita. En
þeir leiðréttu ekki áttavita
Frá
horfnum
tíma
skekkjuna og þess vegna hef
ir þessi „framför" viða orðið
til lítils annars en valda
ruglingi.
Sums staðar miðuðu menn
tímann við flóð og fjöru og
var það gert af illri nauð-
syn, þegar ekki sá til sólar
dögum saman. Þetta gat að
vísu aldrei orðið nákvæmt
því að straumar fylgja ekki
nákvæmlega kvartilaskiptum
tungls. Þessu höfðu menn þó
veitt eftirtekt og þegar stór-
straumur dróst, þá kölluðu
þeir hann „eftirstraum" og
það nafn hefir verið til í mál
inu til skamms tíma.
Á vetrum veittu menn
gangi himintungla nákvæma
athygli, þegar bjart var veð-
ur. Sérstaklega voru það viss
ar stjömur, svo sem vagninn,
björninn og sjöstirnið sem
þeir miðuðu tímann við.
Engar klukkur voru til á
sveitabæjum á 18. öld og ekki
fyrr en kom langt fram á 19.
öld, nema þá ef embættis-
menn áttu slíka dýrgripi:
Séra Jónas á Hrafnagili seg-
ir: „Ég hefi vitað klukkulaus
heimili eftir 1870 og gist á
einu þeirra (Svartagiii í Þing
vallasveit), en ekki varð karl-
inum þar skotaskuld úr því,
að vita það hér um bil hve-
nær miður morgunn var, og
sá þó ekki til sólar.“
Fyrstu klukkurnar voru
hinar háu kassaklukkur, kall
aðar „Bornholmsklukkur“,
eða þá þilklukkur kassalaus-
ar. Voru þessar klukkur líka
oft kallaðar „8 daga verk“ og
benti það til þess að ekki
þyrfti að draga klukkurnar
upp nema einu sinni í viku.
Þessar klukkur voru allar
með hengilóðum.
Ur komu enn seinna til
landsins og á árunum 1860—
70 áttu aðeins tveir menn úr
i Eyjafirði. En stundaglös
voru víða til og munu þau
hafa farið að flytjast til lands
ins alls um 1760.
í Öldinni okkar, standa við
árið 1797, þessi orð undir
mynd af kiukkunni hér að of
an: „Dýrgripur fálkafangar-
ans. Kiukkur eru fáséðar á Is
landi. Á Kjarlaksstöðum á
Fellsströnd er þó einn slíkur
gripur hjá monsjör Kristjáni
Illugasyni fálkafangara og
maddömu Guðrúnu Halldórs-
dóttur. Þetta er átta daga
verk. Á stöku bæjum eru til
stundaglös, en yfirleitt ætlast
menn á um tímann af stöðu
sólar og sjöstjörnu, birtu og
sjávarföllum og tiifinningu
sjálfra sín. Það þykir fordild
liin mesta og oflæti af bænd
um, að láta sér ekki slika við
miðun nægja, svo sem títt hef
ur verið frá öndverðu."
Gangið úti
í góða
veðrinu
Guðrún Gjúkadóttir
Gott var eðli Guðrúnar,
greip þó heiðnar rætur.
Sæl í faðmi Sigurðar
svaf hún margar nætur.
Kristín Sigfúsdóttir
frá Syðri-Völiiim.
ÁRNAÐ
HEILLA
70 ára er í dag 10.12. 1970 frú
Elísabet Halldórsdóttir, Soga-
vegi 101.
Þann 14.11. voru gefin saman
í hjónaband af séra Ólafi Skúla-
syni ungfrú Jenny Jensdóttir
og Jón Hörður Elíasson. Heim
ili þeirra er á Laugarteig 26.
Studio Guðmundar,
Garðastræti 2.
Þann 15. nóvember voru gef-
in saman í Útskálakirkju af sr.
Guðmundi Guðmundssyni, ung-
frú Hólmfriður Guðrún Guð-
mundsdóttir húsmæðrakennari,
Klauf, Eyjafirði og Jón Þorkell
Eggertsson netagerðarmaður,
Háholti 7, Keflavík. Heimili
brúðhjónanna er að Hringbraut
100, Keflavík.
Ljósmyndastofa Suðurnesja.
Þann 7.11. voru gefin saman í
hjónaband af séra Þorsteini
Björnssyni ungfrú Anna Hösk-
uldsdóttir og Axel Ólafsson.
Heimili þeirra er að Þórsgötu 5.
Studio Guðmundar,
Garðastræti 2.
VÍSUKORM
VIÐTÆKJAVINNUSTOFAN HF. BROTAMALMUR
er nú í Auðbrekku 63. Sími • 42244. Var áður að Lauga- vegi 178. Kaupi allan brotamálm lang- J hæsta verði, staðgreiðsla. ; Nóatúni 27, sími 2-58-91.
INNRÉTTINGAR Vanti yður vandaðar innrétt- ingar í hýbýli yðar, þá leitið fyrst tilboða hjá okkur. — Trésm. Kvistur, Súðavogi 42, símar 33177 og 36699. BUXNADRESS Stærðir tveggja til tólif ána, faiegir litir. Upplýsingar í síma 38989.
HJÓLSÖG TIL SÖLU Upplýsingar í síma 10458. IÐÚÐ ÓSKAST Námsmaður óskar eftir 2ja til 3ja herbergja íbúð á feigu. Fyrirframgreiðsla, ef óskað er. Upplýsingar í síma 20615 eftir kl. 4.
BlLAÚTVÖRP 6 gerðir, verð frá 3570,00 kr. Ferða'útvörp, verð frá 1950,-. Segu Ibandstæki og plötu- spilarar. Opið til kl. 7 á kvöldin. Radíóþjónusta Bjama Síðumúla 17, simi 83433. BlLKRANI TIL SÖLU með bílmokstur&tækjuim. — Lyftir 2'/i tomm, kemur á miðjam bil, vökvaiknúinn. Bíla- og búvélasalan Eskiihlíð B, við Miklatoirg, sími 23136.
tEsm JRorgtmMaMb DnGIECR KJÖT — KJÖT 5 verðflekkar af nýju kjöti. Mitt viðurkiemnda hamgiiikj'öt beint úr reyk á moirgun. Sláturhús Hafnarfjarðar Guðmundur Magnússon sími 50791, heima 50199.
LOKAD
Vegna jarðarfarar Birgis Jónssonar, flugmanns.
B. SIGURÐSSON S.F.
Höfðatúni 2.
AUÐVITAÐ
ÓMAR RAGNARSSON
Ómar Ragnarsson gerði barnaplötu siðast fyrir fimm árum
(þegar frá eru taldar jólaplötur hans).
Barnaplata sú, sem Ómar sendir frá sér
núna er með fjórum bráðskemmtilegum
lögum (þetta er lítil plata) og heita þau
HLÁTURINN LENGIR LÍFIÐ,
MINKURINN í HÆNSNAKOFANUM,
BRÓÐIR MIN og HÍ Á ÞIG.
Jón Sigurðsson hefur útsett lögin og stjórnað undirleik
af kunnri smekkvisi.
Þetta er ekki aðeins ein skemmtilegasta bamaplata Ómars,
heldur og einhver fjörlegasta íslenzka hljómplatan fyrir börn.
SG-hljómplötur