Morgunblaðið - 10.12.1970, Page 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1970
Sinfónían,
sem grípur
hvert hjarta
Níunda sinfónía Beethovens
flutt í kvöld
Söngsveitín Filharmónía á æfingu í Melaskólaniun. Dr, Róbert A. Ottósson er lengst til
Eitt mesta verk tónbók-
menntanna verðnr flutt í Há-
skólabíói í kvöid og síðan
endurtekið á Iaugardag. Er
það Níunda sinfónia Ludwigs
van Beethovens í D-moll op-
ns 127. Flytjendur eru
Söngsveitin Fílharmónía og
Sinfóníuhljómsveit fslands
osr einsöngvararnir Svala
Nielsen, Sigurveig Hjalte-
sted, Sigurður Björnsson og
Giiðnnindiir Jónsson. Stjórn
andi tónleikanna er dr.
Róbert Abraham Ottósson.
Morgunblaðið átti nýlega
viðtal við dr. Róbert um sin-
fóníuna, en hún var frum-
flutt í Vín hinn 7. maí 1824
og stjórnaði þá Beethoven
sjálfur með aðstoðarmönnum.
Sinfónían er samin á nær 6
árum og er hvert atriði henn
ar gaumgæfílega yfirvegað
— sem einkum sést af því að
aðalstef síðasta þáttar er til
frá hendi meistarans í um 200
gerðum.
—- Beethoven vildi móta
það, svo að það yrði sem al-
þýðlegast — sagði dr. Róbert
— svo að það gripi hvert
hjarta. Það er einfalt í snið-
um og mjög meitlað, enda hef
ur það náð takmarki tón-
skáldsins — þessi sinfónía er
hvað vinsælust allra tón-
varlegum augum í Vinar-
borg í þá daga, því að keis-
aralegt húrrahróp var að-
eins þrefalt. Við fagnaðarlæt
in varð lögreglan því að
gripa inn í til þess að stöðva
þessa móðgun. En allt ætlaði
um koll að keyra. Beethov-
en mun ekki hafa orðið þessa
var vegna heyrnarleysisins,
fyrr en önnur söngkonan
benti honum á að snúa sér
við. Gripu þá áheyrendur til
þess ráðs að veifa vasaklút-
um í stað þess að klappa og
hrópa.
Sinfónían er tvímælalaust
hápunktur í sinfóniskum
skáldskap Beethovens og síð
asta stórverk hans. Þó átti
hann eftir að semja strok-
kvartetta og fleira á þeim
þremur árum, sem ólifuð
voru. Hið stórkostlegasta við
9. sinfóníuna er, að þessi ein
mana heyrniarlausi maðiuir,
semur slíkt verk við kvæði
Friedrichs Schillers:
verka Beethovens. Nærtækt
dæmi um það er aðsóknin í
Reykjavík 1966, er sömu að-
ilar fluttu verkið og endur-
taka varð tónleikana fjórum
sinnum á einni viku.
—• Beethoven er einn af
þremur furðumönnum tónlist
arinnar. Fyrstur er Bach,
sem segja má að standi fyr-
ir himinhvolf tónlistarinnar,
stjörnurnar og himintunglin.
Þá er Mozart, himnabarnið
óskiljanlega, sem gerir sér
grein fyrir verkefni sínu í
heild, sezt síðan niður og
skrifar það frá upphafi til
enda. Beethoven er mað-
urinn, svo sem hann er I 10.
veldi . . .
— Níunda sinfónian mun
hafa verið nokkuð gömul
hugmynd hjá Beethoven, en
hann byrjar ekki að fást við
verkefnið, fyrr en hann er
orðinn heyrnarlaus. Sinfón-
ían er samin á árunum 1817
til 1823, en jafnframt vinnur
hann að Missa Sólemnis, en
kaflar úr henni voru einmitt
frumfluttir á sömu tónleikum
og sinfónían.
— Sagan segir, að er Beet-
hoven hafi gengið í salinn á
þessum tónleikum hafi kveð-
ið við fimmfalt húrrahróp
áheyrenda. Þetta var litið ai-
eða eins og séra Matthías
Jochumsson hefur þýtt það:
mennari eða 150 manns
og hefur það auðveldað starf
ið nökkuð, að % söngfólks-
ins eða 63 sungu áður 9. sin
fóníuna 1966. Stjóm Fílhar-
móníu skipa Ragnar Áma-
son, formaður, Gerður Guð-
'mundsdóttir Bjarklind, ritari
og meðstjórnendur Gestur
Gíslason, Guðríður Magnús-
dóttir og Helga Guðmunds-
dóttir.
Gerður Guðmundsdóttir
Bjarklind tjáði okkur, að
Ruth Little Magnússon hefði
annazt raddþjálfun i söng-
sveitinni, og þjálfað konur
og karla sitt í hvoru lagi.
Einar Sturluson og Snæbjörg
Snæbjarnardóttir æfðu og
nýliða, sem gengu í sveitina
í haust. Áformað er að hefja
æfingar að loknu þessu verk
efni á Te Deum eftir Anton
Bruckner, seim fyrirhugað er
að flytja í aprilbyrjun,
ef guð lofar.
Nokkrir útlendingar
syngja í Filharmóníu og
áhugi allra er mikill. Gerð-
ur sagði að m.a. hefðu nokkr-
ir Bandaríkjamenn frá Kefla-
vikurflugvelli sýnt söngæf-
ingunum mikinn áhuga og
komið hvernig sem viðrað
hefði á hverja einustu æf-
ingu.
Dansið heimar himinglaðir:
hingað, veröld, þiggðu koss!
yfir sólna sól og oss
sannlega lifir góður faðir!
Beethoven var í raun bylt
ingarmaður að formi til. Áð-
ur en hann samdi þessa sin-
fóníu, þekktist ekki að kór
væri með. En Beethoven
vildi nota mannsröddina. 1
fyrsta, öðrum og þriðja þætti
talar aðeins hljómsveitin, en
I fjórða taka einsöngvararn-
ir og kórinn undir. — Jafn-
vel háðfuglinn Stravinsky
hefur nýlega sagt um Beet-
hoven: „Hann var alltaf
hinn næmasti sendiboði úr
framtíðinni, a.m.k. þeirri
framtíð, sem ég kæri
mig um!“
— Blaðamaður Mbl. fylgd-
ist að nokkru með æfingum
fyrir tónleikana í kvöld.
Róbert hefur æft hljómsveit-
ina í Háskólahési á morgn-
ana, en á kvöldin einu sinni
til tvisvar í viku hefur hann
æft söngsveitina í Melaskól-
anum. Til aðstoðar við undir
leik hefur Martin Hunger
starfað með sveitinni. Söng-
sveitin hefur aldrei verið fjöl
Seid umsohlungen Millionen!
Diesen Kuss der ganzen
Welt!
Brúder! úberm Sternenzelt
muss ein lieber Vater
wohnerL
í.
Stjórn Fílharmóníu ásamt stjómanda og undirleikara Talið fcá vinstri: dr. Róbert A. Ottós
son, Martin Hunger, Gestur Gísiason, Ragnar Árnason, Gerður Guðmundsdóttir Bjarklind oj
Helga Guðmundsdóttir. Á myndina vantar Guðríði Magnúsdóttur.
Sinfóníuhljómsveitin á æfingu fyrir tónleikana í Háskólabíói. Aftan við hljómsveitina ent
hljóðskermar, sem bæta eiga heyrð í salnura og notaðir verða fyrsta sinni í kvöld.
Söngurinn gleður