Morgunblaðið - 23.07.1971, Page 16

Morgunblaðið - 23.07.1971, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ 1971 SNriQðWiMfifrtfr Útgafandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvaamdastjóri Haraidur Sveinsson. Rilatjórar Matthías Johannessen. Eyjólfur Konréð Jónsson. Aðstoðarritstjóri Styrmir Gunnarsson. Ritatjómarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn og afgreiðsla Aðalstrœti 6, simi 10-100 Augiýsingar Aðalstrœti 6, sími 22-4-80. Atkriftargjald 196,00 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 12,00 kr. eintakið. NÚ Á AÐ EYÐA VARASJÓÐUNUM að vakti þegar athygli, er stefnuyfirlýsing ríkis- stjómarinnar var birt, að þar er gert ráð fyrir verulegum útgjöldum til framkvæmda og félagsilegra þátta í þjóð- félaginu. Hitt vakti þó raunar enn meiri athygli, að í engu tilviki hefur ríkisstjórnin boðað ráðstafanir til fjáröfl- unar í þessu skyni. Viðreisn- arstjórnin skildi þannig við, að hin nýja ríkisstjórn Ólafs Jóhannessonar getur þegar í stað ákveðið að verja um það bil 320 milljónum króna úr ríkissjóði til áframhald- andi niðurgreiðslna vegna verðstöðvunar og tafarlausr- ar hækkunar á bótum al- mannatrygginga, sem upp- haflega voru fyrirhugaðar um næstu áramót. Þó að þessar aðgerðir beri vott um mjög góðan hag þjóðarinnar í atvinnu- og efnahagsmálum, er þegar ljóst, að ýmsar fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar geta haft mjög alvarlegar afleiðingar í för með sér og raunar kippt stoðum imdan áframhaldandi grósku í þjóðfélaginu. Þannig verður að telja það mjög var- hugaverðar ráðstafanir að ganga á ýmis konar vara- sjóði, sem komið hefur verið upp á undanförmun árum. Ljóst er, að nú á að ganga á þessa sjóði til þess að koma ýmsum vinsælum ráðstöfun- um fram í einni skyndingu. Þegar til lengdar lætur á þessi stefna eftir að koma ríkisstjórninni í koll, en mun þó sennilega koma þyngst niður á láglaunafólki í land- inu. Ríkisstjórnin hefur nú að- eins setið við völd í rúmlega viku, en hefur þegar gefið út bráðabirgðalög, þar sem verulega er gengið á einn slíkan varasjóð, Verðjöfnun- arsjóð fiskiðnaðarins, í þeim tilgangi að bæta kjör sjó- manna. Engir aðilar munu leggjast gegn kjarabótum sjómanna, en hitt er furðu- legt að nota varasjóð sjó- mannanna sjálfra til þess að standa undir þessum „kjara- bótum“. Verðjöfnunarsjóði fiskiðn- aðarins var komið á fót til þess að skjóta stoðum undir rekstrargnmdvöll útgerðar- innar á erfiðleikaárunum 1967 til 1969. Þegar það gerð- ist hvort tveggja í senn á þessum árum, að verðlag á fiskafurðum féll stórlega á erlendum mörkuðum og afli minnkaði til mikilla muna, voru stjórnvöld gagnrýnd fyrir að hafa ekki stuðlað að nægilegum spamaði á góðær- istímabilinu á undan. Verð- jöfnunarsjóðnum var þá komið á fót og hann á að standa undir rekstrargrund- velli útgerðarinnar og tryggja afkomu sjómanna, þrátt fyrir verðsveiflur, sem eru mjÖg tíðar í þessari at- vinnugrein. Það er svo eitt af fyrstu verkum nýrrar ríkisstjórnar að skerða þennan sjóð og draga verulega úr möguleik- um þess, að hann geti gegnt sínu hlutverki, ef verðfall yrði. Það er augljós stefna ríkisstjómarinnar að slá upp veizlu í þjóðarbúinu og út- deila öllum tiltækum föngum þegar í stað, án þess að huga að framtíðinini. Engum dylst, að ráðstafanir af þessu tagi geta verið mjög vinsælar um stundarsakir meðan allt leik- ur í lyndi og enginn sérstak- ur efnahagsvandi