Morgunblaðið - 31.12.1970, Blaðsíða 5
MOROUN'BLABIÐ, FIMMTUDAGUR 31. DBSBMtBER 1976
37
Bencdikt frá Hofteigi gerði
merka uppgötvun með hey-
þurrkunarverksmiðju í Hvera-
gerði, er Eyvindur nefndist.
Því miður brann uppgötvun
in til kaldra kola skömmu síðar.
Lokkur úr hári Bertels Thor-
vaidsen barst Þjóðminjasafn-
inu, sem leikmaður mun hafa
klippl: úr hári hans nýlátnum.
Ekki hefur frétzt af viðbrögð-
um Rakarameistarafélags Is-
lands.
Þrjú keðjubréfafyrirtœki
voru sett á stofn um líkt leyti,
og einn maður hældi sér yfir
þvi að hafa grætt 440 þúsund
krónur á 2—3 dögum. Starfs-
mönnum Skattstofunnar var
skemmt. Þá fundust bein í is-
lenzkum fiskstautum í Banda-
ríkjunum. Forráðamenn ísl. fisk
framleiðslufyrirtækjanna þar ef-
uðust hins vegar um, að starfs-
menn Neytendasamtakanna þar-
lendis hefðu bein í nefinu til að
bera skynbragð á slíka hluti,
þannig að staðhæfing stóð bein
línis gegn staðhæfingu. Könnun
var gerð á útflutningsmöguleik-
um niðursuðuverksmiðjanna ís-
lenzku. Kom i ljós, að markaðs-
viðliorfin hér heima eru stærsta
hindrunin, og forráðamenn
verksmiðjanna hér svara iðu-
lega ekki bréfum erlendra aðila.
Til tals hefur komið endurskoð-
un á skriftar- og málakennslu í
íslenzka fræðslukerfinu,
Og loks fékk Bjöm á Löngu-
mýri Skjónu gömlu — „hestinn
úti I ánni,“ eins og Magnús Ás-
geirsson segir svo fallega i þýð-
ingu sinni á Vögguljóði Lorca.
Málið var það, að granni Björns
átti skjótta meri, sem týndist.
Skjótt meri fannst síðan dauð i
pytti, og var í fyrstu haldið að
þar væri meri grannans. Litlu
síðar var skjótt meri komin í
stóð Björns, en eitt sinn í hesta
rétt þóttust menn lesa mark
granna Bjöms á meri þessari og
var hún færð honum. Urðu nú
harðvítugar deilur um eignarétt-
inn á Skjónu og íór málið fyrir
dömstóla. Við málflutning kom
m.a. fram að dóttir Bjöms
„mundi eftir skjóttri meri vetur-
inn sem Stalín dó og hún var sjö
~\>|Y
ára.“ Þessi vitnisburður var af
ar þýðingarmikill, þar sem Birni
var dæmd Skjóna gamla á
grundvelli eignarhefðar. „Já,
víða liggja þræðirnir, Stalín
minn, það sannast núna,“ varð
Húnvetningi einum að orði, þeg-
ar hann frétti málalok. Skjónu
mun hins vegar hafa verið slátr-
að, og er hún úr sögunni.
Gos hafði staðið yfir i Jan
Mayen en var í rénun i byrjun
október. Komst Island þá aftur i
brennipunktinn og var kynnt i
öllum stærstu vöruhúsum í
Bandaríkjunum.
Bandarískir geimfarar gistu
landið í byrjun október og trufl
uðu geim þeirra félagsstörf Há-
skólastúdenta. HIupu blaða-
menn þá undir bagga og björg-
uðu geiminu.
Góður er hver genginn segir
máltækið. 1 Velvakanda 4. októ-
ber birtist bréf um útfararræð-
ur, þar sem m.a. í er þetta: „Or
þvi að ekki má segja um hinn
Íátna, hvemig hann í raun lifði
lífinu hér á jörðu, og ræður
prestanna bera það með sér, að
hann hafi verið algóður og synd
laus, þegar hann er kominn í
kistuna, eru prestamir þá ekki
orðnir hræsnarar og syndarar
með því að skökva upp á hinn
látna . .?“ Þrátt fyrir þessi
skrif gekk kosning fulltrúa
á Kirkjuþing snurðulaust fyrir
sig og fjölgun prestakalla í höf-
uðborginni var ákveðin.
Ástand dráttarvéla i landinu
var kannað og reyndist sízt
betra en fyrri ástönd, sem lands
menn hafa kynnzt. Settust borg-
arfulltrúar þá á skólabekk.
Slátursalan var í hápunkti og
önnuðu slátursalar ekki eftir-
spum en franskir fengu íslenzkt
lambakjöt flugleiðis á diska
sína. Kvörtuðu menn sáran yf
Flugeldar
Bengalbyls, Eldflaugar,
Eldgos, Fallhlífaflugeldar,
Stjörnuljós, Stormeldflaugar,
Tunglflaugar,
Mikið úrval á lægsta
verði.
