Morgunblaðið - 31.12.1970, Síða 4
36
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. DESBMBER 1970
Stórmál ársins
hann sparkaði bolta alheill dag-
inn eftir. Lýsir knattspymuhetj
an lækningunni svo, að hann
hafi vaknað um þrjú leytið um
nóttina „við fiðring í tánni" og
hafi hann svo getað hlaupið með
sínum venjulega hraða eftir að
fiðringnum lauk.
Islenzka ríkisstjórnin sendi
boðbera á fund Nixon til að mót
mæla löngun hans til að sökkva
taugagasi í sjó niður. Tók Nix-
on vel við boðberanum og
sökkti gasinu daginn eftir.
Upp komst um vísindamenn,
sem einbeittu sér að rannsókn-
um á drykkjuskap, og sagði
Morgunblaðið, að drukknar rott
ur vísuðu þeim veginn. Reyndu
ýmsir að komast á mála hjá vís-
indamönnum þessum en rotturn-
ar útrýmdu öllum umsækjendum.
Eggert ráðherra geiði garð-
inn og Alþýðuflokkinn frægan,
er hann dró tvo Svía, 10 ára
dreng og eldri mann, upp úr
höfninni í Visby og hörmuðu nú
kratar mjög að hafa ekki fallizt
á haustkosningar. Lauk svo
ágústmánuði.
Islenzkur kjötmarkaður var
opnaður í Kaupmannahöfn í
byrjun september. Forsetahjón-
in fóru þangað utan, og hlutu
hlýjar móttökur. Hér heima mót-
mæltu verkalýðsfélögin útflutn
ingi dilkakjöts. Bólusótt kom
upp í Höfn, og voru 11 Islend-
ingar settir í einangrun vegna
tengsla við Skodsborgs-heilsu-
hælið, þar sem hún átti upptök
sín.
Sverrir Runólfsson skrifaði
eina grein af nokkrum um vega-
mál og Þorsteinn Gylfason
sendi frá sér bókina „Tilraunin
um manninn." Er þar fjallað
um vegamál andans. Komst þá
upp um afbrotaflokk unglinga í
Vestmannaeyjum.
Dýnamit fannst í hellum í Mý-
vatnssveit, og utanférðir Islend
inga jukust um 40%. Islending-
ar á Costa del Sol töldu þann
stað hinn næsta bezta á eftir
Þingeyjarsýslu. Var þá ákveðið
með lögum að stofna þjóðfélags
fræðideild við Háskóla Islands,
og 23 íslendingar voru komnir
í sóttkvi vegna bóluveikihættu.
Lax og lambakjöt var kynnt
á Mallorka en Halldór Laxness
svaraði þegar með útgáfu Inn-
ansveitarkroniku. Umræður
voru um fljótandi 1300 manna
hótel í Reykjavík, og þótti mörg
um nóg um, enda sprakk fullur
súrheysturn fyrir norðan á sama
tíma, og flóð var í Iðnó.
1 Vestmannaeyjum fannst
byssa frá tímum Tyrkjaránsins,
og telja núlifandi eyverjar
ófaranna á 17. öld þar með vera
endanlega hefnt. Jón Helgason
prófessor, færði rök að því, að
Egill gamli á Borg hefði ekki
ort Höfuðlausn. Svo vel vildi
til að gleraugu Hallgríms
Péturssonar komu í leitirnar í
sama mund, og stendur til
að senda prófessor Jóni þau
fljótlega. Nál frá 1245 fannst í
Mýrdal, og í Vik var um það
rætt að koma á fót sauma- og
prjónastofu.
Mál ársins á reyndar rætur
aftur um árabil svo sem góðra
mála er háttur, en rafmagnaðist
nú í yfirnáttúrulegt veldi 1970
fyrir þvermóðsku allra málsað-
ila. Komu harðir knútar á mál-
ið, sem fullyrða má að hafi hæst
látið daginn þann, sem bændur
og búalið bættu hermóðsku of-
an á þvermóðsku sina og
hjuggu á versta knútinn meður
dynamiti.
Síðari tíma annálsritarar
munu efalaust finna fram til
þess álits, að hvorki fyrr né síð-
ar hafi eitt einstakt mál hrifið
hugi og hjörtu landsmanna sem
þetta mál ársins 1970. Vart
finnst í landinu sá karl eður sú
kona, að viðkomandi hafi látið
málið með öllu afskiptalaust.
Nægir að benda á bókfærðar
samþykktir Kvenfélagasam-
bands Austur-Húnvetninga og
Nemendafélags Samvinnuskól-
ans því til skjalfestu.
