Morgunblaðið - 08.01.1971, Side 24

Morgunblaðið - 08.01.1971, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. JANÚAR 1971 Cellóið er veðsett — það voru ekki til meiri mjólkurpeningar ekki missa aJ bonum Charlie McCarthy fyrir nokkurn mun! Það var hreinn dúkur á borð inu, og þjónn kom aðvífandi til þeirra. — Tvöfaldan viskí, sagði Jim. Þjónninn leit á Kath- leen en hún hristi höfuðið. — Kaffi handa mér, sagði hún, — stóran bolla af svörtu kaffi. — Fljótur nú! sagði Jim við þjóninn og honum var mikið niðri fyrir. Hann sagði ekki orð meðan þau biðu. Sat bara og starði fram fyrir sig. Nei, þó ekki fram fyrir sig, heldur úr nútíð inn í fortíðina. Hún reyndi að finna málsbætur. Nú var henni að verða ljóst, hvað þetta þýddi, hvað það hlaut að þýða. En Franc- esca Haines var viti sínu fjær. Maður varð að láta það, sem hún sagði eins og vind um eyrun þjóta. Það voru ómerk orð. Þjónninn kom með viskíið og siðan með kaffið. Jim drakk og setti siðan frá sér glasið. Hann fór að tala. — Ég hitti hana, sagði hann, — í samkvæmi. Mikil ljós og margt fólk. Þetta var um sumar og það var dansað. Hún var . . . Hann þagnaði sem snöggv- ast en hélt síðan áfram. — Ég hafði vitanlega hitt hana áður, þvi að við höfum verið i skóla saman. En þetta var í fyrsta sinn, sem ég kynntist henni al- mennilega. Þú veizt kannski, hvað ég á við. Hann þagnaði. — Já, ég skil það, sagði Kathleen lágt. Hún kunni ekki við að heyra hann tala með þessari lágu, tilbreyt- ingarlausu rödd og stara út í bláinn. Hún vildi heldur ekki heyra það, sem hann ætlaði að segja. En hún varð að gera það. Sjálfs hans vegna varð hún að iofa honum að tala. Hann hélt áfram: — Ég þekkti ekki Fat nema rétt i sjón. Ég sá hann i fyrsta sinn í brúðkaupinu. Mér fannst hann glæsilegur. Hann var eitthvað skyldur fólkinu hennar. Hann benti þjóninum. — Sama aftur, sagði hann. Kaffið var brennheitt. Kath- leen setti frá sér þykka boll- ann, til þess að láta hann kólna. — Ég vissi, að einhver hafði verið þar áður en ég kom til sögunnar. Hún hafði verið ást- fangin af honum og hann hafði farið illa með hana. Hún vildi ekki tala um það og ég gekk heldur ekki eftir þvi. Ég spurði hana aldrei um nafnið á mann- inum. Nú þagði hann lengi, og þjónninn kom með annað glas. Hann tók aftur til máls og þerraði sig kæruleysislega um munninn með handarbafdnu. Seinna vildi svo til, að gamli maðurinn, pabbi hans Pats, sendi eftir mér og lét mig hafa vinnu. Seinna frétti ég, að Pat hafði fengið hann til þess. Hann sagði, að ég yrði að fá tækifæri. Hann hló og það setti hroll að Kathleen. — Þá er sagan öll, sagði hann. Nú leit hann á hana í fyrsta sinn. Hann bætti svo við, rétt eins og hann væri nú fyrst að sjá, hver sæti hjá honum: — Ég gat ekki þolað þig á staðnum, eins og þú vissir. Ég hugsaði, að ef Pat færi að giftast þess- ari hefðardömu, færi illa fyr ir honum. En eftir að þú talaðir við mig um daginn, vissi ég, að mér hafði skjátlazt, og að hann væri lukkunnar pamfíll. En svo sagðirðu mér, rétt eins og ekkert væri um að vera, að því væri öllu lokið. Ég hélt, að ég hefði látið blekkjast, eftir allt saman. Ég hugsaði, að ef hún særði hann . . . en þá datt mér í huig, að ég 'hefði