Opið til kl. 2 í dag.
ar
V -
^vöruvef^
Ingólfs Oskarssonar
Klapparstíg 44 — sími 11783
ir misréttinu og sá Magnús Mel-
ur sér þá leik á borði að hækka
enn áfengi og tóbak. Er Island
nú eitt land, þar sem rónar
halda bændum að búum, en móð-
urmjólkin ein er óniðurgreidd.
Fjölgar nú og ungum mæðrum í
landinu en færri konur á fimm-
tugsaldri fæða böm en áður.
Jóhann Hafstein smellti þann
10. saman ráðuneyti fyrir sjálf-
an sig og skildi þá dómsmála-
stólinn eftir auðan. Fékk hann
konu til að gæta hans en gein
sjálfur áfram yfir iðnaðarmálum,
enda höfðu nú Þingeyingar,
hans æskuleikfélagar, séð hon-
um fyrir skemmtan nokkurri á
þvi sviði. Þennan dag lentu
„tvær bifreiðar og hús í
árekstri" í Reykjavík.
Spekingar miklir hófu upp
raust sína nálægt miðjum mán-
uðinum og sögðu neyzlu fíkni-
lyfja litla hér á landi enn sem
komið væri. Físti þó marga að
vita, hvernig þeir hefðu komizt
að þessari niðurstöðu.
„Ekkert nema verk mannsins
getur veitt honum heiður,“ hafði
Morgunblaðið eftir Tómasi Guð-
mundssyni 13. október og gengu
þá yfirmenn farskipa í land.
„Allir geta orðið samkvæmis-
hæfir,“ segir aftur á móti ungur
fótmenntamaður í Morgunbiað
inu 20. október og tóku þá þrír
varaþingmenn sæti á Alþingi.
Rauðsokkur kváðust nú ætla
að vinna i starfshópum og var
þá stofnað félagið „Heimilis-
vernd“ í Keflavík en háskóla-
menntaðir kennarar lögðu niður
vinnu. Gamla kompaníið brá sér
til Mallorka.
Gifurlegt borholugos varð svo
á Reykjanesi undir mánaðalok-
in. A.S.l. hætti þá óðar viðræð-
um við ríkisstjórnina um verð-
bólguvandann, hvað varð til
þess að, fargjöld með strætis-
vögnum hækkuðu. 1 nóvember
beinist athyglin nær eingöngu
að höfuðborginni, enda verður
hún þá vettvangur umræðna og
skoðanaskipta í tveimur stórmál
um — „Táknmáli ástarinnar" og
hundahaldi. Var Velvakandi
mjög vökull þennan mánuð, en
þar birtust greinarstúfar 1
hrönnum um þessi tvö mál, en
helzti talsmaður andklámista,
Kristján Albertsson, fékk fína
staðinn við hliðina á forustu-
greinum Morgunblaðsins undir
skrif sín.
Aðrir atburðir féllu að mestu
í skuggann, en getið skal ör-
fárra. Tveir sjómenn af Suður-
nesjum urðu sér t.a.m. út um
ókeypis ferð til New York með
Loftleiðum. Gengu þeir athuga-
semdalaust um borð í þotu Loft
leiða án farseðla, og fóru at-
hugasemdalaust í gegnum út-
lendingaeftirlitið án ferðaskir-
teina. 1 stað þess að fagna þeim
sem þjóðhetjum, var þeim komið
í vörzlu lögreglunnar, þegar
heim kom. Slagsmál urðu í Hafn
arfirði út af árekstri. I Hafnar-
firði kom líka upp ágreiningur
að upphæð 200 millj. krónur
Framh. á bls. 40
( Bókin fyrír
bifreiðaeigendur
Samvinnutryggingar hafa lagt meginóherzlu á tryggingar fyrir sannvirði, góða þjón-
ustu og ýmiss konar fræðslu- og upplýsingastarfsemi.
í samræmi við það hefur bókin „Bíllinn minn“ verið gefin út órlega um nokkurt
skeið. í hana er hægt að skrá allan rekstrarkostnað bifreiðar i heilt ár. Auk þess eru
í bókinni öll umferðarmerkin og aðrar gagnlegar upplýsingar fyrir bifreiðastjóra.
Bókin mun verða send, endurgjaldslaust, í pósti til allra viðskiptamanna okkar, sem
þess óska.
A-- »1
Látið því Aðalskrifstofuna í
Reykjavík eða næsta umboðsmann
vita, ef þér óskið, að bókin verði
send yður.
ÁRMÚLA 3, SÍMI 38500
SAJVTVirvrVUTIVYGGirVGAR
POSTSENDUM