Morgunblaðið - 10.12.1970, Page 30
30
MOROUNBiLADIÐ, FTMMTUDAiGUR 10. DESEJMBER 1970
Grótta — Breiðablik
EINN leikur fór fram í II. deild
íslandsmótsins í handknattleiik
um síðustu helgi. Sigraði þá
Grótta Rreiðablik með mikluim
yfirburðum, 34:10. Staðan í hálf
leik var 17:5. Hafa nú Grótta,
Árrnann og Þróttur 2 stig í deild
in.ni, en Breiðablik og KR ekk-
ert.
Tvö af þeim liðum, sem til-
kynntu þátttöku í II. deild, —
Akumesinigar og Afturelding í
Mosfellssveit, hafa ákveðið að
draga sig til baka úr keppninni,
þannig að eftir eru þá fyrrnefnd
lið auk Akureyrarliðanna Þórs
og KA, svo og ÍBK.
Þjónarnir sigruðu í
innanhússknattspyrnu
INNANHÚSSMÓT í knattspymu
fór fram í íþróttahúsinu á Sel-
tjamamesi um siðustu helgi og
áttust þar við lið fyrirtækja og
stofnana. Mátti þar sjá góð til-
þrif af og til, enda nokkrir
þekktir knattspymumenn sem
þarna áttu hlut að máli.
Úrslit einatakra leikja urðu
þessi:
Þjóraar — Bræðurnir Ormsson
5:0.
Flugfélagið — ísal 6:4.
Prentsmiðjan Edda — Þjónar
b-lið 6:0.
Bæjarleiðir — Loftleiðir 7:2.
Vífilfell — SÍS 7:6.
Kristján Skagfjörð — Slátux-
félagið 8:3.
Olíuverzlun — Landsbankinn
6:5.
Önnur umferð:
Þjónar — Prentsmiðjan Edda
5:4.
Vífilfell — Bæjarleiðir 7:4.
Olíuverzluinin — Flugfélagið
7:5.
Þriðja umferð:
Þjónar — Vifilfell 9:3
Olíuverzlunin — Kristján Skag
fjörð 6:4.
Keppni um 3. sætið vax milli
Kristjáns Skagfjörðs og Vífilfells
og lauk með sigri fyrmefnda liðs
ins 13:4 og úrslitaleikurinn va-r
srvo milli þjónanna og Olíuverzl-
unarinnar og lauk honum með
sigri þjóraanna, 5:3, eftir skemmti
iegan leik.
LEGIA SIGRAÐI
PÓLSKA körfuknattleiksfélagið
Legia sigraði KR í gærkvöldi í
fyrri leik liðanna í Evrópu-
keppni bikarmeistara með 99
stigum gegn 67. Seinni leikur
liðanna verður í íþróttahöllinni
í kvöld. Forleik að leiknum 'í
kvöld leika hin frægu knatt-
spymulið KR og Akraness f.rá ár
inu 1960. Leikirnir hefjast kl.
20.15.
Þetta er í annað sinn sexn slíkt
mót fer fram, en það er Knatt-
spymufélag framreiðslumianna,
sem gengst fyrir því. í fyrra sigr
aði Kristján Ó. Skagfjörð í mót-
Karl Guðmundsson, íþróttakennari, Albert Guðmundsson, formaður KSÍ og Sölvi Óskarsson,
formaður knattspymuþjálfarafél agsins.
Framkvæmd knattspymuþj álf-
unarinnar kann að gjörbreytast
í*já.lfarar kynntust því bezta í enskri knattspyrnu-
þjálfun — Rætt við Albert Guðmundsson, form. KSÍ
í tilefni af nýafstöðnu nám-
skeiði íslenzkra knattspyrnu
þjáifara í London, sneri fþrótta
síða Mbl. sér til formanns KSÍ,
Alberts Guðmundssonar, og ósk
aði eftir nánari fréttum um þjálf
aramál sambandsins almennt.