haft á réttu að standa fyrst og hún mundi særa hann enn meir með þvi að gift- ast honum. Jæja, þú varst glúrin. —- Slepptu mér alveg í þessu sambandi, Jim, sagði Kathleen. — Ég skipti þama engu máli. Þú ætJar þó ekki að fara að haida . . . ? Hún vissi ekkert, hvað hún var að segja, hún er ekki eins og annað fólk. — Hún er brjáluð, sagði hann. — og þú veizt ekkert, hvað ást er. Hún er brjáluð og hún er lokuð inni og ég hef ekkert af henni framar. Hún var . . . hún vildi gjama hlæja . . . hún er alveg eins og krakki. Hún var . . . hún vildi gjarna hlæja . . . hún var alveg eins og krakki. Hún var alltaf að reyna að koma mér að óvörum, annaðhvort með nýjum kjól eða nýjum mat. Hún hafði ætlað sér að gerast leikkona og var það líka stuttan tíma. Hann hjálpaði henni. En þegar við urðum ást- fangin hvort af öðru, þá hætti hún að kæra sig neitt um leik- sviðið. Hún elskaði mig raun verulega, eins og þú heyrðir hana segja. — Vitanlega elskaði hún þig, Jim. — Já, einmitt, sagði hann. — Ó, ég veit hvað læknarnir sögðu: móðir hennar var alveg eins eftir að hún fæddist. En hún var heeg og stillt nema rétt þegar hún var hlæjandi. En hún var hæg og stillt nema rétt þegar hún var hlæjandi eða reið. Þá skaut hún neistum og þá var hún falleg. Hún hefði getað verið heilbrigð . . . hefðu ekki þessar áhyggjur verið. Hún var hrædd um, að ég kæm- ist að öllu saman. Hann var vanur að koma heim til okkar eftir að við vorum gift. Stundum bauð hann okkur út í kvöld- verð eða leikhús. Þó ekki mjög oft. Ég var vanur að segja: — Hann er fyrirtaks náungi, finnst þér ekki? Og þá svaraði hún: — Já, það er hann sannar- lega. Hann benti þjóninum aftur. Kathleen hreyfði mótmælum í ör væntingu sinni, en hann hlust- aði ekki á hana. — Já, svona var það. Hún f DAG ÓDÝRU RÚLLUPILSURNAR ÓDÝRU SVIÐIN FOLALDA-SNITZEL FOLALDA-GÚLLASH NÝSLATRAÐ KALFAKJÖT ÚRVALS HVALKJÖT NAUT A-SNITZEL NAUT A-GÚLLASH Maður óskast til að vinna í bókhaldi hjá stóru fyrirtæki. Tilboð óskast send til afgreiðslu blaðsins fyrir þriðjudagskvöld merkt: „Bókhald — 6525". Aðstoðargjaldkeri Viljum ráða nú þegar skrifstofustúlku (ekki yngri en 20 ára) til aðstoðar aðalgjaidkera. Stúlkan verður að vera samvizku- söm, kunna vélritun og þekkja undirstöðuatriði bókhalds. Upplýsingar um aldur, menntun og fyrri störf sendist aðal- skrifstofu félagsins Hafnarstræti 5, fyrir 12. janúar n.k. OLlUVERZLUN ISLANDS H.F. PLAKOT Nú eru komin stór Adam plaköt á 25 kr. stykkið Hjúhrunorkonur óskust Hjúkrunarkonur vantar nú þegar í Kleppsspítalann. Upplýsingar hjá forstöðukonunni í sima 38160. Reykjavik, 6. janúar 1971. Skrifstofa rikissptalanna. I. vélstjóru vantar á 140 rúmlesta skip. Upplýsingar gefur Guðmundur Runólfsson, Grundarfirði Sími 93/8618. MfMIR Fjölbreytt og skemmtilegt tunguniálanám. Áherzla er lögð á létt og skemmtileg samtöl í kennslustundum. Samtölin fara fram á því máli sem nemandinn er að læra, svo að hann æfist í því allt frá upphafi að TALA tungu- málin. Síðdegistímar og kvöldtímar fyrir fullorðna. Enskuskóli barnanna. — Hjálpardeilclir unglinga. sími 1000 4 og 111 09 (kl. 1—7 e.h.) Málaskólinn MÍMIR Brautarholti 4.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.