Innan þeirrar sveitar, er mál
þetta heitast gerjaði í, urðu þess
vegna ýmis undur og stórmerki
á árinu. Veraldleg og geistleg
yfirvöld sveitarinnar — ann-
að með embættiskaskeiti og
hitt með myndavél — leiddu
söfnuð sinn til píslargöngu í aðr
ar sveitir, þeirrar fyrstu hér á
landi eftir símamálið, og bænd-
ur og búalið fylgdu svo fast
fram málstaðnum, að engri hey-
verkan varð sinnt; hvorki til
töðu né súrheys, en engu að sið-
ur komst þó maurasýra i málið.
Nú þegar aldið ár kveður og
annað yngra tekur við, sér eng-
an veginn fyrir lyktir þessa
mikla máls. Hefur þó þegar svo
margt misjafnt i því hent og svo
margar andstæðar álitsgerðir
verið um það samdar, að nægja
mundi í margar bækur. Munu
þeir margvíslegu og rafurmögn-
uðu þræðir eigi frekar raktir
hér, en þeim, sem til þess vill
virkja anda sinn, skal á bent,
að lygn streymir Laxá.
GLEÐILEGT ÁR
tc
<
GLEÐILEGT ÁR — GLEÐILEGT ÁR — GLEÐILEGT ÁR — GLEÐILEGT ÁR — GLEÐILÉGT ÁR — GLEÐILEGT ÁR — GLEÐILEGT ÁR — GLEÐILEGT ÁR
o
UJ
_J
Q
Ui
—J
<J
I
cc
<
o
LU
Q
UJ
<J
cc
<
<J
UJ
_J
Q
UJ
_j
<J
O
Q
UJ
O
cc
<
UJ
Q
UJ
_j
O
I
cc
<
V-
<J
UJ
J
Q
UJ
_J
<J
I
cc
<
h
<J
UJ
_J
Q
NÝÁRSDAGUR 1971
HÁTÍÐAR-matseðill:
Frúin hvílir sig á matargerðinni og fjölskyldan borðar hjá okkur !
Morgunverður:
Frönsk lauksúpa
Bacon og egg
Skinka og egg
Hamborgarar
Samlokur
Smurt brauð
Kökur
Kaffi
OPNUM NYARSDAG
klukkan 6 árdegis
vegna morgunverðar
gesta
Lokað klukkan 21
Þökkum viðskiptin
á liðna árinu.
NYRRA FULLKOMNARA
★ GRILL ★
MEÐ ÞESSUM GRILLRÉTTUM:
Hamborgarar m/frönskum kartöflum. 95.00
Djúpsteiktur fiskur m/frönskum kartöflum 95.00
Bacon og egg m/frönskum kartöflum. 110.00
Skinka m/eggi og frönskum kartöflum .... 130.00
London Lamb m/kjörsveppajafningi ...... 180.00
Lambakótilettur m/grænm. og fr. kartöflum 180.00
Mínútusteik m/fr. kartöflum og hrásalati 235.00
Turnbauti m/fr. kartöflum og béamasíe 275.00
y2 Grillsteiktur kjúklingur m/frönskum
kartöflum og hrásalati ...... 220.00
Heitar samlokur m/frönskum kartöflum 95.00
ÓDÝRASTA GRILLIÐ í BORGINNI
MULAKAFFI HALLARMÚLA SÍMI 37737
Kjörsveppasúpa
Djúpsteikt smálúða
m/remouladesósu
Beinlausir fuglar
m/kartöflumauki
Lambasteik m/grænmeti
Hangikjöt m/uppstúf
Buff m/béarnaisessósu
Grísasneiðar m/ananas
og Róbertsósu
Hamborgarhryggur
m/mateirasósu
ís m/sósum
Ávextir m/rjóma
Framreiðslan á hátíðar-
matnum hefst klukkan
11 árdegis á nýársdag
Hálfir skammfar
fyrir börn
Lokað klukkan 21
O
O
H
>
O
f—
m
O
r—
m
O
H
>
I
o
r—
m
O
r~
m
O
H
>
33
I
o
r~
m
O
r~
m
O
H
>
33
I
o
r~
m
O
O
H
>
33
O
m
O
o
H
>
33
O
O
o
H
>
33
GLEÐILEGT ÁR — GLEÐILEGT ÁR — GLEÐILEGT ÁR — GLEÐILEGT ÁR — GLEÐILEGT ÁR — GLEÐILEGT ÁR — GLEÐILEGT ÁR — GLEÐILEGT ÁR — GLEÐILEGT ÁR —