Kom þá í Ijós að námskeiðlð í
London og stofnun Knattspyrnu
þjálfarafélags fslands, er undan
fari mikilla breytinga I íslenzk-
um knattspymuþjálfunarmálum,
sem grundvallast á auknum og
skuldbundnum kröfum til knatt
spyrnuþjálfara, um menntun
þeirra og hæfni, samfara því að
unnið er að þvi, að gera Is-
lenzkum knattspyrnuþjálfurum
auðveldara að fylgjast hverju
sinni með nýjungum í knatt-
spyrnuþjálfun, — þannig að
hver knattspyrnuþjálfari, hvar
sem hann er á landinu, og lijá
hvaða félagi sem hann þjálfar,
mun hafa tækifæri til að starfa
samkvæmt nýjustu starfsaðferð-
um og þekkingu á knattspyrnu
þjálfuninni, en þó er lögð
áherzla á að þjálfararnir leggi
sig fram í því að skapa knatt-
spymu, sem einkennandi sé fyr
ir íslendingseðlið.
DREIFING VALDSINS:
Á skrifstofu Alberts Guð-
mundssonar, hittum við einnig
Karl Guðmundsson, íþrótta-
kennara, sem var fararstjóri ís-
Þessi mynd er af hinni glæsilegu æfingamiðstöð, þar sem ís-
lenzku þjálfararnir dvöldu í Englandi.
lenzku knattspyrnuþjálfaranna
til London og Sölva Óskarsson,
formann hins nýstofnaða Knatt
spyrnuþjálfarafélags Islands.
Ég hefi lagt mig fram í að
dreifa valdi stjórnar KSl yfir á
hierðar sem flestra sj álflstæðr'a
aðíla, segir Albert Guðmunds-
son. Þannig var með dómaramál
in, sem fyrir tveim árum voru
eitt mesta vandamál Knatt-
spyrnuhreyfingarinnar í land-
inu og allt logaði í óánægju og
misskilningi. Það átti meira að
segja að leggja Knattspymu
dómarafélag Reykjavíkur niður.
Með samþykkt síðasta ársþings
KSÍ var samþykkt tillaga
stjórnarinnar um stofnun Knatt
spyrnudómarasambands íslands
sem er í dag framkvæmdaraðili
næstum þvi alls þess, sem Dóm-
aranefnd KSl hafði áður með
höndum. Dómaranefndin er að
vísu ennþá til, en starfar sem
ráðgefandi aðili fyrir stjórn
sambandsins. Knattspymudóm-
arasambandið hefur reynzt vel
og farið vel af stað með skipu-
legu starfi og auknum fjárhag.
Þannig er meiningin hin sama
varðandi þjálfunarmálin. Með
stofnun Knattspyrnuþjálfarafé-
lags Islands, er komin fram að-
ili, sem nær betur til félaganna,
og er tengdari því sem vinna
þarf að, heldur en nokkur
nefnd á vegum KSl getur ver-
ið. Tækninefnd aftur á móti
kemur til með, eins óg Dómara
nefndin, að verða hinn ráðgef-
andi aðili stjórnar sambandsins,
um allt sem viðvikur tækni og
þjálfunarmálum.
AUKIN ÞEKKING
Núfiíma þjálfun grundvallast,
í mðrgum tilvikum á vísinda-
legri þekkingu á mannslíkaman
um og líffærum hans, auk knatt
tækninnar og skipulags knatt-
spyrnuleiksins, samkvæmt nú-
tíma kröfum, heldur Albert
áfram. Þetta þýðir að sjálfsögðu
ekki það, að knattspyrnuþjálfar
inn þurfi að vera læknir í líf-
eðlisfræði, eða tæknifræðingur
hvað knattspyrnu snertir. Aðal-
atriðið er, að hann hafi þekk-
ingu og skilning til að vinna úr
tiltækum leiðbeiningum, sem
samdar hafa verið af til þess
menntuðum mönnum og sam-
þykktar hafa verið af Alþjóða-
sambandinu.
Þjálfararnir, sem fóru til
London komust í mjög nána
snertingu við hið bezta, varð-
andi knattspyrnuþjálfun, sem
heimurinn hefur upp á að bjóða
í dag. Yfirmaður Tæknideildar
enska knattspyrnusambandsins
Mr. Allen Wade og aðstoðarmað
ur hans önnuðust kennsluna,
sem var bæði bókleg og verk-
leg. Auk þeirra voru þjálfararn
ir heilan dag undir handleiðslu
framkvæmdastjóra Arsenal F.C.
