Morgunblaðið - 23.07.1971, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 23.07.1971, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JÚLl 1971 11 Minning: Ottó Guðjónsson bakarameistari Miðvikudaginn 14. þ.m. varð bráðkvaddur 4 Patreksfirði Ottó Guðjónsson, bakara- meistari, Strandgötu 5, Hann verður til grafar borinn í dag. Ottó Guðjónsson var fæddur á Isafirði 1. nóv. árið 1900. For- eldrar hans voru merkishjónin Guðjón Magnússon og Sigríður Haildórsdóttir, en hún var af hinni viðkunnu Arnardalsætt. Þeim hjónum varð 12 barna auð- ið og komust 10 þeirra upp til fullorðinsára, allt óvenju dugmikið og glaðvært fólk. I>au hjón bjuggu lengst af á Isafirði og þar ólst Ottó upp og lærði bakaraiðn. Árið 1925 fluttist Ottó til Pat- reksfjarðar og hóf þar störf við bakari Ó. Jóhannessonar h.f. Við það fyrirtæki starfaði hann fram til ársins 1943, en þá yfir- tók hann rekstur þess, ásamt bróður sínum, Guðjóni kaup- manni á Patreksfirði. Tveim ár- um síðar hófu þeir hræður að bytggja eigið húsnæði fyrir starf semi sína og sjálfa sig að Strandgötu 5 á Patreksfirði, og er það hús enn í dag stærsta hús staðarins og sýnir glögglega stórhug ög dugnað þeirra bræðra. Mörg undanfarin ár hef ur Hafliði, sonur Ottós, sem fet- aði í fótspor föður síns og lærði hjá honum bakaraiðn, rekið bakaríið á Patreksfirði Ottó Guðjónssom var félags- lyndur maður, iéttur og kátur í lund, og tók þátt í margvíslegu 'félagsstarfi í byggðariagi sínu. Hann var m.a. einn af stofn- endum Lionsklúbbs Patreks- fjarðar og Sjáifstæðisféiagsins „SkjaMar" á Patreksfirði og átti sæti í stjóm þess um iangt árabil. Þá starfaði hann mikið í Leikfélagi Patreksfjarðar og um iangt skeið var ekki svo upp- fært leikrit á staðnum, að hann væri ekki með, enda afbragðs leikari. Ottó var mikið vaimenni, sem ánaegjulegt var að kynnast, Hann hafði næmt auga fyrir hinu broslega í tilverunni og var manna skemmtilegastur í viðræðum. Alltaf var jafn ánægjulegt að hitta hann og spjalla við hann. Hnyttin tilsvör hans og bros augna hans gleym- ast seint. l>au sögðu sína sögu um greindan og góðan dreng, sem öllum vi'ldi vel. Ottó Guðjónsson var tvíkvænt ur. Fyrri konu sína Torfeyju Hafliðadóttur frá Isafirði missti hann eftir skamma sambúð. Einkabam þeirra er Hafliði, bakarameistari á Patreksfirði. Eftiriifandi konu sinni, Guðrúnu Magnúsdóttur, frá Innri-Bakka I Tálknafirði, kvænt ist Ottó árið 1929. Guðrún, sem er mikifliæf og glaðleg kona bjó manni sínum óvenju vistlegt heimili, þar sem öllum var gott að koma. í henni átti hann traustan og samboðinn lífsförunaut. Þeim Guðrúnu og Ottó varð ekki bama auðið. En þau ólu upp fóstuTdóttur Jónu Magnúsdóttur, sem lézt árið 1953. Tóku þau þá barn hennar, Guðrúnu Jónu Jónsdóttur, að sér og ólu upp, sem fóstur- dóttur. Með Ottó Guðjónssyni er merkur og minnisstæður maður genginn. Hann var mi'kið vai- menni, sem setti svip á byggða- lag sitt, og er nú sárt saknað af öllum sem höfðu af honum kynni. Slíkra manna er ijúft að minnast. Ég og fjölskylda mín vottum aðstandendum hans inni lega samúð við fráfall hans. Asiierg Sigurðsson. Allt á sama Stað laugaveg 118-a'mi 22240 EGILL VILHJÁLMSSON HE RADIAL „MICHELIN gerir muninn Atvinnubifreiðastjórar fullyrða að Michelin radial hjólbarðar endist allt að helmingi lengur en venjulegir hjólbarðar. Tilkynning frá Tillögunefnd um hollustu- hœtti í fiskiðnaði INNFLYTJENDUR - FRAMLEIÐENDUR VERKTAKAR Á vegum Tiliögunefndarinnar er nú hafin gagnasöfnun um fáanleg efni, þjón- ustu og tæki til samræmingar á fyrir- huguðum framkvæmdum varðandi víðtækar umbætur í íslenzkum freðfisk- iðnaði, sem væntanlega verða gerðar á næstu árum. Óskað er eftir Olíumöl, malbikun, steinsteypu og um ýmsa rykbindingu umhverfis frystihús. Frágang bygginganna sjálfra, úti og inni, svo sem um gerð gólfa, veggja og lofta, glugga og hurða, lýsingar og raflagna, Hér er um aðgerðir að ræða, sem eru nauðsynlegar vegna sivaxandi krafa inmanlands og erlendis frá um aukið hreinlæti og bættar vinnuaðferðir við framleiðslu fiskafurða. Um þær kröfur, sem væntanlega verða gerðar, vísast til reglugerðar um eftirlit og mat á ferskum fiski frá 20. marz gögnum um: hitunar og loftræstingar, vatnslagna, holræsa og niðurfalla í gólfum. Tæki og búnað í salerni ,búningsherbergi, fatageymslur, vinnslusali og önnur rými frystihúsa. Gagnasöfnun þessi nær einnig 1970. Einnig vísast í Handbók fyrir frysti- hús, sem gefin er út af Tillögunefnd um hollustuhætti í fiskiðnaði að tilhlutan sjávarútvegsráðuneytisins í nóvember 1970. Æskilegt er, að sem flestir framleiðendur, innflytjendur og verktakar, sem hér geta átt hlut að máli, sendi skriflegar upp- lýsingar, sem málið varða, til nefndarinnar. yfir búnað og tæki, sem varða rekstur frystihúsa, svo sem flutningstæki, færibönd, ílát undir hráefni, fiskþvottatæki, vinnsluvélar ýmiss konar, svo og áhöld og efni til þrifa almennt. Ýtarlegar upplýsingar um verð og notagildi vörunnar ásamt sýnishornum fylgi með innsendum gögnum, eftir því sem kostur er á. Gögn skal merkja: Verkfræðingur Tillögunefndar um hollustuhætti í fiskiðnaði Þórir Hilmarsson co/ Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins Skúlagötu 4, Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.