steðjar að. En það mun þó ekki þykja vænlegt að hyggja ekki að framtíðinni. og sólunda vara- sjóðum í góðæri. Það er því eðlilegt, að nokkurn ugg setji að fólkinu í landinu, þegar þessi stefna ríkisstjórn- arinnar er brotin til mergjar. Stóraukin umsvif sovézkra herflugvéla Oá þáttur í stefnuyfirlýsingu ^ ríkisstjórnarinnar, þar sem lagt er til, að íslendingar hætti þátttöku í sameigin- legum vörnum bandalags- ríkja sinna í Evrópu og Ameríku, hefur stuðlað að auknum umræðum um varn- arþörfina. Ljóst er t.a.m., að á Norðurlöndum ríkir vem- legur uggur vegna fyrirætl- ana íslenzku ríkisstjórnarinn- ar um að hætta þátttöku í þessu vamarsamstarfi. Stór auknar heræfingar og hern- aðartilburðir Sovétríkjanna á Norður-Atlantshafi valda því, að óvarlegt þykir að slaka á því varnarstarfi, sem haldið hefur verið uppi til þessa. Á árabilinu frá 1963 til 1970 hefur ferðum sovézkra her- flugvéla í nánd við ísland fjölgað úr 17 í 300. Þannig hafa sovézku herflugvélarnar að jafnaði komið sex sinnum í viku hverri í nánd við loft- helgi íslands. Fyrir skömmu efndi sovézki flotinn til um- áL.<& VŒJ UTAN ÚR HEIMI Hassan konungur og byltingar- tilraunin í Marokkó Eftir Robert Stephens Hassan konungrur II. í Mar- okkó, sem nú hefur tryggt völd sín á ný eftir misheppn- aða bylting'artilraun í land- inu, hefiu- stjórnað riki sínu í 10 ár. Faðir hans, Mohammed V., var fyrst soldán og síðar kon ungur þegar Maroklkó hlaut fullt sjálfstæði árið 1955 — en landið var þar áður franskt vemdarríki. Mo harnmed hafði áunnið sér hylli og fýlgi landsmanna með baráttu sinni fyrir sjálf- stæði landsins. Hassan konungur hélt í fyrstu áfram þeirri stefnu föður síns að stj'órna persónu lega og í samráði við þá stjómmálaflokka, sem hentuðu hverju sinni. Hann naut hins vegar ekki sömu virðingar og farðirinn, og hallaðist því æ meir að ein- ræðisstjóm jafnframt þvi sem hann beitti innanríkis- ráðuneytinu til að bæla niður andstöðu stjórnmálaflokik- anna. 1 júií 1963 lét Hassan kon- ungur handtaka helztu leið toga vinstrisinnaða stjórnar andstöðuflokksins UNFP fyr ir meint samsæri. Margir ieið- toganna voru dæmdir til dauða eða langrar fangelsis- vistar, en seinna náðaðir. Einn leiðtoga UNFP, Mehdi ben Barka, hvarf i Paris í október 1965. Er talið að leynilögregla Marokkó hafi rænt honum og jafnvel myrt hann. Hin tvö pólitisku öflin i Marokkó, Istiqal eða fullveldisfloikkurínn, sem er ihaldssinnaður þjóðemis- flokkur, og UMT eða alþýðu samtökin, hafa skipzt á að styðja konungsstjórnina eða vera henni andvig. í marz 1965 —■ eftir að efna hagsörðugieikar höfðu leitt af sér óeirðir í Casablanca, rauf konungur þingdð og tók sér sjáifur hlutverk forsætis- ráðherra. Hefur hann far- ið með það embætti sið- an. Helzta vopn hans er innanríkisráðuneytið und ir stjórn Mohameds Qufkirs hershöfðingja, sem verið hef- ur innanríkiisráaherra frá ár- inu 1964. Er Oufkir talinn valdamesti ráðherra stjórn arinnar. Einnig byggjast völd konungs á hliðholl um hershöfðinigj-um og sveita- stjórnum, sem hann hefur skipað. Samkrvæmt fréttum af bylt- ingartiirauninni í Marokkó á laugardag, virðist hún hafa margt sameiginlegt með bylt- ingunni í Líbýu í sepfcember 1969, þegar róttækir herfor- ingjar ste-yptu Idris Sen ussi konungi. Þá er það stað- reynd að Líbýustjórn var helzt til fljót á sér að lýsa yfir stuðningi við uppreisnar- menn. Hassan konungur hefur sætt gagnrýni róttækra afla