Morgunblaðið - 10.12.1970, Side 28

Morgunblaðið - 10.12.1970, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1970 ir andlit hans. Hann sagði hressi lega: -— Við skulum alveg gleyma henni! Það var sjálfsagt gott ráð. Kathleen greip sjálfa sig í því að muna nú, hve stutt hún hafði þekkt hann og hve lítið hún vissi raunverulega um hamm. Því að kumtmugleiki hennair náði ekki nema til þess tíma, sem hún hafði þekkt hann per- sónulega, og þess, sem hjarta hennar hafði sagt henni. En um tímann frá því áður en þau hittust vissi hún alls ekki neitt — um hann varð ekkert vitað nema það eitt, sem allir vissu, hvort sem var. Hún hristi höf- uðið, rétt eins og til að sjá bet- ur. Svo sagði hún hóglega, og vonaði heitast, að hún sýndist hvorki afbrýðisöm né tortrygg- in, enda þótt hún vissi sig vera hvort tveggja: — Segðu mér eitthvað um hana. — Það er ekkert um hana að segja, sagði Pat og benti þjón- inum að fylla glösin aftur. — En þú þekkir hana samt? — Já, auðvitað. — Jæja, ef það er auðvitað, þá hlýturðu að þekkja hana vel. Hann svaraði og var óþolin- móður: — Vertu nú ekki að nauða á þessu. Láttu það alveg eins og vind um eyrun þjóta. Ég kynntist henni fyrir tveimur ár um. Hún var þá í einhverjum leikhúskór. Lítil og snotur. Ég er búinn að gleyma, hvar ég hitti hana — líklega hefur það verið i einhverju kokteil- samkvæmi. Ég bauð henni út eitthvað tvisvar . . . kannski þrisv ar eða fjórum sinnum. Eftir að ég hitti þig, hafði ég hvorki tíma né löngun til þess. Svo er sú saga ekki lengri. Og henni gremst það. Þú veizt alveg, hvernig svona stelpur eru — alltaf að snuðra eftir einni mál- tíð eða pari af sokkum. Þetta er ekkert persónulegt, nema ef vera skyldi hjá hégómagimd hennar. Hún horfði lengi á hann. Hann hallaði sér fram, alvarleg ur á svipinn og reyndi eftir megni að vera sannfærandi. Hún hugsaði að hann væri hreinskilinn og heiðarlegur. Allt í einu brosti hún, rétti höndina yfir borðið og snerti hans hönd. Sagði svo lágt: — Fyrirgefðu, elskan mín. Andlit hans ljómaði og hann leit á hana ánægður og léttari í skapi. Hann sagði: — Svona var það nú, hvernig sem það kann að líta út. — Nei, mér fannst það ekkert grunsamlegt, en ég er nú held- ur ekki eins útfarin og veraldar vön og Hanna. Hann sagði glottandi: — Þú varst bara afbrýðisöm. — Já, hræðilega játaði hún. — Rétt sem snöggvast. Ég gerði mér allt mögulegt I hugarlund og fannst spilahúsjð vera að hrynja yfir mig. Fyrirgefðu mér. — Mér þykir vænt um, að þú skulir vera afbrýðisöm. Kathleen roðnaði ofurlítið. — Ég kunni því nú ekki vel sjálf, sagði hún hreinskilnislega. Hún leit yfir salinn og sá Rósu Dav- enport og son hennar. í dyrun- um að karpa við yfirþjóninn. Hún kallaði og veifaði til þeirra og þau komu að borðinu — Þetta er Eloise, Pat! — Eloise? sagði Pat, án þess að botna í neinu, og horfði á þau, er Rósa skartklædd kom vaðandi og sonurinn á eftir. — Við skulum bjóða þeim | v I HafnarfjarÖar! g?8 hugmynd. Verzlunin HAFNARBORG við viðráðanlegu verði. í búðinni fást gjafir handa Strandgötu, við hliðina á HAFNARFJARÐAR APÖTEKI, býður yður úrval úr ótrúlega mörg- um vöruflokkum. i snyrtivörudeildinni létta snyrtisérfræðingar yður valið á snyrtivörum og ilmvötnum. Leikfangadeildin stendur yngstu viðskiptavinunum opin, vel byrg af varningi á mömmu og pabba og öllum hinum, búsáhöld og baðvörur, glervörur og skrautvörur, hand- töskur og handklæði, dýrindis dúkar og ótal- margt fleira. Úti eru næg bílastæði bak við verzlunina. Inni