Morgunblaðið - 08.01.1971, Síða 28
IESIÐ
DDCLECn
Ptor^uwWaliítlK
FÖSTUDAGUR 8. JANUAR 1971
nUGLVSHICRR
#*~*22480
Gufumekkir
úr Surtsey
1 GÆR tilkynnti togarinn Marz
Veðurstofunni að miklir gufu-
mekkir virtust stiga upp af Surts
ey og væru þeir nokkuð dökkir.
Dr. Sigurði Þórarinssyni var
gert viðvart. 1 Vestmannaeyjum
fékk hann þær upplýsingar að
þetta mundu bara vera óvana-
lega miklar gufur. En þó flaug
hann ásamt Guðmundi Sigvalda-
syni og Þórólfi Magnússyni flug-
manni yfir eyna.
Þeir voru yfir Surtsey um ld.
2 siðdegis og eins og þeir bjugg-
ust við, voru þar miklar gufur,
en ekkert sem benti til goss, að
þvi er Sigurður sagði Mbl. Loft-
ið var alveg mettað, svo að ó-
venjumikið rauk úr svseðinu, þar
sem rúældur hefur verið hiti sein
ustu tvö árin. Einnig hefur
mælzt taisverður hiti í eldri gjall
gignum i sumar og fyrravetur
og þar rauk úr nú. Sagði Sig-
urður að eyjan hefði lítið breytzt
í vetur, enda ekki mikil veður.
Friðrik á sterku
skákmóti í Hollandi
FRIÐRIK Ólafsson tekur þátt
alþjóðlegu skákmóti, sem hefst
í Beverwijk í Hollandi n.k.
þríðjudag. Mót þetta er haldið
ár hvert og hefur svo verið allt
frá stríðslokum. Fríðrik tók
síðast þátt í þessu móti í hitteð-
fyrra.
Margir sterkir skákmenn
verða meðal þátttakenda á móti
þessu, að því er Friðrik tjáði
Pilts
saknað
— af ísl. skipi
í Banda-
ríkjunum
UNGS pilts er saknað af ís-
lenzku skipi, sem var í höfn í
Bandaríkjunum um áramótin.
Vegna aðstandenda er ekki
hægt að greina frá nafni hans.
Pilturinn var léttadrengur á
íslenzku flutmngaskipi, sem
iosaði vörur í Cambridge í
Maryland um áramótin. Hann
íór þar í land á gamlárakvöld
ásamt skipsfélögum sínum til
að skemmta sér, og komu þeir
allir saman um borð aftur um
nóttina. Næsta morgun fannst
pilturinn hins vegar ekki og
ekkert hefur til hans spurzt síð-
an, þrátt fyrir að lýst hafi verið
eftir honum vestan hafs. Vakt-
maður um borð í skipinu kveðst
ekki hafa orðið var við neinar
mannaferðir frá skipinu á nýárs
nótt eftir að mennirnir voru
komnir um borð aftur.
Morgunblaðinu í gærkvöldi. Má
þar nefna m.a. Petrosjan, Kors-
chnoj, Smyrslov, allir frá Sov-
étríkjunum, Gligoric og Ivkov
frá Júgóslavíu; Hort frá Tékkó-
slóvakíu, Hiibner frá V-Þýzka-
landi, Naidorf frá Argentinu,
Mecking frá Ðrasilíu og Uhl-
mann frá A-Þýzkalandi. Margir
þessarra skákmanna voru meðal
keppenda á mótinu á Mallorka
nú nýlega.
Friðrik hefur ekki teflt er-
lendis frá þvi í marzmánuði í
fyrra, og aðeins einu sinni hér
heima síðan — á haustmóti
Taflfélags Reykjavíkur. í við
tali við Morgunblaðið i gær
kvaðst hann vita, að æfinga-
leysið hjálpaði ekki á S’
sterku móti sem þessu, en
kvaðst þó hafa gert sér far um
að fylgjast með, eins og kostur
væri. „Ég stefni þó að því að
verða í efri hópnum,“ sagtij
Friðrik.