bæði í heim-alandi sínu og öðrum Arabaríkjum fyrir ut- anrikisstefnu sina. Þótt Mar- Hassan konungur Hussein Jórdaníukonungur okkó hafi haldið nánu sambandi við Frakkland hef ur Hassan — eins og Bourgu- iba forseti Túnis — frekar leitað ttí Bandarfkjanna eftir stuðningi, jafnframt því sem hann hefur opinberlega lýst yfir hluitleysii í aiþjóðamálum. Hefur hann reynt að forðast afskipti af stjórnmáiuim ann- arra Arabaríkja, og á vettvangi Arababandalags- ins hefur hann verið í and- stöðu við róttækani Araba rikin — Egyptaland, Alsír, Sýrland, Ira-k, Súdan og Lí býu — sem eru sósíölsk lýð- veldi er treysta frekar á að- stoð frá Sovétrikjunum en Bandarikjunum. Kæmist sams konar bylt- ingarstjórn -ti‘1 valda í Mar- okkó og í Alsír eða Egypta- landi, fæli hún i sér frekari útbreiðslu sovézkra áhrifa við sunnanvert Miðjarðarhaf, og stæði þá aðeins Túnis ef-t ir af fyrri frönsku ríkjunum i Norður-Afriku með yf- irlýsta hlutleysisstefnu, sem þó er hliðholl vestræna heim inum. Bátaaf linn heldur minni — á fyrri helmingi ársins Síld, rækja, harpa og humar meiri IIEILDARBOLFISKAFLI bát- anna frá 1. janúar til 1. júllí var 247.538 lestir og heldur minni en á sama tíma í fyrra. Þá höfðu aflazt i júnilok 283.059 lestir. Hetídarafli báta á sivæðinu frá Hornafirði til Stykkishólms var á fyrri helmingi ársins 178.775 lestir á móti 210.165 lesfcum á sama tíma í fyrra. Heildarafli fangsmikilla heræfinga á haf- svæðinu milli Noregs og ís- lands. Engum dylst því, að Sovétríkin hafa mjög aukið hernaðarumsvif sín á þessu svæði. Eins og aðrar þjóðir hljóta íslendingar því að vera vel á verði gagnvart þessari þróun. Framhjá þess- um staðreyndum er ekki unnt að líta, þegar ákvarðan- ir eru teknar um varnir ís- lands. báta á Norðurlandi var 23.165 lestir fyrstu 6 mánuðina á móti 20.289 lestu-m á sama tima í fyrra. Afli báta á Ausfcurlandi var á þessum tíma 16.864 í ár, en í fyrra 15.571 lest. Og afli báta á Vestfjörðum var nú 27.230 lestir á móti 33.569 lestum á sama tima í fyrra. Samtals er affli bátanna 247.435 lestir frá 1. janúar til 1. júlí í ár, á móti 283.059 lestum í fyrra. Á þessum tíma lönduðu tog- aramir 26.800 lestum innanlands, sem er héldur meira en í fyrra. Þá var landað 25.018 lesfcum fyrsfcu 6 mánuði ársins. En er- lendis lönduðu togarnir 7.207 lest um í ár, sem er nærri þrisvar sinnum minna en á sama tima í fyrra, þá 21.113 lestir. Þessa fyrstu sex mánuði árs- ins var sildaraflinn 12.562 lestir á móiti 7.123 lestum í fyrra og mestu landað erfendis. Loðnuaflinn nam 182 þúsund lesbum fyrstu sex máiniuði ársins á móti 191 þúsund lesifcum í fyrra. Rækjuaflinn var i ár á sama tíma 3329 lestir á móti 2659 í fyrra, hörpudisikaflinn í ár var 1658 lestir fyrstu sex mánuðina, en nær enginn í fyrra, eða 163 lestir og humarinn var 2375 lest- ir fyrri hluta ársins, en var 1253 lestir í fyrra. Hér er alls staðar miðað við óslægðan fisk og óslitinn h-umar. Gáfu Hringnum 300 þús. kr. 1 TILEFNI af 85 ára afmasli Landsbankans afhentu banka- stjórar og formaður bankaráðs formanni kvenfélagsins Hrings- ins, Ragnheiði Einarsdóttur, 300 þúsund króna gjöf til Barnaspít alasjóðsins. Eru Hringskonur ákaflega þakklátar fyrir þetta rausnar- lega framlag og sagði formaður Hringsins Mbl. að slík velvild stofnana og einstaklinga væri ákaflega mikil hvatning og upp- örvun fyrir Hringskonur í starfi þeirra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.