Mr. Bertie Mee og aðstoðar-
manns hans og var verkefnið
þrekþjálfun. Alls voru þjálfar-
arnir 7 daga á námskeiðinu, og
var unnið frá morgni til
kvölds alla dagana, en auk hins
bóklega og verklega náms, sáu
þjálfararnir þrjá stórleiki, þ.á.m.
landsleikinn England — A-
Þýzkaland, sem leikinn var á
Wembley, og sem þótti sýna bet
ur en orð fá lýst, hve ensk
knattspyrna er á háum mæli-
kvarða. Þjálfaramir fengu og
tækifæri til að fylgjast með
morgunæfingu hjá Chelsea F.C.
Fróðleikurinn sem þjálfaram
ir koma með heim er mikill og
nógur til að gjörbreyta skiln-
ingi og framkvæmd knatt-
spymuþjálfunar hér á landi, og
það er einmitt það, sem vakti
fyrir mér, þegar ég fór þess á
leit við enska sambandið að
koma námskeiðinu á, sagði Al-
bert Guðmundsson, þvl við meg
um ekki vera á eftir í einu eða
neinu, ef við eigum að gera
okkur vonir um að geta staðið
okkur í keppni við erlendar
þjóðir.
MENNTAÐIR ÞJÁLFARAR
Á stofnfundi Knattspyrnu-
þjálfarafélags Islands er ég
gerði grein fyrir þessum mál-
um, segir Albert, þá tilkynnti
ég þjálfurunum að ég teldi
hyggilegast að félagið yrði
stofnað eins og gert var, en síð
an myndi stjórnin vinna að þvi,
að 1. stigs námskeið yrði haldið
í janúar — febr. n.k. og knatt-
spyrnuþjálfararáðstefna í marz
— apríl. Síðan yrði 1. stigs
náimisfceiðiuim kom.ið á sem víð-
ast á landinu, og þannig unnið
markvisst að þvi að öll félög
ættu kost á að ráða til sín hæfa
knattspyrnuþjálfara.
Takmarkinu er náð, segir Al-
bert, þegar fullmenntaður þjálf-
ari annast þjálfun allra flokka
og þar sem þjálfari meistara-
flokksins er í rauninni fyrir-
svarsmaður þjálfunar félagsins,
heldur vikulega fundi með þjálf
urum yngri flokkanna, til að að
stoða þá við aðkallandi vanda-
mál og auka þekkingu þeirra.
N-ÍMSKEID OG
RÁÐSTEFNA
Þar sem Albert ræðir bessi
mál af eldmóði, bætti Svölvi við,
að Knattspymuþjálfarafélagið
mundi leggja bréf fyrir stjórnar-
fund KSÍ um stefnu félagsins
og starfsáætlun á næsta ári, og
væri hún í samræmi við það, sem
Albert hefur þegar sagt. Ráð er
gert fyrir að halda 1. stigs nám
skeið í janúar — febr, síðan er
gert ráð fyrir að halda sex nám
skeið út um landsbyggðina.
bókaútgAfa og
KNATTSPYRNUÞJÁLFUN
Albert sagðist hafa oft brýnt
fyrir íslenzkum knattspyrnu-
þjálfurum að þeir ættu að
leggja sig fram um að skapa
knattspyrnu, sem einkennandi
væri fyrir Island og Islendinga.
Fróðleikurinn og þekking sú
er þjálfararnir koma með heim
með sér frá London ætti að
geta orðið innlegg til sköpunar
íslenzkrar knattspyrnu byggðri
á nútima kröfum.
Albert sagði okkur einnig að
hann hefði beðið Karl Guð-
mundsson um að gera handbók
um allt námskeiðið, sem verður
svo afhent hverjum þjálfar-
anna, en auk þess sagðist Al-
bert hafa áhuga á því að koma
betur á framfæri, heldur en
raun bæri vitni, hinu geysimikla
starfi sem Karl Guðmundsson
hefur unnið að í fjölda ára,
varðandi knattspyrnuþjálfun og
skipulag leiksins. Hafi hann
fært í tal við Karl Guðmunds-
son að gefa út kennslubók
byggða á þeirri reynslu og
kunnáttu sem Karl hefur áunn-
ið sér með þessum störfum sín-
um, því Albert sagðist ekki í
vafa um að þar væri drjúgan
og dýrmætan sjóð að finna, fyr
ir íslenzka knattspyrnumenn.