gefst gott næði til að meta verð og vörugæði og til að velja. Heimsækið okkur í Hafnarborg, það borgar sig. STRANDGÖTVI 34, HAFNARFIROI Þú getur hrint nýjum hugmyndum f framkvæmd, ef þú vilt. Nautið, 20. apríl — 20. maí. I>ér gengur bezt með kreddurnar gagnvart þvl fólki, sem einhver völd hefur. Tvíburamir, 21. maí — 20. júní. Umhyggja fyrir öðru fólkið kemur þér í góða aðstöðu í fram tíðinni. Krabbinn, 21. júní — 22. júlí. Ilia gengur þér að halda í fjármunina í dag. Gættu heilsunnar, Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst. Félagar þínir koma þér mjög á óvart. Reyndu að flækja þér ekki í neitt óþægilegt. Meyjan, 23. ágúst — 22. september. Heimurinn lætur ekkert fara framhjá sér. Reyndu því að standa þig i dag. Vogin, 23. september — 22. október. Mundu, að þú getur ekkert grætt sérstakt í dag. Sporðdrekinn, 23. október — 21. nóvember. Mótþrói alis kyns gerir vart við sig f dag. Bogmaðurinn, 22. nóvember — 21. desember. Taktu ekki mikilvægar ákvarðanir í nokkra daga. Steingeitin, 22. desember — 19. janúar. Óskhyggjan skyggir á greind þína. Gerðu þér grein fyrir eigin óskum, og gættu líka hófs. Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar. Borgaðu skuidir og reyndu að vera heiðarlegur. Fiskamir, 19. febrúar — 20. marz. Reyndu að sitja á þér gagnvart fjölskyldunni, og hugsaðu ráð þitt. sæti hjá okkur, sagði Kathleen. Hún fann til vonbrigða af þess- um truflunum, sem kvöld þeirra Pats hafði orðið fyrir. Þó ekki eins og hefði Sandra komið aftur. En hún skammaðist sín fyrir þessi geðbrigði sin. Og þótt hún reyndi að segja sjálfri sér, að hún hefði ekkert að skammast sín fyrir, var hún ekki viss um það. — Þetta er óþolandi sagði Sammy, hávær og óðamála. ■— Við höfðum pantað borð, en svo fórum við til Mitzi eftir leik- sýninguna, og töfðumst af ýms um ástæðum. SKYRTAN HERRADEILD Kathleen kynnti þau. — Sitj- ið þið hérna hjá ok'kur, hér er nóg rúm. Rósa settist niður. Hún sagði og stundi við: — Ég er alveg komin að niðurlotum. Sam hef- ur einkennilegar aðferðir til að fagna nýárinu. Eða það finnst mér að minnsta kosti. Ég vil helzt-gera það með því að fara snemma í rúmið með góða bók og mjólkurglas, sigarettur og epli og piparmyntur! Sammy veifaði höndunum, sem Pat sá, sér til mestu skelfingar, að voru virkilega fallegar. — Hann sagði nú með ákafa: — En maður verður nú að gera sér dagamun. — Mitzi gerði það heldur bet- ur, sagði móðir hans og hló. — Það hefur sjálfsagt verið millj- ón manns í búningsherberginu hennar. Við gátum nú rekið það burt. Hún og Galbraith ætluðu að koma hingað með okkur. Nei, ekki aldeilis, hún þurfti endi- lega að fara heim fyrst. Liklega til að púðra á sér nefið, eða skipta um kjól eða hringja til hennar mömmu sinnar í Kalí- forníu. Þegar við fórum var ein hver að troða Galbraith inn i leigubíl og Mitzi lét eins og vit- laus, af því að þessi déskotans Pekinghundur hennar hafði ét- ið verndargripinn hennar. — Mitzi? sagði Pat og leit á þau á víxl. —- Mitzi Lambert, sagði Sam kæruleysislega. Hann sneri sér að Kathleen. — Ég fullvissa þig um, sagði hann hátíðlega, að ef hún bætir við sig einu pundi enn, þá verðum við að skinna hana upp að nýju frá hvirfli til ilja. Fötin hennar núverandi voru ekki sniðin upp á neinn aukagildleika. í siðasta þætti — Atlantica lceland Review Heklugosið f málí, myndum og litum At/antíca Iceland Review er jólakveöjan til vina og viðskiptamanna erlendis t

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.