Alþýðublaðið - 31.07.1920, Side 4
4
ALÞYÐUBLAÐIÐ
loll koniEipr.
Fundur
verður haldinn í sÖkufélagi Reykjavíkur« sunnudaginn i. ágúst kl. 4
síðdegis í Alþýðuhúsinu. — Nauðsynleg málefni til umræðu.
Stjórnin.
Eftir Upton Sinclair.
Fjórða bók:
Erfðaskrá Kola konungs.
(Frh,).
„Flýtið yður maður", kallaði
Haliur. „Eg get ekki haldið
múgnum í skefjum til eilífðar. Ef
þér viljið ekki hleypa öllu í bál
og brand, þá áttið yður“.
„Jæja þá!“ sagði Cartwright og
varð að sitja á bræði sinni. Hall-
ur snéri sér þá að nianngrúanum
til þess að tilkynna honum, að
þetta væri fengið. Því var tekið
með löngu gleðiópi.
„Hverjir eiga að fara inní“
sagði Hallur, þegar hann fekk
aftur hljóð. Hann horfði yfir hóp-
inn, hugsaði nm Tim og Wauc-
hope, sem höfðu haft sig mest í
frammi, en kaus heldur að hafa
sjálfur eftirlit með þeim. Þá varð
honum Iitið á Jerry Minetti og
frú David — en mintist þá á-
kvörðunar Jacks, um að halda
hóp þeirra utaa við þetta. Því
næst datt honum Mary Burke í
hug; hún hafði unnið sér það til
óhelgi, sem unt var, og allir
treystu henni. Hann kallaði því á
hana og ameríska konu, sem hann
sá í hópnum. Þær komu upp á
tröppurnar, og Hallur snéri sér að
Cartwright.
„Það er þá afráðið", sagði
hann, „þessar tvær konur fara
inn og dvelja hjá sjúklingunum
og tala við þá, ef þeir vilja það,
og engir hafa yfir þeim að segja
nema læknarnir og hjúkrunarkon-
urnar, er ekki svo?“
„Ætli það ekki“, sagði námu-
stjórinn ólundarlega.
„Ágætt", mælti Hallur, „en í
Guðs bænum, haldið loforð yðar,
því þessir menn hafa þolað alt,
sem þeir megna, ef þér reitið þá
frekar til reiði, koma afleiðiag-
arnar yfir höfuð yðar. Og meðan
á þessu stendur, þá sjáið um, að
knæpunum sé lokað og að þær
verði ekki opnaðar fyr en óveðr-
inu er slotað. Sjáið líka um, að
þjónar yðsr séu ekki á ferli, að
sýna skammbyssurnar".
Án þess að bíða svars, snéri
Hallur sér að fólkinu og rétti upp
hendina til merkis um þögn.
„Verkamenn", mælti hann, „vér
höfum mikið verk að vinna -—
við þurfum að stofna félag vort.
Við getusn ekki gert það hér
framan við sjúkrahúsið. Við skul-
um með stillingu fara bak við
aflstöðina og stofna það þar. Eruð
þið mér sammála?"
Svarið var játandi, og þegar
Hallur hafði séð um að konurnar
voru óáreittar komnar inn í sjúkra-
húsið, stökk hann niður af tröpp-
unum og gekk í farabroddi á á-
kvörðunarstaðinn. Jerry Minetti
kom til hans, frá sér numinn af
fögnuði. Hallur greip í handlegg
honum og hvíslaði: „Láttu þá
syngja, Jerry! Góðan ítalskan
söngl"
Þetta og hitt.
Ekki er ðll vitleysa eins.
Ameríkumenn eru áreiðanlega
allra manna frumlegastir ekki síð-
ur í „sporti" en öðru. Síðasta
uppátæki þeirra á því sviði, er
að þeir eru teknir að baða sig
upp úr mold og leir. Þykir þetta
hin mesta skemtun og auk þess
mjög heilnæmt. Ekki þarf að geta
þess, að baðhús — það er að
segja þar sem vatn er notað —
eru reist til þess að þvo aurinn
af skrokknum á eftir.
Eugenia keisaraekkja
arfleiddi spánskan frænda sinn,
Ferdinant Stuart, greifa af Montijo,
að öllum eigum sínum á Spáni;
en eignir hennar í Englandi runnu
til prins Victor Napoleon, núver-
andi ættarhöfuðs Bonapartanna í
3. ættlið. Lík keisaraekkjunnar
var flutt ,til Englands og jarðsett
þar.
Elugmiðafargau.
Þegar síðustu þingkosningar
fóru fram í Berlín, voru húsvegg-
irnir uppeftir öllu þaktir auglýs-
ingum og flugmiðum, kosningar-
daginn. Fengu fjöldi manns at-
vinnu við það á eftir að þvo
húsin utan.
M—^—————1—
DreugirT
Munið eftir Þróttl snemma
: : á mánudagsmorguninn. : :
Työ herbergi og eldhús
óskast til leigu fyrir 1.
okt. — Afgreiðsla vísar á.
kaupendur blaðsins, sem hafa bú-
staðaskifti eru beðnir að tilkynna
afgreiðslunni það. Sömuleiðis eru
menn ámintir um að gera að-
vart, ef vanskil eru á blaðinu.
er ódýrasta, fjölbreyttasta og
bezta dagblað landsins.
Kanpið það og lesið, þá
getið þið aldrei án þess verið.
AIilíil vandræði! Þvott-
urinn minn núna er allur með
rgðblettum, hvaða ráð er til að
ná þeim úr og forða honum við
eyðileggingu? Bæta má úr því-
Sendu bara í verzlunina „Hlíf“ á
Hverfisgötu 56 A, hún er nýbúin
að fá þýzkt efni, er tekur alla ryð-
bletti strax úr þvottinura, án nokk-
urra skemda á honum. Pakka
þér hjartanlega fyrir bendinguna-
Alþbl. kostar I kr. á mánuflí*
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
_______Ólafur Friðriksson.______
Prentsmiðjan tiutenberg.