Þátttakendur á mótinu verða
alls 16. Sem fyrr segir hefst það
á þriðjudag n.k. og stendur til
mánaðarloka.
Meira
smyglgóss
— í Lagarfossi
VIÐ rannsókn smyglmálsins í
Hafnarfirði, er skipverji á Lag-
arfossi var tekinn með nokkurt
magn áfengis, svo sem skýrt var
frá í Mbl. í gær, hefur komið i
ljós að annar skipverji átti að
auki 11 flöskur af sterku áfengi
og 154 vindlingalengjur. Báðir
hafa viðurkennt brot sitt.
Lögreglubifreið þessi valt og skemmdist mikið, er hún lenti í árekstri við vörvibifreið á mótum
Kalkofnsvegar og Hverfisgötu um kl. 1.30 í fyrrinótt. Lögreglubifreiðin var nýfarin frá Lög-
reglustöðinni á leið í útkall, og lentá vörubifreiðin aftarlega á henni með fyrrgreindum afleið-
ingum. Engan lögreglumannann a í bifreiðinni sakaði svo teljandi sé. (Ljósm. Mbl. Sv. Þonm.)
Yfirmenn felldu
bátak j arasamningana
Samningaviðræður á ný í dag
YFIRMENN á bátaflotamim,
sem eru aðilar að Farmanna- og
fiskimannasambandi Islands,
felldu í gær bátakjarasamning-
ana, sem gerðir voru fyrir jól-
in með fyrirvara. Lauk talningu
í gær og féllu atkvæði þannig,
að 145 sögðu nei, 137 sögðu já,
1 seðill var ógildur og 3 auðir.
Afikvæði greiddu skipstjórar,
stýrimenn og vélisitjórar í öilikim
aðiMartfélögum sambandsins,
nema á Isaifirði, þar sem samn-
ingair eru ek)ki lausir, og í Vest-
maimiaeyjuim, þar sem ekki hef-
ur enn náðst samkomuDag um
verð á uiflsa. Fundur var i Eyjum
i gærkvöSidi um þessi mál, en
Flateyri:
Bátur slitnar frá
— og olli skemmdum á öðrum bát
Flateyri, 7. janúar.
HÉR HVESSTI skyndilega upp
úr hádeginu í gær með norðaust-
an stormi. Þá slitnaði mb. Bragi
frá bryggju og rakst á mb. Ás-
geir Torfason. Við áreksturinn
skemmdist síðarnefndi báturinn
allmikið, og eru allar horfur á,
að hann verði að fara í slipp á
ísafirði.
Þrír bátar eru hér að hefja
Nýtt verkstæði Glits:
Af köstin tuttuguf aldast
— getur framleitt 5-600 þús.
stykki á ári
UM ÞESSAR mundir er unnið
að því að setja niður vélar í nýju
verkstæði Gliti h.f. Fyrirtækið
hefur tekið á leigu rúmlega 2000
fermetra húsnæði í byggingu fs-
lenzkra aðalverktaka að Höfða-
bakka 9. Þrír menn eru þegar
komnir frá Tékkóslóvakíu til að
ajmast niðursetningu vélanna, og
von er á öðrum þremur. Verk-
smiðjan er að öllu leyti skipulögð
í Tékkóslóvakíu, en náin sam-
vinna hefur lengi verið milli
tékkneskra keramíkmanna og
Glits.
Að því er Einar Elíasson, fram
kvæmdastjóri Glits tjáði Mbl. í
gærkvöidi, má gera ráð fyrir því
að afköst Glits h.f. tuttuigufaldist
með tilkomu nýja verikstæðisiins
og árstframleiðslan geti orðið
millli 5—600 þús. stykki. Gífurleg
eftirspuxn hefur verið eftir kera
miikvörum Glits, og gamila verk-
stæðið hefur aðeins getað annað
litlum hliU'ta þess. er beðið hetfur
verið uim. Að því er Einair tjáði
Morgunblaðinu kosta vélarn,ar
um 5 þúsund doiilara, komnar tiil
Hamborgar, en við þa.ð bætist
síðan fliutninlgur til íslands og
niðursetning.
Ljóst er, að í fyrstu veirður að
fá tailsvert af þjálfuðu startfstfóliki
erlendis frá, en þó áformað að
einn íslendinigur muni staría með
hverjum útliendingi. Eamitals er
gart ráð fyrir aö 40—50 manms
starfi í nýja verkstæðimu, þegar
fullum afköstum er máð. Einar
kvaðst vonast tii, að nýja verk-
stæðið gæti tekíð að nokkru til
starfa með vorirnu, en treysti sér
ektki til að spá um hvenær fufll-
um afköstum yrði náð.
róðra með línu, og einn fer á
togveiðar. Þeir munu allir leggja
upp hér í frystihúsinu. Ennfrem-
ur er von á nýjum báti sem nú
er í smíðum í Skipasmíðastöð
Marselíusar Bernharðssonar. Bát
urinn er 115 lestir og væntan-
legur í marz eða apríl.
Árið, sem var að líða, hefur
verið íbúum Önundarfjarðar
mjög hagstætt hvað atvinnu
snertir. Rekstur frystihússins
gekk mjög vel á árinu, og horfa
menn hér björtum augum til
nýja ársins. — Kristján.
homuim var ótokið, er síðast frétit-
ist.
Að því er Imgóltfuir Stefánsson
hjá Fammanina- og fislkiimainina-
sambandinu tjáði Mongumblaðiniu
i gærtovöldi, miumu samninga-
nefndir Fanmamna- og fistoá-
mannasamibandsins og LÍU vænf
anleiga tooma samian táfl. fundar 1
dag til fretoairi viðræðna uan
samminigana. Aðrar átovarðanir
hafa eklki verið teknar á þessiu
st'igL
Allmörg
innbrot
— í fyrrinótt
ALLMÖRG intnbrot voru framiin
í Reykjavík í fynriniótt og altla
staðair stolið eimhverju smáræði
af skiptimymt. Á eiimum stað viair
stolið um 20 til 30 vindlinga-
lengj'uim. Var það í Bæjamesti
Hinir ininbrotsstaðiimir voni':
Maddakatffi að Háal'eiltiisvegi 109,
Kexverksmiðjan Esja, Sláturfé-
lag Suðurlands við Skúlagötu og
Tjam'anbæir, en þaðan hvarf eiitt
hvað af sælgætí.. Úir Imgólfs
apóteki var stoilið einhverju atf
töfflum.
Ekið á roskinn mann
á Hringbraut
KKIl) var á roskinn mann &
Hringbraut um miðjan dag i
gær á móts við Smáragötn. Mað-
urinn, Einar Pálsson, 72ja ára
til heimilis að Leifsgötu 3, fór
úr lið og brákaðist á axlarlið og
blant ennfremur heilahristing.
Bíllinn, sem maðurinn varð fyr-
ir var á mjög hægri ferð að sögn
rannsóknarlögreglunnar.
Ökumaður bílsins, sem lenti á
manninum ber að hann hafi ver-
ið á vinstri akrein, ekið hægt og
hafi hann ætiað yfir á hægri ak-
rein. Þar var annar bíll og er
maðurinn var að flytja sig yfir
á hægri akreinina leit hann fyrst
í baksýnisspegilinn, þvi næst til
hægri, en loks beint fram, en þá
varð maðurinn fyrir bílnum.
Hemlaför voru nánast engin,
enda mun billinn ekki hafa ver-
ið á hraðri ferð. Hins vegar var
bíll, sem var næstur á eftir nærri
kominn aftan á hinn fyrri og
voru hemlaför hans nokkuð
skörp.
Maðurinn var fluttur í slysa-
deild Borgarspítalans.